Dagur - 29.09.1998, Blaðsíða 8
8 - PRIDJVDAGUR 29. SEPTEMRER 1998
ÞRIDJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1998 - 9
FRÉTTASKÝRING
FRÉTTIR
SIGURDÓR
SIGURDORS-
SON
SKRIFAR
Þýskir jafnaðarmenn
uimu stdrsigur í kosn-
ingimiun í Þýskalandi
uin helgina.
Kosningasigur jafnaðarmanna í
Þýskalandi, undir forystu Ger-
hards Schröders, hefur að vonum
vakið athygli um allan heim.
Kristilegir demókratar undir for-
ystu Helmuts Kohl hafa verið við
völd í landinu sl. 16 ár. En í
Þýskalandi gerðist það sama og í
Bretlandi og Frakklandi. Jafnað-
armannaflokkarnir í þessum
löndum hafa allir unnið sigra og
komist til valda í síðustu kosning-
um. Bent er á að jafnaðarmanna-
flokkarnir í Bretlandi og Þýska-
landi hafi fært sig inn á miðjuna í
stjórnmálunum og þess vegna
unnið sigra. Aðrir benda á að
jafnaðarmenn í Frakklandi hafi
ekki gert það en sigrað samt.
Frjálshyggjan á undanhaldi
„Fg hafna þeirri kenningu að
jafnaðarmenn séu að færa sig inn
á miðju. Fyrir rúmlega tveimur
áratugum var ekki ósvipuð staða
uppi og jafnaðarmenn voru með
sterka stöðu í þessum löndum.
Ekki var það einhverri miðjupólit-
ík að þakka. Eg held að skýring-
anna á velgengni þeirra nú sé ekki
að leita í færslu jafnaðarmanna-
flokkanna í Evrópu. Eg tel að
ástæðan sé fyrst og fremst hnign-
un nýfrjálshyggjunnar," sagði
Mörður Arnason, varaþingmaður
Þjóðvaka.
Hann segir að eftir vinstribylgj-
una á sjöunda og áttunda ára-
tugnum hafi risið frjálshyggju-
bylgja kennd við Reagan og
Thatcher. Hér á landi hafi hún
verið tengd nafni Hannesar
Hólmsteins. A þessum áratug,
segir Mörður þessa bylgju hafi
verið að lækka og Iáta undan síga.
Hún átti að vera svar við gamal-
dags vinstri hugmyndum en hefur
ekki gengið upp. Það sem gerst
hafi sé að hinir ríkari hafi orðið
ríkari og fátækir fátækari. Þá hafi
frjálshyggjumönnum ekki tekist
að svara vanda velferðarkerfisins
nema með niðurskurði sem hefur
leitt til fátæktar og atvinnuleysis.
„Eg held því að sigrar jafnaðar-
manna í Evrópu séu fyrst og
fremst birtingarmynd af þessu en
ekki færslu jafnaðarmanna inn á
miðju stórnmálanna. Enda þótt
þessir flokkar hafi verið í ákveð-
inni endumýjun vil ég ekki sam-
þykkja að þeir hafi færst til hægri.
Þeir hafa sett spurningamerki við
viðteknar aðferðir í pólitík, sem
komið hefur hvað skýrast fram
hjá Verkamannaflokknum í Bret-
landi,“ segir Mörður.
Hann var spurður hvort ís-
lenskir jafnaðarmenn geti yfirfært
þessa þróun hingað til íslands í
kosningunum í vor?
„Það er aldrei hægt að færa
kosningaúrslit á milli Ianda. Hins
vegar kunna þessir sigrar jafnað-
armannaflokkanna í Evrópu að
hafa í sér ákveðinn lærdóm fyrir
okkur. Þeir hafa reynt að skil-
greina sjálfa sig upp á nýtt og fellt
gömul gildi að nýjum tímum.
Þetta held ég að geti kennt mönn-
um margt hér á landi,“ sagði
Mörður Arnason.
