Dagur - 29.09.1998, Qupperneq 6

Dagur - 29.09.1998, Qupperneq 6
6- ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1998 ÞJÓÐMÁL Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson Ritstjórar: stefán jón hafstein ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Aðstoðarritstjóri: birgir guewiundsson Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson Skrifstofur: strandgötu si, akureyri, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK Símar: 460 6ioo OG 800 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjald m. vsk.: 1.680 kr. á mánið Lausasöiuverð: 150 kr. og 200 kr. helgarbl/ð Grænt númer: 800 7080 Simbréf auglýsingadeildar: 460 6161 Símar auglýsingadeildar: creykjav(k)563-1615 Ámundi Ámundason (AKUREYRIJ460-6191 G. Ómar Pétursson OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir Netfang auglýsingadeildar: omar@dagur.is Simbréf ritstjórnar: 460 6171(akureyri) 551 6270 (reykjavíK) Stórsókn jafnaðar- manna? í fyrsta lagi Þegar Mitterand varð forseti Frakklands mátti ekki milli sjá hvort það var meira að þakka Alþýðuflokknum á Islandi eða Al- þýðubandalaginu. Svo mikið var migið utan í þann mann að hann stóð holdvotur í heillaóskum frá íslandi. Nú er það helst að skilja að utan úr hafi stefni öldufaldur sem fleyta muni ís- lenskum jafnaðarsambræðingi sem enn er ekki til nema í draumum og torlesnum rúnum inn í stjórnarráðið næsta vor. Þessi öldufaldur setti Schröder til valda í Þýskalandi, Blair í Bretlandi, Jospin í Frakklandi. Hvers vegna ekki jafnaðarmenn á íslandi? Vegna þess að... hér eru allt aðrar aðstæður. í öðru lagi Þótt pólitísk sóknarfæri séu nokkur góð íyrir íslenska jafnað- armenn voru aðstæður Clintons, Blairs og Schröders hag- kvæmari fyrir andstöðuöfl en eru hér. Og þeir voru að auki hugkvæmari baráttumenn en íslenska stjórnarandstaðan hef- ur sýnst síðustu árin. Hér heima situr öflug ríkisstjórn í góð- æri. Davíð og Halldór eru fráleitt „búnir“ eins og Kohl, Major og Bush. Til að snúa þeim aðstæðum sem hér eru þarf stjórn- arandstaðan að draga rétta lærdóminn af erlendu fréttunum. Til þess er naumur tími. í þriðja lagi Hér er til dæmis ekki (enn) til sá sameinaði jafnaðarmanna- flokkur sem þorir, vill og getur sótt inn á miðju íslenskra stjórnmála þar sem meirihlutavaldið er. Þeir jafnaðarmenn sem hafa unnið glæsta sigra í Evrópu (Clinton er hluti af því dæmi líka) hafa gert sögulega málamiðlun við ákveðna þætti nýfrjálshyggjunnar á undan þeim. Þeir hafa líka forgangsrað- að á verkefnaskrá velferðarkerfisins, gengið í endurnýjun hug- myndalegra h'fdaga og óhræddir klæðst skartbúningi fjölmiðla- aldar. Þeir hafa með öðrum orðum gert það sem þarf til að vinna meirihluta. Hér er það ógert. Stefán Jón Hafstein. Sigur Sighvats Garri vill byrja á að óska Sig- hvati Björgvinssyni sérstaklega til hamingju með sigurinn í Þýskalandi. Ohætt er að segja að það afrek að fella Kohl er heimssögulegt afrek hjá for- manni Alþýðuflokksins og sér- staklega ánægjulegt að svo marktækur árangur hafi náðst aðeins nokkrum dögum eftir að málefnagrund- völlur sameiginlegs