Dagur - 13.11.1998, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1998 - 21
LEIKHÚS
KVIKMYNDIR
TÓNLIST
SKEMMTANIR
Tveir
tvö-
faldir
Staðfærðurfarsi,
Tveir tvöfáldir, um
þingmann með allt
niðrum sig verður
frumsýndur í Þjóðleik-
húsinu í kvöld,fóstu-
daginn þrettánda...
Leikarar þykja ein hjátrúarfyllsta
starfsstéttin en Þór H. Tulinius,
sem leikstýrir verkinu, segir
hópinn ekki hafa gert neinar
varúðarráðstafanir til að koma í
veg fyrir hörmungar á frumsýn-
ingunni í dag. „Þetta er nú bara
húmor - ef það kemur eitthvað
upp þá verða þau að bregðast
við því. Eg hef engar áhyggjur af
því, þetta eru allt snillingar."
Lætin yfirgnæfa ekki verkið
Höfundur Ieikritsins, Ray Coon-
ey, mun vera eitt vinsælasta gam-
anleikjaskáld Breta og hafa verk
hans áður verið sýnd hér við góð-
ar undirtektir, m.a. Með vífið í
lúkunum. Cooney þessi er sjálfur
leikari og mun hafa ákveðið um
Líf&
f i5r
Örn Árnason er auðvitað vanur gamanmaður en er nú ögn virðulegri þarna en oft áður. Edda Heiðrún Backman ieikur
eiginkonu hans en aðrir leikendur eru Hilmir Snær Guðnason (aðstoðarmaður þingmannsinsj, Lilja Guðrún Þorvalds-
dóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir, Kjartan Guðjónsson, Bergur Þór Ingólfsson, Randver Þorláksson, Steinunn Ólína Þor-
steinsdóttir og Ragnheiður Steindórsdóttir.
26 ára aldurinn að „hann ætti að
gera eitthvað meira við líf sitt en
að standa á leiksviði í tvo og hálf-
an tíma á hveiju kvöldi, spila
tennis við félagana á daginn og
falla fýrir ljóshærðum leikkon-
um,“ eins og segir í leikskrá. Fór
hann þá að skrifa leikrit.
- En er erfiðaru, Þór, að leik-
stýra farsa en öðrurn leikritsform-
um?
„Já, það þarf auðvitað ein-
lægni og réttan skilning eins og í
öðrum alvarlegri formum en
hraðinn gerir þetta dálítið
vandasamara og leikarar þurfa
að sýna mikla leikni og tækni.
Annars hefur maður fyrst og
fremst verið að hugsa um að fá
þetta ekki út í neina dellu. Það
eru stundum svo mikil læti í
försum að lætin yfirgnæfa verk-
ið.“
Mannlegur breyskleiM
„Þetta er um stjórnmálamann og
konu hans sem eru á hóteli í
Reykjavík af því að þau eru að
skipta um húsnæði. Hann biður
aðstoðarmann sinn um að gera
sér þann greiða að panta annað
herbergi á hótelinu því hann
ætlar að eiga stund með hjákon-
unni. En aðstoðarmaðurinn er
svo hreinlyndur og hefur aldrei
logið í lífinu að hann fer að
ldúðra þessu í einhveiju pati.
Það hleypir af stað mikilli og
flókinni atburðarás. En það er
heilmikil léttúð í loftinu...“
- Þannig að þið staðfærið
þetta?
„Já, já, þetta er íslenskur veru-
leiki og þetta er mjög snjöll stað-
færsla hjá Arna Ibsen sem þýðir
þetta. I grunninn er þessi farsi
um mannlega bresti og breysk-
leika. Þannig að við erum í
rauninni að hlæja að okkar eigin
veikleikum og því nær sem þetta
er okkar raunveruleika því betur
virkar það.“
- Það hefur varla farið framhjá
neinum í hinum vestræna heimi
að valdamesti stjómmálamaður
heims hefur orðið sekur að því
girða niðrum sig frammi fyrir
öðrum en eiginkonunni. Eru
einhverjar vísanir í Clinton og
kó?
„Ja. Jú, jú, það er vísað til
þess, spillingu stjórnmálamanna
og svona."
Þrjú tilbrigði við tímann
Samuel Beckett. Þrír einþáttungar aðeins í þetta eina sinn í Iðnó.
Þrír einþáttungar
Becketts sýndir í Iðnó.
Verkin eru tilbrígði við
tímann að einu eða
öðru leyti. Aðeins
þessi eina sýning. Þor-
steinn J. stígurútfyrir
nákvæmar leiklýsingar
Becketts.
