Dagur - 18.12.1998, Síða 4

Dagur - 18.12.1998, Síða 4
20-föstvdagur . DESEMBER 1998 LÍFIÐ í LANDINU Árni Johnsen skilur mikið um líftækni, lækn- isfræði, DNA-rannsóknir, tölvufræði, dulkóðun og ég tala nú ekki um sið- ferðileg álitamál að smotterí eins og gagna- grunnsfrumvarpið vefst ekkert fyrir honum. Árni Johnsen skilur það. Og þess vegna ætlar Árni Johnsen að greiða gagna- grunnsfrumvarpinu atkvæði sitt í dag. Það sem Árni Johnsen skilur ekki - ímynda ég mér - er sú skrýtna staðreynd að stór hluti íslensku læknastéttarinnar og Iangstærstur hluti sérfræðinga sem starfa á því sviði sem gagnagrunnsfrum- varpið mun snerta skilja það ekki. Þeir skuli beinlínis vera á móti gagnagrunns- frumvarpinu. Meðlimir rannsóknarráðs, siðfræðistofnana, prófessorar við háskól- ann, læknar á Iækna ofan, menn sem í mörgum tilfellum hafa að baki margra ára háskólanám í greinum sem maður skyldi ætla að gerði þeim einmitt kleift að skilja gagnagrunnsfrumvarpið - þeir mis- skilja það. Og eru jafnvel á móti frum- varpinu. Þeir hljóta því allir að vera heimskir. Þeir eru að minnsta kosti heimskari en Árni Johnsen sem styður frumvarpið og ætlar að greiða því atkvæði með góðri samvisku í dag. Vitaskuld eftir að hafa kynnt sér málið í þaula. Eða efast nokkur um það? Mngmenn stjómarandstöðiumar em heimskir Og þingmenn stjórnarandstöðunnar, þeir hljóta líka að vera afar heimskir, fyrst þeir skilja ekki gagnagrunnsfrumvarpið. Þeir misskilja það reyndar alveg út í það óend- anlega, þeir eru svo heimskir. Það hefur verið beinlínis átakanleg sjón að sjá þing- menn stjórnarandstöðunar emja úr ræðu- stól á Alþingi undanfarnar nætur um gagnagrunnsfrumvarpið, heimtandi skýr- ingar, beitandi málþófi, kjaftandi þvælu og skiljandi ekkert. Maður var farinn að óska þess að Árni Johnsen vildi láta svo lítið að stíga í ræðustól og skýra málið í fáeinum setningum fyrir þessum heimsk- ingjum, því auðvitað hlýtur hann að vera með allt það á hreinu sem þeir misskilja, úr því hann ætlar að greiða frumvarpinu atkvæði. En svo rann upp fyrir manni að auðvitað geta gáfaðir menn eins og Árni Johnsen ekki endalaust verið að eyða orð- um i heimskingja og sennilega var Árni löngu farinn heim að sofa, meðan vesal- ings heimskingjarnir misskildu þetta allt saman í bak og fyrir. Nema náttúrlega heimska stjórnarand- stöðuþingmannanna og allur þeirra mis- skilningur sé sprottinn af enn verri hvöt- um en hreinum gáfnaskorti - sem sé öf- und í garð Kára Stefánssonar sem sann- anlega er ljóngáfaður maður, svo gáfaður að mér finnst mjög sennilegt að þessi herskari prófessora og lækna og sérfræð- inga sem eru á móti þessu litla, einfalda frumvarpi hans Iáti fyrst og fremst stjórn- ast af afbrýðisemi. Þeir gátu ekki fattað upp á þessu snjallræði sjálfir og leggja því orðstír sinn að veði við að níða skóinn af frumkvöðlinum. Sem betur fer býr Kári Stefánsson svo vel að geta reitt sig á hildausan stuðning sjálfra frumkvöðla ársins í íslensku viðskiptalífi - það er að segja ríkisstjómar Islands - og svo á hann Árna Johnsen að. Mikið hlýtur Kári að hafa hugsað hlýtt til Árna Johnsen hafi hann mátt vera að því að hocfa á þessar dapurlegu svokölluðu umræður frá Al- þingi þar sem stjórnarandstöðuþing- mennirnir þráuðust við að skilja