Dagur - 10.09.1998, Blaðsíða 13

Dagur - 10.09.1998, Blaðsíða 13
Tkyptr FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1998 - 13 ÍÞRÓTTIR L Mörg liðin verða vanmetiii í vetur Leikmenn í atvinnumennsku koma heim og gera deildina ennþá sterkari en hún var í fyrra. í blaðinu í gær hófiun við kynningu á liðun- um sem leika í úrvals- deildinni í körfuknatt- leik og var byrjað á liðum Njarðvikinga, Skagamanna og Þórs- ara. Nútökumvið fyrir næstu þrjú lið sem eru Valur, Skalla- grímur og KR. Viilur Svali Björgvinsson er nú þjálfari Valsmanna enn eitt árið. Liðið hefur á að skipa mjög ungum leik- mönnum sem eiga svo sannarlega framtíðina fyrir sér. Einn athyglis- verðasti leikmaður liðsins er nítján ára gamall strákur sem er um tveir metrar og tíu sentimetrar á hæð. Hjörtur Þór Hjartarson heitir hann og vonandi fer svo hár Ieikmaður að banka á dyr lands- liðsins. Valsmenn munu ekki gera stórkostlega hluti í vetur hvað titla varðar, en góður þjálfari þeirra mun skila áfram góðum leik- mönnum í íslenskan körfubolta. „Ég er nokkuð bjartsýnn á vet- urinn hjá okkur. Strákarnir fengu ágætis reynslu eftir sl. leiktímabil, þannig að ég er óhræddur. Deild- in verður betri nú en nokkru sinni fyrr. Leikmenn í atvinnumennsku koma heim og gera deildina enn- þá sterkari en hún var í fyrra. Það er góðæri í sjávarútvegi og þá eiga þau lið sem eiga allt undir sjávar- útvegi komið, auðvelt með að styrkja Iið sín. Þau verða mjög öfl- ug Iiðin á Suðurnesjum og verða í toppsætunum," segir Svali Björg- vinsson þjálfari. Nýr leikmaður: Keneth Ric- hards. Farnir: Brynjar Karl, Oskar Freyr Pétursson og Guðni Haf- steinsson (hættur í fimmta sinn). SkaJlagrímui Henning Henningsson er nýráð- inn þjálfari þeirra Borgnesinga. Hann er þar öllum hnútum kunn- ur, því hann spilaði með Iiðinu fyrir nokkrum árum. En Tómas Holton sem áður sá um þjálfun- ina mun leika áfram með liðinu. Það er ekki mikil breidd í liði Skallagríms, en það er ekki nýtt vandamál á þeim bænum. Leik- reyndu leikmenn liðsins verða að ná sér vel á strik svo vel fari. Kristinn Friðriksson sem er kom- inn til liðs við Borgnesinga eftir tvö ár í Danmörku, getur orðið sá leikmaður sem gæti fleytt liðinu langt, ef sá gállinn er á honum. „Við munum hanga aftan í Suð- urnesjaliðunum eins og við mögu- lega getum. Það mun verða okkar hlutskipti ásamt öðrum liðum í úrvalsdeildinni. Ég tel að Suður- nesjaliðin muni hafa mikla yfir- burði,“ segir Henning Hennings- son þjálfari. Nýir leikmenn: Kristinn Frið- riksson, Henning Henningsson og Roderick Hay. Farnir: Bragi Magnússon, Grétar Guðlaugsson og Páll Axel Vilbergsson. KR Otrúlegar breytingar hafa orðið hjá KR-ingum fyrir veturinn. Þeir hafa misst fjöldann allan af góð- um Ieikmönnum. Það verður erfitt fyrir nýjan þjálfara, Keith Vassell, að byggja upp nýtt lið en aftur á móti mikil áskorun fyrir hann. Keith mun einnig Ieika með liðinu eins og í lok sl. tímabils. I liðinu eru margir ungir og mjög svo efni- legir leikmenn sem eiga svo sann- arlega framtíðina fyrir sér. Til liðs- ins hefur komið einn besti bak- vörður landsins, Eiríkur Onundar- son frá IR og mun hann örugglega styrkja Iiðið mjög mikið. „Við ætlum að byggja upp lið framtíðarinnar. Við