Dagur - 11.03.1999, Blaðsíða 2
18 - FIMMTUDAGUR 11. MARS 1999
LÍFIÐ í LANDINU
SMÁTT OG STÚRT
UMSJÓN:
SIGURDÓR
SIGURDÓRSSON
ísólfur Gylfi
Pálmason.
„Síðasta laugar-
dag birtist í Morg-
unblaðinu grein
eftir tvo hagfræð-
inga á jötu launa-
fólks...,“
Páll Pétursson
félagsmálaráðherra
í grein í Mbl.“
Burtséð frá því
hvað við kjósum
Þegar þeir Isólfur Gylfi Pálmason og Guðni
Agústsson alþingismenn predikuðu í Stórólfs-
kirkju fyrir nokkru ortu þeir hagyrðingarnir
Magúns Halldórsson og Bjarni Helgaon á
Hvolsvelli vísur um atburðinn. Síðan gerðist
það að Arni Johnsen og Drífa Hjartardóttir,
þingmaður og varaþingmaður, predikuðu í
kirkjunni 7. mars sl. Þá orti Bjarni:
Fagnaðarboðskapinn fluttu þau vel,
framtaki sltku við hrósum.
Brokkgengan söfnuðinn bættari tel
burtséð frá þvt hvað við kjósum.
Magnúst orti líka vísu um atburðinn:
Með englavængi inn hérfló
Eyjapeyinn djatfi.
I vangasvip mér virtist þó
votta fyrir skarfi.
Hraðametið
Vestfirsk þjóðsaga segir frá því að Bergur
Guðnason, frá Flateyri, kallaður „Bi'labergur",
hafi afar gaman af að aka hratt. Hann átti um
skeið öll hugsanleg hraðamet á vestfirskum
þjóðvegum. Eitt sinn sat hann á veitingastaðn-
um Vagninum á Flateyri þegar maður nokkur
kom þangað inn og sagði heldur hreykinn: „Ég
var að koma frá Isafirði og var ekki nema
sautján mínútur á leiðinni." Þetta var fyrir
göngin á meðan ekið var yfir Breiðdalsheiði.
Bergur lét sér fátt um finnast en leit upp og
sagði: „Ha, kom eitthvað fyrir, sprakk hjá þér
eða hvað?“
Varla prestaskortur
Það gerðist fyrir nokkrum árum meðan fólk til
sveita ferðaðist um á hestum en ekki jeppum
að bóndi nokkur reið um hlað á prestsetri á
sunnudegi rétt fyrir messu. A þeim árum þótti
það óhæfa hin mesta að að vanrækja kirkju-
ferðir. Prestur stóð út á hlaði þegar bóndi fór
hjá og spurði hvort hann ætlaði ekki að vera í
messu hjá sér. Bóndi svaraði því neitandi.
„Varaðu þig,“ sagði prestur. „Ekki færðu að
hlýða á messu þegar þú ert kominn til helvít-
is.“ „Varla verður það af prestaskorti,“ svaraði
bóndi og reið úr hlaði.
Eggjakakan og hænan
Tveir kunningjar deildu um ágæti nýútkom-
innar bókar. Annar þeirra var rithöfundur og
þegar öll rök þraut sagði hann við kunningja
sinn: „Þú ert ekki rithöfundur, hefur aldrei
skrifað bók og ert því ekki dómbær um þessa
hluti.“ Kunninginn svaraði: „Ég hefur heldur
aldrei verpt eggi. Samt held ég að mér sé í lófa
lagið að dæma betur um eggjaköku en mestu
varphænu veraldar."
Hér er Marinó í
hópi viðskiptavina
í sleðaferð á veg-
um Sportferða.
„Við erum að sýna
framá hvað við
erum að gera ef
það getur passað
inn í pakkann."
Að hugsa stórt og hratt
ísland og kvikmyndagerð er-
lendra stórfyrirtækja hefur öðru
hvoru borið upp í sömu andrá og
núna um helgina verða staddir í
Eyjafirðinum fulltrúar banda-
rískra stórfyrirtækja úr þessum
geira til að skoða aðstæður með
kvikmyndagerð ýmiss konar í
huga. Marinó Sveinsson fram-
kvæmdastjóri Pizza 67 og Sport-
ferða greip gæsina þegar hann
frétti af komu útsendara erlends
tónlistarfyrirtækis í útgáfubrans-
anum til Akureyrar til að hlýða á
tónleika rokksveitarinnar Dead
Sea Apple í Sjallanum.
„Það verður mildð um að vera
hjá okkur núna um helgina. Við
erum að fá amerískt útgáfufyrir-
tæki í tónlistargeiranum og kvik-
myndafyrirtæki í ferð og gistingu
hjá okkur á morgun. Þetta eru
fyrirtæki sem ætla sér stóra hluti
og eru að skoða aðstæður á Is-
landi bæði fyrir kvikmyndatöku,
auglýsingamyndatöku, fyrir MIV
og fleira. Þau verða hjá okkur í
þrjá daga, fara í ferð á föstudeg-
inum og það er mjög spennandi
að sjá hvað kemur út úr því,“
segir Marinó.