einfalt mál og vörpuðu fram endalausri runu af spurningum sem þessir heimskingjar töldu nauðsynlegt að fá svör við áður en svo mikilvægt mál eins og gagnagrunns- frumvarpið yrði samþykkt. En gáfaðir menn eins og Kári Stefánsson og Árni Johnsen vissu að þessum spurningum þurfti ekkert að svara - það þurfti bara að samþykkja frumvarpið og hætta þessu til- gangslausa múðri heimskingja. Gáfuleg plögg, flokksskírteini En ef einhver skyldi nú halda að ég væri gagnagrunnsfrumvarpið. Árni Tohnsen veit svo UMBUDA- LAUST lllugi Jökulsson skrifar Hann skilur það sem sprenglærðir prófessorar með margra ára há- skólanám að baki mis- skilja. Þess vegna greiðir hann gagnagrunnsfrum- varpinu atkvæði. heimskir menn eins og Ögmundur og Hjörleifur og Össur reyna að vísa málinu frá af því þeir eru allir svo vitlausir. Og ekki þarf að orðlengja um að Siv Friðleifsdóttir skilur gagnagrunnsvarpið. Hún hefur að sönnu ekki getað svarað óteljandi grundvallarspurningum um þennan grunn sem hinir tröllheimsku stjórnarandstæðingar hafa verið að puðra á hana á Alþingi undanfarna daga og nætur - en það er nú einu sinni eðli mjög gáfaðs fólks að það á stundum erfitt með að skýra einföld mál fyrir heimskingjum. Það Iiggur nefnilega allt svo ljóst fyrir þegar maður er svona gáfaður. Og þarf ekki að eyða orðum að smáatriðum. Þó hefur Siv vissulega sýnt mikla þolinmæði, tekið á móti mörgum, mörgum gestum, verið hugguleg við þá og örugglega gefið þeim vínarbrauð og hlustað af stakri at- hygli á allan þeirra misskilning, en ein- hvern tíma verður gáfað fólk að segja stopp - stöðva þennan heimskulega vaðal og taka af skarið. Þess vegna ætlar Siv að greiða gagnagrunnsfrumvarpinu atkvæði sitt í dag. að taka Arna Johnsen hér sem dæmi af tómum kvikindisskap, af því ég teldi hvað sem öðru líður næsta víst að hann geti vart skilið það sem hinir sprenglærðu sér- fræðingar og hundrað og eitthvað Iæknar skilja ekki, þá er það auðvitað fráleit ályktun. Eg er einungis að vekja athygli á því hvað flokksskírteini £ Sjálfstæðis- flokknum eru gáfuleg plögg. Þau auka manni beinlínis gáfur, svo menn skilja það sem aðrir dauðlegir menn skilja ekki, tala nú ekki um ef maður er þingmaður í ofanálag. Og sama gildir greinilega um flokksskírteini í Framsóknarflokknum, og þingmannsbréf. Þau eru ígildi og raunar meira virði en margra ára háskólanám í öllum þeim flóknu fræðigreinum sem gagnagrunnsfrumvarpið snertir - sé mað- ur með eitt slíkt í höndunum skilur mað- ur það svo léttilega sem hinir spreng- lærðu misskilja. Og þess vegna munu þingmenn Framsóknarflokksins greiða at- kvæði með gagnagrunnsfrumvarpinu í dag, alveg eins og Árni Johnsen. Eg gæti sem hægast nefnt mörg önnur dæmi um gáfaða þingmenn sem eru svo miklu betur að sér um líftækni, dulkóðun og siðferðismál heldur en til dæmis heimskingjar eins og - nefnum bara af handahófi Ólaf Ólafsson fyrrum land- lækni sem er einn þeirra fjölmörgu sem misskilja það sem Árni Johnsen skilur. Eg gæti eins nefnt að EgiII á SeljavöIIum skilur líka gagnagrunnsfrumvarpið. Þess vegna ætlar hann að greiða því atkvæði í dag. Magnús Stefánsson skilur gagna- grunnsfrumvarpið. Séra Hjálmar Jónsson skilur gagnagrunnsfrumvarpið, enda er hann miklu gáfaðri en til að mynda bisk- upinn yfir