Dagur - 16.09.1998, Síða 2
18 — MIDVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 199 8
LÍFIÐ í LANDINU
SMÁTT OG STÓRT
UMSJÓN:
BJÖRN
ÞORLAKSSON
Herjólfur.
Faglegir fréttamenn
Baksvið Vestmannaeyja var um margt sér-
kennilegt dagana sem allt varð vitlaust vegna
Keikós. Ofanrituðum gafst það einstæða tæki-
færi að taka þátt í ævintýrinu íyrir hönd blaðs-
ins og þótti skóli að fylgjast með sumum af
bestu fréttamönnum heims er þeir voru að
störfum í Eyjum. Sérstaklega var gaman að
fylgjast með útlendu sjónvarpsfréttamönnun-
um sem komu margir inn á klukkustundar
fresti eða svo og gáfu í beinni útsendingu
stutta skýrslu um hvað var að gerast. Til þess
höfðu þeir stundum ekki nema 10-15 sekúnd-
ur en framsögn þeirra, málhraði og orðaforði
var 100%, blaðlaust. Efnisatriði almennt kór-
rétt. Varð sumum hugsað til sjónvarpsfrétta-
mannanna okkar íslensku í samanburðinum.
A engan hátt er verið að kasta rýrð á störf
þeirra þótt á þá halli pínu.
„Ég held að neyt-
andinn eigi sjálfur
að fá að ráða hvað
er á borðum hans.
Frekar en Jón Ás-
geir eða einhver
annar,“
segir Eiríkur S.
Jóhannsson, kaup-
félagsstjóri KEA,
í Degi.
Hanastél í Herjólfi
Meira um Eyjar. A miðvikudagskvöld, daginn
áður en Keikó kom til Eyja, tók bæjarstjórnin
sig til og bauð pressugerinu öllu í kokkteil og
snittur um borð í Heijólfi. Blaða- og frétta-
menn tóku sæmilega við en þó minna en gest-
gjafar höfðu áætlað. Skýringin gæti verið sú að
ákveðið var að sigla dálítið með farþegana og
veltingurinn minnkaði mjög lystina hjá ýms-
um. Eina fréttakonu bandaríska sá ofanritaður
sem skilaði veigunum uppi á dekki, steinhissa
á að siglt væri í brjáluðu roki. Veðri sem í Vest-
mannaeyjum kallast nánast Iogn.
Góðir heim að sækja
Enn um Eyjar. Ekki er annað hægt en að hrósa
Vestmannaeyingum fyrir þá alúð og hjálpsemi
sem hvarvetna var viðkvæðið í tengslum við
komu Keikós. Það var sama hvar maður kom.
Allir virtust tilbúnir að veita upplýsingar og
hjálparhönd og annað sem oft gleymist á Is-
landi: Vestmannaeyingar kunna að brosa! Þetta
er fágætur hæfileiki hjá Islendingum og nýtist
afar vel í ferðaþjónustu. Túrismi er enda ört
stækkandi atvinnugrein í Eyjum og ekki að
ástæðulausu. Starfsmenn Eyjablaðsins Frétta
fá í lofrullunni sérstaka kveðju frá Degi fyrir
samstarfið sem og Jói á Hólnum.
Epilogus
Fjölmiðlaherinn varð að Iáta sér duga að sigla
með Herjólfi í land eftir að C-17 vélin iokaði
vellinum. Sumir áttu erfiðar með gang en aðr-
ir er þeir stigu um borð og virtust lítt sofnir.
Fulltrúar eins ónefnds fjölmiðils höfðu skipu-
lagt undanhaldið vel og pantað klefa og kojur
á línuna á leiðinni til lands. Með tilliti til
djammdugnaðar þessa hóps verður það að telj-
ast frábær skipulagning.
Björgvin Sigurðs-
son talsmaður
Grósku.
100 daga gróska
„Á þessum fundi lögðum við fram
plagg, drög að stefhuskrá, hver
verkefnin ættu að vera fyrstu 100
dagana,“ segir Björgvin Sigurðs-
son, talsmaður Grósku. „Jakop
Frímann hélt fyrirlestur um það
hvemig vinna á kosningar og vakti
hann að vonum athygli.
Höfuðáherslur Grósku eru á
menntamál og sjávarútvegsmál,
en við erum ekki hvað síst að
vekja upp umræður um það sem
um verður kosið í næstu kosn
Gróskci, síimtök utigs
fólks úr öllumféhgs-
hyggjuflokkum, hélt op-
innfund og málþing síð-
astliðinn hmgardag, þar
sem yfirskriftin var:
„Verkefni nýrrarstjóm-
ingum. Umhverfis- og virkjana- dTjafnaðamiannafyrStU laginu
brýn þörf á því að afnema bóta-
tryggingu öryrkja og hækka ör-
orkubætur verulega."
Til að fjármagna aukin útgöld
til fræðslu- heilbrigðis og trygg-
ingarmála segir Björgvin að inn í
stefnuskrána sé fléttað tekjuöfl-
unarkerfi. Engin stór stökk eigi
að taka en smám saman koma á
betra skattkerfi og auka réttlátari
tekjuskiptingu.
Klofningur í Alþýðubanda-
mál eru ofarlega á baugi og svo
auðvitað jafnréttismálin, enda
Kvennalistinn sterkur í Grósku."
100 dagana.
Herinn burt
Gróska vill herinn burt eigi síðar
en 2002 og vill að farið verði að
leggja drög að brottflutningi hans nú þegar.
