Dagur - 10.09.1998, Blaðsíða 1

Dagur - 10.09.1998, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 10. september 1998 81. og 82. árgangur- 169. tölublað Keikó til Vest- þegar haiiii kemur tíl Vestmaunaeyja í dag. Eskíirdiugiir var yfLrheyrður vegna líflátshótana en síðan hreinsaður af öllum grun. Fréttamannafundur sem hald- inn var í Vestmannaeyjum í gær- kvöld leystist upp í ótal spurn- ingar um hótanir um líflát Keikós. Háhyrningurinn sem kemur í dag, hefur fengið fjórar líflátshótanir og sögðu forráða- menn Keikósamtakanna að hót- unarbréfin væru tekin mjög al- varlega. Fyllsta öryggis yrði gætt á meðan Keikó yrði geymdur í kvínni í Klettsvík. Oryggisgæsla yrði allan sólarhringinn og fæða hans grandskoðuð. Miklar um- ræður urðu um fiskfangið sem Keikó verður gefið, en sá sem hótað hefur Keikó, segist ætla að eitra mat hans. Ekki íslenskt eðli Hallur Hallsson, talsmaður Keikósamtakanna á Islandi, sagði að maður á Eskifirði hefði verið grunaður um að senda bréfin. Hann hefði verið hand- tekinn og lögreglan leitað í híbýl- um hans. Engin sönnunargögn hefðu hins vegar komið fram og Pramminn sem flytur Keikó í kvína. Ströng öryggisgæsla verður við heimiii Keikós í Klettsvíkinni. - mynd: bg hefur maðurinn verið hreinsaður af öllum grun. Umræðan um líf- látshótanirnar yfirskyggði allt annað á blaðamannafundinum og endaði með því að gripið var fram í fyrir Halli og umræðan færð á aðra braut af almanna- tengslafulltrúa Keikósamtak- anna. Ljóst var að fréttamenn- irnir, sem að langmestu leyti voru útlendir, höfðu ekki fengið jafnmiklar upplýsingar um þau fjögur hótunarbréf sem skrifuð hafa verið. „Þessar hótanir end- urspegla ekki íslenskt eðli,“ sagði Hallur. Góðar likur Annars benti allt til að áætlun myndi standa og C-17 þota með Keikó legði af stað frá Newport í nótt. Áætlað er að hvalurinn lendi í Vestmannaeyjum klukkan 10 en ef veður hamlar Iendingu mun vélin hafa aukaeldsneyti til að sveima yfir vellinum uns lag gefst. Von er á 40-50 fyrirmenn- um með Keikó, þ.á m. einum auðugasta manni heims, Craig O. McCaw. Fyrirmennin munu sitja veislu í kvöld sem Ijölmiðlar hafa ekki aðgang að. A annað hundrað fréttamenn eru komnir til Eyja og eru þeir frá flestum heimshornum þótt Bandaríkjamenn séu ráðandi. Ahugi erlendra fjölmiðla virðist þó minni en upphaflega var gert ráð fyrir. Búist hafði verið við 5- 700 fréttamönnum. — BÞ Sjá nánar um komu Keikós á bls. 8-9. mannaeyja í dag Öflug öryggisvarsla verður um Keikó Metsala á sjónvörpum Nýtt sjónvarp hefur verið keypt á tíunda hvert heimili í land- inu á fyrri helmingi ársins. „Raftækjaveislan" á fyrri helm- ingi ársins kemur að nokkru í ljós í nýjum Hagtíðindum. Nær 80% fleiri sjónvarpstæki seldust nú á tímabilinu janúar-júní en fyrir ári, eða hátt í 10 þúsund sjónvarpstæki. Það jafngildir því að tíunda hvert heimili í landinu hafi keypt nýtt sjónvarp á þessu hálfa ári og hátt í þriðjungur virðist hafa fengið sér nýtt út- varp. Rúmlega 50% fleiri kæli/frystiskápar voru seldir en í fyrra eða 4.700 og 40% fleiri þvottavélar eða 5300 á fyrri árs- helmingi. Brot af búðarverói Samanlagt innflutningsverð þvottavéla, kæliskápa og sjón- varps- og útvarpstækja jókst um nær 60 prósent milli ára, úr rúmlega 400 milljónum í 640 milljónir. Landsmenn hafa þannig á nokkurra mánaða tíma- bili aukið tækjakaup sín um mörg hundruð milljónir, þ.e. miðað við smásöluverð út úr búð. Innflutningsverð sjón- varpstækis er t.d. 26.300 kr. að meðaltaii á hafnarbakkanum (cif.), eða bara brot af búðar- verðinu. Meðalverð kæliskápa og þvottavéla var kringum 23 þús- und kr. á þessu tímabili. Hagtíð- indi sýna ekki sundurliðaðar töl- ur fyrir önnur raftæki, t.d. elda- vélar og aragrúa smátækja, þannig að „raftækjaveislan" öll hefur kostað miklu meira. — hei Sala á hlutabréfum í Landsbank- anum hófst í gær og skráði fjöldi manns sig fyrir hlut. - mynd: teitur MiMfl áhugiá hanka hréfum Mikill áhugi virðist á þvf að kaupa hlut í Landsbanka Islands en sala á bréfum í bankanum hófst í gær. „Það er óhætt að segja að það hefur gengið mjög vel og mikill fjöldi sem hefur skrifað sig fyrir bréfum," segir Halldór J. Krist- jánsson, bankastjóri Landsbank- ans, en sala á hlutabréfum í bankanum hófst í gær. Hlutafé í bankanum verður aukið um milljarð að nafnvirði og stendur almenningi til boða að kaupa 625 milljóna króna hlut á geng- inu 1,9. Hver og einn má skrá sig fyrir einni milljón króna að nafnvirði. Starfsfólk Landsbank- ans getur hins vegar keypt 325 milljóna hlut á lægra gengi og má hver starfsmaður kaupa 250 þúsund króna hlut að nafnvirði. Landsbankinn, Búnaðarbank- inn og Sparisjóðir hafa undan- farna daga boðið upp á sérstök lán til bankakaupa. Kom þægilega á óvart Halldór segir að það hafi komið þægilega á óvart hversu mikill áhuginn hafi reynst á hlut í Landsbankanum þennan fyrsta dag. Hann sagðist hins vegar ekki getað gefið upp neinar töl- ur um Ijölda áhugasamra kaup- enda, því það ætti eftir að safna því saman úr öllum útibúum bankans og víðar. „En það hefur komið í ljós að það er mikill áhugi fyrir bréfunum og má segja að það komi manni þægi- lega á óvart,“ segir Halldór. Verði spurn eftir bréfunum meiri en framboðið eins og margt bendir til verður hlutur hvers og eins skorinn niður. Það skýrist væntanlega í næstu viku. Breiðafjörð taf viðkoma í Flatey ii kl. 09:00 og 16:00 Með Baldri yfir Ferðir alla daga: Alltaf viðkome Frá Stykkishólmi kl. 09:00 og Frá Brjánslæk kl. 12:30 og 19:30 Flateyjarpakkinn á góða verðinu. Dagstund í Flatey með útsýnissiglingu Ferjan Baldur 438 1120 og 456 2020 WORLDW/DE EXPRESS EITT NÚMER AÐ MUNA 5351100

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.