Dagur - 31.10.1998, Page 14
30 — LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1998
Jákvæð
viðbrögð
míkilvæg
Haustþing Félags sálfræð-
inga við skóla varhaldið á
fimmtudag ogföstudag.
Benedikt Jóhannsson sál-
fræðingur hélt þar erindi sem
hann nefndi „Viðnámsþrótt-
urbama“.
„Þetta er samantekt úr bandarískum rann-
sóknum. Skilgreiningin á viðnámsþrótti er
hæfni til að verjast erfiðleikum, vinna sig
frá mótlætinu og lifa heilbrigðu lífi,“ segir
Benedikt í samtali við Dag.
Rannsóknirnar sem hann vísar til bein-
dust sérstaklega að börnum sem búa við
erfiðar aðstæður á heimilinu. „Það er tal-
að um að böm séu í áhættuhópi ef það
eru tveir alvarlegir álagsþættir í lífi þeirra.
Þá erum við að tala um mikla fátækt, and-
legt eða líkamlegt heilsuleysi foreldra,
mikið rifrildi eða ofbeldi á heimilinu,
áfengisvanda á heimilinu og félagslegan
óstöðugleika (til dæmis vegna skilnaðar).
Erfiðleikarnir höfðu slæm áhrif á sum
þeirra en önnur virtust geta spjarað sig vel
þrátt fyrjf að vera í þessum áhættuhópi og
sérstaldega var athugað hvað þau ættu
sameiginlegt," segir Benedikt.
Tengsl við fullorðna
Þættir í upplagi barnsins, skapgerðin,
skiptir miklu máli í þessu sambandi.
„Börn sem eru skapgóð, virk, glaðlynd, fé-
lagslynd og kelin og hafa lag á að vekja á
sér jákvæða athygli hjá fullorðnum standa
þar vel að vígi,“ segir Benedikt. „Þau sem
eru hjálpsöm og tilbúin að hjálpa til á
heimilinu og fá styrk og sjálfsálit í gegnum
það en halda sig um leið í tilfinningalegri
fjarlægð frá vanda fjölskyldunnar. Þá
hjálpar til ef börnin hafa einhverja sér-
staka hæfileika, til dæmis á einhveiju sér-
sviði. Ef börnin eru góð í íþróttum, listum
eða öðru sem þau geta byggt sig upp í
gegnum hefur það í för með sér jákvæð
tengsl við aðra utan fjölskylduna, sérstak-
lega fullorðna, sem þau hafa stuðning af.
Greind í meðallagi eða meira skiptir máli
líka. Fyrri reynsla skiptir máli, til dæmis ef
þau hafa átt góða tíma áður en erfiðleik-
arnir byrjuðu, sérstaklega ef þeim hefur
verið vel sinnt sem kornabörnum," segir
Benedikt.
MiMlvægi skólanna
Sálfræðiþjónusta skólanna skiptir einmitt
miklu máli þó stundum fallist sálfræðing-
unum hendur þegar um mikla erfiðleika
er að ræða á heimilum barnanna og svo
Benedikt Jóhannsson sálfræðingur segir tengsl barna við fullorðna, aðra en foreldra, geta
skipt sköpum ef fyrir eru erfiðleikar heima fyrir. mynd: teitur.
virðist sem ekkert sé hægt að gera. En það
er hægt að gera eitthvað.
„Umhverfisþættir skipta mestu máli,“
segir Benedikt. „Það er afgerandi ef ein-
hver annar fullorðinn getur bætt upp for-
eldrana, til dæmis afi, amma, skyldmenni,
eða ef þau komast í kynni við fjölskyldu
vina sinna og kynnast þannig heilbrigðu
fjölskyldulífi. Það getur þá hjálpað þeim
til að hafa heilbrigðan mælikvarða á sam-
skipti.
Samkvæmt þessari rannsókn getur skól-
inn gert mjög mikið og aðrir fullorðnir
sem barnið er í samvistum við á daginn
geta haft mjög mikla þýðingu með því að
leggja sig eftir tengslum við barnið," segir
Benedikt Jóhannson sálfræðingur. - HI
Konur sem ástkonur
Líklega er Sá maður vandfundinn sem
KYNLIF ekki hefur þörf fyrir aðdáun, væntum-
þykju og líkamleg atlot svo hann fái not-
ið unaðsríks kynlífs til fullnustu. I
mörgum ástarsamböndum verður
þróunin sú að það verður á hendi
karlmannsins að hafa frumkvæði
að ástaratlotum og stjórna þeim.
