Dagur - 24.09.1998, Page 1

Dagur - 24.09.1998, Page 1
Verð í /ausasölu 150 kr. 81. og 82. árgangur- 179. tölublað BLAÐ Vilja ekki vita hve ríkid þenst út RíMskerfið hefur eng- ar tölur tiltækar iun hækkun ríkisútgjalda í ár samanhorið við síðustu ár; Ríkishók- hald fær ekki pening í gagnagrunn til að meta þróunina. Mót- mælt að hækkunin sé 44 milljarðar á einu ári. Hvorki fjármálaráðuneytið né Ríkisbókhald geta svarað til um hversu ríkisútgjöld hafa hækkað milli ára á sambærilegum grunni, eftir breytta uppsetningu á fjárreiðum ríkissjóðs. Stjórn- völd hafa ekki séð ástæðu til að leggja fé í gerð gagnagrunns sem gerir þennan samanburð mögu- legan og á meðan svo er ekki fást engin svör um þróun t.d. ríkisút- gjalda milli ára. Ríkisbókhaldið hefur ekki for- sendur eða fjármagn til að setja upp eldri ríkisreikninga þannig að þeir verði samanburðarhæfir við nýja uppsetn- ingu á íjárreiðum ríkisins. „Við höfum farið fram á fjárveitingu til að geta komið upp slíkum gagnagrunni, en það erindi hefur ekki enn verið af- greitt,“ segir Gunnar Hall í Ríkisbókhaldi. Embættið hefur því aðeins tölur um ríkisreikn- inga samkvæmt eldri uppsetn- ingu. Þær nýtast ekki til að meta tölur fjármála- ráðuneytisins fyr- ir árið í ár. 44 milljarða hækkuit rikis- útgjalda!? „Það er mjög erfitt að bera sam- an tölurnar milli ára, það er rétt. Það hefur ekki verið tekin ákvörðun um að fara í þessa vinnu, því ef það er gert verður væntanlega að taka allmörg ár aftur í tímann til að sjá ein- hverja þróun. Þetta er spurn- ing um for- gangsröðun og ég tek undir að það er miður að þetta sé ekki hægt, því þetta skiptir miklu máli. A meðan verður þú ein- faldlega að lesa þig í gegnum ríkisreikninga fyrri ára og finna tölurnar yfir það sem hefur breyst. I væntanlegu frumvarpi til fjárlaga fyrir næsta ár verður þó að finna töflu yfir greiðsluaf- komuna, lánahreyfingar og lána- jöfnuðinn og það er ákveðin lýs- ing á afkomu ríkissjóðs," segir Halldór Arnason í fjármálaráðu- neytinu aðspurður um málið. Samkvæmt endurskoðaðri áætlun fjármálaráðuneytisins fyrir árið í ár verða ríkisútgjöld um 178,8 milljarðar króna á rekstrargrunni við nýja uppsetn- ingu á ljárreiðum ríkisins. Ekki er hægt að fá hjá ríkiskerfinu samsvarandi tölu fyrir 1997 eða fyrir eldri ár. Ríkisbókhald gefur upp að ríkisútgjöld á rekstrar- grunni hafi verið 134,6 milljarð- ar króna árið 1997 í „eldri upp- setningu“. Fullyrt er að raun- veruleg hækkun ríkisútgjalda sé ekki 44,2 milljarðar milli ára, heldur lægri tala sem enginn getur þó sagt til um hver er. Eftir því sem næst verður komist verða ríkisútgjöld 1998 á sambærilegum grunni um 7 milljörðum króna hærri en árið 1996 og vantar þó inn að ríkið hefur „sparað“ sér 5-6 milljarða króna með því að grunnskólinn fór yfir til sveitarfélaga. - FÞG / fjármálaráðuneytinu treysta menn sér ekki tii að kveða upp úr með hvort ríkisútgjöld hækkuðu um AO milljarða milli ára eða ekki! Stækkuná NesjavðUum Veitustjórn Reykjavíkur sam- þykkti í gær að verða við tillögu starfshóps sem lagði í vikunni til að strax yrði farið í að undirbúa stækkun Nesjavallavirkjunar um- fram þá stækkun sem nú er í gangi. Miðað við þær tillögur sem nú á að fara að undirbúa mun rafaflið aukast um 30 megawött og er stefnt að því að endanleg ákvörðun um stækkun liggi fyrir eftir eitt eða tvö ár. Stjórn veitustofnana samþykkti einróma að taka þetta skref sem felur i sér stækkun núverandi virkjunar um 50%. Alfreð Þor- steinsson, formaður veitustjórnar segir að raforkuframleiðslan er mun verðmætari en heitavatns- framleiðslan. Rafmagnsveita Reykjavíkur sé í dag að kaupa af Landsvirkjun kílówattstundina á rúmar 3 kr. en á Nesjavöllum geti borgin framleitt kílówattstund- ina fyrir eina krónu. Sjórinn við strendur Krossaness í Eyjafirði varð Ijósleitur mjög í gær og var orsökin sú að slys hafði orðið í Efna- verksmiðjunni Sjöfn. Hreinsiefni í matvæiaiðnaði rann niður úr tunnu sem féll á hliðina. Að sögn efnafræðings hjá Sjöfn er efnið umhverfisvænt og mengunin því ekki alvarleg. Ekki varð annað tjón hjá fyrirtækinu við þessi mistök en þau sem nema tapi efnisins. mynd: brink VISA í mál VISA ísland hefur höfðað mál til að fá hnekkt úrskurði Sam- keppnisráðs frá því í janúar og fær dómsmálið flýtimeðferð vegna gildistöku fyrirhugaðra breytinga á kortaskilmálum 1. október, þar sem kveðið er á um afnám svokallaðrar jafnræðis- reglu í kortaviðskiptum. Samkeppnisráð úrskurðaði í janúar að skilmálar um þjón- ustugjöld sem kaupmönnum er gert að greiða greiðslukortafyrir- tækjunum standist ekki lög. Ráð- ið telur að skilmálarnir takmarki viðskiptafrelsi og hafi neytt kaupmenn til að lækka álagn- ingu eða velta gjaldinu út í verð- lagið með þeim afleiðingum að allir greiði kostnaðinn af kortun- um, en ekki bara þeir sem nota þau. Sigurður Lárusson, kaup- maður f Dalsnesti, kærði skil- mála kortafyrirtækjanna til Sam- keppnisstofnunar. - fþg j Síminn „síbrota- maður“ Ágúst Einarsson, alþingismaður, gagnrýnir Landssímann harðlega á vefsíðu sinni í gær og segir að fyrirtækið sé „síbrotamaður í augum Samkeppnisstofnunar.“ Hann tekur undir kröfur sem fram hafa komið um að GSM- þátturinn verði skilinn frá öðrum rekstri Símans „vegna þess að aðrar tekjur eru notaðar til að greiða niður GSM kerfið sem vex gífurlega. Síminn bregst illa við eins og venjulega.“ Hjá Landssímanum hefur lítið breyst frá dögum Pósts og síma „nema nú er lokað fyrir allar upplýsingar til eigandans, fólks- ins í landinu,“ segir Ágúst enn- fremur. - ESJ

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.