Dagur - 29.09.1998, Qupperneq 2
2 - ÞRIÐJVDAGUR 29. SEPTEMBER 1998
FRÉTTIR
í könnun sem nemendur Háskólans á Akureyri gerðu að beiðni bæjaryfirvalda á Akureyri í vor, kemur í Ijós að í tæplega 60%
úrtaki allra nema, reyndust 0,8 börn á hvern námsmann.
Oveniu niiMð bama-
lán hjá háskælingum
í Háskólanum á Akureyri
eru 0,8 hðm á hvem há-
skólanema skv. kðnnun.
Fjðldi bamafólks að hluta
til skýrður með þvi að
nemendur em eldri en
víða annars staðar.
Óvenju hátt barnahlutfall er hjá nem-
um Háskólans á Akureyri miðað við
Háskóla Islands í Reykjavík og eflaust
aðra háskóla í heiminum. I könnun
sem nemendur skólans gerðu að beiðni
bæjaryfirvalda á Akureyri í vor, kemur í
Ijós að í taeplega 60% úrtaki allra
nema, reyndust 0,8 börn á hvern
námsmann. „Þetta er athyglisvert og
þó nokkru hærra en við bjuggumst við.
Þessi staðreynd hefur þó nokkur áhrif
á okkar áætlanagerð," segir Ingólfur
Armannsson, fræðslumálastjóri hjá Ak-
ureyrarbæ. Þær skýringar hafa helst
verið nefndar að nemendur séu eldri í
Háskólanum á Akureyri en annars
staðar og hlutfall nýútskrifaðra stúd-
enta lægra. Börn háskólanema eru að
líkindum á bilinu 500 til 600.
Þessi mikli barnafjöldi háskólanema
verður ekki til að stytta biðlista eftir
leikskólaplássi á Akureyri, en þar eru
nú milli 50 og 60 börn. 27 böm
komust ekki að í haust auk álíka
margra tilfella þar sem foreldrar þáðu
ekki plássið vegna óánægju með stað-
setningu. Deildarstjóri Ieikskóladeildar
og fræðslumálastjóri hafa lagt fram
greinargerð til bæjarráðs um leikskóla-
rými og væntanlegar þarfir. Málið er í
höndum framkvæmdanefndar, en
Ingólfur segir áætlanir miðast við að
biðlistum hjá 2-5 ára börnum verði
nánast útrýmt árið 2000. Óskað sé eft-
ir að framkvæmdir hefjist bráðlega við
leikskólabyggingu á Oddeyrinni og er
reiknað með að smíði þess húss verði
lokið eftir tvö ár.
Aðeins 10 börn yngri en 2ja ára hafa
Ieikskólavist á Akureyri og einhver bíð
verður á að hægt verði að sinna þess-
um hópi, að sögn Ingólfs: „Við vitum
ekki nákvæmlega eftirspurnina en
miðað við það sem þekkist annars stað-
ar, vilja milli 20 og 30% þeirra sem eiga
börn á þessum aldri nýta sér Ieikskóla-
plássið," segir Ingólfur.
Er ástandið óviðunandi sem stend-
ur? „Eg myndi alls ekki segja að
ástandið í leikskólamálum væri slæmt.
Með nýbyggingunni á Oddeyrinni
verður mikil breyting, en það vantar
fleiri pláss á Brekkunum og það er lík-
legt að næsta leikskólabygging muni
rísa þar,“ segir Ingólfur. Þess má geta
að áætlanir bæjaryfirvalda gera ráð fyr-
ir hægri fjölgun Akureyringa. — Bl>
Pottverjar tóku eftir að í for-
mannskjöri Alþýðuflokksins
fékk Ámundi Ámundason um-
boðsmaður með meiru sitt hefð-
bundna atkvæði. Það vakti þó
mikla athygli að Stefán Frið-
finnsson var ekki viðstaddur
kjörið, en hann hefur lönguin
verið grunaður um Ámahrellinn. Pottverjar
hafa því dregið þá rökstuddu ályktun að Ámi sé
á rífandi siglingu, með nýjan stuðningsmann...
Ámundi
Ámundason.
í pottinum var verið að ræða um
vísur sem fram koinu á Hagyrð-
ingakvöldi í Verkmemitaskólan-
um og m.a. þótti Hjálmar Frey-
steinsson heilsugæslulæknir
hafa átt ágæta spretti. Hann
komst svo að orði um gagmýni
Davíðs Oddssonar á samfylking-
arframboð vinstri flokkanna sem m.a. fól í sér
sögustund frá því þegar Davið var ungur dreng-
ur að fara út í búð íýrir öinmu sína.
Það eru örlögþessa manns
aðþwýa standa í rífrildi.
