Dagur - 05.09.1998, Side 4
4- LAVGARDAGUR S. SEPTEMBER 1998
FRÉTTIR
/
V
■ €
/
\
1 5-70%
AFSLÁTTUR
DAGANA
7.-12. SEPTEMBER
/\ }JÖSUWi OG
I Oh'il’U h'f*
\
Raflagnadeild
Óseyri 2
Opið mán-fös kl. 8.00-18.00,
laugard. kl. 10.00-14.00.
ótrúlegt verð!
Suzuki Wagon R+, 4x4 með
ABS bremsum
kostar aðeins
kr. 1.259.000,-
SUZUKI
AFL &
ÖRYGGI
Suzuki 4x4
BSA hf.
Laufásgötu 9 • P.O. Box 358 • 602 Akureyri
Símar: 462 6300 & 462 3809 • Fax 462 6539
V/T4RA BALENO WAGON
Sýning og reynsluakstur
laugardag og sunnudag kl. 13-17.
Nýr fjölnota bíll, Suzuki Wagon R+, 4x4
Utanríkisráðuneytið þurfti að punga út 40% meira í fyrra í sendiráð íslands
í útlöndum en það gerði árið áður og skýrist það fyrst og fremst með
auknum kostnaði vegna sendiráðsins í London.
MUljarður í
sendiráðm
Kostnaður vegna ís-
lenskra sendiráða í
útlöndum hækkaði
um 40 prósent á síð-
asta ári í rúmlega þus-
und milljónir króna.
Kostnaður utanríkisráðuneytis-
ins vegna sendiráða í útlöndum
hækkaði um 40 prósent í fyrra í
um 1.023 milljónir króna.
Hækkunin er skýrð með 216
milljóna stofnkostnaði hjá sendi-
ráðinu í London „vegna endur-
nýjunar húsnæðissamnings sem
er ígildi samnings um kaup á
húsnæði fyrir sendiráðið. Um 51
milljón var variðtil endurbóta á
sendiherrabústað í Washington.
og 28 milljóna útgjöld fylgdu
opnun sendiráðs í Helsinki og
nýrri fastanefnd sem tók til
starfa hjá Evrópuráðinu i Strass-
borg. Til byggingar sendiráðs í
Berlín fóru síðan 58 milljónir, til
viðbótar 94 milljónum árið áður.
Islensk sendiráð og fasta-
nefndir voru á 15 stöðum í fyrra.
Rekstrarkostnaður var hæstur
hjá sendiráðinu í Brussel og ESB
(81 milljón) en lægstur í Kaup-
mannahöfn (29 milljónir).
Aukið fé í þróimarmál
Þróunarmál og alþjóðastofnanir
voru annar stærsti kostnaðarlið-
ur utanríkisráðuneytisins, 714
milljónir króna, eða 29 prósent
af heildarútgjöldum ráðuneytis-
ins, samkvæmt ríkisreikningi.
Þar af voru rúmlega 370 milljón-
ir framlög til alþjóðastofnana.
Rúmlega 190 milljónir framlög
til þróunarmála og alþjóðlegs
hjálparstarfs, sem 2,6-föIduðust
frá árinu áður. Þar vógu þyngst
rúmlega 50 milljóna framlög til
þróunaraðstoðar Sameinuðu
þjóðanna og 35 milljóna aðstoð
til Palestínumanna í Israel. Ut-
gjöld Þróunarsamvinnustofnun-
ar Islands urðu síðan tæpar 150
milljónir á árinu og hækkuðu um
fjórðung milli ára.
Önnur útgjöld ráðuneytisins
eru aðallega yfirstjórn þess (480
m) og sýslumannsembættið á
Keflavíkurvelli (190 m). En
heildarútgjöld utanríkisráðu-
neytisins voru um 2.470 milljón-
ir í fyrra.
Heilbrigðiseftirlitið
athugar efnalaugar
Notkun og meðferð efnalauga
borgarinnar á hættulegum
hreinsiefnum sem þær þarfnast
fyrir starfsemina verður könnuð
af Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur
á næstu dögum. Vélakostur
þeirra verður sömuleiðis kannað-
ur með tilliti til mengunarhættu.
Vegna hættulegra efna sem not-
uð eru í efnalaugum er starfs-
leyfi þeirra bundið sérstökum
skilyrðum með tilliti til mengun-
arvama.
Erfitt hefur reynst að finna
efni sem efnalaugar gætu notað í
stað perkóretýlen, samkvæmt
upplýsingum heilbrigðiseftirlits-
ins. En Ieifar perkótretýlens,
sem er klórsamband, flokkast
sem spilliefni. Við niðurbrot þess
myndast efnasambönd sem eru
skaðleg umhverfinu. Efnið er
Iíka hættulegt heilsu manna sé
ekki varlega með það farið.
Notkun klórflúorefna (CFC),
sem áður voru notuð við hreins-
un, hefur verið bönnuð hér á
Iandi frá 1995, þar sem þau
valda eyðingu ósonlagsins.
- HEI
Springdýnur
Þaö eru framleiddar úrvals springdýnur á Akureyir í
þeim stærðum og stífleika sem viðskiptavinurinn óskar.
Norðlendingar, styrkið framleiðslu heimabyggðarinnar
og verslið við okkur.
Blindraiðn, K.T.
Oddeyrargötu 4b, sími 462 4059 og 462 3502.