Dagur - 11.03.1999, Síða 5
Xfc^ui-
FIMMTUDAGUR 11. MARS 1999 - 21
LÍFIÐ í LANDINU
Björk mætti alltaí vinna
Birgir í Maus gat ekki annað en vaiið Ragnar Sólberg, / / ára gamia gítarieikarann sem gafút plötu fyrir jólin, sem
björtustu vonina. „Hann er ekki nema 11 ára gamall og er að ná að gera þessa hluti. Ég bind vonir við hann.“
íslensku tónlistarverð-
launin verða afhent í
dag. Við hringdum í
Birgi Öm Steinarsson
íMaus ogfengum álit
hans á tónlist síðasta
árs.
Að þessu sinni hafa á níunda
tug tónlistarmanna verið til-
nefndur til Islensku tónlistar-
verðlaunanna í 15 flokkum en
verðlaunin verða afhent á Grand
Hótel í kvöld. Birgir Orn, með-
limur Maus sem var valin besta
hljómsveit ársins í fyrra, var
inntur álits á nokkrum flokk-
anna.
Undravefurinn besta platan
Diskar frá Lhooq, Sigurrós,
200.000 naglbítum, Botnleðju,
Ensími, Jóel Pálssyni og Ný
danskri hafa verið tilefndir til
plötu ársins. Birgir Orn telur
hins vegar bestu plötu síðasta
árs ekki vera á meðal tilnefning-
anna, þ.e. platan Undravefurinn
með Onnu Halldórsdóttur sem
var fyrir tveimur árum kosin
bjartasta vonin í íslensku tón-
listarlífi. „Hún nær mjög
skemmtilegri stemmningu og er
flott pródúseruð."
Egill Ólafsson, Stefán Hilm-
arsson, Bergsveinn Árelíusson,
Páll Óskar Hjálmtýsson og Jón
Þór Birgisson eru tilnefndir í
flokki bestu söngvara. „Mér
finnst að Jón Þór, söngvari Sig-
urrósar, eigi að taka það. Hann
hefur náð langmestum árangri
af þeim öllum í að móta sinn
eiginn stíl. En ég veit að hann á
engan möguleika á að vinna,
fólk veit ekkert hver hann er.
Svo finnst mér líka vanta Daníel
Agúst í Ný danskri inn á list-
ann.“ Af söngkonum Iandsins
var Birgir ekki í nokkrum ein-
asta vafa um hver þeirra ætti
verðlaunin skilið: „Eg held ekki
vatni yfir Björk. Ef einhver ann-
ar vinnur en Björk þá veit ég
ekki hvað er að gerast. Hún má
vinna á hverju einasta ári mín
vegna. Hún er bara langbest."
En auk Bjarkar eru Sara Guð-
mundsdóttir, Ellen Kristjáns-
dóttir, Magga Stína og Andrea
Gylfadóttir tilnefndar sem söng-
konur ársins.
- Svo er It'ka kosið uni besta
flytjanda ársins (tilnefndir:
Magga Stína, Móa, Páll Oskar,
Björk og Bubbi), er Björk lt'ka sú
eina sem kemur til greina þar?
„Ja, ég fór ekki á betri tón-
leika en Bjarkartónleikana í
Þjóðleikhúsinu en þeir voru
náttúrulega á þessu ári. En ég
myndi eiginlega velja Möggu
Stínu. Hún er alveg kynngi-
mögnuð á s\dði þótt hún hafi
ekki náð að beisla orkuna sem
nær á sviði inná plötuna sína.“
Vantar Skítamóral
Botnleðja, 200.000 naglbítar,
Ensími, Stuðmenn og Sóldögg
eru þær sveitir sem bítast um
titilinn hljómsveit ársins. Birgir
hefði viljað sjá Skítamóral inni á
þessum Iista. „Þó ég fíli ekki
tónlistina þeirra þá er ekki hægt
að líta framhjá því að þeir komu
mest á óvart og komu sterkastir
inn í fyrra,“ segir Birgir en getur
annars ekki gert upp á milli til-
nefndra hljómsveita. Telur að
allar eiga titilinn skilið.
- En hvað finnst þér svo besta
lag síðasta árs?
„Mér finnst Maus-lagið, „Allt
sem þú lest er lýgi“, langbesta
Iagið á síðasta ári, ég fer ekkert
ofan af því. Það kom reyndar út
um sumarið og þau vilja gleym-
ast í þessum útnefningum. Af
þeim sem eru tilnefnd finnst
mér nú Bang Gang-Iagið best.
Það er algert gæsahúðarlag."
LÓA
Tilnefnd lög ársins
Síðan hittumst við aftur
SSSól
Farin
Skítamórall
So alone
Bang Gang
Brjótum það sem brotnar
200.000 naglbítar
Atari
Enst'tni
Húsmæðragarðurinn
Ný dönsk
Loosing hand
Lkooq
Latur að slá ekkert hey
SVOJMA
ER LIFID
Pjetur St.
Arason
skrifar
Gömul þjóðsaga segir frá bónda einum sem á sólríkum sumar-
degi fór út á tún með orf sitt og ljá. Þegar hann var búinn að
slá í nokkurn tíma seig á hann höfgi, og hann settist niður til
að hvíla sig. Þá kom velbúinn svartklæddur maður til hans, og
sagði við hann: „Hvíldu þig, hvíld er góð.“
Leið svo sumarið. I hvert sinn sem bóndi var kominn út á
tún til þess að slá varð hann þreyttur og hann minntist orða
mannsins. A haustdögum þegar bóndi sá fram á það að hann
var ekki búinn að koma neinu heyi í hús og stóð úti á túninu
sínu með ijáinn sinn, haltraði svartklæddi maðurinn framhjá
honum og tautaði fyrir munni sér: „Latur að slá ekkert hey.“
Þegar bóndi fór að gá nánar þá sá hann eitt hóffar f tún-
bletti sínum og réð af því að þarna væri Kölski á ferðinni.
