Dagur - 31.10.1998, Blaðsíða 5

Dagur - 31.10.1998, Blaðsíða 5
 .1 ___________ Oxgur_ aimvnin i v niuini»ta'H' ■ u 'v o t iii u o ri,u.u ív u V) iv a 'aKwu i\ A - LAU~G~ARDAGÚR 31. ~0 K T ÓBER 199 8 -21 MENNINGARLÍFIÐ í LANDINU Magnús í eigin persónu Magnús Hj. Magnús- son stígurá sviðið í jyrsta sinn í eiginper- sónu, hvorki sem Ólaf- urKárason né með röddu GunnarsM. Magnúss... Dagbók Magnúsar er sennilega frægasta dagbók sem Lands- bókasafnið hefur í vörslu sinni, ekki síst fyrir að hafa verið efni- viður Halldórs Laxnesss í sögu sinni um Olaf Kárason Ljósvík- ing, Heimsljós. Gunnar M. Magnúss nýtti sér einnig ríku- legan efniviðinn sem liggur eftir Magnús þegar hann skrifaði ævisögu hans, Skáldið á þröm (1956). Nú er hins vegar ný- komið út úrval úr dagbókunum - enda ófært að gefa þær út í heilu lagi, dagbókarhandritið er nærri 4000 síður - þar sem Magnús stígur fram á sviðið með eigin röddu. Það voru þeir Kári Bjarnason og Sigurður Gylfi Magnússon sem ritstýrðu útgáfunni og Kári segir þetta einhverja allra skemmtilegustu dagbók sem hann hefur lesið. „Hans ævi er í hnotskurn ævi hins ógæfusama alþýðumanns á Islandi kringum síðustu aldamót. Manns með stórhuga drauma en á fá tæki- færi í þeim napra veruleika sem hann býr í.“ Bninniir Laxnesss „Frá því ég var á 9. ári og allt til 1896 fannst mér sem Guðs- auglit stæði allstaðar opið íyrir mér; var sem ég heyrði alla nátt- úruna taka undir kraptbirtingar- hljóm guðdómsins, og ég sjálfur var líka í því raddflóði, að mér fannst. Þó fannst mér mitt ég vera svo lítið, í þeim dýrðar- ljóma.“ Svo lýsir Magnús til- verurétti sínum og kemur nú sjálfsagt mörgum £ hug eftirfar- andi kafli úr Heimsljósi Lax- nesss: „Þá finst honum einsog guðs auglit standi opið fyrir sér. Hann finnur guðdóminn birtast í náttúrunni í óumræðilegum hljómi, það var kraftbirtingar- hljómur guðdómsins. Hann veit ekki fyr til en hann er sjálfur orðinn titrandi rödd í almáttug- um dýrðarhljómi..." Laxness fór ekki í felur með hver var fyrirmynd hans að Olafi Kárasyni ljósvíkingi. Hann tekur margar svipmyndir beint, efnis- lega en ekki orðrétt, upp úr sögu Magnúsar og heldur sig býsna nærri æviferli skáldsins af Vest- íjörðum. „Fyrir mig hefur Hall- dór Laxness vaxið við að lesa dagbók Magnúsar," segir Kári. „Hann tekur það úr sem hann vill, til að skapa heildstæða sögu eins manns. Maður sér snilldina í því hvernig meistarinn mikli þræðir gullkornin saman til að búa til þessa frábæru perlu- festi.“ Ástarbramboltið Vegna heilsuleysisins þáði Magnús af sveit í æsku og vegna þess að hann gat aldrei greitt sveitarskuldina var honum meinað að giftast. Svo sem óvíst hvort ástarmálin hefðu gengið nokkuð betur hjá þessum ör- Iynda manni þótt hann hefði Magnús Hj. Magnússon átti ekki farsæta ævi. Var sendur í fóstur 6 vikna gamall og tekur svo við saga harmkvæla og ills aðbúnaðar sem hann telur or- sök heilsuleyslsins sem átti eftir að hrjá hann það sem eftir var ævinnar en hann lést rúmlega fertugur að aldri. fengið leyfi til þess. Ekki svo að skilja að hann hafi þótt óálitleg- ur ungur maður. Síður en svo. Samkvæmt æviminningum Kristínar Dahlstedt, stúlku sem hann lagði hug á, var Magnús