höfum marga stráka sem ætla sér stóra hluti. Stefnan er sett á að toppa í lok tímabilsins, á réttum tíma. Það eru allir að tala um að Suður- nesjaliðin muni verða í toppbar- áttunni. Það er Iíklega rétt, en þetta verður veturinn þar sem mörg Iið verða vanmetin og það á eftir að setja strik í reikningin," sagði Ingi Þór Steinþórsson að- stoðarþjálfari KR. Nýir leikmenn: Eiríkur On- undaison, Mikael Björnsson, As- geir Klöðversson og Ivar Sverris- son. Farnir: Ósvaldur Knudssen, Baldur Ólafsson, Ingvar Ormars- son, Björgvin Einarsson, Veigur Sveinsson, Hermann Birgisson og Jón Arni Stefánsson. SKOBUN SVERRISSON Árkörfu- boltans Nú þegar bestu handknattleiks- menn landsins flykkjast í víking og gerast atvinnumenn í íþrótt sinni, eru aðrir á heimleið. Margir af okkar bestu körfuknattleiksmönnum sem hafa verið í atvinnumennsku víða um heim, snúa nú aftur í ís- lenska baráttu, reynslunni rík- ari. Það er enginn vafi á því, að handboltinn mun um stundar- saldr bíða smá skaða af brott- hvarfi margra af okkar bestu leikmanna, en það verður von- andi ekki lengi, því mikið er af efnilegum leikmönnum, sem ör- ugglega eiga eftir að spjara sig. En eins og áður sagði eru margir sterkir körfuknattleiks- menn mættir aftur í slaginn. Þeir eiga án efa eftir að styrkja Iið sín og gera íslenskan körfuknattleik mun skemmti- Iegri en undanfarin ár. En þeir munu ekki einir bera körfuknattleikinn uppi. Það eru margir efnilegir leikmenn að koma fram, en því miður eru alltof margir þjálfarar of ragir við að leyfa þessum ungu leik- mönnum að sanna sig. Það geta þeir ekki, nema þeir fái að stíga inn á völlinn. Það sannaðist á sl. tímabili í baráttunni um Is- landsmeistaratitilinn að gott er að gefa ungum leikmönnum „sénsinn“ snemma á tímabilinu. Friðrik Ingi Rúnarsson, að öðr- um þjálfurum ólöstuðum, sýndi ungu strákunum í Njarðvík snemma mikið traust. Og hvað gerðist. Tveir ungir leikmenn sem fengu mikið að spila í byij- un móts, hjálpuðu mikið við að landa titlinum. Njarðvík hefði ekki náð titlinum eftirsótta, ef þjálfarinn hefði ekki sýnt þeim það traust sem þeir áttu greini- lega skilið. Þjálfarar, gleymið ekki ungu strákunum þó að í lið- um ykkar séu margar stórstjörn- ur. GUNNAR ÍÞRÓTTAVIÐ TALIÐ Framtídin biört hjá okkur Ama Steinsen þjálfari íslandsmeistara KR KR-stelpumarunnu á dögunum íslandsmeistara- titilinn í knattspymu, eft- irmikla baráttu við vál- kyrjumar úr Val. Ama Steinsen, þjálfari KR, var að vonum ánægð með til- vemna eftirað titillinn varíhöfn. - Var mikil pressa á ykkurfyrir úrslitaleikinn við Val? „Það var þvílíkt búið að hugsa um þennan leik og mikið stress í hópnum fyrir leikinn. Við höfum Iengi vitað að þetta yrði hreinn úrslitaleikur og þess vegna hlóðst upp mikil spenna hjá stelpunum. Hann er örugglega búinn að hvíla þungt á mannskapnum síðustu dagana og ekki bætti úr að við áttum eftir Ieik við ÍBV í Eyjum, sem við kláruðum á föstudaginn. Okkur gekk vel í þeim Ieik og unnum hann 3:9, þannig að það hefur eitthvað slegið á kvíðann fyrir leikinn gegn Val. Svona er þetta alltaf í fótboltanum og ekk- ert við því að gera, annað en bíta á jaxlinn og beijast." - Ertu sátt við gang mála í sumar? „Ég er mjög sátt við sumarið. Eftir tapleikinn við Val í fyrri um- ferðinni settumst við niður og ræddum málin, því auðvitað var það töluvert sjokk að tapa Ieikn- um. Við ákváðum að halda okkar striki og vissum að við gætum klárað það sem eftir var. Við höfð- um það allan tímann á tilfinning- unni að við myndum standa uppi sem sigurvegarar í lokin, en auð- vitað setti það pressu á liðið, að Valur sky'ldi komast upp fyrir okk- ur og leiða deildina þetta Iengi.