Dagur - 25.03.1999, Page 1
1
Á dögunum varkepptum
sæti í landsliði íslands í
brídds. Þar spilaði Ámundur
Pálsson, lögfræðingur, sig
inní liðið. Ásmundurvar
fyrst valinn í liðið áríð 1960
en síðast varhann í liðinu
áríð 1979.
„Við vorum fimm sem að spiluðum okkur
inní landsliðið. Hinir fjórir eru Jakob
Kristinsson, Anton Haraldsson, Sigur-
björn Haraldsson og Magnús Magnússon.
Liðstjórinn verður Ragnar Hermannsson.
Hann skipuleggur svo það sem gert verð-
ur.“
28 tíma lestarferð
á Ólympíiunót
Landsliðið fer á Evrópumótið sem verður
á Möltu, seinni hluta júnímánaðar, en
Ijórir af þeim sem eru í landsliðinu spila í
sömu sveitinni á Islandsmótinu, sem verð-
ur í páskavikunni. Asmundur segir að hin-
ir tveir sem verði með þeim í sveitinni séu
engir aukvissar. „Þeir eru fyrrverandi
heimsmeistarar. Þeir urðu heimsmeistarar
í Tokyo árið 1991,“ segir Ásmundur.
Asmundur tók fyrst þátt í Olympíumóti
í bridds árið (1960. Hann segir að þá hafi
verið flogið með Loftleiðum til Amster-
dam og meiningin að fljúga til Lúx-
emburgar en ekki verið nógu margir far-
þegar þannig að sú flugferð hafi verið felld
niður og við hafi tekið 28 tíma lestarferð
til Mílano og þaðan áfram til Toríno, þar
sem að mótið var haldið.
Spilamcnnskan breyst
Ásmundur er alinn upp á Eiðum og segist
hafa kynnst spilamennsku fyrst þar. Hann
segist hafa gengið í Menntaskólann á Ak-
Ásmundur Pálsson, lögfræðingur á áttræðisaldri, segir að spiiamennskan sé eins og hver önnur
tækni sem sé í sífelldri þróun. mynd: e.úl.
ureyri en þar ekki verið talinn gjaldgengur 1958. „Yfirleitt hef ég spilað við mjög góða
spilamaður. Ásmundur segist ekki hafa menn. Eg kynntist bestu spilamönnum
byrjað að spila fyrir alvöru fyrr en árið landsins, meðal annars Einari Þorfinns-
syni, sem var annar af þeim sem fyrstur
tók þátt í heimsmeistaramóti. Hann var
mikill Hnur minn og lærifaðir."
Ásmundur segir að spilamennskan hafi
breyst mikið síðan þetta var, menn séu
betur að sér í dag en á árum áður. „Menn
eru með bækur og lesa um spil og spilaað-
ferðir. Kerfin eru miklu betur unnin og
miklu meiri keppni nú heldur en var áður.
Spilamennskan er eins og hver önnur
tækni sem er alltaf að þróast. Menn gera
sig ekki ánægða með að gera sömu vitleys-
una alltaf og þegar menn eru orðnir nógu
óánægðir þá finna þeir eitthvað út til þess
að bjarga því,“ segir Ásmundur og bætir
því við að bridds sé svipuð íþrótt og skák.
Alltaf á skólabekk
Asmundur segist vera hrifnastur af
svokölluðum „natúral sagnkerfum" eða
eðlilegum kerfum. Hann segir að það sé
nokkuð sama hvaða kerfi menn spili ef
það henti þeim. Það kerfi sem hann notar
núna er svokallað biðsagnakerfi, „relay-
precisson". „Makker minn núna er Jakob
Kristinsson en við höfum ekki spilað sam-
an lengi. Ég hef spilað við Aðalstein Jörg-
ensen, Mattías Þorvaldsson og Sigurð
Sverrisson. Sem hafa kennt mér þessi
nýju fræði þannig að maður er alltaf á
skólabekk."
Ásmundur er 71 árs, hann segir að með-
an hann hafi gaman og áhuga á að spila
haldi hann áfram. „Það skaðar ekki að
vera í félagsskap \'ið góða menn. Það er
ótrúleg lyftistöng. Menn vilja staðna ef að
þeir spila í þröngum hópi,“ segir Ásmund-
ur. Hann segir að stór hluti af þessu sé fé-
lagsskapurinn og segist eiga góða félaga
sem hafi yngt hann upp og haldið sér haf-
færum.
Ásmundur segir að þó hann hafi spilað í
meira en Ijörutíu ár sé hann alltaf að læra
eitthvað nýtt. „Það er alltaf eitthvað sem
maður hefur ekki komið auga á sem betur
má fara. Spilamennskan er eins og önnur
vinna sem byggist á góðum vinnubrögð-
um.“ -PJESTA
Nýjustu hljómtækjastædumar frá
CDC-421
• 2X20W • RMS-Surround
• 3ja diska geislaspilari
• Útvarp með 20 stöðva minni
• RDS-tvöfalt segulband • Surround
hátalarar fylgja.
CDC-471
Heimabíóhljómtæki
• 2X40W eða 4X40W • RMS-Dolby pro logic magnari
• Stafrænt tengi fyrir minidisk • 3ja diska geislaspilari
• Útvarp með 20 stöðva minni
• RDS-tvöfalt segulband • Fimm hátalarar fylgja.
CDC5H
Heimabíóhljómtæki
• 2X100W eða 4X50W »RMS
• Dolby prologic magnari • Stafrænt tengi
fyrir minidisk • 3ja diska geislaspilari
• Útvarp með 20 stöðva minni
• RDS-tvöfalt segulband • Fimm hátalarar fylgja.
Hlustoðu áalvöru hljómgæði
B R Æ Ð U R N I R
Lagmula 8 • Simi 533 2800
Umboðsmenn um land allt