Dagur - 10.09.1998, Blaðsíða 9

Dagur - 10.09.1998, Blaðsíða 9
8- FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1998 X^HT'. FRÉTTASKÝRING Heimsfréttm í Eyjiim BJORN ÞORLAKS- SON SKRIFAR FRÁ EYJUM Vestmannaeyingar voru sallaró- legir í gær og báru það ekki með sér að von væri á frægasta hval veraldar, stærstu frétt heimsins, eins og Hallur Hallsson, talsmað- ur Keikó-samtakanna, orðaði það. Fyrstu Vestmannaeyingarnir sem Dagur tók tali f gær sögðu: „Spenntir? Þetta er bara hvalur og við höfum oft séð hval áður.“ Fáir voru á ferli á götum bæjar- ins ef undan eru skildir frétta- menn á annað hundrað. Þeir vöfruðu um og Ieituðu nýrra sjón- arhorna, milli þess sem þeir fylltu matsali og kaffihús. Frétta- mannagerið var mest frá Ameríku og þótti þeim ljóslega mikið til náttúru Vestmannaeyja koma, sem hjúpuð var dulúðgu mistri mestan gærdaginn. Gaman var að bera saman hvernig innlendir og erlendir ferðamenn ræddu dýrið Keikó utan dagskrár. Stutt var í háðið hjá Islendingnum á meðan Kan- arnir ræddu tilfinningar Keikós og réttindi út og suður. Fyrir utan erlendu gestina voru það helst börnin í Eyjum sem báru með sér að dagurinn í dag yrði ekki ná- kvæmlega eins og aðrir dagar. Þau fá enda frí úr skólanum í dag og munu mynda heiðursvörð þeg- ar Keikó verður fluttur í dag. Hver er Kelkó? Keikó er fæddur árið 1977 eða 1978. Hann er því rösklega tví- tugur og fæddist í Atlantshafinu í kringum Island. Arið 1979 var hann fangaður og fluttur í Sæ- dýrasafnið í Hafnarfirði. Arið 1982 keyptu Kanadamenn dýrið en þaðan var hann seldur til Reino Aventura í Mexíkó fyrir 350.000 dali. Árið 1992 hófst nýr kafli í sögu hans þegar Warner Bros fengu augastað á skepnunni fyrir kvikmyndina Free Willy. Keikó sló algjörlega í gegn og hal- aði inn stórar summur fyrir kvik- myndaverið. Upp úr þessu kvikna hugmyndir um að koma háhyrn- ingnum aftur til sinna heimkynna enda sáust merki þess að mann- anna umhverfi hefði miður góð áhrif á heilsu hans. Sá kafli end- ar í Vestmannaeyjum í dag þegar risaþota kemur fljúgandi með kauða. Þó er ekki rétt að segja að sagan endi með því, þar sem Keikó hefur verið búið heimili í risastórri flotkví í Klettsvík og standa vonir manna til að hann fái e.t.v. fullt frelsi síðar. Ævmtýri auðjöfranna Hvað sem því viðkemur hafa milljónir dala skipt um eigendur f þeirri viðleitni að „frelsa Keikó" og má þar nefna nafn Craig O. McCaw sem fylgir Keikó til Vest- mannaeyja í dag. Samkvæmt For- bes er McCaw einn af 70 ríkustu mönnum Bandaríkjanna og víst er að Vestmannaeyjar hefðu ekki komist á kort alheimsins í dag ef peningamenn væru ekki í hópi áhugasamra um Keikó. Aldraður Vestmannaeyingur sem blaðið ræddi við í gær sagði skelfilegt til „Þetta er bara hvalur og við höfum oft séð hval áður, “ segja sumir Eyjamenn. Klettsvíkin verður vettvangur heimsatburða í dag þegar hinn nýi íbúi, Keikó, kemur „heim". - myndir: bg þess að vita að hundruðum millj- óna væri varið í að flytja hval á milli heimshluta á meðan heim- urinn yppti öxlum vegna hung- ursneyðar hjá mannfólkinu. Blað- ið hitti þó enga Eyjamenn sem sögðust ósáttir við að Keikó kæmi til Eyja. Vítamínsprauta Lúðvík Bergvinsson alþingismað- ur var bjartsýnn þegar Dagur ræddi við hann í heimabæ hans, Vestmannaeyjum, í gær. „Mér líst vel á komu Keikó til Eyja. Eg held að koma hans geti verið ákveðin vítamínsprauta á ferðaþjónust- una í Vestmannaeyjum og Iand- inu öllu. Það er gaman að til- standinu sem fylgir komu hans en það á eftir að koma í ljós hver eftirmál flutningsins verða.