sérlega sjarmerandi og fríður piltur sem átti létt með að hrífa fólk með sér. Þrátt fyrir sjarmann var hann ekki lánsamur í sínu ástarbram- bolti. Hann álpaðist til að taka að sér rúmlega fertuga konu sem hafði reynst honum vel í veikindum hans í æsku en sú vildi enga velgjörð heldur gift- ingu. Hann losaði sig fljótlega vdð konuna enda gaspraði hún frjálslega við húsfólkið um ólið- legheit hans að vilja ekki sofa hjá henni: „... Mikla sálarþraut og bölvun getur ástarfrekja og girnd eins kvenmanns gert að verkum.“ Hann lagði hins vegar ást á áðurnefnda Kristínu þótt ekki virðist hann hafa uppgötvað það fyrr en eftir að hún tók frum- kvæðið: 1. apríl, 1896: „...nú var það er ég var staddur á Dröngum, að Kristín kallaði á mig í einrúm og afhenti mér þar bréf ... innilega gott og lýsti ást Kristínar til mfn. Jeg undraðist að fá bréf þetta, en varð nú sem snortinn raf- magni, og fékk ég óstöðvandi ást til stúlkunnar, þó gat ég lítið tal- að við hana enda var hún öll á glóðum, og þaut í burt að svip- stundu." Með ástarjátningu í höndun- um var hann hins vegar ekkert að tvínóna við hlutina, og skrif- aði henni bónorðsbréf strax dag- inn eftir. Stúlkuræflinum brá eðlilega dálítið við og vildi að þau kynntust eilítið betur. Sam- band þeirra rann út í sandinn og í janúar 1898 fékk hann uppagnarbréf frá stúlkunni. I október sama ár er Magnús enn að sýsla við að kveða mansöng burðinum 27.-28. október 1910: „...kómu þar tveir menn inn með brennivín...buðu þeir mér þá brennivín og af því mér var afar-ónotlegt og kvillt þáði ég það en undarleg áhrif hafði það á mig og vissi ég ekki hvernig ég varð. Drakk ég töluvert." Morg- uninn eftir: „Ég og Ágústína vórum því bæði eptir og var hún að lesa í lærdómsbókum sínum. Þegar ég vaknaði var ég ákaflega utan við mig, með ákaflegum taugaskjálfta og get ég ekki gert mér grein fyrir hvernig ég var. Mér datt nú í hug að fara í rúm til Ágústínu, dró ég niður í lampanum og svo upp fyrir stokkinn til hennar; kyssti ég hana. En er ég kom við hana bera missti ég sæðið og varð ekkert af samræði. Hún tók mótspyrnulaust á móti mér og eptir á Iánaði hún mér bók til að lesa í, en ég fór strax um hæl yfir í rúm það er ég svaf í.“ Fyrir þetta var Magnús dæmd- ur í eins árs fangelsi, 1911-12. Ekld mörgum árum síðar, árið 1916, lést Magnús af heilsuleysi aðeins rúmlega fertugur að aldri. Sennilega vissi hann hvert stefndi því skömmu áður bað hann um að ljóð hans yrðu gefin út, en þótt hann væri af mörg- um álitinn verklatur maður þá liggja eftir hann um 11.000 kvæði og vísur. Magnús Iifir hins vegar áfram í búningi Olafs Kárasonar og nú með sínum eigin orðum. LÓA til Kristínar en um hálfum mán- uði síðar skrifar hann svo í dag- bókina: „Gott veður. Austnorðan kæla. Um morguninn beiddi ég munnlega mér til eiginkonu frænku minnar Guðrúnar Önnu Magnúsdóttur á Langhól. Hún var rúmlega tvítug að aldri, ágætlega fríð, ljúfleg í viðmóti og hjartagóð." Guðrún játast honum og þann 28. desember 1898 má lesa eftirfarandi: „Jól þessi vóru hin yndislegustu er ég hafði lifað frá því ég til nrín mundi, var ánægja sú fólgin £ samverunni við unnustu mina, enda þótt hún heimsk væri og ekki hirðin að sjá, þá var hún fögur sýnum og gengur það i augu margra. Og vfst var það girnd en ekki einlæg ást er réði þar hlutfalli mfnu. Mæltu flestir að ég tæki niður fyrir mig.