Dagur - 10.09.1998, Page 11

Dagur - 10.09.1998, Page 11
FIMMTUDAGUR 10. SÉPTEMRER í9 9 8 - 11 ERLENDAR FRÉTTIR Rússar sviku lánsfé út úr Vesturlöndum Anatólí Tsjúbaís seg- ir stjómvöld í Moskvu hafa fegrað efnahagsástandið til þess að fá lánsfé frá Vesturlöndum. Anatólí Tsjúbafs, einn helsti leiðtogi ungu fjármálasnilling- anna sem höfðu forystu um um- bætur í efnahagsmálum í Rúss- landi, sagði í viðtali í vikunni að stjórnin í Moskvu hafi „platað“ erlend ríki til þess að veita Rúss- um lán upp á sem svarar 1.400 milljörðum íslenskra króna. Tek- ist hafi að fela fyrir Vesturlönd- um hversu alvarlegir efnahags- erfiðleikarnir væru, sem Rúss- Iand stóð frammi fyrir. Tsjúbaís var aðalsamninga- maður Rússa í viðræðum við Al- þjóðagjaldeyrissjóðinn í júlí síð- astliðinum, þegar samkomulag náðist um að sjóðurinn veitti Rússum sem svarar 35 milljörð- um króna í Ián til þess að hressa upp á efnahagslífið. „Var nauðsyulegt og rétt“ Tsjúbaís sagðist í viðtali við rúss- neska dagblaðið Kommersant á þriðjudaginn, telja að það hafi verið bæði nauðsynlegt og rétt af Rússum að ljúga að gjaldeyris- sjóðnum í því skyni að fá meira fé í ríkissjóð. Ef rússnesk stjórnvöld hefðu sagt sannleikann, þá hefði hrun efnahagslífsins orðið strax í vor og alþjóðlegar Iánastofnanir „hefðu hætt viðskiptum við okk- ur fyrir fullt og allt“. Tsjúbaís, sem um langa hríð var ráðgjafi Jeltsíns Rússlands- forseta, var spurður að því hvort rússneska stjórnin hafi rétt til þess að ljúga um óstöðugleikann í fjármálum Iandsins. „Þegar ástandið er svona,“ sagði hann, „þá verður stjórnin að gera það. Við áttum að gera það. Fjármála- stofnanirnar skilja það, að þótt staðreyndin sé sú að við höfum svikið 20 milljarða dollara út úr þeim, þá var það eina leiðin sem við áttum út úr stöðunni." Allt í steik Rússnesk stjórnvöld reyna nú ákaft að finna einhverjar lausnir á efnahagsástandinu, sem er nú þegar orðið því sem næst óvið- ráðanlegt. Viðskipti hafa lamast, bankar ramba á barmi gjaldþrots og gengi rúblunnar hefur hrapað dag frá degi, þótt reyndar hafi rúblan heldur rétt úr kútnum í gær. Þrengingarnar hófust fyrir al- vöru þann 17. ágúst síðastliðinn, þegar gengi rúblunnar var lækk- að. Landið hefur verið í raun án ríkisstjórnar í rúmar tvær vikur. Jeltsín forseti hefur reynt að fá þingið til að samþykkja að Viktor Tsjernómyrdín taki aftur við embætti forsætisráðherra, en neðri deild þingsins hefur hafn- að honum í tvígang. í gær benti flest til þess að Jeltsín myndi gera þriðju tilraunina til að fá þingið til að samþykkja Tsjernó- myrdín, en verði honum enn hafnað ber honum að leysa upp þingið og boða til kosninga. Sumir rússneskra ráðamanna halda því fram að besta leiðin til IMr. Verkfallsmenn í Síberíu: Ekkert nema kraftaverk viröist geta bjargað efna- hagsmálum Rússa. þess að rétta við efnahaginn að nýju sé að fá meiri fjárhagsað- stoð að utan. Alþjóðagjaldeyris- sjóðurinn á að greiða Rússum 4,3 milljarða dollara í næstu viku, en óvíst er hvort af því verður vegna þess að skilyrðum sjóðsins hefur ekki verið fram- fylgt. Rússum hefur ekki tekist að hrinda sparnaðaraðgerðum í framkvæmd, og ákvörðun stjórn- valda um að lækka gengi rúblunnar og frysta greiðslur á skammtímalánum falla sjóðnum heldur ekki í geð. kvæmdastjóri kosningabaráttu Jeltsíns, og nú síðast sérstakur samningamaður Rússa við lána- stofnanir á Vesturlöndum. Jeltsín lét hann svo róa ásamt Kiríjenkó í síðasta mánuði. Arangurinn af umbótastarfi Tsjúbaís og félaga hans í mark- aðsátt hefur einkum verið