Á sunnudagskvöld verða sýndir
þrfr einþáttungar eftir
Nóbelskáldið Samuel Beckett í
Iðnó. Þessir þrír einþáttungar
heita: Eintal, Ohio impromptu
og Vögguvísa, og eru allir skrif-
aðir á árunum 1979-1981. Verk-
in eru að einu eða öðru leyti til-
brigði við tímann og sviðsetning
þeirra einkennist af því að að-
eins er stigið út fjTÍr þær ná-
kvæmu leiklýsingar sem Beckett
lét fylgja verkum sínum.
Eintalið er hljóðritun sem
flutt var í Utvarpsleikhúsi Ríkis-
útvarpsins fyrir sjö árum af Ró-
bert Arnfinnssyni Ieikara. Leik-
stjóri var Árni Ibsen. Þessi
hljóðritun verksins verður end-
urtekin í Iðnó og Róbert leikur á
ný mælandann, sem talar ekki
lengur, heldur situr og hlustar á
eigin orð á segulbandi.
I Ohio impromptu eru tvær
persónur, Iesarinn og hlustand-
inn. I uppfærslunni í Iðnó er
hlustanndinn horfinn af sviðinu
en er samt sem áður nálægur.
Lesarinn situr einn eftir og les
úr minningabók sinni. Asta Arn-
ardóttir er í hlutverki lesarans.
I Vögguvísu situr kona í
ruggustól og hlustar á hljóðrit-
aða rödd sína, frásögn af lífi
sínu, sem eins og ruggar henni í
svefn. María Ellingsen leikkona
er í hlutverki þessarar konu sem
langar til að komast burt úr líf-
inu.
Uppsetning einþáttunganna
er samvinnuverkefni leikfélags-
ins Annað svið, Iðnó og Utvarps-
leikhússins. Leikmynd er í
höndum Snorra Freys Hilmars-
sonar og Ieikstjóri er Þorsteinn
J-
Aðeins er um að ræða þessa
einu sýningu, klukkan 20.30 í
Iðnó að kvöldi sunnudagsins 15.
nóvember.
■iJM HELGINA
SöngleiMr á Höfn
Mánudagskvöldið 16.
nóvember flytja Ing-
veldur Yr Jónsdóttir
og Gerrit Schuil lög
úr söngleikjum, kvik-
myndum og leikrit-
um í Hafnarkirkju á
Höfn í Hornafirði.
Efnisskráin inni-
heldur lög úr íslenskum leik-
ritum, svo sem Ofvitanum og
Deleríum Búbónis, og sívin-
sælum söngleikjum, svo sem
Showboat, Söngvaseið, Kab-
arett, Chorus Line og Galdra-
karlinum í Oz. Einnig flytja
þau syrpu af lögum eftir Kurt
Weill og George Gershwin.
Tónleikarnir heíjast klukkan
20.30 og miðaverð er 1.000
krónur. Afsláttur er veittur
skólafólki.
Samlagið í Lands-
bankaglugganmn
í nóvembermánuði stendur
yfir kynning á verkum félaga
Samlagsins í Landsbanka-
glugganum á Akureyri en
Samlagið er gallerí sem selur
list- og listhandverk og er
staðsett í Listagilinu á Akur-
eyri. Kynningin fer fram í
eins konar sýningarglugga
sem staðsettur er inni í aðal-
útibúi Landsbankans á Akur-
eyri og varir í fjórar vikur.
Þrír til ijórir félagar eru með
verk sín í glugganum í viku í
senn en þá er skipt um inn-
setningu og eru þetta því fjór-
ar litlar kynningar sem standa
allan nóvembermánuð.
Spumingakeppni
Baldursbrár
Hin árlega spurn-
ingakeppni Baldurs-
brár hefst í kvöld
klukkan 21.00 í
safnaðarsal Glerár-
kirkju (athugið
breyttan tíma). Að
þessu sinni keppa:
Trillukarlar, Eldri
borgarar, Prestar, Frostrásin,
Dagur, Vélsmiðja Steindórs,
Asprent og Karlakór Akureyr-
ar-Geysir. Aðgöngumiðinn
kostar 400 krónur og gildir
jafnframt sem happdrættis-
miði og í hléi verða seldar
veitingar, kaffi og kokkteill.
Að þessu sinni rennur allur
ágóði til kaupa á búnaði við
tölvur sem gera Iangveikum
börnum ldeift að fylgjast með
í námi í skólanum sínum.
Ætlunin er að búnaðurinn
verði fluttur milli skólanna i
bænum eftir þörfum hverju
sinni.
Gallerí Homið
Á morgun opnar Guðrún Lára
Halldórsdóttir, Glára, sýningu
á olfumálverkum í Gallerí
Hominu, Hafnarstræti 15
Rvk. Glára hefur vinnustofu
að Sólheimum í Grímsnesi.
Sýning hennar ber yfírskriftina
Hljómur og verður hún opin
alla daga ífá ld. 11-24 og
stendur til 2. desember.
V_____________________/