Dagur - 29.09.1998, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 2 9 . SEPTEMBER 19 9 8 - S
þannig séu í sameiningu komin
með mjög mikið vægi í hlutfalli
við félagaQölda.
Engar homrekur
„Við viljum fá þetta Ieiðrétt, en
erum ekki að fara fram á völd
umfram okkar hlut. En eins og
nú er virðist okkur ekki ætlað
neitt pláss til meðákvarðanatöku
í því sem fram fer í bandalaginu.
Við höfum rætt þessi mál innan
bandalagsins en ekki fundist á
þeim tekið og sáum okkur því
knúin til að mótmæla með þess-
ari aðferð," sagði Kristín.
Dropinn sem fyllti mælinn var
kosning í stjórn Lífeyrissjóðs
sveitarfélaga. „Við töldum eðli-
Iegt að við fengjum þar annan
manninn í stað 2ja frá Starfs-
mannafélaginu, og bárum upp
tillögu um manneskju, en henni
var hafnað í kosningu. Það
fannst okkur sýna að ætti ekki að
hleypa okkur að,“ sagði Kristín.
- HEl
Sex fjöLmenn fagfélög
telja sig sniðgengin
við ákvarðanatöku
innan BSRB og mót-
mæltu með því að láta
sig vanta á bandalags-
ráðstefnu.
„Markmið okkar með þessum
mótmælum er auðvitað það að fá
áhrif innan bandalagsins og vera
þar áfram. En takist það ekki
verðum við að skoða okkar mál.
Séum við áhrifalaus innan ein-
hverra samtaka er ekkert verra
að vera bara áhrifalaus utan
þeirra. Já, eða hugsanlega að
þessir faghópar myndi sérstakt
félag," svaraði Kristín Guð-
mundsdóttir, formaður Sjúkra-
liðafélagsins, sem ásamt félög-
um leikskólakennara, ljós-
mæðra, þroskaþjálfa, brunavarða
og tollvarða telja sig ofurliði
borin við ákvarðanatök-
ur innan BSRB og
mættu ekki á bandalags-
ráðstefnu í mótmæla-
skyni.
Vægið skakkt
„Eg held að grunnurinn
að þessu sé sá, að vægið
í bandaiaginu er orðið
svo skakkt," sagði Krist-
ín. BSRB samanstandi
af stórum félögum og
fjölmörgum örlitlum
starfsmannafélögum.
Fjöldi þingfulltrúa ráð-
ist af fjölda félags-
manna, en litlu félögin
fái samt alltaf einn. Eft-
ir útgöngu þessara fag-
hópa úr starfsmannafé-
lögum í um 30 sveitarfé-
lögum séu þau mörg orð-
in afar fámenn. Af því
Ieiði að mildu færri fé-
lagsmenn séu að baki
hverjum þingfulltrúa
litlu félaganna, sem
Kristín Guðmundsdóttir segir ekki útilokað
að faghóparnir í BSRB myndi sérstakt féiag
frekar en að vera áhrifaiausir innan Banda-
lagsins.
Frá blaðamannafundi íslenska
skákliðsins áður en lagt var af
stað. Þar komu einmitt fram efa-
semdir um undirbúninginn.
Tefla hér
ogþar
Það fór sem margan grunaði að
„skákhöllin" í hinu sárafátæka
sjálfstjórnarríki í Rússlandi, Kal-
makyu, yrði ekki tilbúin fyrir
Olympíuskákmótið á réttum
tíma. Fresta varð setningu móts-
ins um tvo daga. Þó er Ijóst á því
sem breskir blaðamenn, sem
fylgjast með ÓL-mótinu, segja
að í það minnsta viku vinna er
eftir við smíði hallarinnar.
Nú hefur verið ákveðið að
mótið, sem átti að hefjast á
sunnudaginn, hefst í dag. Sterk-
ustu liðin verða látin tefla í
„listaskóla barna" sem svo heitir.
Hin liðin verða að tefla hingað
og þangað þar til hægt verður að
taka höllina í notkun.
Breski blaðamaðurinn David
Norwood sagði vondu fréttirnar
þær að það tæki minnsta kosti
viku að ljúka við byggingu hall-
arinnar en góðu fréttirnar væru
að þeir ættu meira en vikubirgð-
ir af vodka. - S.DÓR
ForstjóriÁTVR telur líklegt að áfengið eigi eftir að hækka á næstunni þegar lagabreytingar sem samþykktar hafa
verið taka gildi.
Hækkar áfengið?
Að mati forstjóra
ÁTVR eru líkur á
verðhækkim á áfengi
eftir að allur inn-
fhitningur áfengis
verður í höndum
heildsala.
