Dagur - 31.10.1998, Page 12

Dagur - 31.10.1998, Page 12
28 - LAUG ARDAGUR 3 1. OKTÓBER 199 8 ro^tr MA TARLÍFIÐ í LANDINU Af þeim frumlegu norsku réttum sem Matargatið kynnir í dag er saltfiskpizzan örugglega mest spennandi. Ekki er endilega mælt með að reisa fiskstykkið svona upp af miðju flatbökunnar eins og mymdin sýnir, en það virðist gert af listrænum, frekar en matargerðarlegum ástæðum. Botn: Gerið yðar eigin flatbökubotn, eða notið þennan, sem sagður er passa með saltfiski: 400 g hveiti ger (15 g ferskt ger) eða einn smápoki þurrger, salt og pipar 3 'A matskeiðar ólívuolía 2A úr bolla af volgu vatni Hrærið saman, látið hefa sig, fletjið í fjórar litlar bökur. Álegg: Við styttum okkur Ieið og notum íjóra væna tómata úr dós, en þeir sem vilja geta skrælt ferska. Allt er maukað í potti með smá smjöri. Gerið úr þessu jukk. 5-6 sneiðar af svínafleski eru settar útí, soðið varlega saman í 4-5 mínútur. Bætið við eggaldini, sem skorið hefur verið í Iitla bita. Nú kemur sneiddur vorlaukur (hálfur bolli) og salt og pipar. Soðið saman þartil allt er mjúkt. Ef menn vilja má bæta við 2-3 ferskum niðurskornum tómöt- um þegar suðan er í gangi, svona til að búa til bita. Aðferð: Þegar hér er komið sögu er deig- ið flatt út í fjórar litlar pizzur, maukið sett yfir og nú kemur árásin: 150 g af útvötnuðum saltfiski ofaná. Hér er ráðlagður einn stór fiskbiti, hann má að hyggju Matargatsins vera í 3-4 smábitum. Ofninn hefur nú verið hitað- ur i 200 gráður. Að Iokum er 200 g af rifnum osti (Jarlsberg, segja Norðmenn) stráð jafnt á bökurnar og þær bakaðar í 12 mínútur. Hvað annað? Ef menn vilja má strá meiri osti yfir þegar þær koma út, og þar ofaná kemur punkturinn yfir Um er að ræða bæði hlutastörf og heildagsstörf. Verkefnin eru fjölþætt og gefandi og kreljast hæfileika í mannlegum samskiptum. Nánari upplýsingar um heimaþjónustu, liðveislu, tilsjón og persónulega ráðgjöf veitir Sigríður Pétursdóttir í síma 587 9400. Leikskóiakennarar Óskum eftir að ráða leikskólakennara í 50% starf til að sinna börnum með sérþarfir í leikskólum Grafarvogs. Starfið felur í sér aðstoð við leikskólana við uppbyggingu einstaklingsáætlana, eftirfylgd og mat á framgangi þeirra. Æskilegt er að viðkomandi hafi framhaldsmenntun varðandi börn með sérþarfir. Einnig óskum við eftir leikskólakennara í 50% starf daggæsluráðgjafa. Starfið felur í sér umsjón og eftirlit með daggæslu í heimahúsum í hverfinu. Nánari upplýsingar um störfin veitir Ingibjörg Sigurþórsdóttir í síma 587 9400. Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast í Miðgarði að Langarima 21 í Grafarvogi. Umsóknarfrestur er til 8. nóvember. Miögaröur veitir íbúum, stofnunum og félagasamtökum i Grafarvogi fjölbreytta þjónustu. Á skrifstofunni starfa saman sálfræöingar, iöjuþjálfar, leikskólakennarar, félagsráðgjafar, hjúkrunarfræöingur, kennari, tómstundaráögjafi og forvamarfulltrúi lögreglunnar. Úti á vettvangi vinna 40 manns viö ýmis hjálparstörf. Markmiö Miðgarðs er aö veita ibúum í hverfinu vandaöa þjónustu meö heildarsýn á málefni einstaklinga og fjölskyldna aö leiðarljósi. i-ið: anísinn, ferskur, steyttur! EKKI SLEPPA! Ps. fiskurinn er ekki forsoð- inn, hann er rækilega útvatnað- ur, roðflettur og beinhreinsaður, virkilega flottur! Laxaborgari Leiður á nautakjöti? Eða er frystikistan full af laxi og silungi sem þú getur ekki gert mat úr? Þá er Iausnin í Matargatinu. Laxborgari. Brauðið: Bakið yðar eigin hamborgara- brauð, eða kaupið smekklegar bollur sem henta vel. Brauð: 100 g smjör 1 'á bolli af mjólk poki af þurrgeri (fæst í stórmörkuðum) 1 tsk. salt 'A tsk. bökunarduft 500 g hveiti __________þeytt egg_________ sesam fræ. Laxaborgarí bjargar veiðimönnum frá þeirri hneisu að henda ósnæddum fiski úrkistunni, þetta erpoppuð útgáfa affiskrétti. Hard Rock væri fullsæmtaf.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.