framboðs íslensku stjórnarandstöðu- flokkanna var birt- ur. Auðvitað sýna þýsku kosningarn- ar betur en nokkuð annað, að þeir hnökrar sem voru við birtingu mál- efnaskrárinnar og Davíð Oddsson var sem mest að gera grín að skiptu ekki máli þegar til lengdar lætur. Jafn- aðarmenn standa nú uppi með pálmann í höndunum og halda sigurhátfð. Alþjóðlegur sigur Þessi mikli sigur Sighvats Björgvinssonar og samfylking- ar jafnaðarmanna á íslandi er þó ekki eingöngu bundinn við Þýskaland. I ljós er komið að Sighvatur hefur áður sigrað í Bretlandi og Frakklandi þannig að í öllum forustu- ríkjum Evrópu sitja nú „jafn- aðarmenn við völd“ eins og Sighvatur orðar það. Ekki er að efa að þessi mikla sigur- bylgja mun bera Sighvat inn í stjórnarráðið næsta vor þar sem hann mun verða hinn ís- V lenski jafnaðarmannakanslari í hópi jafningja við Evrópuhá- borðið - Schröder, Blair, Jospin og Sighvatur - hin nýja fjórmenningaklíka! Sigurliðið Garri getur hins vegar ekki samþykkt að hinn sænski Per- son fái að vera með hinum strákunum við háborðið, því hann hefur enga glæsta sigra unnið - a.m.k. ekkert í lík- ingu við kosninga- sigur Sighvats (og Sc.hröders) um helgina. Person tapaði nú meira að segja kosningunum um daginn þótt hann lafi enn í embætti vegna ágreinings borgara- flokkanna. Enda er greinilegt að Sighvatur er sam- mála Garra í þessu því Sig- hvatur hefur einmitt bent á að sænsku kosningarnar hafi ekk- ert að gera með Island eða ís- lenskar aðstæður. I viðtali við Dag á dögunum undirstrikaði Sighvatur þetta einmitt og harðneitaði því að ósigur sænskra jafnaðarmanna kæmi íslenskum jafnaðarmönnum eitthvað við. Það er nú eitt- hvað annað en í Þýskalandi. Þannig er ósigur sænskra jafn- aðarmanna Sighvati óviðkom- andi en sigur þýskra jafnaðar- manna er sigur Sighvats. Sig- hvatur er einfaldlega lánsamur maður - hann er alltaf í sigur- liðinu. GARRI Sighvatur Björgvinsson er sífellt að sigra. JÓHANNES SIGURJÓNS SON skrifar I Vesturbænuin og Vest maimaeyjum Jú, vissulega finnur maður til samúðar og er heltekinn af hlut- tekningu. Og þó maður sé sjálfur ekki beinlínis lagstur í verulegt þunglyndi þá skilur maður sorg og virðir vonbrigði viðkomandi Vesturbæinga. En maður er nú auðvitað ekki fæðingar-KR-ingur sjálfur, þannig að það er auðvitað eðlilegt að maður telji lífið enn þess virði að lifa því, þrátt fyrir tapið gegn Vestmannaeyingum á dögunum. Herbergið í KR-heimilinu, sem merkt er: „Nýir Islandsbikarar", hefur verið læst í 30 ár og vísast húið að týna lyklinum. A meðan bikargeymsla Eyjamanna er galopin og verðlaunin streyma þar inn. Og það má gera því skóna að í Vesturbænum ríki nú hnignun eða a.m.k. stöðnun á fleiri sviðum en í fótboltanum, á meðan uppgangur sé gríðarlegur í Vestmannaeyjum hvert sem lit- ið er. Brauð og leikir? Það er nefnilega órannsökuð staðreynd að árangur í íþróttum virkar gjarnan sem hvati til við- reisnar í atvinnulífi og í samfé- laginu almennt. Sigurgleði fót- boltamanna blæs öðrum óspark- andi bjartsýni í bijóst, eykur dug og þor og hvetur menn til dáða á ýms- um sviðum. Sumir hnussa auðvitað