Dagur - 22.08.1998, Blaðsíða 10
IV LAUGARDAGUR 2~2.ÁGVST1998
Dmjut
FRÉTTIR
Beriuii
alltland
Þeir sem hafa áhuga á
berjatínslu ættu að
halda sig á sunnan- og
vestanverðu landinu.
Annars staðar hefur
verið of kalt í sumar
til þess að von sé á
góðri berjasprettu.
Nú er berjatínslutíminn að ganga
í garð og sér þess víða stað.
Þannig hefur Hjördís Brodda-
dóttir forstöðumaður Leiðbein-
ingastöðvar heimilanna ekki haft
undan að svara spurningum um
saft- og sultugerð undanfarna
viku. „Það eru allir í þessu,“ seg-
ir hún. „Fólk er að tína krækiber
og bláber og það er með ribsber í
görðunum heima hjá sér.“
Berjastaðímir leyndarmál
Það er meira en að segja það að
fá fólk til að segja frá góðum
berjastöðum. Margir virðast Iúra
á slíkri vitneskju eins og ormur á
gulli. Góður beijastaður er nefni-
lega ekki lengur góður ef of
margir vita af honum.
Matthías Lýðsson bóndi á
Húsavík á Ströndum er í þessum
hópi og segist heldur ekki leyfa
aðkomufólki að tína í sínu landi,
enda hafi börnin forgang. Hins
vegar bendir hann á að sniðugt
sé fyrir fólk að afla sér upplýsinga
á hótelum, gististöðum og upp-
lýsingamiðstöðum ferðamanna.
Matthías segir berjasprettuna
ekki vera góða í ár, en skiptir
henni þó niður eftir berjategund-
um. „Þetta er dapurt krækiberja-
ár, gott bláberjaár og aðalblá-
berjaár í meðallagi,“ segir hann.
Matthías segir að til séu tvær
tegundir aðalbláberja, önnur
himinblá en hin svarblá. Það séu
bragðsterkustu og bestu berin og
þeir sem aldir séu upp við þau Iíti
ekki við öðru. Hann fræðir blaða-
mann um að haustin ráði því
hversu mikið verði af berjum
sumarið eftir. „Ef haustin eru
mild myndast mikið af blómvís-
um. Svo fer það eftir sumrinu
hversu vel þessum blómvísum
gengur að komast á legg og
mynda ber.“ Að lokum segir
Matthías beijasprettuna upplagt
mál til að rífast um. A henni hafi
allir skoðun, en enginn vit.
Gott í Grúnsnesinu
Bryndís Böðvarsdóttir á Búrfelli í
Grímsnesi segir að það sem hún
sé búin að sjá í næsta nágrenni,
þá sé beijasprettan mjög góð.
„Það er ótrúlega mikið af blábeij-
um. Þau eru smá, en það er mik-
ið af þeim.“ Bryndís hafði farið
inn í Þjórsárdal, en þar voru blá-
berin öll græn ennþá. Aðspurð
sagðist hún lítið gá að krækibeij-
um, en taldi að fyrst að bláberin
væru svona efnileg hlytu kræki-
berin að vera góð líka.
A Grímsnesinu er þéttbýlt af
bæði bóndabýlum og einnig af
sumarbústöðum. Ef fólk vill tína
ber í landi einhvers bóndans þarf
það auðvitað að spyija um leyfi.
Bryndís taldi að ef fólk gerði það
væri því yfirleitt vel tekið, enda
væri fólk yfirleitt að tína upp í sig
og ekki um mikið magn að ræða.
Vopnftrðingar enn með vetr-
arkvefið
Kristín Brynjarsdóttir á Önguls-
stöðum III í Eyjafjarðarsveit, seg-
ir beijasprettu vera minni en ver-
ið hefur undanfarin ár. Þá tekur
hún mið af þvf sem hún hefur
séð í sínu næsta nágrenni.
„Krækiberin eru minni en verið
hefur og bláberin eiga töluvert
Iangt í Iand,“ segir Kristín og
bætir við að enginn, sem viti
hvernig tíðarfarið hefur verið fyr-
Á berjasprettuimi
hafa allir skoðun, en
enginn vit, segir
bóndi á Ströndum.
ir norðan, þurfi að velkjast í vafa
um ástæðuna.
I svæðisútvarpinu á Austur-
landi kom nýlega fram að mjög
Iélegar horfur væru um beija-
sprettu. Þar töldu menn þó að á
einstaka stað væru almennilegar
þúfur, sem ekki var gefið upp
hvar væri að finna!
Kristjana Björnsdóttir á Borg-
arfirði eystra segir afar Iélega
berjasprettu hafa verið á svæð-
inu. Það sé dálítið af grænjöxl-
um, en ekkert til að tína. Agústa
Þorkelsdóttir á Refsstað hafði lit-
ið á ber í friðlandi fyrir ofan bæ-
inn sinn og sá þar nokkur kræki-
ber og þau óþroskuð. Hún bætir
við: „Vopnfirðingar eru ekkert
farnir að ganga til berja, því þeir
eru einfaldlega með vetrarkvefið
ennþá. Hér er komið haust og
sumarið kom aldrei."