Eftir tvo daga, 1. október, verða
þáttaskil í sögu ATVR. Þá færast
98% alls innflutnings á áfengi á
hendur heildsala og þess er ekki
langt að bíða að innflutningur
ríkisins verði alfarið úr sögunni.
Eftir mánuð lýkur tímabundinni
reynslusölu ATVR á áfengi og
þar með hverfa síðustu prósent-
in tvö. Þessi umskipti eru hluti
lagabreytinga sem samþykktar
hafa verið á Alþingi.
Höskuldur Jónsson, forstjóri
ATVR, segir að þessi breyting
hafi smám saman verið að eiga
sér stað frá 15. maí. Engin fækk-
un starfsfólks verður um mán-
aðamótin vegna þessa en Hösk-
uldur spáir verðhækkunum í
kjölfarið. „Við verðum háðir
kaupum innlendra birgja og þeir
geta sett það verð á sína vöru
sem þeim sýnist. Eitt innlent
vínsölufyrirtæki hefur nú tekið
við umboði á öllum vörum
United Distillers. Fyrirtækið
virðist þar með vera komið með
helstu viskítegundir heims og
það er ekki auðvelt að leita að
keppinautum á þeim markaði.
Ég sé ekki betur en að nú stefni
í samskonar fyrirbæri og var á
meðan við höfðum einir inn-
flutningsréttinn nema að núna
þarf heildsalinn ekki að fara eft-
ir neinum verðlagningarreglum.
Hann ákveður sitt verð með hlið-
sjón af því hvað gefur honum
mestan hagnaðinn."
Höskuldur bendir jafnframt á
að að ekki sé hægt að bæta við
um 60 milliliðum án þes^ að þeir
vilji fái eitthvað fyrir sinn snúð.
Það muni eflaust hafa áhrif á
verðlagið. — bþ
INNLENT
„Ótrúleg ósvífni66
Rafiðnaðarmenn þakka félagsmálaráðherra fyrir afskipti sín af mál-
efnum rússneskra starfsmanna Technopromexport sem vinna við
lagningu Búfellslínu, en gagnrýna embættismenn harðlega. I vfirlýs-
ingu sem fundur trúnaðarmanna Rafiðnaðarsambands Islands sam-
þykkti um helgina er Iýst þungum áhyggjum vegna þess að „launa-
menn þurfi ítrekað að þrýsta á embættismenn um að farið sé að ís-
lenskum lögum og samningum".
Þar segir ennfremur að sú ákvörðun fulltrúa heilbrigðis- og vinnu-
eftirlits að telja „12 fermetra skúr vera fullnægjandi starfsmannahús-
næði fyrir 20 manna útivinnandi hóp er ótrúleg ósvífni". Skorað er á
heilbrigðisráðherra að taka málið til sín af festu.
Jólaskreytingar í miðjiun nóvember
Akureyringar eru hvattir til að setja upp jóla-
seríur sínar óvenju snemma í ár eða ekki sfð-
ar en 20. nóvember. Þeir sem standa fyrir
þessari ósk eru aðstandendur jólasveina-
þings á Akureyri og samfelldrar 5 vikna dag-
skrár í kjölfarið þar sem Akureyri verður
breytt í bæ jólasveinsins.
Jólasveinaþingið hefst 20. nóvember og
segir Tómas Guðmundsson, forstöðumaður
Ferðamálamiðstöðvar Eyjaljarðar, að von
hans sé að bæjarbúar taki bóninni vel. „Ég
lít svo á að þetta sé liður í því að gera
skammdegið skemmtilegra og ekki síður
erum við að reyna að gera alla íbúa á Akur-
eyri þátttakendur í þessu jólaævintýri. Að
sjálfspgðu verða alltaf einhverjir óánægðir
en heilt yfir held ég að flestir muni taka
þessu vel. Ég er bjartsýnn," segir Tómas.
Tómas bætir við að ef bjóða eigi aðkomu-
fólki f stórum stíl í bæinn til að upplifa sér-
staka jólastemmningu, verði sem flestir að
vera virkir til að það geti orðið. „Aðalmálið er
að fólk upplifi stemmninguna hvar sem er í
bænum,“ segir Tómas. — BÞ
KoJkrabbinn að kaupa?
I gær voru tilboð opnuð í hlut að nafnvirði 50 milljóna króna í hluta-
íjárútboði Landsbankans. Um 45 aðilar sendu inn tilboð og skv. frétt
Stöðvar 2 áttu fulltrúar Kolkrabbans svokallaða hæsta boðið. Vil-
hjálmur Bjarnason viðskiptafræðingur fór fyrir Kolkrabbanum og
bauð á genginu 2,53 í hlutinn.