Dagur - 14.01.1999, Side 4

Dagur - 14.01.1999, Side 4
20-FIMMTUDAGUR H. JANÚAR 1999 UMBÚÐALAUST L. Að liðinni hátíð ljóssins er hollt að velta fyrir sér hvort lífið sé helgara en dauðinn eða öfugt. Kirkjan segir okk- ur að Iíkaminn sé umbúðir utan um sálina og ekki reng- ir pistilhöfundur það. Að minnsta kosti ekki á öðru ári sem fermingarbróðir hans situr á Biskupsstóli. En það er nú önnur saga. Séra Jak- ob heitinn Jónsson má vera stoltur af fermingarbarni sínu úr litlu kapellunni hans séra Hallgríms á Skólavörðuholtinu fyrir tæpum fjörutíu árum og það eru fermingar- systkinin vissulega líka. Hitt er svo annað mál að umbúðum er yf- irleitt fleygt eftir notkun eða skilað til end- urvinnslu. Svo er hins vegar ekki um um- búðir sálarinnar. Flestar eru þær lagðar í helgan reit með viðhöfn og eftirsjá. Manns- líkaminn er miklu hærra metinn en venju- Iegar einnota umbúðir í neysluþjóðfélagi. Að minnsta kosti hjá ástvinum sálarinnar og fleira góðu fólki. Hjá pistilhöfundi líka. Náttmyrkur og dagsljós En því er hérna velt vöngum yfir umbúðum sálarinnar að með tímanum hverfur virðing fólks fyrir líkamanum hvílandi í gröf sinni. Réttur sálarinnar á grafarró líkamans minnkar með hverju ári frá kistulagningu uns hann hverfur fyrir fullt og fast. Daglega eru rofin grið á látnu fólki um alla heims- byggðina og Iíkræningjar hafa umbúðir sál- arinnar með sér á brott. Ekki til að leggja í aðra mold eða betri mold heldur til að hafa fólki til sýnis og skemmtunar á söfnum. Aður tíðkaðist að íeggja muni með Iátnu fólki í grafir og stundum voru fjársjóðir grafnir með fyrirmönnum. Grafarró þessa fólks er því ekki bara raskað heldur eru greipar látnar sópa um jarðneskar eigur þeirra í leiðinni. Einkum eru tvær tegundir líkræningja á ferðinni að Ieita uppi grafir fólks og vanhelga: Annars vegar ótíndir þjóf- ar og hins vegar löggiltir þjófar hins opin- bera í nafni þjóðminja. Otíndu þjófarnir bera þýfið heim til sín í náttmyrkri en opin- beru þjófarnir aka þýfinu á safn í dagsljósi. Fyrri og seiani eilífð Grafarrán eru miður geðfelld iðja og hljóta að vera fordæmd af bæði kirkjunnar mönn- um jafnt sem leikmönnum. Hvort sem graf- arræningjar eru í einkaerindum eða á vegum hins opinbera. Einu gildir fyrir hinn rænda hvort leifar hans fara á einkasafn eða á þjóð- minjasafn. Söm er röskunin á ró hans í gröf- inni. Lifandi fólk og látið á fullan rétt á að látnir hvíli í friði um aldur og eilífð. Og ei- lífðin er ekki tímabundin. Ekki er Iengur hægt að líða að eilífðin skiptist í tvö tímabil: Fyrri eilífð og seinni ei- lífð. 1 fyrri eilífðinni er réttur sálarinnar á grafarró bundinn í lög og í seinni eilífðinni er réttur fólks til grafarrána bundinn í lög. Eilífðin er eitt og óslitið tímabil fyrir Iátna og Iíkama þeirra. Grafarróin er heilög. Hún er leiðarlok líkamans á jörðu niðri en ekki áfangastaður á flækingi hans á milli safn- húsa. Mold af moldu Af moldu ertu kominn og að moldu skaltu aftur verða er hinsta kveðja tif látinna við greftrun. Ekki eru þó allir menn svo Iánsam- ir að ná þessari helgu hringrás. Vel má því spyrja í dag: Hvenær rennur út grafarró fólksins sem jarðsett er á öldinni okkar og hvenær gengur tími grafarrána í garð? Kem- ur kannski í hlut okkar Biskupsins að bera jarðneskar leifar gamla fermingarprestsins okkar á safn eða þíður það afkomenda? Gleðilegt og rólegt nýtt ár! UMBÚDA- LAUST ■menningar] LÍFIfl Haraldur Ingólfsson Er þetta nú list? Já, hver kannast ekki við svona spurn- ingu. Umræða um list dettur alltaf öðru hveiju niður á þetta plan og sennilega er það einkum mynd- listin - eða myndlistar- mennirnir