Dagur - 25.03.1999, Qupperneq 2
18 - FIMMTUDAGUR 25. MARS 1999
rD^tr
LÍFIÐ í LANDINU
SMÁTT OG STÓRT
UMSJÓN:
SIGURDOR
SIGURDÓRSSON
Halldór Blöndal.
r
f
Kosningavegakerfið
Halldór Blöndal samgönguráðherra tók sér frí
síðustu tvær vikur þingtímans vegna anna.
Það kom fljótt í ljós að um mikla útrás var að
ræða. Fyrst var það fundur á Siglufirðþ þar
sem engu minna en jarðgöngum yfir til Olafs-
fjarðar var lofað. Síðan komu nokkur smámál
tengd kjördæminu. Loks var haldið til Finn-
lands með nokkrum Akureyringum og heims-
frægur jólasveinn þar í Iandinu heimsóttur og
jólasveinalandið hans, en eins og menn muna
hafa Akureyringar gert tilraun með að halda
uppi jólasveinalandi. Loks kom svo stóra kosn-
ingabomban sl. þriðjudag, tveir milljarðar í
vegakerfið út á Iandi. Sumir segja að þessu fé
sé varið til að bæta „flóttamannavegina" til
höfuðborgarsvæðisins en aðrir segja að verið
sé að koma upp „kosningavegakerfi."
Guðni Ágústsson.
„Af hverju þurfti
(sjávarútvegs) ráð-
herrann margfalt
stjórnkerfi? Fyrst
kvóta. - Svo var
svæðum Iokað. - I
þriðja lagi var svo
verið að Qarlægja
fiskiskip. I Sovét
var ein skóverk-
smiðja i Moskvu
talinn toppurinn.“
Kristinn Péturs-
son, fiskverkandi
og fyrrum alþingis-
maður, í erein í
Mbl.
Sumarbústaði um allt land
Einu sinni hlustaði ég mikið á Aðalstöðina
enda var þá leikin þar þægileg dægurtónlist.
Síðan skipti stöðin um stíl, annars konar tón-
list leikin og ég hætti að hlusta. Alveg óvart
opnaði ég fyrir hana einn moguninn í vikunni.
Þá var ung stúlka, stjórnandi þáttarins, að
ræða við ungan mann. Nöfn þeirra heyrði ég
ekki. Maðurinn var að tala um byggðavandann
og fólksflóttann til höfuðborgarsvæðisins, sem
hann sagði vera mál til að hafa áhyggjur af. Þá
æsti stúlkan sig nokkuð og sagðist vera þeirrar
skoðunar að heppilegast væri að flytja alla Is-
lendinga á höfuðborgarsvæðið og síðan gæti
fólk svo byggt sér sumarbústaði út um allt
land. Mér var hugsað til vinar míns Guðna
Agústssonar alþingismanns þegar ég heyrði
stúlkuna segja þetta!
Fyrirgreiðslupólitíkusar
I gegnum tíðina hafa verið til margir frægir
fyrirgreiðslupólitíkusar og sumir þeirra hafa
stært sig af því að vera það. Heima í kjördæm-
unum eru þeir allra manna vinsælastir. Egill
Jónsson, alþingismaður og bóndi á Seljavöll-
um, hefur alla tíð verið mikill fyrirgreiðslupóli-
tíkus fyrir sitt kjördæmi og verið stoltur af. Nú
er Egiíl að hætta þingmennsku fyrir Austfirð-
inga. Gunnlaugur Stefánsson var mikill fyrir-
greiðslupólitíkus þegar hann sat á þingi kjör-
tímabilið 1971-1975. Hann er aftur í fram-
boði nú sem 2. maður á lista samfylkingarinn-
ar á Austfjörðum og sagt er að heimamenn
hugsi sér nú gott til glóðarinnar með að halda
sfnum fyrirgreiðslupólitíkus.
„Rekstur borgar-
innar verður að
taka í gegn og
einnig gæti það
gefið svigrúm til
lækkunar skatta, “
segir Kjartan
Magnússon, nýr
borgarfuiitrúi í
Reykjavík. - mynd:
HILMAR
MeMhiutanuin
mislagðar hendur
„Það er okkar í minnihlutanum
að gagnrýna meirihlutann og það
sem mér hefur þótt áberandi í
störfum hans er hve þeim hafa
verið mislagðar hendur í allri
fjármálastjórn. Oráðsía og
skuldasöfnun eru áberandi og til
að fela þetta er beitt margvísleg-
um bókhaldsblekkingum. Tölur
sýna þó svart á hvítu að skuldir
borgarinnar hafa aukist stórlega
síðustu ár og af þvf hef ég miklar
áhyggjur og spyr mig hvernig
staðan verði þegar ríkjandi góð-
æri er úti. Rekstur borgarinnar
verður að taka í gegn og einnig
gæti það gefið svigrúm til lækk-
unar skatta,“ segir Kjartan
Magnússon, nýr borgarfulltrúi í
Réykjavík.
Sárt að geta ekki orðið að liði
Árni Sigfússon sagði af sér sem
borgarfulltrúi í sl. viku. I stað
Árna tók sæti Kjartan Magnús-
son, sem skipaði 8. sæti á lista flokksins í síð-
ustu kosningum, en hann hefur verið fyrsti
varamaður flokksins í borgarstjórn og er því ekki
ókunnur borgarinálum. Hefur á þessu og síð-
asta kjörtímabili setið í fjölmörgum nefndum og
segir að sér hafi í raun komið á óvart hve mörg
mál og ólík heyri undir borgarkerfið. „A síðasta
kjörtímabili sat ég í húsnæðisnefnd borgarinnar
og kynntist þá vel neyð sem margar láglaunafjöl-
skyldur voru og eru í vegna húsnæðismála
sinna. Félagslega kerfið býður vissulega mörg-
um upp á aðstoð, en alls ekki öllum og kannski
ekki alltaf þeim mest þurfa á
hjálpinni að halda. Stundum er
fólk í virkilegri neyð þó félagsleg-
ar úrbætur nái ekki til þess. Sárt
er að geta ekki orðið slíku fólki að
liði/
Á þessu kjörtímabili situr Kjart-
an í íþrótta- og tómstundaráði og
segir það skemmtilegan vettvang.