“ Lúð- vík segir að flutningnum sjálfum fylgi gríðarleg auglýsing en spurningin sé hvernig vinna á úr framhaldinu. „Það er voða erfitt að spá fyrir um hvort þetta mun þýða að ferðamönnum fjölgi í framtíðinni til Eyja en það er hlutur sem menn verða að skoða. Við verðum að horfa lengra og nýta þetta tækifæri eins og kostur Keikó dóni? Ekki verður vikist undan því að fjalla um hina kómísku hlið máls- ins. Evrópskur fréttamaður sem blaðið ræddi við í gær sagði að rétta skýringin á því að hvalurinn væri fluttur burt frá Newport væri sú að hann væri farinn að fróa sér í tíma og ótíma og skelfingu lostn- ir foreldrar hefðu forðað börnum sínum frá honum að undanförnu. Dýrið hefði vissulega náttúru en engin tækifæri til að fá útrás fyrir hana. Aðrir tala um sirkus en eng- inn virðist vita með vissu hver er að fífla hvern ef einhver er að því á annað borð. Hvað segir Lúðvík um svokallaða sirkushlið málsins? „Það er Ijóst að fjölmiðlar hafa mikinn áhuga á þessum flutningi. Af hverju? „Eftir því sem ég kemst næst vegna frægðar dýrsins og þess að þetta hefur ekki verið gert áður. Við skulum sjá hvað setur. Ef einhver sirkushlið er á þessu máli held ég að við Vestmannaey- ingar eigum að vinna úr því eins og öðru. Það er undir okkur sjálf- Frá fréttamannamiðstöðinni í Eyjum. Meira bar á fréttamönnum en heimamönnum á götum Vestmannaeyja í gær. um komið hvemig við vinnum úr þessu öllu.“ Lítil áhrif á hvalveiði Sér Lúðvík fyrir sér að koma hvalsins geti haft neikvæð áhrif á sjávarútveg Islendinga? „Það hafa verið uppi efasemdaraddir um að þetta torveldi okkur að heija hval- veiðar að njju. Mér finnst menn full fljótir að setja þetta í sam- hengi. Ég held líka að það hilli ekkert undir það að Islendingar hefji hvalveiðar á annað borð.“ Mun færri komu en búist var við Lúðvík talar um ferðaþjónustuna og víst er að hótel og veitingahús maka króldnn þessa daga í Eyj- um. Rafn Pálsson, hótelstjóri á Hótel Bræðraborg, var með full- bókað hjá sér en hann segir þó ljóst að mun færri hafi komið til Éyja vegna flutningsins en spáð hafði verið. „Það er alltaf ofmat á því hve margir eru taldir ætla að fylgjast með svona stórviðburði. Miðað við fyrstu viðbrögð mátti áætla að 500-700 manns myndu koma til Eyja vegna Keikós en reyndin er að þetta verða kannski 150-200 manns. Rafn segir Keikó viðbót í flóru Vestmannaeyja sem ferðamannastaðar en alls enga bombu. Rosaleg framganga Samvtnnuferða Rafn er hins vegar mjög óhress með framgöngu ferðaskrifstofunn- ar Samvinnuferða Landsýnar. Hann segir ferðaskrifstofuna hafa okrað á dæminu og það skaði ímynd ferðaþjónustunnar í Eyjum í heild. „Þetta er mjög viðkvæmt mál en það hefur komið í ljós að sá aðili sem haldið hefur utan um flug og gistingu vegna komu Keikós, Sam- vinnuferðir Landsýn, hefur hækk- að gistingu hjá okkur um tæp 50 prósent. Keikó Foundation og Þró- unarfélag Vestmannaeyja mæltust til að Samvinnuferðir myndu halda utan um allan þjónustuþátt- inn. Einhver verður að halda utan um þetta, en eftir að hafa verið í bransanum í 30 ár hér í Eyjum veit ég að við þurfum engar ferða- skrifstofur frá fastalandinu til að stjórna okkur. Við getum séð um þetta sjálf. Við höfðum sagt að menn mættu alls ekki sprengja upp verðið enda fjölmiðlar naskir á að fjalla um hið neikvæða og við vildum ekki að fjölmiðlar ljölluðu neikvætt um Vestmannaeyjar. Reyndin er hins vegar sú að Sam- vinnuferðir hafa smurt óeðlilega miku ofan á pakkann. Þeir þurfa að fá eitthvað fyrir sinn snúð en 50 prósenta álag er út í hött. Það er alveg rosalegt að eftir að við erum búin að veija nokkrum ára- tugum í að byggja upp ferðaþjón- ustu hér, skuli það nú gerast að ein ferðaskrifstofa geti eyðilagt það sem við erum búin að vera að byggja