Oft er því þannig farið, að karlmað-
urinn imprar á því við konuna,
hvort hafa eigi samfarir og hún
annaðhvort jánkar því eða neitar og
má því segja að það sé karlinn sem
ráði ferðinni í þessum málum, sé frumkvæðið alfar-
ið á hans hendi.
Þessu fyrirkomulagi í samböndum, sem oft þró-
ast bara svona, getur fylgt mikið álag og þá ekki sfst
fyrir karlinn og oft er það tilfinninganæmum
mönnum þvert um geð að bera slíka ábyrgð. Kynlíf-
ið verður því bæði betrá og elskendur hamingju-
samari í sambandinu geti báðir aðilar átt frum-
kvæði að samförum, en það sé ekki nær einvörð-
ungu á ábyrgð annars aðilans, hvort sem það er
karlinn eða konan sem á í hlut.
Eigi báðir aðilar frumkvæði að samförum til skiptis í
samhandinu verður það líklega til þess að þær eru frekar
stundaðar af löngun en skyldurækni. Að axla þá ábyrgð að
eiga frumkvæðið að samförum þýðir jafnframt að þú þarft
að vera undir það búin/nn að fá annaðhvort já eða nei án
þess að upplifa það sem höfnun. Sértu það, eru minni lík-
ur á því, að þú upplifir sektarkennd, vilji maki þinn hafa
Tæknin fullkonmuð
Viljir þú verða góð ástkona og ekki síður góður bólfélagi
er mikilvægt að gera kynlífið spennandi og líflegt, ekki
sísff samböndum sem staðið hafa árum saman. Þetta
gerir þú ekki aðeins með því að líta á ástarleiki sem
bestu ástartjáninguna, heldur ekki síður með því að
prófa þig áfram með ýmsar aðferðir og stellingar og
vera ávallt reiðubúin til að taka frumkvæðið í ástar-
leiknum.
Það er eltki síðúr mikilvægt að segja maka þínum
hversu rnildð þú færð út úr atlotum hans, hvað þér
finnst gott og hvað ekki og vertu óhrædd að tjá þig
með hljóðijlfi Ljfjta ástarleiksins, því flestum karl-
mönnum finnást nautnafull tjáningahljóð og augljós
merki ánægju konunnar á meðan á ástarleik stendur
afar kynæsandi og virkar það því frekar sem hvatning
hitt.
Notaðu ímyndunaraflið eins mikið og kostur er og
taktu vel tillögum maka þíns um að lífga upp á kyn-
lífið. Stingdu sjálf upp á nýjum hlutum eins og til
að fara saman í bað, ef þið gerið það ekki
venjulega. Leggðu drög að óvæntu rómantísku kvöldi
með góðum mat og kertaljósi. Elskist á nýjum stöð-
um, horfið til dæmis saman á kynæsandi myndbönd
eða spilið spil eins og „Leikur og losti“,sem gefur ykkur
margar góðar hugmyndir að nýjum og spennandi hlutum,
eða hvað það annað sem ykkur dettur í hug að lífga myndi
upp á sambandið og þá ekki síst kynlífið. Góða skemmt-
Halldóra Bjamadóttir er hjúkrunarfræðingur og skrifar
fyrir Dag um kynltf.
samfarir, en þú ekki.
Yfirleitt gildir það í kynlífi, að undanlátssamur einstak-
lingur, sem sýnir Iftil viðbrögð í ástarleiknum, virkar ekki
jafn kynæsandi og gefandi og einstaklingur sem tekur
þátt i leiknum af innlifun og áhuga.Sýni konan engin við-
brögð í ástarleiknum, getur karlinn misst móðínn og
fundist konan jafnvel vanþakklát fyrir það sem hann hef-
ur verið að gera og afleiðingin hæglega orðið sú, að karl-
inn leggur stöðugt minna upp úr forleiknum, sem er
grunnurinn að velheppnuðu kynlífi konunnar.