Dagur - 07.01.1999, Page 4

Dagur - 07.01.1999, Page 4
4- FIMMTUDAGUR 7. JAXÚAR 1999 FRÉTTIR Hafísinn fjarri landi Hafísinn er nú Iengra frá Iandi fyrir vestan en oft áður á þessum árs- tíma. Næst landi á þriðjudag var hann 77 sjómílur norðvestur af Barða samkvæmt mælingum Landhelgisgæslunnar. Barði er skaginn milli Önundarfjarðar og Dýrafjarðar. Isjaðarinn er 7-9/10 að þéttleika og var sjórinn að frjósa í allt að 20 sjómílur út frá ísbrúninni. Borgarís var í ísjaðarinum um 135 sjómilur vestur af Barða. | — GG Vilja tiHögur uin nafn Sveitarfélagið í Borgarfirði, sem varð til við sameiningu Hálsahrepps, Reykholtsdalshrepps, Lundareykjadalshrepps og Andakílshrepps hefur sent öllum íbúum sveitarfélagsins sem telur um 680 íbúa, bréf þar sem óskað er eftir tillögum á nafn á sveitarfélagið og eiga tillögur að hafa borist fyrir 8. janúar nk. Málið verður á dagskrá næsta hreppsnefndar- fundar 14. janúar nk. Örnefnanefnd hafnaði ósk sveitarfélagsins um að fá að heita Borgar- Qörður, en 51 % íbúa vildi að sveitarfélagið bæri þetta nafn, en kosið var um það samhliða sveitarstjórnarkosningunum vorið 1998. Uppi eru hugmyndir um að sækja um nafnið sveitarfélagið Borgarfjörður í sam- ræmi við það að Skagfirðingar fengu samþykkt nafnið sveitarfélagið Skagaljörður til aðgreiningar. Einnig hafa nöfn eins og Hálsasveit, Bæj- arsveit, Borgafjarðardalir og Borgarfjarðarsveit verið nefnd manna á meðal sem hugsanlegur valkostur. - GG Færri viimuslys Ekkert banaslys við vinnu varð í Norðurlandsum- dæmi-eystra á árinu. Rannsökuð slys, en þar er um að ræða alvarlegustu slysin, voru færri á nýliðnu ári en undanfarin ár. I fyrra (1998) voru rannsökuð 13 slík slys, en á árunum þar á undan hafa þetta verið u.þ.b. 20 slys á ári. Heildarijöldi tilkynntra slysa í umdæminu er eilítið lægri en árið áður en einhveijar tilkynningar geta átt eftir að berast stofnuninni. Að sögn Helga Haraldssonar umdæmisstjóra Vinnueftir- litsins hér á Akureyri er sá Qöldi dóma sem fallið hafa undanfarið í framhaldi af vinnuslysum og atvinnu- sjúkdómum um land allt það fyrsta sem kemur upp í hugann varðandi nýliðið ár . Aðilar eru frekar en áður látnir sæta þeirri ábyrgð sem þeir bera skv. lögum Helgi segir dóma í framhaldi af vinnuslysum og atvinnusjúkdómum og umíjöllun um þá tvímælalaust hafa haft fyrirbyggjandi áhrif, menn verða sér meðvitaðri um ábyrgð sína. Aðalatriðið sé hinsvegar ekki það að dæma einstaklinga eða fyrirtæki heldur að fyrirbyggja slysin eða skaðann og verða menn að nýta til þess öll meðul. Eyfírskir sjómenn mótmæla Halldór Blöndal fær heldur kaldar kveðjur frá Eyfirsk- um sjómönnum. Aðalfundur Sjómannafélags Eyja- fjarðar sem haldinn var nýlega mótmælir harðlega því gerræði samgönguráðherra að gildistaka á hartnær fimm ára gömlum lögum um sleppibúnað björgunar- báta um borð í skipum sé frestað enn einu sinni, eins og segir í ályktun fundarins. Frestun gildistökunnar segja sjómenn er ekkert annað en lítilsvirðing við sjó- menn og ráðherrann virðist beita sér fyrir því að dreg- ið sé úr öryggi sjómanna. Flugbj örgunaxs veitin nær 20% markaðarins Svo virðist sem flugeldasala á Akureyri fyrir áramótin hafi í heildina verið svipuð eða örlítið meiri að magni og undanfarið ár. Hins vegar voru fleiri um hituna nú en áður en Flugbjörgunarsveitin í bænum bættist í hóp seljenda þannig að söluaðilar voru þrír. Áður höfðu Þór og Hjálparsveit skáta setið ein að sölunni. Skátarnir hafa verið Iang stærsti einstaki söluaðilinn og segir Ásgeir Hreiðarsson hjá Hjálpar- sveitinni að menn hafi greinilega orðið varir við samkeppnina því gera megi ráð fyrir að Flugbjörgunarsveitin hafi tekið til sín um 20% af heildarsölunni núna. Hann segir flugeldasöluna þó hafa gengið afskap- lega vel og ekkert við því að segja þó björgunarsveitir séu nú farnar að bítast um sama ijáröflunarmarkaðinn. Kenni á subaru legacy. Tímar eftir samkomulagi. Útvega námsgögn. Hjálpa til við