Dagur - 26.11.1998, Side 1

Dagur - 26.11.1998, Side 1
Verð ílausasölu 150 kr. 81. og 82. árgangur - 224. tölublað Vilj a húsameist ara ut úr Leifsstöð Arkitektar kvarta uiidaii Jiví að Garðar Halldórsson, fymun húsameistari, taki þátt í hönnunarút- hoði vegna stækkunar Leifsstöðvar. Vaxandi þrýstings gætir nú á Arkitektafélag Islands og stjórn- völd þess efnis að Garðar Hall- dórsson, fyrrum forstöðumaður Húsameistara ríkisins, verði tal- inn vanhæfur til að hanna stækk- un Leifsstöðvar. Arkitektar benda m.a. á að dómnefndarmenn um framkvæmdina séu íyrrum sam- starfsmenn og ráðgjafar hans. Bent er á að Garðar hafí meinað væntanlegum þátttakendum að- gang að teikningum sem unnar voru af embætti húsameistara. Sagður vanhæfur Þegar embætti Húsameistara var lagt niður áramótin 1996/97 fékk Garðar höfundarréttinn á allri þeirri vinnu sem hann og starfsmenn embættisins unnu fyrir rfkið. Þar með einkarétt á Eldabusk- um lögregl- unnar sagt upp Starfskonum mötuneytis og kaffistofu embættis Lögreglu- stjórans í Reykjavík, 10-12 að tölu, hefur verið sagt upp vegna fyrirhugaðs útboðs á þjónust- unni. Lögreglan hyggst með fulltingi Ríkiskaupa bjóða verkið út, en áform um það hafa dregist og á meðan hafa konurnar starfað áfram sem lausráðnar. Þær hafa hins vegar ekki séð ástæðu til að leita til stéttarfélaga sinna um rétt sinn. „Við bíðum rólegar eftir því hvað verður úr þessu,“ segir Gréta Astþórsdóttir starfsmaður mötuneytisins í samtali við Dag aðspurð um málið. „Við reiknum alveg eins með að verða ráðnar aftur." - FÞG framkvæmdum við Leifsstöð. Eftir sérstaka lögfræðilega úttekt varð ríkið að afturkalla einkarétt- inn, enda taldist það ótvírætt brot á Evróputilskip- unum að úthluta hönnunarvinnunni án útboðs. Um mikla fjármuni er að ræða. Kostnað- aráætlun hljóðar upp á tæpa tvo milljarða króna og er gert ráð fyrir því að hönnunar- kostnaður verði um 55 milljónir króna. Stjórn Arkitektafé- lagsins gerði 9. sept- ember engar athuga- semdir við þátttöku Garðars í útboðinu. Fyrirspurnir hafa hins vegar streymt til félags- ins og dómnefndar vegna af- stöðu stjórnarinnar og þess að í meirihluta dómnefndar eru sagðir fyrrum samstarfsmenn og ráðgjafar Garðars og starfs- manna hans. „Þeir hafa haft per- sónulegt samband við meirihluta dómnefndarmanna í tengslum við vinnu sína að þessu verki," segir einn arkitektanna. Situr á gögnum í tölvutæku formi Annar arkitekt spurði hvort mögulegt væri að fá teikningar af núverandi flugstöð á tölvutæku formi. I svari Steindórs Guð- mundssonar, formanns dóm- nefndar, kemur fram að Garðar heimili ekki dreifingu á þessum gögnum. Steindór segir að hann geti ekkert tjáð sig um hugsanlega þátttöku Garðars í útboðinu. „Við höfum ekki hugmynd um hverjir munu taka þátt í útboð- inu og það er að auki trúnaðar- mál,“ segir Steindór. Garðar: Við skipuðum ekki dómnefndina Garðar Halldórsson segir að nið- urstaða stjórnar Arkitektafélags- ins hafí verið eðlileg. „Það er ver- ið að bjóða þetta út á öllu EES- svæðinu, þar sem er að finna að- ila sem hafa meiri reynslu en við og þar með gott forskot." Garðar hafnar vanhæfi vegna tengsla við dómnefndarmenn. „Við getum ekkert að því gert hverjir hafa verið skipaðir í dóm- nefnd, það kemur okkur ekki við. I svona litlu þjóðfélagi kemur oft fyrir að menn kannist við ein- hverja í dómnefndum og það er ekki að gerast í fyrsta sinn.“ Þá segir Garðar að þátttakend- ur í útboðinu hafí ekkert með grunnteikningarnar í tölvutæku formi að gera. „Menn fá þessar teikningar á prentuðu formi og geta skannað þær ef þeir vilja. Menn þurfa ekkert teikningar af núverandi flugstöð á tölvudisk- ling. Það var því engin ástæða til að dreifa teikningum af núver- andi flugstöð út um hvippinn og hvappinn," segir Garðar. — FÞG I * * % . i' i im ; mt. ,.1S ** Leifsstöð: Arkitektar eru óhressir með að Garðar Halldórsson fái að vera með. 55 milljóna króna hönnunarpakki er í útboði. Krakkarnir á Vesturgötu stóðu þétt saman í leik sínum igær en þó örlaði á tortryggni hjá „foríngjanum" þegar Ijósmyndari blaðsins fór að skipta sér afþeim. - mynd: teitur Kristján Þór Júlíusson segist sáttur við frumvarpið að fjárhagsáætlun Akureyrar. Útgjöld 82% af tekii tekjiun Bæjarráð Akureyrar afgreiddi í gær frá sér frumvarp að fjárhags- áætlun fyrir næsta ár þar sem gert er ráð fyrir rétt um 400 milljóna króna rekstararfgangi. Að sögn Kristjáns Þórs Júlíus- sonar hæjarstjóra þýðir þetta að útgjaldaramminn er rúm 82% af tekjum, en stefnt hafði verið að því að útgjöldin yrðu 80% af tekj- um. Bæjarstjóri segist þokkalega sáttur við þessa niðurstöðu. Heildarútgjöld bæjarins verða samkvæmt útgjaldarammanum rúmir 2,2 milljarðar króna og þar af eru 1,8 milljarðar vegna rekstrargjalda. Restin eru fjár- munagjöld, gjaldfærður stofn- kostnaður og eignabreytingar. Útsvarsprósentan helst óbreytt eða 11,84%, en sorphreinsigjald hækkar. Það var 3.000 krónur en hækkar upp í 3.500 kr. Að sögn bæjarstjóra er sú hækkun til að reyna að hafa upp í aukinn kostnað af sorphreinsuninni. Kaupa PizzaHut Dagur hefur heimildir fyrir því að Gaumur, eignarhaldsfélag Bónus-feðga, hafi gengið frá kaupum á Pizza Hut. Kaupverð mun eitthvað nálægt hundrað milljónum króna, en fram- kvæmdastjóri Pizza Hut ber til baka að salan sé í höfn. „Það hefur verið rætt við mig, en ekk- ert er frágengið. Það er hægt að tala um alla hluti,“ segir Stein- dór Olafsson, eigandi Pizza Hut. Þrátt fyrir itrekaðar tilraunir náðist ekki í Jón Asgeir Jóhann- esson í gær, en Gaumur er orðið umsvifamikið fyrirtæki í veit- ingabransanum. Steindór segir að rekstur Pizza Hut hafi gengið mjög vel að undanförnu og stækkun sé fyrirhuguð á hús- næðinu í Hótel Esju. Enn frem- ur hafi komið óskir um að opna útibú á Akureyri. — BÞ •SUBUJRV •subujrv' ■SUBWflV

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.