Við erum aðfá amer-
ískt útgáfujyrirtæki í
tónlistargeiranum og
kvikmyndafyrirtæki í
ferð oggistingu hjá
okkurá morgun.
Þetta erufyrirtæki
sem ætla sérstóra
hluti og eru að skoða
aðstæður á íslandi
bæðifyrirkvik-
myndatöku, auglýs-
ingamyndatöku,fyrir
MTV ogfleira.
SPJALL
Sýnum okkar aðstæður
„Þau eru hér vegna útgáfutón-
leika Dead Sea Apple í Sjallanum
á föstudagskvöld. Eftir að við
komumst í málið óskuðum við
eftir að fá kvikmyndatökumenn
og framkvæmdastjóra þessa kvik-
myndatökufyrirtækis til að skoða
aðstæður í samhengi við þetta.
Það á ekki að gera neina mynd
núna eða taka neitt, heldur ein-
göngu að skoða aðstæður.“
- Eru þið þcí að bjóða ykkar eig-
in aðstöðu til afnota eftil kemur?
„Já, við erum bara að sýna
framá hvað við erum að gera ef
það getur passað inn í pakkann
og sýna hvað er í boði hér en svo
er þetta bara þeirra val. Við vitum
af stóru fyrirtæki sem ætlar að
koma til Islands í sumar til að
taka upp myndband um aksturs-
íþróttir á vegum Fox fyrirtækisins
og við erum svona að gjóa augun-
um til alvöru túrisma," segir Mar-
inó.
- Menn verða bæði að hugsa
stórt og hrutt í þessum bransa til
að koma sér áfram.
„Nákvæmlega!“ - Hi
FRA DEGI TIL DAGS
„Gerðu aldrei neitt sem óvinur þinn
má ekki vita.“ Sencka
Þau fæddust 11. mars
• 1685 fæddist írski biskupinn og heim-
spekingurinn George Berkeley.
• 1863 fæddist ítalski rithöfundurinn
Gabriele D’Annunzio.
• 1889 fæddist Þórbergur Þórðarson rit-
höfundur.
® 1890 fæddist rússneski ballettdansar-
inn Vaslav Nijinsky.
• 1900 fæddist Gustavo Rojas Pinilla,
sem var einræðisherra í Kolumbíu
1953-57.
• 1922 fæddist bandaríska bítskáldið
Jack Kerouack.
• 1927 fæddist Þuríður Pálsdóttir söng-
kona.
• 1928 fæddist bandaríska leikskáldið
Edward Albee.
• 1959 fæddist baráttukonan Sophia
Hansen.
Þetta gerðist 11. mars
• 1918 var Moskva gerð að höfuðborg
Rússlands undir stjórn kommúnista.
• 1938 réðst þýski herinn inn í Austur-
ríki.
• 1965 kom út fyrsta íslenska „bítlaplat-
an“. A henni léku Hljómar Bláu augun
þín og Fyrsta kossinn eftir Gunnar
Þórðarson.
• I 982 undirrituðu Menachem Begin og
Anwar Sadat friðarsamning í Was-
hington.
• 1990 lét Augusto Pinochet af embætti
forseta Chile, en heldur samkvæmt
stjórnarskrá þingsæti til æviloka.
Vísan
Vísa dagsins er eftir Skáld-Rósu:
Engin lái öðrum frekt,
einn þó nái aðfalla,
heldur gái að sinni sekt,
syndin þjáir alla.
Afmælisbam dagsins
Þýska pönkdrottningin Nina
Hagen, sem enn er minnst fyrir
sérstæða raddbeitingu og dæma-
lausa ósvífni, fæddist í Austur-
Berlín árið 1955 og er því 44 ára í
dag. Tónlistarferilí hennar hófst
með pólsku blúsbandi árið 1972,
en síðan nam hún klassískan söng
og reyndi einnig íyrir sér með
tveimur misheppnuðum austur-
þýskum hljómsveitum. Hún llutti
til Vestur-Þýskalands árið 1976 og
sló þar í gegn með eigin hljómsveit
árið 1978.
Máttur trúarinnar
Nunnan sem vann á heilsugæslustöðinni
var að fara í sjúkravitjún þegar hún allt í
einu varð bensínlaús. Hún var nýbúin að
keyra framhjá bensínstöð og rölti því til
baka til að fá bensín í brúsa.
Bensínafgreiðslumaðurinn sagði henni
að því miður þá hefðu þeir engan brúsa.
Hann væri nýbúinn að lána seinasta brús-
ann, en ef hún mætti vera að því að bíða
kæmi hann inn fljótlega.
Þar sem nunnan var að fara að heim-
sækja sjúkling ákvað hún að bíða ekki
heldur labbaði til baka. Hún Ieitaði í skott-
inu eftir einhverju til þess að bera bensín-
ið í, þar rakst hún á næturgagn sem hún
var að fara með til sjúklingsins. Hún fór
því og dældi bensíni í það og gekk til baka.
Þegar hún var að hella bensíninu úr
koppnum í tankinn bar þar að tvo bændur.
Annar þeirra klappaði hinum á öxlina og
sagði: „Þetta er það sem að ég kalla að
trúa.“