Dagur - 11.03.1999, Page 3
FIMMTUDAGUR 11. MARS 1999 - 19
LÍFIÐ í LANDINU
Konmigurínn eftirhallarbylt-
inguna í SH er tvímælalaust
Róbert Guðfinnsson, verka-
mannssonurínnfrá Siglu-
firði. Hvererhann þessi mað-
ursem veltiformanni úr
sessi eftir 15 ára setu? Hug-
myndaríkur, réttsýnn og
framsækinn. Það erRóbert
Guðfinnsson.
„Við sem störfum að þessum sjávarútvegs-
málum erum flestir á sama báti. Eg geri
ráð fyrir að við siglum saman þennan sjó,“
segir Róbert Guðfinnsson, stjórnarfor-
maður Þormóðs ramma-Sæbergs á Siglu-
firði, og kveðst ekki búast við neinum sár-
indum eða eftirmála þrátt fyrir umskiptin
í stjórn SH, Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna. „Ég reikna ekki með því, nei. Frá-
farandi stjórnarformaður er mikill heið-
ursmaður og maður sem ég met mikils.
Þetta gekk út á stefnu, ekki persónur.“
Tók imgui við
Róbert er 42 ára gamall, fæddur og upp-
alinn á Siglufirði. Hann er kvæntur
Steinunni Ragnheiði Arnadóttur frá Isa-
firði og eiga þau fjórar dætur. Hann er
stýrimaður og útgerðartæknir frá Tækni-
skóla Islands og hefur búið á Siglufirði
svo til allt sitt líf, verið á sjónum eða í
tengdum störfum. Sjórinn er líf hans og
yndi og hann er mikið í vinnunni en sinn-
ir fjölskyldunni þess á milli. Hann tók við
framkvæmdastjórn hjá Þormóði ramma
árið 1985 ungur að árum, aðeins 28 ára
gamall, við erfiðar aðstæður í sjávarútvegi
enda segir Róbert að það hafi verið „mjög
mikil lífsreynsla að ganga í gegnum þau
ár og það mótaði mann nokkuð mikið“.
Þormóður rammi var í eigu ríkis og
bæjar þegar Róbert kom að fyrirtækinu. I
desember 1990 keyptu hann og hópur
fjárfesta stóran hlut í félaginu af ríkis-
sjóði Islands og fóru með fyrirtækið út á
almennan hlutabréfamarkað árið 1991.
„Við höfum byggt félagið upp og samein-
að önnur félög inn í það, til dæmis Sæ-
berg hf. í Olafsfirði, Magnús Gamalíels-
son ásamt fleiri félögum, og erum nú
með eitt af öflugustu sjávarútvegsfyrir-
tækjunum á Islandi,(‘ segir hann.
Styrkir minni byggðir
Með því að fara með almenningshlutafé-
lagið inn á hlutabréfamarkað sýndu þeir
framsýni og skilning á þróun og nauðsyn
verðbréfamarkaðar á Islandi enda segir
Róbert það ekki spurningu að verðbréfa-
markaðurinn styrki íslenskt atvinnulíf.
„Ég tel að til lengri tíma geti þetta hjálp-
að hinum minni byggðum sem hafa heil-
brigt og gott atvinnulíf til þess að vaxa og
standa sig í samkeppninni við höfuðborg-
arsvæðið," segir hann.
- Kemur þetta til með að bjarga byggða-
þróun í landinu?
„Við erum að ganga í gegnum ákveðna
tæknivæðingu í sjávarútveginum, sem veld-
ur því að störfum fækkar. Á móti kemur
betri afkoma sjávarútvegsfyrirtækjanna,
sem mun Ieiða til þess að þau munu byggja
sig upp enn frekar í þessum byggðum með
nýjum störfum, vonandi hærra launuðum
og með betur menntuðu fólki.“
Á audvelt með samskipti
Nánasti samstarfsmaður Róberts, félagi
og vinur, er Ólafur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Þormóðs Ramma-Sæbergs.
Þeir hafa unnið náið saman frá 1990,
voru báðir framkvæmdastjórar fyrirtækis-
ins þangað til í fyrra er Róbert varð
„Ég geri ráð fyrir að við siglum saman þennan sjó, “ segir Róbert Guðfinnsson, stjórnarformaður Þormóðs ramma-Sæbergs á Siglufirði og nýkjörinn
formaður SH. Hann býst ekki við neinum sárindum eða eftirmála þrátt fýrir umskiptin í stjórn SH, Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, það sem menn hafa
kallað „hallarbyltingu".