sem verða að una við það að gerð sé krafa um að viðkomandi listamaður sanni eða sýni ingu fyrir kaffí- framaaðþað hús eftir Hiyn sem hann er að gera se Iist. --------- Myndlistar- mönnum má auðvitað vera nokk sama um svona upp- hrópanir. Myndlistarmaður sem er trúr sjálfum sér í því sem hann er að skapa getur vel við unað. Þörfin til að skapa knýr hann áfram og hann á ekki að þurfa að vera sífellt að skilgreina sjálfan sig, sannfæra efasemdarmenn eða réttlæta eigin hugmyndir. Myndlistarmaðurinn skapar. Hrædd við sjálf okkur Þessar umræður verða iðu- lega skemmtilegar þótt stund- um reyni upphrópanirnar á þolinmæðina. Margt af því óhefðbundna sem gert er í myndlist á ekki upp á pall- borðið hjá þeim sem ekki vilja sjá annað en olíu á striga þar sem sýnt er fallegt landslag. Sjálfur er ég ekki mjög kunn- ugur straumum og stefnum í myndlistarheiminum en mig langar til að varpa fram spurningu: Er vandinn ekki einfaldlega sá að við erum hrædd við sjálf okkur? Við treystum okkur ekki til að njóta okkar eigin upplifunar á verki sem við skoðum. Við erum sífellt að reyna að passa inn í einhverja fyrirfram ímyndaða mynd sem við höf- um gert okkur af „einhverjum sem skilur Iistina". V_____________________/ Þefaðu af kaffrnu „Wake up and smell the coffee," segir Máni, drottning leikritsins Hinn fullkomni jafningi sem Felix Bergsson skrifaði og leikur á sviði Islensku Operunnar þessa dagana. Heimfæra má orð Mána upp á uppfærsluna sem slíka, sem hvatningu til okkar „hinna“ að ltíkja á og skoða heim samkynhneigðra með sanngirn- isaugum eða jafnvel gleðjast yfir því að mannlífið verði auðugra fyrir tilstilli ólíkra kynhneigða fólks. Felix leikur fimm homma á sýning- unni en Ieikurinn hefst þegar Ari Finns- son, kennari á fertugsaldri, er að undir- búa matarboð lífs sín, nötrandi af eftir- væntingu, enda vonast Ari til að boðs- gesturinn, hommi sem hann kynntist á irkinu, sé riddarinn á hvita hestinum. Annað kemur á daginn... Stórhugur Það er stórhugur hjá einum leikara að ætla sér að bregða upp fimm trú- verðugum karakterum á einni kvöldstund. Persónur Felix eru dregnar skýrum dráttum í texta en aðeins vantar upp á leikinn til að við komumst almennilega undir húðina á þessum mönn- um. Helsti kostur Felix er hve túlkun hans er laus við allan of- leik en galli hans er skortur á dramatískri dýpt og stundum á næmi fyrir texta. Kennarinn Ari er sjaldgæf karlpersóna á ís- lensku sviði, dempaður og af- slappaður en á sama tíma eins og flögrandi turtildúfa. Hins vegar stóð bunan svo Iátlaust út úr honum til að byrja með að varla gafst tími til kúnstpása. Þrátt fyrir þennan ágalla var Ari vel mótuð persóna eins og Máni drottning. Máni var raunar óborganleg- ur, heillaði með ungæðislegu sjálfsör- yggi ungmennisins sem af Iífsgræðgi sinni vildi helst gleypa heiminn í einum bita. MEIMNIIMGAR VAKTIN Felix leikur fimm óiíka homma og tekst langbest upp í Mána drottningu. Samfélagsleg áminning Felix átti salinn þetta kvöld í Óperunni og samspil kvikmyndatækni, ljósa og hljóða var bráðsnjallt og ýmsar einfaldar sviðs- og Ieiklausnir snarvirkuðu og hafa þau Felix og Kolbrún Halldórsdóttir, leikstjóri, unnið þessa sjmingu eins vel og hægt er. Við höfum það einlægt á tilfinning- unni að við séum orðin svo ftjálslynd og fordómalaus að ekki þurfi að leiða hug- ann að svo löngu viðurkenndum tilfinn- ingum sem samkynhneigð. En leifar gagnkynhneigðs einræðis sitja djúpt og fast í Ijölmörgum skúmaskotum sem nauðsyn er að skola burt. Því er Hinn fullkomni jafningi brýnt leikrit.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.