Einnig að hafin verði kynning á Evrópusam-
bandinu sem ljúki með þjóðaratkvæðagreiðslu
um það hvort sækja eigi um aðild.
„Við höfum komið með nýja útfærslu á fisk-
veiðibatteríinu. Við erum veiðigjaldssinnar og
viljum að búið verði til skilvirkt kerfi þar sem
menn versli beint við hið opinbera í stað þess að
vera að braska með kvóta sín á milli,“ segir
Björgvin.
Mikið hefur verið rætt um siðvæðingu stjórn-
málamanna og skoðun Björgvins er sú að illilega
skorti skýrar Ieikreglur þeim til handa. Hægt sé
að skipa nefnd fagmanna til að útbúa slíkar
reglur og þá fari ekkert á milli mála hvort menn
fari yfir einhverjar línur.
Breytingar á skattkerfinu eru stórmál og full
þörf á þrepakerfi," segir Björgvin. „Um leið er
SPJALL
Hvað nieð klofning Alþýðu-
bandatagsins?
„Ég tel ekki að Alþýðubandalag-
ið sé að ldofna. Það er eðli stjórn-
málaflokka að menn eru að koma
og fara og margir menn hafa yfir-
gefíð Alþýðubandalagið í áranna
rás án þess að það hafí haft áhrif á flokkinn í
heild. Sterkir aðilar hafa yfirgefið hann, eins og
Steingrfmur og Hjörleifur, en Steingrímur er
eini Alþýðubandalagsmaðurinn sem hefur lýst
yfir sérframboði, Ogmundur gekk aldrei í AI-
þýðubandalagið og getur þar af leiðandi ekki
klofið það. Hann var bara gestur á leið heim.
Vissulega er það sorglegt að þeir geti ekki séð
sér fært að koma með, því þeir eiga alveg erindi
inn í fylkingu sameinaðra vinstri manna.
Guðrún Helgadóttir hefui vst yfir andstöðu
sinni við samfylkinguna en Guðrún hefur fyrir
nokkrum árum dregið sig útúf íslenskum stjórn-
málum.
Svo má benda á að Svavar Gestsson, hefur frá
upphafi verið einn öflugasti þingmaður flokks-
ins, hann er ennþá með okkur og mildll sómi að
því þar sem hann er öflugur stjórnmálamaður."
■ FRÁ DEGI
Þeir kaldhæðnu hafa rétt fyrir sér í níu
skiptum af hverjum tíu.
Henry Louis iVlencken
Þetta gerðist 15.9
• 1812 var mikill eldsvoðí í Moskvuborg.
• 1848 var þrælahald afnumið í öllum
frönskum landsvæðum í Ameríku.
• 1975 fékk Papúa Nýja Gínea sjálfstæði
frá Ástralíu.
• 1978 25.000 manns farast í jarðskjálfta
í Iran, sern mældist 7,7 stig.
• 1983 hlaut Arnold Schwarzenegger rík-
isborgararétt í Bandaríkjunum.
• 1992 létust 900 manns í flóðum í
Pakistan.
Þaufæddust 15.9
• 1940 fæddist Ómar Þ. Ragnarsson, sá
eini sanni.
• 1939 fæddist suðurafríski rithöfundur-
inn Breyten Breytenbach.
TIL DAGS
• 1925 fæddist blúskonungurinn B.B.
King.
• 1923 fæddist Lee Kuan Yew, sem var
forsætisráðherra í Singapúr í þrjá ára-
tugi, 1959-90.
• 1888 fæddist Frans Eemil Sillanp,
fyrsti finnsld rithöfundurinn sem vann
til Nóbelsverðlauna.
• 1387 fæddist Hinrik fimmti, sem var
Englandskonungur árin 1413-22.
Vísa dagsins
Þessi vísa barst á ritstjórnina frá Búa.
Afmælisbarn dagsins
Gamla Hollywoodstjarnan Lauren
Bacall fæddist í New York árið
1924, en hét þá reyndar Betty Joan
Perske. Nítján ára Iék hún í fyrstu
bíómyndinni, To Have , and Have
Not, með Humphrey Bogart. Þau
Iéku síðan saman í fleiri myndum,
og voru gift á tímabili þótt hann
væri 25 árum eldri.
Virðisaukaskattur!
Pabbinn var sérlega stoltur af einstökum
reikningshæfileikum 6 ára sonar síns. Þeir
voru í kjörbúðinni og fullt af fólki í kring
um þá. Pabbinn benti á stæðu af
tyggigúmmíi. „Hver pal^ki kostar 25 krón-
ur“ sagði hann við sonfnn. „Hvað kosta þá
15 pakkar?
Strákur hugsaði sig vel um sagði svo:
„467 krónur."
Pabbinn eldroðnaði og lét sig hverfa í
skyndi með syninútn. Þygar þeir voru
komnir í hvarf sagði hann hastur: „15
sinnum 25 er 375. Hvers vegna sagðir þú
að tyggjóið kostaði 467 krónur?“
„Nú,.átti ég ekki að bæta virðisaukanum
við?“ spurði strákurinn.
Veffang dagsins
Af hverju er himinninn blár, spyija margir
með honum Ara litla. Svör við íjölmörgum
spurningum af því taginu' er að finna hjá
http://Landau 1 .phys'. Virginia.EDU/Ed-
ucation/Teaehing/How i hingsWork
Einn i sinrii kví, kví,
Keikö svamlar frí, frí.
Ó þci núð að eiga hvalinn
eiga hvalinn búri i!