Dagur - 18.03.1999, Side 1
I
i
<
Fær staurfót
Guðbrandur Sverrisson
bóndi á Bassastöðum í
Steingrímsfirði varð
fyrir því í síðustu viku
að skjóta sig ífótinn í
orðsins fyllstu merk-
ingu. Hann erbjörgun-
arsveitamönnunum
sem voru á æfingu
þakkláturfyrir hjálp-
ina.
Guðbrandur er bjartsýnn, hann
segist geta hreyft öklann og hafa
tilfinningu í tánum en býst við að
vera með staurfót
það sem eftir er. „Ég hef reynd-
ar mjög gaman af ijallaferðum.
Þá reyni ég helst að komast uppá
fjöll til þess að sjá lengra. Ég fór
að heiman rúmlega tólf, hélt
beint uppaf bænum heima og
yfir í Sunnudal og fyrir neðan
Goðadal þar uppá fjall. Ég fór
norðanvert við á sem heitir
Þverá, og uppá Hólsfjall og síðan
alveg norður undir Kaldbaksdal
og fór einhverja króka,“ segir
hann þar sem hann liggur á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur.
„Þegar ég kem norður í svokall-
aðan Brúarárdal, norður af Böl-
um, sé ég að það er tófa þarna
niður undir brúninni. Ég vissi að
ef ég gæti látið hana fara fram af
brúninni myndi hún renna norð-
ur og niður með klettunum. Síð-
an ætlaði ég að keyra norðar og
sitja fyrir henni.
Sjálfsagt hefði það tekist nema
bara að það sem gerðist var að
<*> *fe!" fra%Taí'aS^
um leið og ég er búinn að stoppa
sleðann, stíg ég á svell og dett og
missi byssuna. Þá hleypur skotið
út og í fótinn á mér.
T.iirknrinn þvældist ívrir
Ég vissi af því að hundabjörgun-
arsveitirnar væru á æfingu á
Laugarhóli. Leiðin burt var mjög
erfið, sleðinn stefndi fram af
klettaholti þannig að ég varð að
byrja á því að draga hann til. Það
er í sjálfu sér það eina sem ég
man að var erfitt. Þá þvældist
lurkurinn fyrir. Það hafðist og
þess vegna er ég hér. Það er ólík-
legt að ég hefði fundist fyrr en
eftir svona tíu til kannski tólf
tíma. Og menn eru fljótir að
verða úti þegar þeir eru svona
laskaðir.
Þegar ég kem inneftir þá sé ég
að þyrlan er þarna og var rétt
komin í loftið. Mennirnir voru
allir á jörðinni og Iæknir var
þarna. Ég bað þá að kalla í
þyrluna þarna af því að ég
ætlaði að fá far með henni
suður,“ segir hann.
Ref má aldrei eyða
Guðbrandur segist hafa
hugsað sterkt til fjöl-
skyldu sinnar meðan
hann stóð í þessu baksi.
Hann segir það örugglega
hafa hjálpað sér mikið,
en hann á sex börn og
sex barnabörn. Konan
hans hugsar um búskap-
inn á meðan hann liggur
á spítalanum. Hann seg-
ir að börnin sín og ná-
grannarnir hjálpi uppá
sakirnar með búskap-
inn meðan hann er í
burtu. A Bassastöðum
Guðbrandur Sverrisson refaskytta vill brýna það fyrir mönnum að fara var-
lega með skotvopn. - myndir: teitur
eru þau með 300 kindabú, en
auk þess eru þau með um 10
hesta og fimm minkahunda.
Guðbrandur segir mikið vera
af ref á þessum slóðum. Hann
segir að þetta séu falleg dýr sem
megi ekki missa sín úr íslenskri
náttúru en það sé nauðsynlegt að
halda stofninum niðri. Oðru máli
gegni um minnkinn sem eyði
öðru dýralífi í kringum sig. Guð-
brandur nefnir sérstaklega Teistu
og Keldusvín. „Þar sem er teista
er allt iðandi. Hún er blístrandi
og flautandi syndandi rétt við
fæturnar á manni. Þetta er einn
allra skemmtilegasti fugl fyrir
venjulegan ferðamann," segir
Guðbrandur.
Guðbrandur vill brýna það fyr-
ir mönnum að fara gætilega með
skotvopn, hann segir það þurfi
lítið til að eitthvað gerist fari
menn ógætilega að. — PJESTA
ibvo
ramkvæmd
talaðu þó við Glitni,
því Glitni getur þú treyst
Við hjá Glitni sérhæfum okkur í fjármögnun
atvinnutækja og atvinnuhúsnæðis.
Með Kjörleiðum Glitnis getur þú fjárfest í þeim
tækjum sem henta þinni starfsemi.
DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA
Kirkjusandi, 155 Reykjavík. Sími 560 88 00.
Myndsenair 560 88 10.
Heimasíða: http://www.glitnir.is
Ráðgjafar Glitnis em sérífóðir um
hvemig kostir
mismunandi fjármögnunarleiða
nýtast þér best.
Hafðu samband eða komdu
við hjá okkur á Kirkjusandi
og kynntu þér málið.
+-