Dagur - 13.11.1998, Side 11
FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1998 - 27
LÍFIÐ í LANDINU
Aston Martin Vantage er einn hinna fjöimörgu bíia sem voru til sýnis í París og íslenskir vegfarendur eiga ekki að
venjast.
Sumardekkin
undan bílnum
BILAR
Veturinn er heldur fljótur á
ferðinni þetta árið. Eg ætlaði
að sleppa við að fjárfesta í
vetrardekkjum þangað til
seint í des-
ember, en
því var ekki
að heilsa.
Maður mátti
punga út
tugum þúsunda fyrir vetrar-
dekkjagangi án þess að hafa
efni á því.
En maður hefur eiginlega ekki efni á því
að gera það ekki ef bíllinn er á sumardekkj-
um. Sumardekkin harðna og missa grip í
Sumarilekkiii eru ekki
nógu góð í hálku.
Olgeír Helgi
Ragnarsson
skrifar
frosti og kulda. Bíll á sumardekkjum á ís er
því, nánast í bókstaflegri merkingu, eins og
belja á svelli. Það borgar sig ekki að draga það
að taka sumardekkin undan ef það er komin
hálka á annað borð. Ég
veit það af biturri reynslu.
Um heilsársdekk gegnir
hins vegar öðru máli. Þau
hafa marga af eiginleikum
sérhannaðra snjódekkja og
í dekkjaprófunum sem nánar er greint frá í
aukablaði um vetrarakstur í blaðinu í dag
kom í Ijós að heilsársdekk eru lítið eða ekkert
lakari en snjódekk, nema í djúpum snjó.
Hæðst að aukiiini
skattbyrði
Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB, fer í
leiðara nýjasta Ökuþórs, tímarits FIB, svolítið
háðskum orðum um greinargerð þingmanna
sem lagt hafa fram tillögu til þingsáiyktunar um
að ríkisstjórnin skipi nefnd er
kanni hvort unnt sé að beita
vegtollum til þess að draga úr
þörf á gerð samgöngumann-
virkja, stuðla að minni mengun
og afla fjár til vegagerðar.
1 nefndri greinargerð segir
meðal annars að þróun síðustu
ára geri það meira knýjandi en
fyrr að leita nýrra leiða í um-
ferðarmálum. „Umferð bifreiða
fer árlega mjög vaxandi. Slíkt
veldur gríðarlegu álagi - þó oft
tímabundnu - á vegi og önnur
samgöngumannvirki. Umferðar-
öngþveiti skapast víða í borgum
og bæjum stuttan tíma sólar-
hringsins, þegar fólk er á leið úr
og í vinnu. Umferðaræðar ráða ekki við álagið
og miklir og kostnaðarsamir umferðarhnútar
myndast."
Runólfur bendir hins vegar á að ekki komi
fram hversu „víða í borgum og bæjum“ á Islandi
umferðaröngþveiti er slíkt vandamál að ekki
megi leysa nema með sérstökum skatti.
Hann bendir jafnframt á að
skattur í ríkissjóð sé nú þegar
yfir 70% af hverjum seldum
bensínlítra og bflar beri hæsta
vörugjald sem lagt er á innfluttar
vörur.
Og hann segir: „Þrátt fyrir
þessar staðreyndir er enn verið
að tala um nýja skatta á bíleig-
endur, eins og þessi þingsálykt-
unartillaga ber með sér. FIB
mun standa vaktina gegn skatt-
lagningaráráttu af þessu tagi,
enda ljóst að þegar hafa skattar í
öllum regnbogans litum verið
lagðir á bíleigendur."
Flutningsmenn þingályktun-
artillögunnar eru Einar K. Guð-
finnsson, Össur Skarphéðinsson, Kristín Ast-
geirsdóttir, Sigríður Jóhannesdóttir, Árni M.
Mathiesen og Kristín Halldórsdóttir.
Runólfur Ólafsson
framkvæmdastjóri FÍB.
Netfang umsjónarmanns bílasíðu er: oIgeirhelgi@isIandia.is
Veðrið í dag...
Norðaustlæg átt, vlðast stiimingskaldi eða allhvasst. DáJitil él
verða um landið norðan- og norðaustanvert, einkum þó á
annesjum, en um landió sunnan- og suðvestarivert léttir til.
Kólnandi veður og vægt frost um nánast allt land annað kvöld.
mti í tu í stig
Veðurhorfur næstu daga
Línuritin sýna fjögurra daga veðurhorfur á
hverjum stað. Línan sýnir hitastig, súluritið 12 tima úrkomu
en vindáttir og vindstig eru tilgreind fyrir neðan.
Færð á vegum
í nágrenni Reykjavikur er hálka á Hellisheiði, hálkuhlettir á
Sandskeiði og í Svínahrauni. Þá er þungfært um Mosfellsheiði. Á
SnæfeUsnesi er skafrenningur á Fróðárheiði og hálka á heiðum.
Um Vestfirði er ófært um Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði.
Skafrenningur og hálka er á Kleifaheiði, Mikladal og Hálfdán.
Klettháls er fær, en þar er færð farin að þyngjast. Hálka er á
heiðum um norðan- og austanvert landið.
SEXTÍU OG SEX NORÐUR
Glerárgötu 32, Akureyri