Dagur - 13.11.1998, Blaðsíða 1

Dagur - 13.11.1998, Blaðsíða 1
Sérðu það sem ég sé erheiti á nýju smásagnasafni eftir Þórarin Eldjám sem kom út hjá Vöku Helgafellifyrír skömmu. Þetta er fjórða smásagnasafn Þórarins og sögurnar eru tólf. „Yfirgnæfandi hluti þeir- ra er skrifaður á þessu ári,“ segir Þórarinn, „en gjarnan út frá hugmyndum sem eru miklu eldri og ég hafði punktað hjá mér. Svo er ein og ein sem mætir til leiks um leið og búið er að setja upp umgjörðina. Það má segja að þessi bók hafi orðið til með meiri hnykk en fyrri smásagnakver." Fæðing Fermingardrengsins En hvernig fæðast hugmyndir að sögu eins og Fermingadrengnum sem er ein hugmyndaríkasta saga bókarinnar? Höf- undurinn svara því á eftirfarandi hátt: „Eg var að skoða fermingardreng úr plasti, sem er það dæmigerða kitsch fyrirbæri sem ég hef alltaf haft mikinn áhuga á. Sjálfur er ég búinn að ferma fjóra drengi og hef því oft horf á þessa plastkalla. Fyr- ir nokkrum árum fór ég að hugsa um svona kalla og þá útfrá öðrum köllum eins og playmo-köllum og kóngulóarköllum. Frumhugmyndin var sú að stefna þessum köllum saman og um leið var ég kominn inn á ævintýrasviðið í stíl H.C. Andersens. Svo sá ég afskaplega góða kvikmynd sem heitir Toy Story og þá rann allt saman og ég skrifaði söguna. En hugmyndin varð til nokkrum árum fyrr“ Ég hef sennilega öðlast meira sjálfstraust og um leið er mér nákvæmlega sama hvort verið er að hæla einhverju sem ég er að gera eða ekkii Skrifmeiuitir og lesmenntir Þórarinn hefur löngum verið talinn með skemmtilegri höfundum en hefur hann ekki fundið fyrir því viðhorfi að það sem sé skemmtilegt sé jafnframt talið léttvægt? „Jú, ég hef fundið fyrir þessu viðhorfi,“ segir hann, „en það hefur kannski mest verið í sambandi við ljóðagerðina. Ef mik- ill húmor er þar á ferð þá þykir kveðskap- urinn ekki nægilega merkilegur. En þetta viðhorf skiptir mig einfaldlega ekki nokkru máli. Mér hefur stundum dottið í hug að það mætti skipta bókmenntum í skrifmenntir og Iesmenntir. Sá höfundur sem skrifar lesmenntir hefur mestan áhuga á að það sem hann skrifar sé lesið meðan sá sem segist vera skrifmenntasinni lætur sig við- tökur engu varða, heldur leggur allt sitt í verkið og telur það öllu skipta. Það er kannski ekki farsælt ef höfundur er bein- línis með það í huga að hann sé að skapa lesmenntir, þá verða verk hans hugsanlega léleg og léttvæg. Að sama skapi er það óheillavænlegt að höfundur sé svo upptek- inn við skrifmenntir að honum þyki vin- sældir merki um að eitthvað sé að; sú hugsun hefur oft verið mjög rík en kannski er hún á undanhaldi. Kannski er það þannig að það sem á endanum er best er það sem er skrifað eins og skrifmenntir og reynist svo vera lesmennt." Viðtökur skipta ekki máli Þegar Þórarinn er spurður hvort hann sjái einhverja sérstaka þróun á skáldaferli sín- um svarar hann: „Það er mjög erfitt að dæma um einhverja þróun hjá sjálfum sér. Ég vil ekki vera meðvitaður um að ég sé að gera eitthvað sérstakt. Mér nægir að vinna að mínu og gleyma mér í því ferli og láta það svo meira eða minna að baki þegar það er búið og horfa fram á veginn. En ef það er einhver þróun sem ég hef ekki komist hjá að verða var við þá er það að mér finnst ég vera afslappaðri í því sem ég er að gera. Ég hef sennilega öðlast meira sjálfstraust og um leið er mér nákvæmlega sama hvort verið er að hæla einhverju sem ég er að gera eða ekki.“ -kb Kveikjuhiutir varahlutir ...i miklu úrvati Þjónustumiðstöð íhjarta borgariunar Lágmúla 9 • Slmi: 533 2800 • Fax: 533 2820 BOSCH verkstæðið aðkeyrsla frá Háaleitisbraut Verkfæri, efnavara og rekstrarvörur Rafmagnsvörur Verelun Hlólalegur Vatnshosur Hosuklemmur Tímareimar Kúplingsbarkar og og strekkjarar undirvagnsgormar. Bensíndælur Topa vökvafleygar Bensínlok vigtabúnaður Bensínslöngur Þurrkublöð Álbarkar Rafmagnsvarahlutir

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.