Dagur - 22.08.1998, Side 9

Dagur - 22.08.1998, Side 9
LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1998 - 9 w sé háttvirtur neytsndi á íslandi. umir,“ sagði Gunnar. Hann segir að klukkubúðirnar hafi ekki borið ví- urnar í þá. Þeir séu of litlir. Sjötíu ára verslunarafmæli staðarins verð- ur haldið í október. Ellefu ellefu bætir við sig Viðskipti 11-11 eru nokkur. Líklega er fyrirtækið með um 3-4% mat- vöruveltunnar í Reykjavík og ná- grenni. Fyrirtækið rekur í dag 8 búðir, flestar litlar, en vel staðsettar. I næsta mánuði kemur 11-11 búð í Hafnarfirði og í Grafarvogi í októ- ber. Þá stendur til að stofna tvær til viðbótar fyrir áramót. Eins og í 10- II eru innkaupin yfirleitt smá hjá hverjum og einum, en kvöldopnun- in kemur sér vel fyrir neytendur og vinsældir þessara búða miklar. Verslanir undir merkinu Þín verslun eru óðum að hverfa af markaðnum og koma lítt við sögu. Verslun olíufélaganna með matvöru er Iítil. FRÉTTIR Skynj ar ekki uinræðuþörfuia N áttiíruveriiclíirsaiii- tök gagnrýna Lands- virkjun. „Fundarboð Landsvirkjunar bendir því miður ekki til að fyrir- tækið skynji nauðsyn opinnar, lýðræðislegrar umræðu um þetta mikilvæga hagsmunamál þjóðar- innar allrar. Sjái Landsvirkjun ekki sóma sinn í að verða við kröfum almennings um mat á umhverfisáhrifum Fljótsdals- virkjunar hlýtur að koma til kasta Alþingis að sjá til þess að virkjunarleyfið verði afturkall- að,“ segir í yfirlýsingu frá Félagi um verndun bálendis Austur- lands, Náttúruverndarsamtök- um Austurlands og Náttúru- verndarsamtökum Islands. Tilefnið er fundur sem stjórn Landsvirkjunar heldur í dag fyr- ir austan með ýmsum aðilum sem láta sig virkjanir á Austur- Iandi varða. Landvirkjun hefur leyfi til að virkja á Fljótsdal og er ekki skylt að vinna mat á um- hverfisáhrifum þess. Stjórn fyr- irtækisins hefur eigi að síður ákveðið að gera það og var boð- að til fundarins fyrir austan í dag til þess gefa mönnum tækifæri á að koma á framfæri athuga- semdum og ábendingum. Síðar mun stjórnin taka ákvörðun um hvort matsskýrslan verður form- Iega Iögð fram til Skipulags- stofnunar og virkjanaáformin auglýst að nýju. Náttúruverndarsamtökin eiga fulltrúa á fundinum í dag en sjá ástæðu til að ítreka kröfu sína um Iögformlegt mat. Þau eru ekki sátt við „einkaumhverfis- mat“ Landsvirkjunar og telja að með því sé fyrirtækið að koma í veg fyrir að almenningur geti haft áhrif á virkjanaáformin. I yfirlýsingu sinni benda þau á að verið sé að endurskoða lögin um umhverfismat og búast megi við að undanþáguatkvæði það sem Landsvirkjun skýli sér á bak við verði fellt niður í samræmi við nútíma kröfur um náttúru- vernd. — VJ H-------------------------m SÍBS fólk! Hittumst á Hótel Sögu í dag SÍBS og Norrænu hjarta- og lungna- samtökin (Nordiska Hjárt- och Lunghandi- kappades Förbund, NHL) efna til hátíðarsamveru í Súlnasal Hótel Sögu í dag kl. 13:45. Tilefnið er 50 ára afmæli NHL (stofnað á Reykjalundi 1948) og 60 ára afmæli SÍBS (stofnað á Vífils- stöðum 1938). Á dagskrá er