Dagur - 05.09.1998, Page 2
2 — LAUGARDAGUR S .s'íPTÉMBÉR 1998
F R F T TIR
Næstum oll þjóðin
þ j áist af verkjum
Langvinnir útbreiddir
verkir í skrokknum eru
margfalt algengari í ís-
lendingum en Dönum og
vefjagigt um tífalt algeng-
ari.
Ótrúlega fáir íslendingar eru verkja-
■ lausír eða einungis tæp 14 prósent
samkvæmt grein í Læknablaðinu þar
sem sagt er frá niðurstöðum könnunar
á því hvað margir þjáist af vefjagigt og
langvinnum útbreiddum verkjum í
stoðkerfi líkamans. Voru 2.400 manns,
18-80 ára, spurðir hvort þeir hafi á síð-
ata ári haft verki í einhverjum af níu
mismunadi líkamshlutum (t.d. hálsi,
öxlum, baki, mjöðmum, hnjám og víð-
ar) og hvort verkirnir hafi þá verið dag-
legir og langvinnir (fleiri en 30 verkja-
r dagar á árinu), skammvinnir eða
kannski engir. I Ijós kom að dreifðir
stoðkerfisverkir eru mjög algengir
meðal kvenna á Islandi og aukast gríð-
arlega eftir að þær komast á fertugs-
^ aldurinn. Mun færri karlar þjást af
j slæmum verkjum og þá oftast miklu
í síðar á ævinni. Margt fólk hafði verið
r illa haldið af verkjum í 10 ár eða meir.
f
i Ótrúlega fáir verkjalausir
í Niðurstöður gefa til kynna að að
f minnsta kosti 10 prósent kvenna þjáist
af vefjagigt en einungis rúmlega 1 pró-
sent karla. Yfir fjórðungur kvenna (27
I prósent) þjáðist af Iangvinnum út-
breiddum verkjum í stoðkerfi líkamans
, (til dæmis í hálsi, öxlum, baki, mjöðm-
f um, hnjám, úlnliðum og/eða annars
staðar í stoðkerfinu) en um helmingi
lægra hlutfall karla. Þessi hlutföll voru
miklu hærri meðal kvenna yfir þrítugt
og karla yfír fímmtugt. Hér er átt við:
daglega verki í þrem eða fleiri líkams-
hlutum, bæði vinstra og hægra megin
og í efri og neðri hluta líkamans. Þeirra
sem ekki voru svona illa haldnir þjáð-
ust samt flestir af verkjum; margir af
r daglegum verkjum, aðrir af langvinn-
. um verkjum en ekki útbreiddum og
enn aðrir af skammvinnum verkjum.
Einungis fáir voru verkjalausir (tæp 14
prósent) sem fyrr segir.
Tífalt algengari en í Danmðrku
Geinarhöfundar; gigtarlæknarnir
Helgi Jónsson, Arni J. Geirsson og
Helgi Birgisson, segja tíðni vefjagigtar
og langvinnra útbreiddra stoðkerfis-
verkja mjög háa á Islandi, og sérstakt
áhyggjueíhi hvað þetta sé algengt með-
al ungra kvenna. Mögulegar ástæður
telja þeir streitu og mikið vinnuálag.
Vefjagigt einkennist af dreifðum verkj-
um og stirðleika í vöðvum og vöðva-
festum, síþreytu og langvinnum svefn-
truflunum. Einhlítar skýringar á orsök-
unum hafa ekki fundist, en ýmsir hall-
ast að því að þetta sé streitusjúkdómur.
Samanburður við erlendar rannsóknir
leiðir í ljós að framangreindir verkja-
sjúkdómar eru margfalt algengari hér á
landi en víðast annars staðar, jafnvel
þrefalt til tífalt algengari en meðal
Dana. -HEI
Alltaf er verið að spá í pólitíska
framtíð Þorsteins Pálssonar, og
nú hcrma raddir í pottinum að
hann verði ekki ráðhcrra í næstu
ríkisstjóni Davíðs Oddssonar - en
sú saga er örugglega ekki komin
frá stuðningsmönnum. Á hitt
benda menn að ekki veiti af sterku
ráðherraefni á Suðurlandi í næstu kosningum,
þótt Ámi Jolmsen þræli og púli með gítarinn
þykir mörgum að hin pólitíska innistæða sé rýr,
og söngfulginn snjalli fráleitt framtíðarmaður
númer eitt í kjördæminu (sem þar með fengi
aldrei ráðherra).
Þorsteinn
Pálsson.
Annar þingmaður Suðurlands er
kominn milli tannanna og þykir
mega fara að passa sig: „Það er
ekki nokkur friður fyrir þessu hel-
víti,“ sagði pottverji í kjördæm-
inu um gítarspil Áma, og bætti
sami við að ísólfur Gylfi Pálma-
son væri komiim með sömu árát-
tu. Þetí fara nú saman stjónarþingmennimtí og
„skemmta" sem vlðast. Úr kjördæminu heyrist
að nóg sé komið menn vilji meiri pólitík og
minni söng!...
Árni
Johnsen.
Á Akureyri er framsóknarmönn-
um mikið skemmt yftí fyrtíspurn
Baldurs Dýrijörð hæjarlögmanns
um forsendur ráðningar Siðgríðar
Stefánsdóttur. Framsóknarmenn
hafa haldið því fram að um póli-
tíska ráðningu hafi verið að ræða Stefán^óttir.
og jafnvel kallað Sigríði aðstoðar-
bæjarstjóra. í potttímm er haft efttí framsókn-
armönnum að norðan að höfundur greinargerð-
arinnareigi erfitt verk iyrtí höndum að útiloka
pólitíska þáttinn úr ráðningaferlinu.
Sigríður
Línuritin sýna
ijögurra daga
veðurhorfur á
hveijum stað.
Línan sýnir
hitastig, súluritið
12 tíma úrkomu
en vindáttir og
vindstig eru
tilgreind lyrir
neðan.
Norðan og
norðaustan gola
eða kaldi.
Skýjað að mestu
norðanlands, en
öllu bjartara
syðra.
Víðast úrkomu-
laust.
Færð á vegum
Allir helstu vegir á landinu eru nú greiðfærir. Nokkuð hefur nú dregið úr
vatnavöxtum á sunnanverðu Iandinu og eru hálendisvegir, sem verið hafa ófærir
af þeim sökum að undanförnu, orðnir færir fjallabílum. Fara verður þó með gát
og kanna vöð áður en ekið er út í árnar.