Út afþví að amrna hans,
ekki vildi þunnildi...
Hjálmar
Freysteinsson.
Á Suðurlandi heyrast nú kenning-
ar um að Ámi Gunnarsson hjá
Heilsustofnun Náttúrulækninga-
félagsins sé að íhuga framboð í
kjördænflnu. Hann færi þá fram
fýrir sameinaða jafnaðarmeiin en
sá galli er á gjöf Njarðar að íýrir í
fleti er sjálf Margrét Frímanns-
dóttir formaður allaballa og er
taiið ólíklegt að Ámi eigi möguleika á að velta
henni úr sæti. Hins vegar þykir líklcgra að Ámi
gæti tekið slaginn við Lúðvík Bergvinsson þing
mann kjördæmisins og skotist upp í annað sæt-
ið á listanum...
Árni
Gunnarsson.
FRÉTTAVIÐ TALIÐ
Sighvatur
Björgvinsson
formaður Alþýðuflokksins
49. flokksþing Alþýðu-
flokksins var haldið um
helgina og Sighvatur Björg-
vinsson endurkjörinnfor-
maður. Þingið þótti rólegt
og samfylkingarmálin nutu
stuðnings, en mæting var
fremurdræm.
Alþý ð nflokkiirími hefur
ekki breytt stefnu sinul
- Ertu ánægður tneð flokksþingið og þtna
útkomu á því?
„Já, ég er mjög ánægður. Þetta var engin
hallelújah-samkoma, en flokksþingið var þó
mjög friðsamt vegna þess að þau stefnumál
sem flokkurinn ákvað að beita sér fyrir og
fól mér og öðrum úr forystunni að fram-
kvæma hafa gengið vel fram. Það var því
góð sátt á þessu flokksþingi."
- Var einörð samstaða í samfylkingar-
málunum - engin andstaða gegn málefna-
skránni?
„Nei, engin, þó að sjálfsögðu hafi verið
gerðar athugasemdir við einstaka þætti.
Helst við utanríkismálakaflann og einn þátt
í umhverfismálakaflanum, þ.e. staðfestingu
Kyoto-bókunarinnar. Það má alltaf búast við
því að það komi einhver slík atriði til skoð-
unar manna á meðal, enda finnst mér að
það sem flokkarnir eru að gera sé eins og
þegar gengið er frá stjórnarsáttmála til fjög-
urra ára eftir kosningar. Við erum einfald-
lega að gera þetta fyrir kosningar, til að
leggja þetta fyrir kjósendur. Ávallt, þegar
gengið er frá slíkum verkefnum í sáttmála,
er um málamiðlanir að ræða, sem aftur þýð-
ir ekki að flokkamir hafí breytt stefnu sinni.“
- Stefna hvers flokks er þá i fullu gildi
hvað sem samfylkingu líður?
„Já. Flokkarnir gera með sér sáttmála til
fjögurra ára, en hafa ekki horfíð frá stefnu
sinni. Og gera það ekki fyrr en þá að full
sameining á sér stað.“
- Gunnar Ingi Gunnarsson sagði sig úr
flokknum vegna kaflans um hermálið. Er
það þér ekki áfall?
„Þetta kom mér mjög á óvart. Eg tel að
hann hafí enga ástæðu haft til að gera þetta,
því flokkurinn hefur ekki breytt afstöðu
sinni í þessu máli. Eg varð því nokkuð undr-
andi. En ég sé eftir Gunnari, hann er traust-
ur og góður maður."
- Hvert var að öðru leyti aðalmál flokks-
þingsins?
„Það var tekin ákvörðun á þessu flokks-
þingi að gera mennta- og menningarmál að
sérstöku forgangsmáli. Meðal annars var
gert sérstakt hlé á þingstörfum til að þing-
fulltrúar gætu á fundi upp í Háskóla kynnt
sér sjónarmið háskólamanna um framtíð
æðri menntunar á íslandi. Það er í fyrsta
skipti sem stjórnmálaflokkur á Islandi hefur
teldð slíka ákvörðun. Við áttum mjög góðan
og gagnlegan fund með rektori og fulltrúum
nemenda og í kjölfarið samþykkti flokks-
þingið mjög ítarlega ályktun um mennta- og
menningarmál sem ég tel eitt hið merkasta
sem gert var á þessu flokksþingi.“
- Þú hefur talað um sigurför jafnaðar-
stefnunnar um Evrápu. Ert þú bjartsýnn
á að samfylkingin leiði næstu rikisstjóm á
íslandi?
„Eg tel að við höfum milda möguleika til
þess. Það sýna meðal annars þær skoðana-
kannanir sem gerðar hafa verið." — FÞG