Yfir á miðju stjómmálauna
„Það er alveg Ijóst að jafnaðar-
mannaflokkarnir sem hafa verið
að vinna þessa stóru sigra í Evr-
ópu hafa verið miðjuleiknir, fært
sig yfir á miðju stjórnmálanna,"
segir Ólafur Þ. Harðarson stjórn-
málaffæðingur. „Stóru jafnaðar-
mannaflokkarnir í Evrópu hafa
svo sem lengi verið nálægt miðj-
unni. En nú hin síðari ár hafa
markaðshugmyndir orðið meira
ráðandi víðast hvar í veröldinni.
Heimurinn er að verða einn
markaður og eins það að ríkisaf-
skipti af efnahagslífi í flestum
ríkjum, hafa minnkað. Þeir jafn-
aðarmannaflokkar sem hafa náð
árangri hafa fylgt þessari þróun.
Það er langt síðan þeir gáfu upp á
bátinn allar hugmyndir um þjóð-
nýtingu og höfðu hóf á því hve
mikil afskipti þeir vildu hafa af
efnahagslífinu. En almennt reka
þeir stefnu sem gerir ráð fyrir
minni afskiptum af efnahagslíf-
inu en áður var. Þeir hafa Iíka tek-
ið á vandamálum velferðarkerfis-
ins. Þeir hafa á stefnuskrá sinni
að vernda velferðarkerfið en þeir
hafa sett sér skýrari mörk en áður
um að það geti ekki haldið áfram
að vaxa takmarkalaust. Þeir hafa
forðast þá ímynd að þeir vilji bara
auka útgjöldin þegar þeir komast
til valda," segir Ólafur.
Hann tekur líka undir með
þeim sem segja að bæði í Bret-
landi og Þýskalandi hafi hægri
stjórnir verið búnar að sitja svo
Iengi að fólk hafi verið orðið leitt
á þeim og breyti því til.
„Það er alþekkt að gamla
stjórnin fái á sig þreytumerki og
fólk ákveði að skipta bara til að
skipta. Síðan má ekki gleyma því
að hugsunin í fulltrúalýðræði er
að sjálfsögðu að stöku sinnum sé
skipt um stjórnendur," sagði Ólaf-
ur Þ. Harðarson.
Vel yfir miðjuna
„Sigur jafnaðarmanna kom mér
ekki á óvart. Maður var búinn að
sjá niðurstöðutölur skoðanakann-
ana í langan tíma sem sýndu
meirihluta fylgi jafnaðarmanna.
Að vísu var þetta nokkuð sveiflu-
kennt. Það dró sundur og saman
með flokkunum en undir lokin
held ég að flestir hafi reiknað
með sigri jafnaðarmanna,“ sagði
Jón Sæmundur Sigurjónsson,
fyrrverandi alþingismaður, en
hann er þýskmenntaður og bjó
þar í 16 ár og þekkir því vel þýsk
stjórnmál.
Mörður Árnason: jafnaðarmenn ekki
færst til hægri.
Schröder kom í heimsókn tii ísiands í fyrra og fór vítt um landið. Hann skoðaði m.a.togara Samherja og fékk þá að prufa að setjast í stól skipstjórans. Hann kunni vel við sig þar. Nú hefur Schröder sest í
annan skipstjórastól því hans bíður það verk að stýra þýsku þjóðarskútunni næsta kjörtímabil.
Hann segir það alveg ljóst að
Gerhard Schröder hafi teygt sig
vel yfir miðju stjórnmálanna og
með því skapað þann meirihluta
sem hann fékk. Það sé ljóst að
Schröder hafi talið sig þurfa að
setja á sig hægri svip til að ná
þessum árangri. Jón Sæmundur
segir að vinstra liðið í flokknum
hafi því eins og losnað úr tengsl-
um við hann og hrifningin á hon-
um hafi minnkað um tíma. En
síðan hafi honum tekist að fylkja
liði undir lok kosningabaráttunn-
ar.
Úlafur Þ. Harðarson: miðjusæknir
jafnaðarmannaflokkar.
