Dagur - 31.10.1998, Side 17
Xfc^ur
LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1998 - 33
GLUGGALÍFIÐ í LANDINU
„Éghefstaðið
viðgluggaim...“
Gluggareru merkilegra
fyrirbæri en margur
heldurog hlutverk
þeirra margvíslegra en
virðist ífljótu bragði.
Þess vegna þarfað
skrifagrein um
glugga. Gluggier
nefnilega ekki alveg
gegnsætt hugtak.
Upp á síðkastið hef ég farið að
gefa gluggum gaum í æ ríkara
mæli. Og til að fyrirbyggja allan
misskilning tek ég strax fram að
ég hef ekki verið að leggjast á
glugga eins og hver annar
„Gægju-Jói“ þar sem vænta má
kvenna flettandi sig klæðum.
Gluggaskoðun mín er af miklu
andlegri toga en það.
Það var eiginlega fyrir tilviljun
að ég fór að pæla í merkingu og
innihaldi glugga, ef hægt er að
tala um innihald glugga, en hug-
takið gluggi er miklu víðtækara
en fyrirbærið. Og ég komst að
raun um að gluggar hafa gegnt
gríðarlegu mikilvægu hlutverld í
mínu lífi og ekki síður í menn-
ingarlífi þjóðarinnar.
Þetta þyrjaði allt þegar ég sat
við tölvuna á skrifstofunni
minni og var að reyna að komast
inn í Windows-kerfið. Bubbi var
að raula í útvarpinu eftirfarandi:
„Eg hef staðið við gluggann,
heyrt hann tala...“ Og ég fór að
hugsa um að þrátt fyrir elsku
mína á þessu lagi, þá hef ég
aldrei verið sáttur við þessa ljóð-
línu, taldi hana stirðbusalega og
órökrétta. Ég meina, talandi
gluggi, ha? Svo ég þaggaði niður
í Bubba með vinstri handar krók
á þar til gerðan takka á útvarp-
inu og hélt áfram að glugga í
Windows. Og þá fór glugginn
minn að tala.
Gluggaskáldsögur
Það var dregið fyrir gluggann en
hann var opinn. Fólk var sífellt
að ganga hjá og slitrur úr sam-
tölum, yfirlýsingum, ræskingum
og hlátrasköllum bárust inn um
þennan kjöftuga glugga. Bubbi
hafði sem sé, af sínu listræna
innsæi, á réttu að standa eftir
allt saman. Og ég fékk skyndi-
lega þá snilldarhugmynd, að
setja saman súrrealistískt Ijóð,
skrifa niður og raða saman þess-
um setningabrotum og
„random" yrðingum sem bárust
inn um gluggann. Svo gæti ég
hugsanlega þýtt ljóðið á ensku
og sent Random House til út-
gáfu.
Ég hlustaði um stund og
skráði spekina sem barst mér
inn um gluggann. En áttaði mig
fljótt á að þetta var ekki efni í
ljóð. A bak við hverja sundur-
slitna setningu sem ég heyrði
var hins vegar efni í smásögu
eða jafnvel heila skáldsögu.
Þetta þótti mér góð hugljómun.
Og var stoltur af, þangað til ég
fattaði að hún var ekki mín. Því
hvað söng ekki Jónas R. með
Flowers á sínum tíma?: „Ég sit
og gægist oft út um gluggann."
Og síðar í sama ljóði: „Ég sé oft
heilar skáldsögur skapast."
Munurinn á mér og gluggaglópi
Flowers var aðeins sá að hann
horfði út um gluggann en ég sat
við byrgðan glugga og hlustaði,
svolítið eins og blindur maður
og heyrnarlaus með hléum.
