Dagur - 07.01.1999, Page 1

Dagur - 07.01.1999, Page 1
Sóknardagar framselj anlegir Meirihluti sjávarút vegsnefndar Alþingis leggur til að sóknar- ílagakerii smábáta verði breytt en ekki lagt niður. Sóknardag- ar verða framseljan- legir eins og kvótinn samkvæmt tillögum meiriblutans. Stjórnarmeirihlutinn í sjávarút- vegsnefnd Alþingis náði í gær samkomulagi um breytingar á frumvarpi sjávarútvegsráðherra sem lagt var fram vegna kvóta- dóms Hæstaréttar. Efnislega er samkomulagið á þá leið að sókn- ardagakerfið verði endurhannað í stað þess að kippa trillum á sókn- armarki inn í kvótakerfið, eins og frumvarpið gerir ráð fyrir. Þing- flokkur Framsóknar lagði í gær blessun sína yfir að unnið yrði áfram á þessum nótum í sjávarút- vegsnefnd en skoðanir eru skipt- ari f þingliði sjálfstæðismanna. Gert er ráð fyrir að sóknar- markið verði eingöngu miðað við handfæri og handfærabátarnir megi aðeins veiða á tímabil- inu apríl-septem- ber. Miðað er við að hver trilla megi veiða í 23 daga á yfirstand- andi fiskveiðiári og einnig á næsta fiskveiði- ári sem hefst 1. september. Athygli vekur að meirihlutinn leggur til að sóknardagar smábátanna verði bundnir einstaklingum .en ekki bátum og framseljanlegir. Trillusjómaður sem hefur rétt til að veiða í 23 daga getur selt öðr- um alla eða hluta daganna sam- kvæmt tillögunum, rétt eins og kvóti gengur kaupum og sölum í dag. Samkvæmt frumvarpinu fá allir sem eiga haffær skip veiðileyfi en þeir verða hins vegar að kaupa sér kvóta eða sóknardaga nái breyt- ingartillögur stjórnarliða í sjávar- útvegsnefnd fram að ganga. Sam- kvæmt dómi Hæstaréttar stenst það ekki stjóm- arskrá að binda veiðileyfi við til- tekin skip. Marg- ir hafa haldið því fram að það sama eigi við um kvótann en á þá túlkun hefur rík- isstjórnin ekki fallist. Takmörkuö skerðiug Það hefur verið vandamál með smábátana á sóknarmarki, sem veiða úr sam- eiginlegum potti að þeir hafa far- ið framúr hvað afla snertir. I sam- komulagi meirihluta sjávarút- vegsnefndar er gert ráð fyrir að ef trillurnar fara framúr hvað afla snertir verði sóknardögum fækk- að. Sú fækkun geti þó aldrei orð- ið meiri en 23% í senn samkvæmt samkomulagi meirihlutans. Þorskaflahámark smábáta verður óbreytt. Kvóti verður sett- Sóknardagakerfi smábáta verður að líkindum breytt bráðlega. ur á allan fisk sem þeir veiða en þeir hafa getað veitt nokkrar teg- undir utan kvóta. Þetta er að sjálfsögðu gert til að koma í veg fyrir Ijölgun báta sem gætu sótt í afla utan kvóta. Jöfnunar- og byggðapottur Til er svo kallaður jöfnunarpottur innan kvótakerfisins, sem er 5 þúsund tonn. Gert er ráð fyrir að hluta hans verði úthlutað til litlu aflamarksbátanna, sem oft eru kallaðir „Gleymdi flotinn" en það eru dagróðra- eða strandveiðibát- ar, eftir hvort orðið menn nota. Einnig er gert ráð fyrir að komið verði upp svo kölluðum byggða- potti. Ekki hefur verið ákveðið hve mikið magn verður í honum en hann verður nýttur til að mæta vanda þeirra