endurnýjunarpróf. Ingvar Björnsson ökukennari frá KHÍ Akurgerði 11 b, Akureyri Sími 899 9800 Heimasími 462 5692 Halldór Blöndal samgönguráð- herra. Helgi Haralds- son, umdæmis- stjóri Vinnueftir- litsins á Akur- eyri. Tkyur Kristjáni Þór Júlíussyni, bæjarstjóra, fórst stjórn gröfunnar fagmannlega þegar hann tók fyrstu skóflustunguna að þjónustuíbúðum fyrir fatlaða, sem verða tilbúnar til afhendingar að ári. - mynd: brink íbúðir íyrir fatlaða byggöar á Akureyri Byrjað að byggja sex íbúðir fyrir fatlaða á Akureyri. Akureyrarbær hefur hafið bygg- ingu þjónustuíbúða fyrir fatlaða að Eiðsvallagötu 34. Um er að ræða sex einstaklingsíbúðir, hver um 50 fermetrar að stærð, á tveimur hæðum en auk þess verður sameign sem er 15 fer- metrar. Áætlaður byggingakostn- aður er 32,2 milljónir króna en verktaki er byggingafyrirtækið Fjölnir. Valgerður Magnúsdóttir, fé- lagsmálastjóri Akureyrarbæjar, segir að um nútímaútgáfu af sambýli fatlaðra sé að ræða, þetta búsetuform sé víða að taka við, en það er hliðstætt því formi sem komið hefur verið upp í Skútagili á Akureyri. íbúðirnar verða í eigu Akureyrarbæjar, sem er nýjung, en ríkisvaldið íjár- magnar framkvæmdina. Fram- lagið er þó skilyrt, en sýna þarf fram á þörfina. Valgerður segir að með þessari staðsetningu sé verið að dreifa búsetunni meira um bæinn, sem sé æskilegt. Ný- lega voru teknar í notkun íbúðir fyrir fatlaða á Dalvík, en þær eru í eigu Þroskahjálpar en ekki Dal- víkurbæjar. — GG Fá kjarábætur með nagræðingu Starfsfólk Landssím- ans fær 2% launa- hækkirn og 75 þiisuiid króna eingreiðslu. Starfsfólk Landssíma íslands fær 2% Iaunahækkun frá og með næstu mánaðamótum. Þá fá allir starfsmenn, sem unnið hafa sl. 12 mánuði, 75 þúsund króna eingreiðslu. Það er þó háð því að samkomulag náist um lífeyris- mál. Starfsfólk í hlutastarfi og þeir sem unnið hafa skemur fá greitt hlutfallslega. Morgimkaffítimi úti Þetta er m.a. það sem fram kem- ur í samkomulagi sem Landssím- inn hefur gert við Félag (slenskra símamanna, Rafiðnaðarsamband íslands og Verkamannasamband Islands og kynnt var starfsfólki í gærmorgun. Það felur í sér að kaffitími á morgnana verður felldur niður en á móti verða greiddar 20 mínútur á dag í eftir- vinnu. Þá verða gerðar breyting- ar á vinnufyrirkomulagi vakta- vinnumanna sem ráðnir verða í hlutastörf. Þær breytingar ná þó ekki til þeirra sem fyrir eru. Auk þess verða launagreiðslur mán- aðarlega til þeirra sem hafa feng- ið launin vikulega. Engu að sxður geta þeir sem eru á vikulaunum haldið því fyrirkomulagi ef þeir óska þess. Atkvæðagreiðsla I samkomulaginu er einnig gert ráð fyrir því að félagar í hveiju félagi fyrir sig greiði atkvæði um samkomulagið. Jafnframt hefur náðst sátt um að meirihluti starfsmanna í hverju félagi verði að samþykkja samkomulagið til þess að það taki gildi. - grh Baimað að gefa Netáskrift Samkeppnisstofnun hefur til bráðabirgða bannað Landssím- anum að veita allt að 10 þúsund aðilum endurgjaldslausa inter- netþjónustu í þrjá mánuði. Stofnunin komst að þeirri niður- stöðu að markaðsyfirráð Lands- símans og einokun á sumum sviðum væru slík að tilboðið væri til þess fallið að valda verulegri röskun á samkeppnisstöðu fyrir- tækja á markaðnum og rekstri þeirra. Landssíminn og dótturfélagið Skíma auglýstu 21. desember að 10 þúsund einstaklingar gætu fengið þjónustuna frítt í þrjá mánuði. Þetta kærði Islandia ehf. til Samkeppnisstofnunar, sem taldi forsendur fyrir hendi til að taka strax ákvörðun til bráðabirgða. Lítur stofnunin meðal annars til yfirburðastöðu Landssímans og einokun á sum- um sviðum. „Landssfminn hefur á skömmum tíma styrkt stöðu sína verulega á Internetþjón- ustumarkaði sérstaklega, annars vegar með sjálfstæðri markaðs- sókn á grundvelli auglýsinga og tilboða, og hins vegar með kaup- um á fyrirtækjum sem eru í rekstri á markaðnum,“ segir í niðurstöðum stofnunarinnar. - FÞG

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.