Ólikir Búðagluggar
Hvurskyns gluggaþankar fóru
nú að herja á mig. Snemma á
öldinni sátu afi minn og amma á
Búðum í Hlöðuvík vestur og
horfðu á skjáinn og illviðrið
byrgði þeim sýn til allra átta svo
mánuðum skipti. Og hér sat ég
og horfði sömuleiðis á skjáinn,
þar sem Windows, Gluggarnir,
opnuðu mér sýn um veröld víða.
Sama hugtakið, skjár, en það
voru aldir og veraldir á milli
tölvugluggans míns og ljórans í
gamla Búðabænum hjá afa og
ömmu. Þau störðu á jólamyrkrið
út um Búðagluggann í Hlöðu-
vík, en ég hef horft á jólaljósin
og glysið inn um marga búðar-
gluggana.
Hvert sem hugur mi’nn reikaði
í þessu undarlega ástandi, urðu
fyrir mér gluggar, opnir og lok-
aðir. Hvað hafði maður til dæm-
is séð niargar senjórítur bíó-
myndanna sitja innan gluggans
og utan hans stóðu í ástarbríma
gígalóar og strömmuðu gítara og
héldu vöku fyrir grönnum með
sínum ámátlegu spanjóla-
spangólum. Og hver man ekki
Bakglugga Alfreds Hitchcocks,
Setiö viö gluggann.
sem skóp mönnum örlög í þeirri
ágætu ræmu?
Gluggaljóð
Skáld, einkum Ijóðskáld, eru
öðrum næmari á hlutanna
innsta eðli. Og íslensk ljóðskáld
hafa ekki sparað gluggana í sín-
um kveðskap, og varla til það
skáldmenni sem ekki hefur
spreðað gluggum um sín Ijóð-
hýsi. Af handahófi má til dæmis
taka:
,Af gleri strokið gamalt ryk og
hjóm,
er gleði þín og hryggð í rúmi
og tírna."
(Steinn Steinarr)
Og næstu tvær ljóðlínur eru
líka eftir Stein:
„Minn skuggiféll um stund á
gluggans gler.“
„Eg heflegið á gægjum á Ijóra
hins nýríka manns. “
Ari Jósepsson kvað:
„eftilvill reisa þeir hús/
nýtt og traust/
með ótal gluggafyrir Ijósið."
Einar Bragi yrkir: ,Á fægðu gleri/
t grámóðu rúðunnar... “
Og Jón úr Vör kvað í ljóðinu
um Þyrnirósu: „Eg hef staðið við
þúsund glugga i vetrarhöllinni/og
séð úr þeim öllum nýskapaða
heima. “
Matthías Johannessen segir:
„við sátum oft við gluggann
þegar borgin var ung... “
Og hann kvað einnig:
„ÞÚ
ert opinn gluggi á vesturgötu
52
og vindurinn næðir gegnum
fig-
Svo kemur hún
svo kemur ókunnur gestur
og lokarglugganum."
Vilmundur Gylfason orðar
þennan þanka hlýlega:
„í veðrinu utan við gluggann
veit ég um þig.“
Tónninn er annar hjá Degi
sem kveður:
„gægist á glugga
götustrákur."
Og Þorsteinn frá Hamri kveð-
ur um glugga, reyndar bílglugga:
„Þegar ég ferðast um landið
og lít út um gluggann
kemur landið inn um
gluggatin
og rennur saman
við sviðann í hjartanu. “
Svona mætti endalaust halda
áfram og það verður ekki fyrr en
öll íslensk ljóð eru komin inn í
Windows sem hægt verður að
gera sér grein fyrir heildaráhrif-
um gluggans á íslenska ljóða-
gerð.
Gluggarokk
Poppskáldin, íslensk og erlend,
hafa líka horft á gluggans gler í
sínum kveðskap og áður hefur
verið minnst á gluggatexta
Flowers og Bubba. Þó merkilegt
sé þá hefur mesta rokkskáld
þjóðarinnar og eitt besta skáld
aldarinnar, Megas, lítið sem
ekkert kveðið um glugga. I fljótu
bragði kemur aðeins upp í hug-
ann drápan um hjólbarðasalann
sem komst hálfur út um glugg-
ann og þar var glugginn raunar
aukaatriði.