Varðandi þá fullyrðingu að jafn-
aðarmannaflokkarnir í Evrópu
væru að færast yfir á miðjuna
sagði Jón Sæmundur að þar væri
ekki hægt að alhæfa.
„Ef við tökum jafnaðarmanna-
flokkinn í Frakklandi þá hefur
hann aldeilis ekki fært sig yfir á
miðjuna. En hann vann sigur
samt. Hins vegar er það staðreynd
að Schröder færði sig yfir á miðj-
una. Breski Verkamannaflokkur-
inn gerði það líka til þess að
höfða til yngri kjósenda að sagt
var. Það kom í ljós á mikilli krata-
Jón Sæmundur Sigurjónsson: hægri
svipurinn nauðsynlegur.
foringjaráðstefnu sem haldin var í
vor að frönsku kratarnir virtust
vera alveg sér á báti og ekki inn á
þessari nýju evrópsku kratalínu,“
segir Jón Sæmundur.
Varðandi úrslit kosninganna í
Þýskalandi og Bretlandi bendir
hann á að í þeim löndum hafi
íhaldsstjórnir verið búnar að sitja
við völd vel á annan áratug.
„Það er einfaldlega eðli lýðræð-
isins að skipta um mannskap í
brúnni. Jafnaðarmannaflokkarnir
í Þýskalandi og Bretlandi komu
með nýjar ferskar hugmyndir sem
Ágúst Einarsson: nauðsyn á sam-
kennd og jafnræði.
fólkið kann að meta. Á þessu lifir
lýðræðið," sagði Jón Sæmundur
Sigurjónsson.
Breyttir tímar
„Þetta er glæsilegur tímamótasig-
ur. Þessi kosningasigur sýnir að
það var ekki bara ími kominn á
Kohl og hans flokk, heldur að sókn
jafnaðarmanna, sem verið hefur í
Evrópu, heldur áfram og Evrópa
er orðin álfa jafnaðarmanna,"
sagði Ágúst Einarsson alþingis-
maður.
Hann var spurður hvort hann
hefði skýringu á þessari stjórn-
málaþróun í Evrópu?
„Mitt mat er það að jafnaðar-
mannaflokkarnir hafi verið að
breytast samhliða því sem misrétti
í samfélaginu hefur verið að
aukast í stjórnartíð hægri manna í
þessum Iöndum. Fólk treystir jafn-
aðarmönnum betur til að takast á
við hin félagslegu vandamál sem
leysa þarf eftir hægri stjórnir. Síð-
an eru umhverfis- og menntamál
farin að skipta meira máli í hugum
fólks. Jafnaðarmenn hafa mætt
þessum málaflokkum betur en
hægri menn. Almenn lýðræðisleg
þátttaka fólks í ákvarðanatökum
hefur verið með skýrari hætti að
hálfu jafnaðarmanna. Þá hefur
trúverðugleiki jafnaðarmanna í
stefnumótun verið meiri. Fólk tal-
ar um nauðsyn á meiri samkennd
og jafnræði í samfélaginu og jafn-
rétti kynjanna. Utan um þetta
hafa jafnaðarmenn náð mjög vel.
Síðast en ekki síst er þreyta komin
í hægra liðið eftir langa stjórnar-
setu í Frakklandi, Bretlandi og nú
Þýskalandi," sagði Ágúst.
Hann segist taka undir með
þeim sem segja að jafnaðarmanna-
flokkarnir í Evrópu hafi færst nær
miðju. Jafnaðarmenn almennt við-
urkenni og styðji markaðshagkerf-
ið í atvinnulífinu og beijist gegn
fákeppni og samþjöppun valds.
Ágúst segir að jafnaðarmenn hafi
nýtt markaðshagkerfið mjög vel í
sinni stefnumótun og að því leyti
megi segja að menn hafi færst
meira inn á miðjuna hvað þennan
þátt varðar. Þá segist hann sann-
færður um að þann meðbyr sem
jafnaðarmannaflokkarnir í Evrópu
hafi þessi misserin sé hægt að fá
hingað til lands.
