Dagur - 26.11.1998, Page 1
Verð ílausasölu 150 kr.
81. og 82. árgangur - 224. tölublað
Vilj a húsameist ara
ut úr Leifsstöð
Arkitektar kvarta
uiidaii Jiví að Garðar
Halldórsson, fymun
húsameistari, taki
þátt í hönnunarút-
hoði vegna stækkunar
Leifsstöðvar.
Vaxandi þrýstings gætir nú á
Arkitektafélag Islands og stjórn-
völd þess efnis að Garðar Hall-
dórsson, fyrrum forstöðumaður
Húsameistara ríkisins, verði tal-
inn vanhæfur til að hanna stækk-
un Leifsstöðvar. Arkitektar benda
m.a. á að dómnefndarmenn um
framkvæmdina séu íyrrum sam-
starfsmenn og ráðgjafar hans.
Bent er á að Garðar hafí meinað
væntanlegum þátttakendum að-
gang að teikningum sem unnar
voru af embætti húsameistara.
Sagður vanhæfur
Þegar embætti Húsameistara var
lagt niður áramótin 1996/97
fékk Garðar höfundarréttinn á
allri þeirri vinnu sem hann og
starfsmenn embættisins unnu
fyrir rfkið. Þar með einkarétt á
Eldabusk-
um lögregl-
unnar
sagt upp
Starfskonum mötuneytis og
kaffistofu embættis Lögreglu-
stjórans í Reykjavík, 10-12 að
tölu, hefur verið sagt upp vegna
fyrirhugaðs útboðs á þjónust-
unni.
Lögreglan hyggst með fulltingi
Ríkiskaupa bjóða verkið út, en
áform um það hafa dregist og á
meðan hafa konurnar starfað
áfram sem lausráðnar. Þær hafa
hins vegar ekki séð ástæðu til að
leita til stéttarfélaga sinna um
rétt sinn.
„Við bíðum rólegar eftir því
hvað verður úr þessu,“ segir
Gréta Astþórsdóttir starfsmaður
mötuneytisins í samtali við Dag
aðspurð um málið. „Við reiknum
alveg eins með að verða ráðnar
aftur." - FÞG
framkvæmdum við Leifsstöð.
Eftir sérstaka lögfræðilega úttekt
varð ríkið að afturkalla einkarétt-
inn, enda taldist það ótvírætt
brot á Evróputilskip-
unum að úthluta
hönnunarvinnunni án
útboðs.
Um mikla fjármuni
er að ræða. Kostnað-
aráætlun hljóðar upp
á tæpa tvo milljarða
króna og er gert ráð
fyrir því að hönnunar-
kostnaður verði um
55 milljónir króna.
Stjórn Arkitektafé-
lagsins gerði 9. sept-
ember engar athuga-
semdir við þátttöku
Garðars í útboðinu. Fyrirspurnir
hafa hins vegar streymt til félags-
ins og dómnefndar vegna af-
stöðu stjórnarinnar og þess að í
meirihluta dómnefndar eru
sagðir fyrrum samstarfsmenn og
ráðgjafar Garðars og starfs-
manna hans. „Þeir hafa haft per-
sónulegt samband við meirihluta
dómnefndarmanna í tengslum
við vinnu sína að þessu verki,"
segir einn arkitektanna.
Situr á gögnum í tölvutæku
formi
Annar arkitekt spurði hvort
mögulegt væri að fá teikningar af
núverandi flugstöð á tölvutæku
formi. I svari Steindórs Guð-
mundssonar, formanns dóm-
nefndar, kemur fram að Garðar
heimili ekki dreifingu á þessum
gögnum.
Steindór segir að hann geti
ekkert tjáð sig um hugsanlega
þátttöku Garðars í útboðinu.
„Við höfum ekki hugmynd um
hverjir munu taka þátt í útboð-
inu og það er að auki trúnaðar-
mál,“ segir Steindór.