Islandi. Og Isólfur Gylfi Pálmason, meira að segja hann skilur gagnagrunnsfrumvarpið, enda hefur stóra systir hans væntanlega getað skýrt það út fyrir honum - hafi flokksskírteinið þrátt fyrir allt ekki dugað - þó hún hafi að vísu því miður ekki getað skýrt það út fyrir okkur hinum, ekki einu sinni grundvall- aratriði eins og hvaða gögn eigi yfirleitt að grunna með þessu frumvarpi. Samviska allra þessara gáfuðu þing- manna býður þeim að greiða gagna- grunnsfrumvarpinu atkvæði sitt í dag, og stjórnarskráin skipar þingmönnum að breyta samkvæmt samvisku sinni. Enda hafa þeir náttúrlega allir kynnt sér málið í þaula. Eða efast nokkur um það? LyklaMppan muxi veita yður skflning En allra fegursta dæmið um það hvernig þingmennska fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn eykur mönnum gáf- ur og skilning en eyðir misskilningi, svo menn skilja í einu vetfangi það sem pró- fessorar misskilja, það er hann Kristinn H. Gunnarsson. Fyrir fáeinum vikum munaði ekki nema því sem munaði að hann gengi til liðs við þingflokk óháðra, og þá hefði hann lent í flokki með mjög heimskum mönnum eins og Ögmundi og Hjörleifi sem misskilja gagnagrunnsfrum- varpið gersamlega því þeir eru svo vit- lausir. Enda hafði Kristinn vit á að binda trúss sitt fremur við framsóknarmenn. Og hann þurfti ekki nema fá afhenta lyklakippu á flokksskrifstofu Framsóknar- flokksins á Vestfjörðum til að sjá Ijósið. Um leið og fingurgómar hans snertu lyklakippuna, þá sldldi hann gagna- grunnsfrumvarpið. Og þess vegna mun hann greiða því atkvæði í dag, meðan „Beibí“ Davíðs Oddssonar Óþolinmæði hinna Ijóngáfuðu í garð heimskingja einkennir reyndar líka og ekki síst forsætisráðherra vorn, Davíð Oddsson. Það er auðvitað skiljanlegt að hann hafi ekki Iagt sig að ráði niður við að skýra gagnagrunnsfrumvarpið fyrir þeim sem eru heimskir og haldnir mis- skilningi. Allir vita að þetta mál er hans „beibí" og það er hann sem hefur lofað Kára Stefánssyni að hann skyldi koma því í gegn - enda eru amerísku áhættuíjár- festarnir sjálfsagt farnir að kalla á kútinn og það verður að hafa hraðann á. En hef- ur Davíð Oddsson látið svo lítið að taka til máls á Alþingi til að skýra fyrir okkur frumvarpið - allar þær spurningar sem við heimskingjarnir skiljum ekki, öll smáat- riðin um líftæknina, DNA-rannsóknirnar, dulkóðunina og hin siðferðilegu spurs- mál, hefur hann skýrt fyrir okkur hvað liggur svona mikið á að tittlingaskítur eins og íslensku Qárlögin og lagasetning um sjávarútvegsmál hefur mátt sitja á hakanum meðan gagnagrunnsfrumvarpið var keyrt í gegn, þrátt fyrir alla andstöðu? Auðvitað hljótum við heimskingjarnir að vona - úr því sem komið er - að gagna- grunnsfrumvarpið verði okkur öllum til góðs, en ekki bara amerísku áhættufjár- festunum, en hefur Davíð Oddsson út- skýrt fyrir okkur hvað lá á, af hverju mátti ekki taka örlítið lengri tíma f að útskýra allar þessar endalausu spurningar fyrir oss fáfróðum? Nei, hann hefur ekki látið svo lítið. Þó hann hljóti að vita þetta allt saman. Alveg eins og Árni Johnsen. En hann hefur bara auðvitað ekki nennt því. Því hann er svo gáfaður. Alveg eins og Árni Johnsen. Pistill Illuga varfluttur í Morgunútvarpi Rásar tvö ígær

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.