„Samfylking A-flokkanna og
Kvennalistans er í raun ekkert
annað en það sem hefur verið að
gerast í nágrannalöndum okkar.
Þess vegna eigum við að geta upp-
skorið eins og jafnaðarmenn í ná-
grannalöndunum," sagði Ágúst
Einarsson.
Að undanförnu hefur lögreglan í auknu mæli kannað ástand ökumanna í umferðinni og hvort fylgt sé ákvæðum
umferðarlaga um t.d. notkun öryggisbelta.
Var níu mnbrota
helgi í Reykjavík
Það var í mörgu að
snúast hjá lögreglu
samkvæmt daghók
Reykj avíkurlögregl-
imnar þessa helgi.
Alls voru 593 verkefni færð til
bókunar. Tilkynnt var um 9 inn-
brot og hafa varð afskipti af
íjórða tug einstaklinga vegna ölv-
unar á almannafæri.
Að undanfömu hefur lögregl-
an í auknu mæli kannað ástand
ökumanna í umferðinni og hvort
fylgt sé ákvæðum umferðarlaga
um t.d. notkun öryggisbelta.
Þannig voru sem dæmi stöðvað-
ur á fjórða tug ökutækja í Borg-
artúni um miðjan föstudag. I
þeim hópi var aðeins einn öku-
manna kærður fyrir að hafa ekki
meðferðis ökuskírteini, hafa ekki
kveikt ökuljós og að nota ekki ör-
yggisbelti. Slíkar kannanir lög-
reglu eru nú gerðar á ólíkum
tímum dags og með misjöfnum
áherslum. Þá voru 32 ökumenn
kærðir vegna hraðaksturs og tíu
vegna ölvunaraksturs auk þrett-
án fyrir að virða ekki stöðvunar-
skyldu.
Þriggja bfla árekstur
Árekstur þriggja bifreiða varð á
Bæjarhálsi við Höfðabakka á
föstudagskvöld. Einn ökumanna
kenndi eymsla í öxl og ætlaði að
leita aðstoðar læknis.
Að kvöldi föstudags varð slys er
reiðhjól fór í veg fyrir bifreið á
Álfabakka við Víkurbakka. Reið-
hjólamaðurinn var fluttur á
slysadeild með minniháttar
meiðsli.
Bifreið var ekið á umferðar-
merki á Háaleitisbraut að kvöldi
föstudags. Umferðarmerki höfðu
verið sett upp vegna þrenginga á
staðnum. Einn farþega í bílnum
kvartaði undan eymslum f baki.
Bifreiðin var ljarlægð með krana-
bifreið.
Árekstur tveggja bifreiða varð á
Hverfisgötu við Kalkofnsveg að
morgni laugardags. Farþegar út
báðum bílum voru fluttir á slysa-
deild og báðar bifreiðar fjar-
lægðar með kranabifreið.
Árekstur varð með tveimur bíl-
um á Miklubraut við Grensásveg
á sunnudag. Þrennt var flutt á
slysadeild með meiðsli á bald og
hálsi.
Vopnaðir brotnum flöskum
Að morgni laugardags voru þrír
menn handteknir og færðir á lög-
reglustöð eftir að hafa otað
brotnum glerflöskum að dyra-
vörðum veitingahúss í miðbæn-
um. Þeir voru fluttir á Iögreglu-
stöð í fangahús. Einn lögreglu-
þjóna skarst lítillega á hendi við
handtöku mannanna.
Þá var ráðist á tvo menn í
Veltusundi um miðnætti á laug-
ardag. Hlaut annar áverka á auga
og nefi auk þess sem tönn losn-
aði. Hinn var bólginn í andliti.
Báðir voru þeir fluttir á slysa-
deild. Ekki er vitað um árás-
armann.
Þá var önnur alvarlega árás í
Austurstræti um klukkan þrjú að
morgni sunnudags. Ráðist var að
manni og féll hann í götuna.