“ Sambúðin Þessi jól urðu þó ekki til marks um framtfðar samlyndi þeirra - eða öllu heldur ósamlyndi. Þeim Guðrúnu kom heldur illa sam- an, svo vægt sé til orða tekið, (1913): „Það dimmdi - kol- dimmdi - í huga mínum, í hvort skipti sem ég leit á Guðrúnu fylgikonu mína eða heyrði til hennar. Hun talaði aldrei blítt orð til mín eða sonar okkar, lýtti allt er ég reyndi að gjöra henni til þægðar... Hún var, í fæstum orðum, ómöguleg til sambúðar... I sambúð við Guðrúnu fylgi- konu mína, hafði líf mitt verið kvalaganga." Dómur og tugthúsvistin Eftir að Magnús komst til manns var hann barnakennari og fór á milli bæja til að kenna börnum. Veturinn 1909-10 var mikill örlagatími f hans lífi. Síð- ari hluta ársins 1910 kærðu for- eldrar 14 ára stúlku Magnús fyr- ir að hafa nauðgað dóttur þeirra. Hann segir sjálfur svo frá at- filf ÞJOÐLEIKHUSIÐ Sýnt á Stóra sviði ki. 20.00 Sólveig - Ragnar Arnalas 7. sýn. á morgun sud. uppselt - 8. sýn. föd. 6/11 uppselt - 9. sýn. Id. 7/11 uppselt. Óskastjarnan - Birgir Sigurðsson í kvöld Id. nokkur sæti laus, næsta sýning - fid. 5/11. Síðasta sýning. Bróðir minn Ijónshjarta - Astrid Lindgren á morgun sud. kl. 14:00 uppselt sud. 8/11 kl. 14:00 örfá sæti laus sud. 8/11 kl. 17:00 örfá sæti laus Sýnt á Smíðaverkstæði kl. 20.30 Maður í mislitum sokkum - föd 6/11 uppselt - Id. 7/11 uppselt - mvd. 11/11 aukasýning uppselt - Sýnt á Litia sviði kl. 20.30 Gamansami harmleikurinn - Hunstadt/Bonfanti í kvöld Id. 31/10 - föd. 6/11 - Id. 7/11. Listaverkið - Yasmina Reza Sýnt á Renniverkstæðinu Akureyri i kvöld Id. Sýnt í Loftkastalanum Rvík. Id. 7/11 laus sæti. Miðasalan er opin mánud. - þriðjud. 13-18, miðvikud. - sunnud. 13-20. Símapantanir frá kl. 10 virka daga. Sími 551-1200. Leikfélag Akureyrar Rummungur ræningi Ævintýri fyrir börn með tónlist og töfrum eftir Otfried Preussler. Næstu sýningar laugard. 31. okt. kl. 14.00 Fá sæti laus sunnud. 1. nóv. kl. 14.00 Fá sæti laus laugard. 7. nóv. kl. 14.00 sunnud. 8. nóv. kl. 14.00 aukasýning sunnud. 8. nóv. kl. 17.00 síðasta sýning Önnur verkefni leikársins Pétur Gautur eftir Henrik Ibsen. Eitt mesta leikna sviðsverk allra tíma. Frumflutningur nýrrar þýðingar Helga Hálfdánarsonar. Tónlist: Guðni Franzon. Búningar: Hulda Kristín Magnúsdóttir. Lýsing og leikmynd: Kristín Bredal. Leikstjóri: Sveinn Einarsson. Frumsýning 28. desember. Systur í syndinni eftir Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Tónlist: Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson. Aðalftytjendur tónlistar: Tjarnarkvartettinn. Lýsing: Ingvar Björnsson. Leikmynd og búningar: Elín Edda Árnadóttir. Leikstjórn: Kolbrún Halldórsdóttir. Frumsýning áformuð 19. mars. Sala áskriftarkorta er hafin. Notið ykkur frábær kjör á áskriftarkortum og eigið góðar stundir í fallegu leikhúsi á landsbyggðinni. Miðasalan er opin frá kl. 13 -17 virka daga nema mánudaga og fram að sýningum sýningardaga. Listin er löng er lífið stutt. Sími 462-1400.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.