upp,“segir Rafn. Tveggja manna herbergi með baði kostar á verði Samvinnuferða um 13.000 kr. en væri annars 8.800 kr. Dagskráin í dag Ekki var hægt með neinni vissu að segja til um áður en blaðið fór í prentun í gær hvort risaflugvélin sem kemur með Keikó getur lent í Vestmannaeyjum í dag. Góðar Iík- ur voru þó taldar á þvl samkvæmt veðurspá og er áætlað að vélin lendi með hvalinn klukkan 10:00. Klukkan 10:15 verður frétta- mannafundur en ld. 11:00 hefst flutningurinn í flotkvína ef allt gengur að óskum. Báðar sjón- varpsstöðvarnar íslensku munu sýna beint. Þess má geta í lokin að síðasta hugsun blaðamanns er hann gekk götur Vestmannaeyja í gær var að Vestmannaeyingar virtust virða Ijölmiðlamennina útlendu fyrir sér af meiri undrun og athygli en fréttamennirnir horfðu á inn- fædda. Höfðu þó fréttamennirnir aldrei séð Vestmannaeyinga fyrr. FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1998 - 9 í kvöld kl. 21 n AksjóN í Bæjarsjónvarpinu Einimgis gervivambir verða á boðstóliun hjá sláturhúsi KEA á Ak ureyri. Fullmannað, en vantar vant fólk. Erfiðlega hefur gengið að fá vant fólk til að vinna hjá sláturhúsi KEA að þessu sinni en slátrun hefst í dag. Að sögn Óla Valdi- marssonar sláturhússtjóra er hús- ið nú að mestu fullmannað en hins vegar sé áberandi skortur á vönu fólki. Hann bendir á til marks um hve óvenjulegt ástand- ið sé, að í ár gangi illa að fá menn með réttindi á lyftara, sem alla ENGIN HUS ÁN HITA Pexrör með súrefniskápu til vatnslagna, í geislahitun, og til miðstöðvarlagna ;j Verslið vi6 3 fagmann. I C DRAUPNISGOTU 2 • AKUREYRI 3 c SÍMI 462 2360 il Op/ð á laugardögum kl. 10-12. g e n GQBQUQQQQQBQQQBQDHDQBQHQUQQQQQQQEI Státrun hefst hjá Sláturhúsi KEA í dag. jafna séu fyrstu störfin sem fari. Vegna skorts á vönu fólki hefur verið ákveðið að sláturhúsið mun ekki verða með neinar vambir en þess í stað notaðar gervivambir, af því tagi sem KEA hefur áður ver- ið með. ÓIi segir að 4-5 slíkar vambir verði þá látnar í kassana hjá þeim sem eru að taka slátur. Reynsluna af gervivömbunum segir ÓIi hafa verið góða, sérstak- lega hafi unga fólkið kunnað að meta þær. Eina áhyggjuefnið seg- ir hann vera hvort hann fái nógu mikið af þessum vömbum nægj- anlega fljótt. Slátrað verður um 28 þúsund fjár í haust sem er svipað og í fyrra að sögn Óla. Hann segir áætlað að klára slátrunina 15. október. Hins vegar sé sá mögu- leiki alltaf fyrir hendi ef ekki fæst fleira vant fólk að teygja aðeins á sláturtíðinni og vera einfaldlega lengur að. Aðalskipulag Kelduneshrepps 1997 - 2005 Tillaga að aðalskipulagi Kelduneshrepps 1997 - 2005 var auglýst samkvæmt ákvæðum skipulagslaga 27. maí 1998 og rann frestur- inn til að skila athugasemdum út 11. júlí 1998. Alls bárust tvær at- hugasemdir við skipulagstillöguna. Vegna athugasemda um að byggðakjarni við Lónin gæti valdið mengunarhættu vegna fiskeldis á svæðinu og að orðalag um hættu við byggð á gjáasvæði I upp- sveit verði verulega milduð. Hreppsnefnd Kelduneshrepps tók tillöguna að aðalskipulagi Keldu- neshrepps 1997 - 2005 með ofangreindum athugasemdum til lokaumræðu á fundi sínum 4. ágúst sl., þar sem fallist var á að fella út byggðakjarnann við Lónin og að orðalag vegna byggðar á gjáasvæði í uppsveit verði mildað. Var það samþykkt samhljóða. Tillagan verður send skipulagsstofnun og umhverfisráðherra til staðfestingar. Bókun hreppsnefndar Kelduneshrepps um athugasemdir og af- greiðslu þeirra hefur verið send þeim sem athugasemdir gerðu við skipulagstillöguna. Hreppsnefnd Kelduneshrepps. FRÉTTIR Erfitt að fá vant fólk í sláturtíðina

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.