Dagur - 18.03.1999, Side 2
18 - FIMMTUDAGUR 18. MARS 1999
Ð^ur
LÍFIÐ í LANDINU
SMÁTT OG STÓRT
UMSJÓN:
SIGURDOR
SIGURDORSSON
Sefur Sverrir?
Sverrir Hermannsson er nú nýkominn úr
hringferð um landið, þar sem hann hefur rætt
við menn um pólítík og stofnað kjördæmaféiög
Frjálslynda flokksins vítt og breitt um landið.
Nú í vikubyijun var hann með fund austur á
Höfn í Hornafirði, það er í sfnum gamla Aust-
Sverrir Hermannsson. urlandskjördæmi. Aður hefur Hornafjörður
--------- verið vendipunktur í stjórnmálabaráttu Sverr-
is, einna helst þá fyrir alþingiskosningarn-
arl987. Frá þvá segir í bókinni Skýrt og skorin-
ort, sem Indriði G. Þorsteinssonar skráði um
Iíf og stjórnmálabaráttu Sverris, að fyrir nefnd-
ar kosningar hafi Sverrir, þá útbrunninn af
pólítískum áhuga, sofnað á stjórnmálafundi.
Spurningin er því nú hvort Sverrir hafi verið
vakandi eða sofandi á Hornafirði í vikunni.
„...er ástæða til að
vekja athygli á
Víkverja í Morg-
unblaðinu laugar-
daginn 27. febrú-
ar. Er þetta einn
af ritstjórnardálk-
um blaðsins, sem
lýsir því oftast
hver er reynsla
starfsmanna þess,
þegar þeir eru í
stórmörkuðum,
eiga samskipti við
Landssímann eða
ferðast með Flug-
leiðum. Að þessu
sinni fjallar Vík-
veiji um stjóm-
mál.“
Bjöm Bjarnason á
Netinu.
„Fyrir herinn lágt nú leggst“
Fjölda góðra vísna úr ýmsum áttum er að
finna í nýjasta tölublaði Vestra. Er þar meðal
annars vísa til Aðalsteins Jónssonar á Víðivöll-
um í Fnjóskadal og er hún um að talsmaður
Samfylkingarinnar, Margrét Frímannsdóttir,
var íjarri góðu gamni þegar greidd voru á Al-
þingi atkvæði um brottför hersins. Og Aðal-
steinn kveður:
Fyrir herinn lágt nú leggst,
líkt og gripin ótta.
Hlotnast virðist tæpast tekst
talsmanni með flótta.
Evrópusambandsmerar
Vestri birti einnig í sama blaði vísur eftir Árna
Gunnarsson, þingmannsefni fxá Flatatungu á
Kjálka í Skagafirði, en Árni var spurður að því
ef Jón Baldvin væri stóðhestur hvernig merar
væri best að Ieiða undir hann. Og Arni kvað:
Það yrði svo undarlegt fylið,
ef hann kæmist í spilið.
Nei, það gæfist mér best,
að gelda þann hest,
hann ætti ekki annað skilið.
Latur í beisli og lundin þrá,
labbar götur þverar.
Já það er alveg upplagt á,
Evrópusambandsmerar.
Rannsóknastofa í
kvennafræðum
hefur staðið fyrir
rabbdagskrá i há-
deginu annan
hvern fimmtudag í
vetur og segir
Sigríður Dúna þá
dagskrá hafa ver-
ið gífurlega vel
sótta ekki bara af
fræðimönnum
heldur líka afal-
menningi.
S
Onáttúruleg kona?
„Bókin vakti milda athygli þegar
hún kom út. Menn hneyksluðust
mjög á höfundinum og töldu
hana undarlega. Sérstaldega var
ráðist á kvenleika hennar og hún
talin ónáttúruleg kona eða lesbía
sem jafngilti því í þá daga. Sam-
band hennar við Jean Paul Sartre
var notað til vitnis um að þarna
væri ónáttúruleg kona á ferðinni
og menn skyldu ekki taka mikið
mark á þessu riti hennar „Le
Deuxieme Sex“.
Þessi viðbrögð voru Simone de
Beauvoir auðvitað erfið og hún
segir frá því í ævisögu sinni að
þau Jean Paul Sartre hafi verið
stödd í Alsír á þessum tíma og
fengið send þangað blöðin frá
París, þar sem þessi hörðu við-
brögð var að finna. Þá á Sartre að
hafa sagt við hana. „Hafðu ekki
áhyggjur Simone mín nú hefurðu
loksins öðlast fullkomið frelsið,
því allt sem þú gerir héðan í frá
getur ekki verið verra heldur en
það sem sagt er að þú hafir þegar gert.“ Þau voru
tilvistarspekingar og lögðu áherslu á frelsið."
Rannsókfiastofa í
fyrírmálþingi föstu-
daginn 19. marsum
Simone de Beauvoir.
SigríðurDúna Kríst-
mundsdóttir segir til-
efnið vera að bók
Le Deuxieme Sex“ eigi
SO ára útgáfuafmæli
um þessarmundir.