Gott að fá fjármagn að utan
Þegar talið berst að útrás íslenskra fyrir-
tækja kemur í ljós að Róbert hefur mik-
inn áhuga á útrásarmálum en hann hefur
verið framkvæmdastjóri Iítils eignarhalds-
félags sem heitir Isla og er til helminga í
eigu Þormóðs ramma - Sæbergs og
Granda. Þetta félag á helming í sjávarút-
vegsfyrirtæki í Mexíkó. „I ræðu minni á
viðskiptaþingi Verslunarráðs um daginn
sagði ég að ég vildi sjá íslensk sjávarút-
vegsfyrirtæki hagnast álíka mikið á sjávar-
útvegi erlendis eins og þau hagnast á Is-
landi."
- Margir telja að það sé bara timaspurs-
mál hvenær erlendir fjárfestar eignast hlut
í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum?
„Ef ég á að vera sjálfum mér samkvæm-
ur, ég sem er að fjárfesta í sjávarútvegi er-
lendis og tel það gott fyrir sjálfan mig, þá
hlýt ég að trúa því að það sé gott fyrir ís-
lenskan sjávarútveg að fá utanaðkomandi
fjármagn."
- Hvenær heldurðu að það gerist?
„Hlutirnir gerast hratt á Islandi. Við
getum alveg séð það gerast innan örfárra
ára.“
Ekkert ósætti
Þegar talið berst aftur að SH og breyting-
unum þar vill Róbert lítið ræða þau mál
áður en hann getur sest niður með ný-
kjörinni stjórn. „Það er verið að vinna út-
tekt á félaginu, út frá því mun ný stefna
vera mótuð. Við breyttum fyrirtækinu í
hlutafélag fyrir tveimur árum síðan og
fórum með það út á markaðinn. Stefna
okkar hlýtur því að vera sú að ávaxta fé
fyrir fólk,“ segir hann og telur að samein-
ing við IS sé ekki uppi á borðinu.
„Ég tók þátt í sameiningarviðræðunum
í desember. Við stóðum upp frá því borði
og það var ekkert ósætti milli aðila og all-
ir sammála um að það gæti komið að því
einhvern tímann í framtíðinni hugsanlega
að sameinast en í dag eru bæði þessi fé-
lög að skoða sín mál og hvað þau geta
gert í sínu eigin án sameiningar. En verð-
um við ekki bara að sjá til hvernig hlut-
irnir þróast."
- Hvaða markmið seturðu þér?
„Rekstrarárið árið 2000 verður félaginu
vonandi mjög gott.“ -GHS/Hl
■------------------?"> W/WtM,
stjórnar-
formaður og Ólafur tók alfarið við fram-
kvæmdastjórninni. Saman hafa þeir leitt
fyrirtækið gegnum miklar breytingar.
Ólafur segir að það sé afar auðvelt að
vinna með Róberti og telur helstu kosti
hans þá að hann sé „hugmyndaríkur, rétt-
sýnn og staðfastur". Sjálfur segir Róbert
ljóst að hann hafi alla tíð verið tilbúinn
að berjast á móti vindinum.
- Samvinna ykkar tveggja hefur gengið
vel?
„Já, já, mjög vel. Það er auðvelt að
vinna með Róberti. Hann á auðvelt með
samskipti við fólk.“
- Miðað viðfyrstu kynni afhonum, kem-
ur það þér á óvart hvar hann er í dag?
„Nei, Róbert er fagmaður í viðskiptum
og þetta er eitt af því sem fylgir. Hann
gerir það sem þarf og það er kannski eitt
af hans einkennum."
Síldarhrunið mótaði mig
Róbert Guðfinnsson segist vera mjög
pólitískur en þó ekki flokkspólitískur.
Foreldrar hans eru verkafólk á Siglufirði
°g
hann bendir á að mótunarár hans hafi
verið árin eftir síldarhrunið í bænum.
„Sem ungur maður var ég til vinstri í
pólitík en það er löngu liðin tíð,“ segir
hann og vill sem minnst fara út í
flokkapólitíkina. Á þessum árum kynnt-
ust Siglfirðingar því Islendinga allra best
hvað sjávarútvegurinn getur verið sveiflu-
kenndur. „Við kynntumst því líka að vind-
urinn blæs stundum á móti þannig að
þetta mótar að sjálfsögðu mjög skoðanir
manns,“ segir hann.
- Er æskilegt eða hægt að draga úr
sveiflunum í íslenskum sjávarútvegi eins
og mögulegt er?
„Það eru ótal þættir sem spila inn í að
við munum alltaf þurfa einhvern veginn
að dreifa áhættunni. Þess vegna er það
mér sem sjávarútvegsmanni ánægja að sjá
það hvað iðnaður, hugbúnaðariðnaður,
flutningar og fleiri greinar hafa eflst í
þjóðfélaginu. Það er mjög gott fyrir sjáv-
arútveginn ef hann er ekki alltof stór
hluti af hagkerfinu," svarar hann.