Dagur - 19.11.1998, Síða 4
4- FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998
FRÉTTJR
L
StarfsfdlMð er sátt við
hörniim bamaspítalans
Hjukrimarforstjóri
Landspítalans er
ósammála gagnrýni
formanns hjúkranar-
félagsins á nýja
harnaspítalann og
segir hana úrelta.
„Þessi gagnrýni kom mér mjög á
óvart og við erum ekki sammála
henni. Ég tel að það hafi verið
staðið mjög vel að hönnun nýja
barnaspítalans. Starfsfólkið hef-
ur verið þar með í ráðum alveg
frá upphafi og unnið mjög vel
með arkitektunum," segir Vigdís
Magnúsdóttir, hjúkrunarforstjóri
Landspítalans. Tilefnið er gagn-
rýni formanns hjúkrunarfélags-
ins á hönnun spítalans, þar sem
hún í sjónvarpsfréttum lét í Ijós
að hinn nýi spítali mundi hvorki
þjóna þörfum sjúklinga né að-
standenda og byði ekki upp á
góða vinnuaðstöðu fyrir starfs-
fólk.
MiMl sátt milli starfsfólks
og arkitekta
„Það kom reyndar í ljós, eftir
fyrstu tillögu arkitektanna, að
fólki fannst ekki nógu góð að-
staða fyrir foreldra. En síðan
hafa verið haldnir fundir með
foreldrasamtökum og það hefur
verið tekið tillit til allra tillagna
frá þeim. Þannig að ég held að
það sé mjög mikil sátt um bygg-
inguna eins og hún er í dag.
Þessi gagnrýni sem kom þarna
fyrst upp er því löngu, löngu Iið-
in. Það hefur verið mjög mikil
sátt milli starfsfólksins og arki-
tektanna. Og við erum núna með
einn hjúkrunarfræðing sem
vinnur alfarið með arkitektun-
um, þannig að þetta kom mér al-
gerlega á óvart,“ segir Vigdís.
Langt fram úr því sem við
höfum séð
- Þannig að þetta verður góður
fra m t íða r- bamaspítali ?
„Já við teljum það. Plássleysi
hefur verið vandamál hjá okkur
til margra ára en þarna teljum
við komið mjög vel til móts við
starfsfólkið, í þessari nýju bygg-
ingu. Þetta er langt fram úr því
sem við höfum séð. Og þeir sem
vinna að þessu - bæði arkitektar
og starfsfólk okkar og verkfræð-
ingur - eru búnir að fara í kynn-
isferð til Norðurlandanna, en
það vill nú svo til að það er bæði
verið að byggja nýjan barnaspít-
ala í Danmörku og Noregi, sem
fólk er búið að skoða. Þannig að
ég tel að það hafi verið staðið
mjög vel að þessu,“ segir Vidís.
-HEI
SÍS til Akureyrar
Skrifstofa Sambands íslenskra
samvinnufélaga hefur verið flutt til
Akureyrar og samhliða hefur verið
lögð niður skrifstofuaðstaða sú
sem Sambandið hafði í Holtagörð-
um í Reykjavík. Að sögn Sigurðar
Jóhannessonar, formanns stjórnar
SIS, má segja að skrifstofan sé að
koma aftur norður því í upphafi var
hún á Akureyri. Skrifstofan er nú
til húsa í Glerárgötu 28, 4 hæð.
Sigurður segir að hjá SIS sé lítil
sem engin starfsemi einmitt núna,
en hann á von á því að á næstu
misserum muni Sambandið lifna nokkuð við. Hann á þó ekki von á
að það verði á sviði verslunar og viðskipta heldur á sviði félags- og
fræðslustarfsemi.
Ekki er fastur starfsmaður á skrifstofunni eins og málin standa í
dag, en þeir sem eiga erindi sem tengjast málefnum Sambandsins
eru beðnir að hafa samband við Sigurð í síma 462-4312 eða
8520126.
Aflmiklir, rúmgóðir, öruggir og einstaklega hagkvæmir í rekstri
SWIFT BALENO WAGON R+ JIMNY VITARA GRAND VITARA
TEGUND: VERÐ: TEGUND: VERÐ: TEGUND: VERÐ: TEGUND: VERÐ: TEGUND: VERÐ: TEGUND: VERÐ:
GLS 3d 980.000 KR. 1,3GL 3d L140.000 KR. GL 1.079.000 KR. Beinskiptur 1.379.000 KR. JLX SE 3d 1.580.000 KR. GR, VITARA 2,0 L 2.179.000 KR.
GLX 5d 1.020.000 KR. l,3GL4d 1.265.000 KR. 1.6GLX 4d 1.340.000 KR. 1,6 GLX 4x4 4d 1.495.000 KR. l,6GLXWAGON 1.445.000 KR. WAGON 4x4 1.595.000 KR. GL 4x4 1.259.000 KR. Sjálfskiptur 1.499.000 KR. JLX SE 5d DIESEL5d 1.830.000 KR. 2.180.000 KR. GR.V1TARA2.5 LV6 2.589.000 KR.
Komdu
og sestu inn!
Sjáðu rýmið og alúðina
við smáatriði.
Skoðaðu verð
gerðu samanburt
%
hiuíM?
FRAHE
4MK
I
• aflstýri • 2 loftpúdar •
aflmiklar vélar • samlæsingar
• rafmagn i rúðum og speglum
• styrtarbitai hurðum •
• samlitada stuðara •
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: ólafur G. ólafsson, Gardabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásqötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir:
Bíla- oq búvélasalan hf., Miðási 19, sími 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, simi 555 15 50. Isafjörður: Bilaqarður ehf., Grænagarði, sími 456 30 95.
KeflaviV. BG bilakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrismýri 5, sími 482 37 00. Hvammstanga: Bila- og búvélasalan, Melavegi 17, sími 451 26 17.
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 5 1 00.
Heimasíöa: www.suzukibilar.is