Kerlingabækumar áreiðan-
legar
Sigmar B. Hauksson lífskúnstner
og matarlistarmaður fylgist vel
með berjasprettunni. Hann
kann að afla sér upplýsinga um
mikilvæg málefni eins og berja-
sprettu og segist tala við vísar
kerlingar. „Eg hef trú á að kerl-
ingabækur séu mjög áreiðanleg-
ar,“ segir hann.
Sigmars telur sprettuna vera
mjög misjafna á Norður- og Aust-
urlandi. Suðurlandið sé sæmi-
legt, víða nokkuð gott. ltA Þing-
vallasvæðinu og Reykjanesi er
víða sæmileg spretta þar sem sól-
ar hefur notið," segir hann.
„Menn þurfa að hafa meira íyrir
því að finna ber núna en oft
áður,“ segir Sigmar og segir að í
heildina megi telja þetta meðalár.
Hann bætti því við að seinustu
dagarnir í ágúst skiptu verulegu
máli fyrir þroska berjanna. „Þeg-
ar fer að dimma á nóttinni taka
berin verulegan kipp. Þau þurfa
hæfilega blöndu af raka og sól.“
Máttur oliufélaganna mllnll
Breytingar á vöru-
gjaldi og bifreiða-
gjaldi þykja hafa kom-
ið misjafnlega niöiir á
mönnum, en hægt
hefði verið að koma í
veg fyrir þann vanda
ef breytingar á olíu-
gjaldi hefðu verið
samþykktar.
Lagabreyting sem felur í sér
lækkun á vörugjaldi og breytingu
á bifreiðagjaldi, hefur valdið titr-
ingi meðal vinnuvélaeigenda og
vörubifreiðastjóra. Breytingarnar
þykja koma misjafnlega niður á
mönnum, en ætlunin er að þær
komi út á núlli fyrir ríkissjóð.
Verst hafa breytingarnar komið
niður á eigendum kranabíla, sem
geta verið mjög
þungir. Há-
marksbifreiða-
gjald hefur verið
afnumið, sem
kemur illa niður
á eigendum
þyngstu bílanna.
Vildu fella niö-
ux vörugjaldið
Arni Jóhanns-
son, fram-
kvæmdastjóri
Félags vinnu-
vélaeigenda, seg-
ir þessi lög hafa
verið „sett í kjöl-
farið á vinnu sem stóð í allan vet-
ur út af endurskoðun á olíu-
gjaldi. Það var fellt illu heilli og
þetta kom í staðinn."
Þú hefðir viljað fú þessa endur-
skoðun ú olíugjaldinu?
„Já, og það vildu allir sem
stunda bílaútgerð. Aðeins olíufé-
lögin voru á móti
því enda leiða
lög um olíugjald
til minni olíu-
notkunar. Okkar
tillögur gengu út
á það að fella
niður vörugjald-
ið, en olíugjaldið
hefði gefið ríkis-
sjóði tekjur í
staðinn." Arni
segir að það
hefði verið
tvenns konar;
gjaldfijáls olía í
traktorsgröfum
og vinnuvélum
sem ekki borga þungaskattinn,
en aðrir hefðu greitt olíugjald.
En hafa olíufélögin þú eitthvað
sterkari stöðu gagnvart löggjafan-
um en þið?
„Það er auðvelt að álykta svo,
þeirra máttur er náttúrulega mik-
ill. Setning olíugjalds fellur að al-
þjóðlegri þróun og er í takt við þá
umhverfishugsun sem er að
verða ríkjandi. En hér uppi á Is-
landi hugsa menn ekki svoleiðis."
Saimnála um megmstefnu
Arni er þó ekki á móti Iagasetn-
ingunni sem slíkri og segir kostn-
aðarauka kranaeigenda afmarkað
vandamál. „Þetta eru mistök í
lagasetningunni og verður örugg-
lega lagað,“ segir hann og bætir
því við að félagið sé fylgjandi því
að skattlagning sé lögð á rekstur
frekar en fjárfestingu, eins og
þarna er gert.
Vilhjálmur Egilsson, formaður
efnahags- og viðskiptanefndar
Alþingis, segir um þetta: „Mark-
miðið með þessum breytingum
var að þetta kæmi nokkurn veg-
inn slétt út. Ef að þetta kemur
sérstaklega illa út fyrir einstaka
aðila þá þarf að fara í gegnum
það, en það gerist ekkert í því fyrr
en þingið kemur saman." - is
Árni Jóhannsson hjá Félagi vinnu-
vélaeigenda segir olíufélögin hafa
komið í veg fyrir endurskoðun
olíugjalds.
Halldór sextugur á mánudag og
býður í hóf.
60 ára
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra verður sextugur á mánudag
og heldur upp á með pompi og
pragt í anddyri íþróttahallarinnar
á Akureyri. Opið hús verður frá
klukkan 18-22 og allir velkomnir.
Ekki er að efa að fjölmargir vilja
heilsa upp á kempuna og munu
margir Ieggja land undir fót því
ekki er ætlunin að halda neitt
annað boð „sunnan heiða“.
Sjú viðtal við Halldór hls. 18.