og segja „brauð og leikir, brauð og leildr,“ og tala um að íþróttir séu hið eina sanna ópíum fyir fólkið. En ástæð- an fyrir stöðnun og hnignun samfélags er oftar en ekki doði, vonleysi og minnimátt- arkennd, fremur en óhagstæð ytri skilyrði. Og til þess að vinna gegn vonleysinu þarf að skapa ástand sem vekur bjartsýni og telur íbúum samfélagsins trú um að „við erum jafngóðir ef ekki betri en hinir á þessu tiltekna sviði. Látum hendur standa fram úr ermum á öllum sviðum samfé- lagsins og sýnum hvað í okkur býr.“ Nóbels-syndrómið Þetta skilja klókir stjórnmála- menn og bisnesmenn. Þess vegna styrkja þeir íþróttir með fjárfrani- Iögum. Auðvitað í því skyni að efla forvarnir og stuðla að heilbrigði einstaklinga í samfé- laginu, sem skilar sér í minni kostnaði í heil- brigðisþjónustu og meiri hagvexti. En einnig í þeim tilgangi að skapa, ef vel tekst til, sigurtilfinninguna sem hefur svo jákvæð áhrif út í samfélagið, skapar samkennd og þjappar mönnum saman til góðra verka. Það hefur örugglega ekki verið kannað, en það er ekki ólíklegt að mátt hefði mæla andlega og efnahagslega uppsveiflu á íslandi eftir að strákarnir okkar í hand- boltanum unnu B-keppnina um árið, eftir að fótboltalandsliðið gerði jafntefli við Frakka á dög- unum, eftir að bridds-piltarnir unnu Bermúdaskálina og eftir að Laxness fékk Nóbelinn. Lögmál- ið á sem sé einnig við um árang- ur á fleiri sviðum en í íþróttum. Afrek á borð við þessi skipta miklu máli fyrir lítið land á borð við ísland. Og hér heima er þetta ekki síst mikilvægt fyrir smærri samfélög landsins. Sigursælt íþróttalið er sameiningartákn fyr- ir viðkomandi byggðarlag. Vest- mannaeyingar eru örugglega samstæðari hópur og líldegri til afreka um víðan völl eftir þetta sumar en þeir voru t.d. fyrir 2 árum. Og Vesturbæingar hefðu sjálfsagt lýst yfir sjálfstæði borg- arhlutans hefði KR unnið titil- inn. Og gera það hugsanlega að ári. sbuiÍIm svarauð Hvemig líður þér sem KR-ingi eftirað hofa tapað enn einu sinni ís- landsmeistaratitlinum í hnattspymu? Geir Þorsteinsson KR-ingur ogframkvæmdastjóri KSÍ. „A þessari stundu Iíður mér mjög vel því við starfs- menn KSÍ vor- um að vinna kollega okkar hjá Iþróttasambandinu í móti í innanhússbolta nú í há- deginu. Hvað varðar leikinn á laugardaginn þá hef ég nú oft skemmt mér betur á leikjunum en raunin varð þá. Eg óska bara ÍBV til hamingu." Gunnar Felixson KR-ingur ogforstjóri Tryggingamið- stöðvarinnar. „Maður jafnar sig. Það er alltaf sárt að tapa, en hins- vegar unnu Eyjamenn leikinn verð- skuldað svo ekki er hægt að kvar- ta undan því. Hinsvegar var þetta ekki það sem ég bjóst við og vonaðist eftir því að KR sigr- aði leikinn." Möröur Áraason KR-ingur og íslenskufræðingur. „Þetta er nú komið upp í vana hjá okkur KR-ing- um og við Iátum okkur ekki bregða. Það kemur dagur eftir þennan dag.“ EHert B. Schram KR-ingur ogformaður ÍSl. „Mér lið- ur alltaf vel sem KR-ingi. Ég er að sleikja sárin þessa stundina, lífið held- ur auðvit- að áfram þótt þessi Ieikur hafi tapast." A)\?. A

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.