sá að nokkrir auðjöfrar hafa náð völd- um á helstu atvinnugreinum landsins meðan milljónir verka- manna og lífeyrisþega fá ekki út- borgað svo mánuðum skiptir. - Los Angeles Times Jarðskjálfti á Ítalíu ÍTALÍA - Einn maður lést í jarðskjálfta sem varð á Suður-Ítalíu í gær. Skjálftinn mældist 4,8 stig á Richterkvarða og fannst víða á Suður-Ital- íu allt til Napólí. Margir yfirgáfu heimili sín í skelfingu. Rúblan skreið upp á við RUSSLAND - Rúblan, gjaldmiðíll Rússa, hækkaði í gær í fyrsta sinn í þijár vikur í verði gagnvart Bandaríkjadollara og var komin upp í 15 rúblur á dollarann. Fyrr um daginn var hún komin niður í 21 rúblu hver dollari. Ekki er þó búist við að hún haldi áfram að hækka, heldur muni aftur snúast á verri veg og verð hennar lækka áfram. Höfuðborgin eiuangrast í vatnsfióði BANGLADESH - Dhaka, höfuðborg Bangladesh, var í gær orðin alveg umlukin vatnsflóði, en hernum tókst ekld að halda járnbrautarlínu til strandarinnar opinni og lokaðist þar með síðasta samgönguæð borgar- innar til umheimsins. Flóðin í Bangladesh hafa staðið yfir í tvo mánuði og eru þau verstu í 20 ár. 900 manns hafa látist, 25 milljónir misst heimili sín og 10 milljónir að auki búa í þorpum sem engin leið er að koma nauðsynjavörum til. Flugbanni ekki alls staðar framfylgt EVRÓPUSAMBANDIÐ - Evrópusambandið lagði í vikunni flugbann á júgóslavneska flugfélagið JAT í öllum aðildarríkjum bandalagsins. Bæði bresk og grísk stjórnvöld hafa hins vegar sagt að þau séu bundin af samningum um að heimila flugfélaginu flugtak og lendingar áfram inn- an landamæra sinna. Svo virðist sem bæði Bretar og Grikkir geti nú reiknað með því að fá kæru frá framkvæmdastjórn ESB vegna málsins. Þriðia hver verslun tekur greiðslukort ÞYSKALAND - Þýskir IJölmiðlar sáu ástæðu til að geta þess i gær að þar í landi taki nú næstum þriðja hver verslun við greiðslukortum. Hjá fjórðungi þessara verslana er veltan í greiðslukortaviðskiptum þó innan við 50 þýsk mörk, sem samsvarar um 2.000 íslenskum krónum. Danir hræðast salmoneHuua DANMÖRK - Danska ríkisstjórnin hyggst leggja bann við notkun sýkla- lyfja í dýrafóðri mun fyrr en áður var stefnt að, og kemur sú ákvörðun í kjölfar þess að 62 ára kona lést af völdum salmonellusýkingar nýlega. Konan lést eftir að hafa borðað svínakjöt, sem var smitað af salmonellu- tegundinni DT 104, en sú salmonellutegund hefur mikið þol gegn sýklalyfjum. 22 menn hafa þurft að fara á sjúkrahús í Danmörku síð- ustu daga vegna salmonellusýkingar, og þar af teljast sjö alvarlega veik- ir. Var í uppáhaldi hjá Jeltsín Yfirlýsingar Tsjúbaís í viðtalinu á þriðjudag vekja ekki síst athygli vegna þess að flestir hafa litið svo á að Vesturlönd geti treyst honum, jafnvel öðrum fremur, vegna þess að hann er fylgjandi því að markaðskerfi verði komið á fastan kjöl í Rússlandi. Hann hefur gegnt ýmsum embættum fyrir Jeltsín, m.a. ver- ið yfirmaður einkavæðingar, starfsmannastjóri forsetans, að- stoðarforsætisráðherra, fram- Vfövarandi æska ázs% álVfy T& eilsuhúsið Skólavöröustíg, Kringlunni, Smáratorgi og Skipagötu 6, Akureyri 10.-13. SEPTEMBER FORRÉTTUR Soja ristuð hörpuskel - á fersku salati AÐALRÉTTUR (val) Grillaðuriax j Grillað lambaprime - á caperssósu / - með pesto og rósmarín EFTIRRÉTTUR Konfektterta - með ástríöuatdinsósu og ferskum ávöxtum KAFFI OG KONFEKT KR. 2.690,- Verið velkomin! - Ath. nýr opnunartími: OPNUM PHiOIUO. TIL SUNNÍJP. KL. 18.00 • LOKAO MÁNUDAGA Strandgötui3 Akureyri sími 4613050

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.