Garðar: Við skipuðum ekki
dómnefndina
Garðar Halldórsson segir að nið-
urstaða stjórnar Arkitektafélags-
ins hafí verið eðlileg. „Það er ver-
ið að bjóða þetta út á öllu EES-
svæðinu, þar sem er að finna að-
ila sem hafa meiri reynslu en við
og þar með gott forskot."
Garðar hafnar vanhæfi vegna
tengsla við dómnefndarmenn.
„Við getum ekkert að því gert
hverjir hafa verið skipaðir í dóm-
nefnd, það kemur okkur ekki við.
I svona litlu þjóðfélagi kemur oft
fyrir að menn kannist við ein-
hverja í dómnefndum og það er
ekki að gerast í fyrsta sinn.“
Þá segir Garðar að þátttakend-
ur í útboðinu hafí ekkert með
grunnteikningarnar í tölvutæku
formi að gera. „Menn fá þessar
teikningar á prentuðu formi og
geta skannað þær ef þeir vilja.
Menn þurfa ekkert teikningar af
núverandi flugstöð á tölvudisk-
ling. Það var því engin ástæða til
að dreifa teikningum af núver-
andi flugstöð út um hvippinn og
hvappinn," segir Garðar. — FÞG
I *
* %
. i' i im
; mt. ,.1S **
Leifsstöð: Arkitektar eru óhressir með að Garðar
Halldórsson fái að vera með. 55 milljóna króna
hönnunarpakki er í útboði.
Krakkarnir á Vesturgötu stóðu þétt saman í leik sínum igær en þó örlaði á tortryggni hjá „foríngjanum" þegar
Ijósmyndari blaðsins fór að skipta sér afþeim. - mynd: teitur
Kristján Þór Júlíusson segist sáttur
við frumvarpið að fjárhagsáætlun
Akureyrar.
Útgjöld 82%
af tekii
tekjiun
Bæjarráð Akureyrar afgreiddi í
gær frá sér frumvarp að fjárhags-
áætlun fyrir næsta ár þar sem
gert er ráð fyrir rétt um 400
milljóna króna rekstararfgangi.
Að sögn Kristjáns Þórs Júlíus-
sonar hæjarstjóra þýðir þetta að
útgjaldaramminn er rúm 82% af
tekjum, en stefnt hafði verið að
því að útgjöldin yrðu 80% af tekj-
um. Bæjarstjóri segist þokkalega
sáttur við þessa niðurstöðu.
Heildarútgjöld bæjarins verða
samkvæmt útgjaldarammanum
rúmir 2,2 milljarðar króna og þar
af eru 1,8 milljarðar vegna
rekstrargjalda. Restin eru fjár-
munagjöld, gjaldfærður stofn-
kostnaður og eignabreytingar.
Útsvarsprósentan helst óbreytt
eða 11,84%, en sorphreinsigjald
hækkar. Það var 3.000 krónur en
hækkar upp í 3.500 kr. Að sögn
bæjarstjóra er sú hækkun til að
reyna að hafa upp í aukinn
kostnað af sorphreinsuninni.
Kaupa
PizzaHut
Dagur hefur heimildir fyrir því
að Gaumur, eignarhaldsfélag
Bónus-feðga, hafi gengið frá
kaupum á Pizza Hut. Kaupverð
mun eitthvað nálægt hundrað
milljónum króna, en fram-
kvæmdastjóri Pizza Hut ber til
baka að salan sé í höfn. „Það
hefur verið rætt við mig, en ekk-
ert er frágengið. Það er hægt að
tala um alla hluti,“ segir Stein-
dór Olafsson, eigandi Pizza Hut.
Þrátt fyrir itrekaðar tilraunir
náðist ekki í Jón Asgeir Jóhann-
esson í gær, en Gaumur er orðið
umsvifamikið fyrirtæki í veit-
ingabransanum. Steindór segir
að rekstur Pizza Hut hafi gengið
mjög vel að undanförnu og
stækkun sé fyrirhuguð á hús-
næðinu í Hótel Esju. Enn frem-
ur hafi komið óskir um að opna
útibú á Akureyri. — BÞ
•SUBUJRV
•subujrv'
■SUBWflV