Árásarmenn sem voru tveir
spörkuðu þá í andlit hans og höf-
uð. Hann var fluttur meðvitund-
arlaus á slysadeild. Tveir aðrir
voru einnig fluttir á slysadeild
vegna málsins. Mörg vitni voru
að atburðinum og tveir karlmenn
voru handteknir á sunnudag
vegna gruns um aðild að málinu.
Tveir teknir fyrir veggjakrot
Lögreglan fylgist vel með því að
fylgt sé lagaákvæðum um útivist
barna og unglinga sem telja má
grundvöll að velferð þeirra. Alltaf
eru nokkur börn sem þarf að
hafa afskipti af og flytja í athvarf
þangað sem foreldar geta vitjað
þeirra. I sumum tilvikum næst
ekki til neinna forráðamanna og
eru þá börnin vistuð tímabundið
á Stuðlum. Einnig fylgist lögregl-
an með því að börn og ungmenni
séu ekki við drykkju áfengis og er
slíkum vökvum þeirra helt niður
hafi viðkomandi ekki náð 20 ára
aldri sem er lágmarksaldur til
neyslu áfengis.
Tveir unglingar voru hand-
teknir vegna skemmdarverka í
miðbænum með veggjakroti. Þeir
voru fluttir á lögreglustöð.
Þá varð lögreglan að hafa af-
skipti af veisluhöldum í austur-
borginni þar sem faðir hafði veitt
ungum syni sínum áfengi og
sveppi. Pilturinn var í slæmi
ástandi þegar hann var fluttur á
spítala þar sem dælt var uppúr
honum. Málið er til frekari skoð-
unar en barnaverndaryfirvöld
vinna með lögreglu þegar slík
mál koma upp.
Verðmætum stolið úr tösku
Þrír aðilar voru handteknir að
kvöldi laugardags eftir að lögregl-
an fann í bifreið þeirra mace
úðabrúsa og tæki til fíkniefna-
neyslu.
Lögreglu barst tilkynning um
að brotist hefði verið inn í bifreið
í austurborginni aðfaranótt laug-
ardags og þaðan stolið skjala-
tösku með nokkrum verðmæt-
um. Taskan fannst skömmu síðar
án verðmæta. Brýnt er að ítreka
enn á ný þau tilmæli lögreglu að
borgarar hugleiði þá hættu sem
þeir skapa með því að skilja aug-
sýnilega eftir verðmæta hluti í
bifreiðum sínum. Það er því mið-
ur allt of algengt að sýnt er mik-
ið hugsunarleysi í þessum mál-
um sem gefur fingralöngum
samborgurum okkar tækifæri til
að auðgast af afbrotum á auð-
veldan hátt.
Bnmamál í Þingholtum
Eldur kviknaði úr frá plastmáli á
eldavél í íbúð í Þingholtunum að
kvöldi föstudags. Reykskemmdir
urðu á staðnum.
Óskað var eftir aðstoð lögreglu
þegar laumufarþegi hafði fundist
um borð í skipi sem var á leið til
Kanada. Laumufarþeginn sem er
útlendingur reyndist hafa falsað
vegabréf og er mál hans til skoð-
unar hjá útlendingaeftirliti.
Lögreglu barst tilkynning um
hitagufu frá lyrirtæki við Klepps-
veg á föstudag. I ljós kom að
tengi í krana hafði losnað og
heitt vatn lekið um gólf húsnæð-
isins og kjallara. Dælubifreið frá
slökkviliði kom á staðinn og að-
stoðaði við þrif en nokkrar
skemmdir urðu vegna lekans.
A. fi Akureyrarkirkja
1 i Væntanleg fermingarbörn í Akureyrarkirkju vorið 1999 mæti til viðtals í kirkiukapelluna
miðvikudaginn 30. september sem hér segir:
Börn úr Brekkuskóla kl. 16.00. Börn úr Oddeyrarskóla og Lundarskóla mæti kl. 17.00. Önnur börn mæti annaðhvort kl. 16.00 eða 17.00.
Sóknarprestarnir.