„Það er kraftur í starfi íþrótta-
hreyfingarinar. Þar fer fram mikið
og öflugt sjálfboðaliðsstarf og
uppi eru háleit markmið og hug-
sjónir um að efla heilbrigði fólks
á öllum aldri," segir Kjartan.
Skoðanainiinuríim
var skarpari
„Eg er uppalinn við mikinn
pólítískan áhuga á heimili mínu,“
segir Kjartan. „Inn á æskuheimili
mitt komu öll dagblöðin sem þá
voru sex talsins. Skoðanamunur-
inn í pólítík þá var skarpari en nú
er og þó Þjóðviljinn væri vel skrifað
blað sá ég fljótt í gegnum röksemdafærsluna,"
segir Kjartan, sem um tvítugt gekk til Iiðs við
Heimdall og var formaður félagsins um skeið.
Kjartan er 31 árs að aldri og er unnusta hans
Guðbjörg Sigurgeirsdóttir hjúkrunarfræðingur
og eiga þau von á sínu fyrsta barni fljótlega. Síð-
ustu ár hefur Kjartan starfað sem blaðamaður á
Morgunblaðinu, en vegna setu í borgarstjórn
hefur hann nú horfið af þeim vettvangi. „Ég á
fjölmörg áhugamál," segir Kjartan að síðustu og
nefnir þar lestur góðra bóka, útiveru og ferða-
lög. -SBS.
Kjartan Magnússon
er nýr borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins.
Hann kveðsthafa
áhyggjur affjármála-
stjóm R-listans, sem
séu mislagðarhendur
áýmsa aðra lund.
Pólítískurfrá unga
aldri, segirKjartan.
SPJflLL
■ FRÁ DEGI TIL DflGS
„Þegar allir hugsa eins hugsar enginn
mihið.^ Walter Lippmann
Þetta gerðist 2 5. mars
• 1895 réðst ítalski herinn inn í Abyssin-
íu (Eþíópíu).
• 1957 var Efnahagsbandalag Evrópu
stofnað og Rómarsáttmálinn tók gildi.
• 1975 var Faisal konungur Sádi-Arabíu
myrtur af frænda sínum, sem var svo
hálshöggvinn í júní sama ár.
• 1975 var samþykkt að friðlýsa Vatns-
fjörð í Barðastrandarsýslu.
• 1992 kom sovéski geimfarinn Sergei
Krikalev til jarðar eftir tíu mánaða dvöl
í geimstöðinni MIR, en þá voru Sovét-
ríkin ekki lengur til.
• 1994 Iauk brottflutningi bandarískra
hermanna frá Sómalíu.
Þau fæddust 25. mars
• 1908 fæddist breski kvikmyndagerðar-
maðurinn David Lean.
• 1921 fæddist franska leikkonan Simo-
ne Signoret.
• 1934 fæddist bandaríska kvenfrelsis-
konan Gloria Steinem.
• 1940 fæddist Finnur Eydal tónlistar-
maður
• 1942 fæddist bandaríska blús- og
sálmasöngkonan Aretha Franklin.
• 1953 fæddist Tómas R. Einarsson tón-
listarmaður
Merkisdagur
I dag er boðunardagur Maríu, einnig kall-
aður Maríumessa á föstu. Þennan dag,
réttum níu mánuðum fyrir jól, tilkynnti
Gabríel erkiengill Maríu mey að hún
skyldi ala son guðs.
Vísan
Vísa dagsins er eftir Bólu-Hjálmar:
Langt mér þetta verður vor,
vílmóður þótt kreilii.
Kvtði egfyrir httngri, hor,
hafts, taugaveiki.
Afmælisbam dagsins
Þórhildur Þorleifsdóttir fæddist á
Isafirði 25. mars árið 1945 og ólst
þar upp til sjö ára aldurs. Þá flutt-
ist hún með foreldrum sínum á
Melana í Reykjavík.
Þórhildur var í listdansnámi við
Konunglega enska ballettskólann.
Hún hefur starfað sem Ieikari,
Ieikstjóri og er núna leikhússtjóri
Borgarleikhússins í Reykjavík. Hún
hefur starfað mikið að kvenrétt-
indamálum og setið á þingi fyrir
Samtök um Kvennalista.
Húsasmíðar
Tveir „klepparar“ voru að byggja sumarbú-
stað. Þegar annar þeirra tók eftir því að
hinn fór í naglapakkann og annað hvort
henti naglanum yfir öxlina á sér eða negldi
hann í vegginn. Annar þeirra furðaði sig á
þessum vinnubrögðum félaga síns og
spurði hvers vegna í ósköpunum hann
gerði þetta.
Hinn skýrði þetta þannig: „Ef ég tek
nagla úr pakkanum og hann snýr oddinum
að mér hendi ég honum í burtu vegna þess
að hann er gallaður. Ef hann snýr oddin-
um að veggnum þá negli ég hann í vegg-
* „ «
mn.
Annar varð hvumsa við þessar útskýring-
ar og æpti á félaga sinn: „Hálfvitinn þinn,
naglarnar sem benda að þér eru ætlaðir
fyrir hina hliðina á húsinu."
Veffang dagsins
Færeyska dagblaðið Dimmalætting er á
Netinu: www.dimma.fo.
I