Erlendir popparar hafa einnig
gefið gluggum gaum. Leonard
Cohen, sem hefur sömu stöðu í
enskri textagerð og Megas í ís-
lenskri, samdi til dæmis lagið
The Window, þar sem spurt er
svo fallega í fyrstu ljóðlínum:
„Why do you stand by the
xvindow/abandoned to beauty
and pride?"
Og hver, sem kominn er til
vits og ára, man ekki þennan
Hollies-frasa: „Look through any
windoxv, yeah, xvhat do you see?“
Og Ray Davies var á sömu mið-
um þegar hann kvað í stemm-
unni um Waterloo sólarlagið:
„Every day I look at the xvorld
through my xvindoxv." Hugsan-
lega er þessi texti einmitt kveikj-
an að Flowers-textanum, hvur
veit?
Farið með gluggum
Og þar sem ég sit og lem þessar
gluggapælingar á Windows eins
og hæfir, skynja ég að gluggar
hafa oftar en ekki komið við
sögu á merkum tímamótum í
mínu lífi.
Þegar ég var þriggja ára lenti
ég í rimmu við foreldra mína
vestur á Bolungarvík þar sem ég
sleit smábarnsskónum. En í stað
þess að hrína og tryllast, gekk ég
þögull og kaldur út í garð, eins
og upprennandi Clint Eastwood,
tók þar upp stein mikinn og
grýtti í gegnum rúðuna svo gler-
brotum rigndi yfir forviða for-
eldra mína í stofunni. Þetta var
mín fyrsta afgerandi sjálfstæðis-
yfirlýsing og táknrænt að ég gaf
hana í gegnum glugga.
I fyrsta og eina skiptið sem ég
var hnepptur í fangelsi þá var
það vegna rúðubrota, meintra að
vísu. Ég var staddur á Akranesi
að kvöldlagi á landsmóti UMFI,
á vissan hátt ekki verulega fjarri
því að vera ódrukkinn, þegar á
mig stukku fílefldir Svörtumar-
íumenn, skutluðu mér upp í
Maju og sem leið lá í fangaklefa.
Þar var mér tjáð að ég hefði ver-
ið að brjóta glugga í miðbænum.
Stuttu seinna sannaðist sakleysi
mitt þegar hinir seku glugga-
brjótar voru gripnir. Þeir reynd-
ust að vísu Húsvíkingar eins og
ég, þannig að þetta voru ekki
stórvægileg mistök hjá Skaga-
löggunni.
I mestum lífsháska í harm-
sögu ævi minnar lenti ég sofandi
í kjallaraherbergi á Gamla-Garði
þegar 228 punda og sauðdrukk-
inn laganemi stakk sér inn um
gluggann hjá mér og steig oná
augað á mér af öllum sínum
þunga. Ef maðurinn hefði verið
á támjóum blankskóm en ekki
sléttbotna striga, þá sæti ég í
besta falli hér blindur á öðru en
væri í versta falli löngu dauður
og gleymdur.
Og ég á það líka sammerkt
með flestum Islendingum, að
fátt setur að mér meiri hroll en
drunurnar í gluggaumslögunum
hrynjandi inn um bréfalúguna
mína, eins og þar fari flösku-
skeyti úr helvíti.
Gluggarnir eru allt í kringum
mig í sorg og gleði. Og það
gladdi mig til dæmis verulega í
gær þegar ég sá að nýjasta bók
Fríðu frænku minnar Sigurðar-
dóttur, heitir einmitt Maríu-
glugginn.
Ég skil fyrst nú að ég er mað-
ur sem hef farið með giuggum í
mínu lífi, fremur en veggjum.
Og kannski á ég að endingu eft-
ir, og væri við hæfi, að lenda
ofan í gluggakistunni. JS