byggðarlaga sem mest hafa misst af kvóta og byggja afkomu sína nær eingöngu á sjávarútvegi. Byggðastofnun á að setja upp kerfi til þeirrar út- hlutunar. Gert er ráð fyrir því í frumvarp- inu að lögin um stjórn fiskveiða verði endurskoðuð frá grunni og að þeirri endurskoðun verði lokið fyrir árslok 2000. — S.DÓR Arsfang- elsi og miHjóna sekt Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær framkvæmdastjóra innflutningsfyrirtækis í borginni í árs fangelsi, þar af 9 mánuði skilorðsbundið, og til að greiða 7.5 milljónir króna í sekt fyrir skjalafals og tollsvik. Maðurinn falsaði bréf til þess að fá felld niður aðflutningsgjöld af ýmsum búnaði sem fyrirtækinu bar að greiða að upphæð samtals tæpar 6.6 milljónir króna. Hann falsaði m.a. bréf sem hann sendi tollayf- irvöldum í nafni Ríkisútvarpsins, Islenska útvarpsfélagsins, norska sendiráðsins, Sýnar, Húsvískrar fjölmiðlunar og fleiri. Þrír hönnuðir voru verðlaunaðir í gær fyrir hugmyndir að nýjum fötum fyrir íslensku jólasveinana. Hjördís Ólafs- dóttir, Bryndís Gunnarsdóttir og Sigríður Hrönn Helgadóttir hlutu heiðurinn, en Þjóðminjasafnið efndi til fatahönn- unarinnar. (bakgrunni má sjá hugmyndir að nýja búningnum. Guðný Guðbjörnsdóttir alþingiskona. Guðný í prófkjör Kvennalistinn mun taka þátt f samfylkingu jafnaðarmanna eftir að samkomulag náðist í gær um prófkjörsreglur. Reglurnar gera ráð fyrir girðingum miili flokka og að allir flokkarnir þrír fái minnst tvö af efstu átta sætunum á listanum og þar af eitt af efstu fjórum. Guð- ný Guðbjörnsdóttir, þingkona Kvennalistans, sagðist í gær fagna því mjög að þessi niðurstaða væri loksins komin. Enn ætti þó eftir að samþykkja þessa niðurstöðu form- lega sem hún taldi líklegt að yrði gert á félagsfundi í Reykjavík í dag. „En að því samþykktu þá hef ég fullan hug á því að gefa kost á mér í 1. sæti Kvennalistans, þ.e.a.s. eitt af fjórum efstu sætum sam- fylkingarinnar f Reykjavík. Við höfðum gert okkur vonir um að fá tvær þingkonur í Reykjavík og munum áfram beijast fyrir því bæði innan prófkjörsins og í kosn- ingunum," sagði Guðný í gær- kvöld. Margir íboði Þeim tjölgar sem gefa kost á sér í prófkjöri samfylkingarinnar í Reykjavík. I gær höfðu þau Bryndís Hlöð- versdóttir alþingismaður, Heimir Már Pétursson framkvæmdastjóri, Magnús Ingólfsson kennari og Árni Þór Sigurðsson aðstoðarmað- ur borgarstjóra, tilkynnt um þátt- töku fyrir Alþýðubandalagið. Þá er talað um að Vilhjálmur H. Vil- hjálmsson nemi íhugi að gefa kost á sér. Þeir sem tilkynnt höfðu um þátttöku fyrir Alþýðuflokkinn voru þingmennimir Jóhanna Sigurðar- dóttir, Ossur Skarphéðinsson, Asta Ragnheiður Jóhannesdóttir og Magnús Arni Magnússon. Þá hef- ur Stefán Benediktsson, þjóð- garðsvörður og fyrrum alþingis- maður, tilkynnt um þátttöku í prófkjörinu. Orðrómur er um að Jakob Magnússon tónlistarmaður sé að íhuga þátttöku. — bþ/s.dór Bi WORLDWfCte EXPRESS EITT IMÚMER AÐ MUNA 5351100

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.