Dagur - 29.09.1998, Blaðsíða 12
12- ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1998
ÍÞRÓTTIR
Næstu leik-
irí úrvals-
deildinnií
handbolta
2. umferð
Miðvikud. 30. september
Kl. 20.00 ÍR-Haukar
KI. 20.00 Stjarnan-Grótta KR
KI. 20.30 FH-UMFA
Kl. 20.00 Sélfoss-Fram
Kl. 20.00 Valur-KA
Kl. 20.00 ÍBV-HK
Stéttín
erfyrsta
skrefið
iim...
MiMðúrval
afheUum
og steinum.
Mjöggottverð.
STÉIT
HELLUSTEYPA
HYRJARHÖFÐI 8
112 REYKJAVÍK
SÍMI 577 1700-FAX 577 1701
Tkytu-
Chelsea sigraði Middlesbrough 2:0 um helgina. Hér kljást þeir Paul
Gascoigne hjá „Boro“ og Albert Ferrer hjá Chelsea um boltann.
Aston Villa
að stinga af
Villa stingur af meðan
„toppliðin“ puða uui
miðja deild. Meistar-
arnir aðeius uunið tvo
leiki. Newcastle kom-
ið á gott skrið.
Aston Villa hefur heldur betur
hrist af sér allar hrakspár og er að
stinga af í ensku úrvalsdeildinni.
Paul Merson skoraði sigurmark
liðsins gegn Derby á Villa Park og
náði með því fimm stiga forystu,
á gesti sína og nágranna í Derby.
Hinn skapstóri John Gregory,
hefur hrist saman úrvals leik-
mannakokteil og byggir á sterk-
um varnarleik og skyndisóknum.
Villa hefur ekki skorað nema átta
mörk en ekki fengið nema eitt
mark á sig. Kannski ekki
skemmtilegasti boltinn í deild-
inni en hann gefur árangur.
Meistaramir lágu í aunað
sinn
Meisturunum frá Highbury,
Arsenal, hefur gengið hálf illa
það sem af er. Tveir sigrar í sjö
Ieikjum er eitthvað sem menn
þar á bæ eru ósáttir ýið. Um
helgina var það Sheffiejd Wed-
nesday sem sló meistarana til
jarðar með 1-0 sigri í sögulegum
leik. Það voru ekki bara meistar-
arnir sem máttu lúta í gras. Það
gerði dómari leiksins einnig eftir
pústra við leikmann Wednesday,
Di Canio. Framkoma Di Canios
er óafsakanleg en það er einnig
frammistaða dómarans. Fyrir
utan að hafa enga stjórn á leikn-
um var leikaraskapur hans ömur-
legri en nokkurs leikmanns, sem
reynir að veiða vítaspyrnu, er Di
Canio ýtti við honum. Þeir urðu
sér báðir til skammar auk
Arsenalmannanna Patrick Vieira
og Martin Keown. Di Canio hef-
ur nú verið rekinn frá Sheffield
og er kominn heim til Italíu.
Arsenal er rétt fyrir ofan miðja
deild eftir tapið og er þar í hópi
með Chealsea, sem sigraði Midd-
lesbrough, 2-0* og, Le<;ds : sem
gerði 3-3 jafntefli við Tottenham
í London.
Wimbledon á venjulegunt
stað
Wimbledon er á hefðbundnum
stað í upphafi móts, við toppinn.
Liðið gerði 1-1 jafntefli við
Leicester á sunnudaginn og er í
íjórða sætinu.
Everton og Blackburn halda
áfram að ströggla. Liðin gerðu 0-
0 jafntefli á Goodison Park í nán-
ast tíðandalausum leik. Þau
hefðu eins getað samið um skipt-
an hlut í síma í stað þess að narra
áhorfendur á völlinn til þess eins
að láta sér leiðast.
Charlton og Coventry gerðu
einnig jafntefli í hundleiðinlegum
leik. Bæði Iiðin náðu þó að skora
mark í leiknum sem endaði 1 -1.
Newcastle er heldur betur að
komast á skrið. Ekki skemmir það
kátínuna hjá stuðningsmönnum
Iiðsins að blóðið er aftur farið að
renna í æðum Alan Shearer.
Hann skoraði bæði mörk liðsins
gegn Nottingham Forest sem tap-
aði nú sínum Ijórða leik á tímabil-
inu. — GÞÖ
Lokastaðan í
Urvalsdeildinni
í knattspyrnu
ÍBV 18 12 2 4 40:15 38
KR 18 9 6 3 25:9 33
ÍA 18 8 6 4 27:22 30
Keflavík 18 8 4 6 19:23 28
Leiftur 18 7 4 7 21:21 25
Fram 18 5 5 8 21:23 20
Grindav. 18 5 4 9 24:34 19
Valur 18 4 6 8 25:33 18
ÍR 18 4 6 8 27:39 18
Þróttur 18 4 5 9 20:30 17
Það verður hlutskipti ÍR-inga
og Þróttara að falla í 1. deild
eftir eins árs veru beggja liða í
úrvalsdeildinni.
Breiðablik og Víkingur fær-
ast í úrvalsdeildina og leika
þar á næsta tímabili.