Dagur - 18.03.1999, Page 7
Xfcgur
FIMMTUDAGUR 18. MARS 1999 - 23
LÍFIÐ í LANDINU
L. A
VEÐUR
Toyota Yaris. Ekki sérlega óhefðbundinn í útliti, þó augljóslega blási ferskir straumar um bílinn, en þegar sest er inn
kemur annað og meira í Ijós. Spennandi bíii. - myndir: ohr
BÍLAR
Undanfama daga hafa
tveirnýirbílará ís-
lenskum bílamarkaði
verið kynntirfyrir
blaðamönnum og inn-
an tíðarverða þeir
kynntir á almennum
markaði. Annars vegar er nýr og
athyglisverður smábíll og hins
vegarjeppi sem boðinn verðurá
hagstæðu verði.
OlgeiP Helgi
Ragnarsson
skrifar
Toyota, eða P. Samúelsson, hefur hafið innflutn-
ing á nýja smábílnum Yaris. Þetta er spennandi
bíll og fengu bílablaðamenn að kynnast honum
svolítið á dögunum. Til að sjá er bíllinn ekki
mjög óhefðbundinn, þó í honum séu frísklegar
línur, en þegar sest er inn blasir við alveg nýtt
sjónarhorn. Engir mælar eru beint fyrir framan
bílstjórann, heldur eru algengustu mælar djúpt í
skjá fyrir miðju mælaborðinu og snúa að bílstjór-
anum. Þetta er nýstárleg hönnun sem á að gera
bílstjóranum auðveldara um vik þar sem sjónræn
fjarlægð að mælunum er sem svarar því að þeir
væru rétt framan við bílinn. Þrátt fyrir það eru
þeir mjög skýrir.
Fleiri nýungar eru í bílnum, t.d. er aftursætið
á sleða sem hægt er að færa fram og aftur. Lögð
er áhersla á mikið innanrými þrátt fyrir að bíll-
inn sé ekki stærri en hann er. Odýrasta gerðin
kostar innan við eina milljón króna.
Nánar verður sagt frá Toyota Yaris síðar.
Hekla mun frumkynna nýjan Mitsubishi
Pajero Sport um næstu helgi. Þetta er fullvaxinn
jeppi sem boðinn verður á hagstæðu verði, eða
2.730 þúsund.
Guðrún Birna Jörgensen markaðsfulltrúi
Heklu segir þetta kraftmikinn og sportlegan bíl
sem framleiddur sé f Japan. Þessi bfll hafi und-
anfarin ár unnið í maraþonflokki Paris-Dakar,
flokki óbreyttra bíla, undir nafninu Challenger.
Meðal staðalbúnaðar í bílnum eru ABS heml-
ar, öryggispúðar, rafdrifnar og skyggðar rúður,
krómpakki o.fl.
Mitsubishi Pajero Sport sem Hekla mun kynna um næstu helgi.
Netfang umsjónarmanns bílasíðu er: oIgeirhelgi@isIandia.is
Veðrið í dag...
Norðan og norðvestan hvassviðri eða stormur á landinu,
en lægir mjög vestantil síðdegis. Snjókoma á Norðurlandi,
en úrkomulaust að mestu sunnanlands. Frost 2 til 10 stig,
kaldast norðvestantil.
Færð á vegiun
í gærkvöld var nokkur skafrenningur á heiðum um
vestanvert landið. Aðeins var jeppafært um Bröttuhrekku.
Einnig var skafrenningur á heiðum á Vestijörðum og
Noróurlandi, en allir helstu vegir færir. Fært var orðið um
Mývatns- og Möðrudalsöræfi einnig Vopnaljarðarheiði. Á
Austurlandi var ófært um Vatnsskarð eystra og
Breiödalsheiði. Greiðfært var svo með ströndinni frá
Reyðarfirði og suður um.
SEXTÍU
OG
SEX
NORÐUR
h-