Margir hafa ekki tíma í önnum dagsins til þess að sinna hin-
um daglegu störfum. Kannski er spanið það mikið á morgnana
að ekki vinnst tími til þess að vaska upp, svo bíður uppvaskið
þar til komið er heim að kvöldi, síðan er farið út um kvöldið og
diskarnir hrúgast upp í eldhúsvaskinum. Það er í sjálfu sér
engin synd að sleppa því að vaska upp einu sinni eða tvisvar en
þegar diskarnir safnast upp fer þetta að minna á söguna af
bóndanum.
Pjetur
svarar
í símann!
Ertu með ráð,
þarftu að spyrja,
viltu gefa eða
skipta?
Pjetur svarar í
símann ki. 9—12.
Síminn er
563 1626 (beint)
eða 800 7080.
Póstfang:
Þverholt 14 Rvk.
* ;ða Strandgötu 31
Akureyri.
Netfang:
ritstjori@dagur.is
Mött glös
glansa á ný
Lesandi hringdi og vildi vita hvernig
hægt væri að fá mött vatnsglös til þess
að glansa á ný.
Hjá Leiðbeiningastöð heimilanna
fengust þær upplýsingar að hægt væri að
þvo mött glös uppúr ediki. Þá er edikinu
blandað saman við vatn í hlutföllunum
einn á móti einum og þvegin í plastbala
ofan í vaskinum og burstuð með mjúkum
bursta.
Glös eru mis vönduð og mött glös geta
verið vísbending um að þau séu hreiníega
að syngja sitt síðasta. Ef þetta er kristall eða
viðkvæmara gler þá er ekki hægt að
mæla með sterkari Iausn en 1:3, ein-
um hluta af vatni á móti þremur hlut-
um af ediki.
HVAD ER Á SEYfll?
HEIMURINN OKKAR í BORGARNESI
Laugardaginn 13. mars
næstkomandi, kl. 14.00
opna þær Hrönn Egg-
ertssdóttir og Margrét
Jónsdóttir sýningu á mál-
verkum og styttum í Safna-
húsi Borgarljarðar, Bjarnar-
braut 4-6, Borgarnesi.
Sýninguna kalla þær
„Heimurinn okkar" og sýnir
Hrönn verk unnin með olíu
á striga en Margrét styttur
af mönnum og dýrum úr
steinleir og jarðleir.
Við opnunina mun Sig-
urður Skagfjörð söngvari
syngja nokkur lög við undirleik Ulriks Olasonar.
Sýningin er opin alla daga frá 14.00-18.00 og henni lýkur föstudaginn 26. mars.
HOFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Músiktilraunir Tónabæjar
Fyrsta Músiktilraunakvöld Tónabæjar og
ÍTR 1999 verður í kvöld í Tónabæ og
hefst kl. 20.00. Hljómsveitirnar sem
leika á þessu fyrsta tilraunakvöldi eru
RLR frá Reykjavík, Mínus frá stór-
Reykjavíkursvæðinu, Fusc frá Akra-
nesi/Borgarnesi, Raddlaus Rödd frá
Mosfellsbæ, Kruml frá Reykjavík, Trek-
ant frá Reykjavík, Leggöng Tunglsins frá
Reykjavík og Freðryk frá Reykjavík.
Gestahljómsveitir kvöldsins eru Unun og
Bellatrix sigurvegarar Músiktilrauna
1992.
Rabb um fæðinguna
í hádeginu í dag verður Ólöf Ásta Ólafs-
dóttir lektor í Ijósmóðurfræði með rabb á
vegum Rannsóknarstofu í kvennafræð-
um við Háskóla Islands. Fyrirlestur
Ólafar Ástu ber yfirskriftina, „Fæðingin,
kraftmikið og skapandi ferli: Hugmynda-
fræði ljósmæðra." Hugmyndagrunnur
ljósmóðurfræðinnar er í endurskoðun og
verið er að greina hvaða áhrif læknavís-
indin hafa haft á heilbrigði kvenna og
barneignir. I rabbinu verða hugtökin
samfelld umönnun, upplýst val, styrking
og stjórn rædd í samhengi. Fyrirlestur-
inn er í stofu 201 í Odda og hefst klukk-
an 12.00.
Kópavogskáld í Gerðarsafni
Ritlistarhópur Kópavogs stendur fyrir
upplestri í Gerðarsafni í dag klukkan
17.00. Að þessu sinni munu þeir Gylfi
Gröndal, Hjörtur Pálsson, Hrafn A.
Harðarson og Eyvindur P. Eiríksson lesa
úr þýðingum Kópavogskálda. Aðgangur
er ókeypis og allir velkomnir.
Félag eldri borgara Glæsibæ,
Álfheimum
Brids í dag kl. 13:00. Bingóið fellur nið-
ur í kvöld. Kaffistofan er opin frá kl.
10.00 til 13.00. Leikfélagið Snúður og
Snælda sýnir í Möguleikhúsinu, Iaugar-
daga og sunnudaga kl. 16.00.