“ - Var einhver leikur öðrum erfiðari í sunuir? „Allir leikir eru meira og minna erfiðir, en ég held að okkur hafi kviðið hvað mest fyrir leiknum í Eyjum. Útileikurinn við Breiða- blik var mjög erfiður og frábært að vinna hann, eftir að við höfð- um orðið undir 1:0. Einnig var útileikurinn gegn Stjörnunni mjög erfiður, en við unnum hann 1:2 eftir mikla baráttu og puð. Ég tel að við höfum verið mjög heppnar að klára þann leik, en svona er blessaður boltinn og oft þarf að hafa mikið fyrir hlutun- um.“ - Það heyrðist eftir leikinn við Val, að nú væri kominn tími til að yngja upp hjá KR. Hvað viltu segja um það? „Nei það tel ég ekki. Mér finnst það bara kjaftæði að KR þurfi að fara að yngja upp sitt lið og blæs á það. Við erum með mjög góða blöndu í Iiðinu. Ungt lið með reynslukonum. Við erum með góða leikmenn sem hafa dýrmæta reynslu, stelpur sem eru á besta aldri og eiga nóg eftir. Síðan erum við með ungar og efnilegar stelpur sem hafa verið að koma inn í liðið. Ég tel það nauðsynlegt hveiju liði að byggja á reynslunni og það hefur einmitt verið okkar styrkur. Þó eitt ár líði hjá, þá þýð- ir það ekki að þá þurfi endilega að hefja nýja uppbyggingu. Hún á að koma jafnt og þétt og ungu stelp- urnar eiga að aðlagast með þeim reyndari. Það er besta uppbygg- ingin og þannig vil ég hafa það. Við erum til dæmis núna með þijár ungar stelpur í liðinu sem komu inn f liðið í vor og það er sú eðlilega endurnýjun. Þær fá þá góðan stuðning frá þeim eldri og það er mjög gott. Hveijum finnst til dæmis kom- inn tími á Helenu Ólafsdóttur, sem er aðeins 29 ára. Hún hefur verið að spila frábærlega vel og á örugglega mörg ár eftir. Það er ekki talað svona í karlafótboltan- um og það á heldur ekki við í kvennaboltanum. Meðan fólk hefur gaman að þessu og hefur ennþá þann kraft sem til þarf, þá skiptir aldurinn ekki öllu.“ - Munt þú verða áfram hjá KR á næsta tímabili? „Ég gerði tveggja ára samning við félagið og við ætlum okkur að skoða málin eftir að keppnistíma- bilinu er lokið. Fyrr vil ég ekkert um það segja. Það má hins vegar segja að ef við vinnum líka bikar- inn þá gæti ég hætt sátt við allt og alla, en við skulum bara sjá til.“ - Hvaða mat leggur þú á stöðu kvennaboltans í dag? „Mér finnst hlutirnir horfa mjög til betri vegar. í dag eigum við fjöldann allan af mjög efnileg- um stelpum, sem hafa allt til að bera. Þær koma mildu betur und- irbúnar upp úr yngri flokkunum og þar hefur orðið mikil breyting á. Þær eru tæknilega miklu hetur þjálfaðar og skilningurinn á leiknum hefur aukist mikið. Það virðist sem félögin leggi meiri rækt við uppbygginguna og nú eru flestir þjálfarar vel menntaðir og kunna betur til verka. Ég vil því segja að framtíðin sé björt hjá okkur stelpunum."

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.