m.a. ávarp Forseta íslands, stutt erindi tengd verkefnum samtak- anna, tónlist o.fl. - Kaffiveitingar. Stjórn SÍBS S______________________Œ Þjóðminjasafn íslands Styrkir til byggðasafna Þjóðminjaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki til byggðasafna á árinu 1999. Veittir eru styrkir til viðurkenndra opinberra byggðasafna, sem nema hálfum launum forstöðumanns, svo og til sérverkefna safn- anna, einkum þeirra sem lúta að söfnun og varðveislu gripa, sýn- ingum og rannsóknum. Upphæð og fjöldi styrkja fer eftir fjárveitingu á fjárlögum. Sækja skal um á eyðublöðum sem fást í Þjóðminjasafni (slands. Umsóknir sendist þjóðminjaverði, Þjóðminjasafni (slands, Suður- götu 41, 101 Reykjavík, fyrir 15. september nk. Þjóðminjavörður. Heilsugæslustöð Mosfellsumdæmis Heilsugæslulæknar Staða heilsugæslulæknis við Heilsugæsluna í Mosfellsumdæmi er laus til umsóknar. Stöðin er ný, glæsileg og vel búin tækjum. Stöðin þjónar dreifbýli Þingvallahrepps, Kjalar- og Kjósarhepp auk Mosfellsbæjar. Umsóknir skulu sendar stjórn Heilsugæslu Mosfellsumdæmis, Þverholti 2, Kjarnanum 270 Mosfellsbæ. Nánari upplýsingar veita Þengill Oddsson og Elísabet Gísladóttir í síma 510 0700. Skotfélag Akraness Opnunartímar ó skotsvæði: Þriðjudagar: frá kl. 18.00 til 21.00 Fimmtudagar: frá kl. 18.00 til 21.00 Laugardagar: frákl. 11.00 til 16.00 l Verð er kr. 400 hringurinn fyrir félagsmenn og I kr. 600 fyrir utanfélagsmenn. I Hópar og félagasamtök geta pantað tíma í j síma:431 2067, 431 2657 og 891 9491 Geymið auglýsinguna EcreArbíé Stærsta opnunin i Bandaríkjunum á þessu sumri. Hér er á ferðinni einstök og ógley- manleg skemmtun. * Komið og sjáið stærsta fyrirbæri kvikmyndasögun- nar, G0DZILLA í öllu sinu veldi B.i. 10 ára. http://WWW.NET.IS/BORGARBIO fReykjavíkurborg Skrifstofa borgarsjóra AUGLÝSING UM LENGDAN AFGREIÐSLUTÍMA VÍNVEITINGAHÚSA Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum vínveit- ingahúsa í borginni um lengingu á afgreiðslutíma áfengis. Ætlunin er að veita tilteknum fjöida veit- ingastaða heimild til lengri afgreiðslutíma en verið hefur. Er þar bæði um að ræða að heimilað verði að hefja afgreiðslu fyrr og jafnframt að Ijúka afgreiðlu síðar en verið hefur. Veitt verða leyfi til eins árs í tilraunaskyni frá og með hausti komanda. Þeir þættir sem m.a. verða hafðir til hliðsjónar við veitingu leyfanna eru: - fjöldi íbúða í 50 metra radíus frá staðnum - umsögn lögreglu um reksturinn - tegund veitingastaðar og svipmót - hvort um er að ræða miðborgarsvæði, iðnaðar- hverfi eða íbúðarhverfi Umsóknir skulu tilgreina hvort um ræðir kaffihús, matsölustað, bjórstofu eða skemmtistað. Umsóknir er tilgreini nafn staðar, leyfishafa og rekstraraðila, aðsetur, ásamt staðfestingum á greiðslum opinberra gjalda og lífeyrissjóðsgjalda auk afgreiðslutíma þess sem óskað er eftir skulu sendar skrifstofustjóra borgarstjóra, Ráðhúsí Reykjavíkur fyrir 1. september nk. Reykjavík, 20. ágúst 1998, skrifstofa borgarstjóra.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.