SPJALL
Lagði gnum kvennabaráttuimar
Sigríður Dúna segir að þrátt fyrir að lesendur
hafi verið varaðir við bókinni þegar hún kom út
hafi líldega fáar bækur sem komið hafi út eftir
seinna stríð haft meiri áhrif. „í raun og veru lagði
hún hugmyndagrunninn að
kvennabaráttu síðari hluta tuttug-
kvemiafræðum Stendur ustu aldarinnar. Hún var mörgum
kvennréttindakonum „inspíra-
sjón“. Hún var sá hugmynda-
grunnur sem kvennréttindahreyf-
ingarnar á sjötta og sjöunda ára-
tugnum á Vesturlöndum byggðu á
og gera enn þann dag í dag.
I erindi mínu „Konan með
kyndilinn11 Ijalla ég um áhrif
Simone de Beauvoir á kvennabar-
áttuna á Islandi og sýni fram á
hvernig hugmyndir hennar, sem
BeaUVOÍr Hitt kynið eða koma fram í þessari bók, endur-
speglast í hugmyndum Rauð-
sokkahreyfingarinnar á Islandi
Kvennaframboðs og Kvennalista
og loks Sjálfstæðra kvenna,“ segir
Sigríður Dúna.
Rannsóknarstofa í kvennafræð-
um hefur verið starfrækt við Há-
skóla íslands í sjö ár. Hún hefur
staðið fyrir rabbdagskrá, þar sem
fræðimenn kynna rannsóknir sín-
ar í kynjafræðum, í hádeginu ann-
an hvem fimmtudag í vetur, og undanfarna vet-
ur, og segir Sigríður Dúna þá dagskrá hafa verið
gffurlega vel sótta ekki bara af fræðimönnum
heldur líka af almenningi. Síðan hefur hún stað-
ið fyrir ráðstefnum og gefið út bækur. Til stendur
að gefa erindin sem flutt verða á föstudaginn út
á bók sem kæmi væntanlega út f haust.
FRÁ DEGI TIL DAGS
„Það er auðveldara að skrifa tíu bindi
af heimspeki en koma einni megin-
reglu í framkvæmd.“ - lolstoj
Þaufæddust lö.mars
• 1936 fæddist suðurafríski stjórnmála-
maðurinn F.W. de Klerk, sem hlaut
Nóbelsverðlaun árið 1994 ásamt Nel-
son Mandela.
• 1938 fæddist Álfrún Gunnlaugsdóttir
rithöfundur.
• 1950 fæddist bandaríski leikarinn Brad
Dourif.
• 1956 fæddist sænski skíðakappinn Ing-
mar Stenmark.
• 1959 fæddist bandaríska söngkonan og
leikkonan Irene Cara.
Þetta gerðist 18. mars
• 1922 dæmdu bresk stjórnvöld á Ind-
landi Mohandas K. Gandhi í sex ára
fangelsi vegna borgaralegrar óhlýðni,
en hann var látinn Iaus eftir tveggja ára
fangavist.
• 1926 tók útvarpsstöð til starfa í Reykja-
vík, sú fyrsta hér á landi, en hætti störf-
um fljótlega.
• 1940 hittust Adolf Hitler og Benito
Mussolini í Brennerskarði í Sviss, og
féllst Mussolini þar á að ganga til liðs
við Þjóðveija í styrjöldinni gegn Frakk-
landi og Bretlandi.
• 1962 bundu Frakkar og alsírskir þjóð-
ernissinnar enda á sjö ára styrjöld með
vopnahléssamkomulagi.
• 1975 var rokkóperan Tommy frumsýnd.
• 1978 var Zulfikar AIi Bhutto, fyrrver-
andi forsætisráðherra í Pakistan,
dæmdur til dauða fyrir að hafa Iátið
myrða pólitískan andstæðing sinn.
Vísan
Vísa dagsins er eftir Bólu-Hjálmar:
Hver vill telja mannleg mein
mál það ekkert getur.
Fleira en kvenna ástin ein,
angurs vopnin hvetur.
Aímælisbam dagsins
Maðurinn sem kom á einveldisfyr-
irkomulagi í Danmörku og þar með
á íslandi hét Friðrik og var sá
þriðji í röðinni af Danakóngum
með það nafh. Hann fæddist árið
1609, eða fyrir réttum 290 árum,
en lést sextugur að aldri árið 1670.
Hann var krýndur árið 1648 og
hafði lítil völd til að byrja með.
Eftir Iangvinnt stríð við Svíþjóð
gerðist Friðrik hins vegar einvaldur
árið 1660, og var sú skipan mála
endanlega staðfest árið 1665.
Veiðisaga
Jónas ók á fleygiferð eftir Kringlumýrar-
brautinni. Hann var á 100 km hraða, og
tók eftir þva að margir bílar óku þarna á
svipaðri ferð. Þegar hann kom í Fossvog-
inn sá hann blá blikkandi Ijós fyrir aftan
sig, svo hann fór útí kannt.
Lögregluþjónninn gekk að honum og
spurði hvort hann vissi hversu hratt hann
hafði ekið.
Jónas var ekki par ánægður með að vera
stöðvaður af lögreglunni og sagðist vita
það vel að hann hafði ekið of hratt. „En
hvað um alla hina sem óku hérna á svip-
uðum hraða. Afhverju þarft þú endilega að
stoppa mig?“ Spurði hann.
„Hefurðu einhvern tíma veitt fisk?“
Spurði lögregluþjónninn á njóti.
Jónas sagðist nú halda það, hann færi í
lax á hverju sumri.
Lögregluþjónninn brosti þá og bætti við,
„Hefurðu einhvern tíma veitt alla torf-
una?“