Dagur - 25.03.1999, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 25. MARS 1999 - 21
Thyfu-
LÍFIÐ t LANDINU
Leikararnir höfðu nokkuð fastan söguramma að styðjast við en þurftu að spinna til að fylla út í
rammann. Spuni gerir aðrar kröfur til leikara en hefðbundinn leikur með tilbúnum texta.
Klassafíflalæti
Hnetan - geimsápa
Höfundar:
Leikarar og áhorfendur
hverju sinni
Leikstjórn og hug-
myndavinna: Martin
Gejer
Leikmynd og búningar:
norri Freyr Hilmarsson
Tónlist: Pálmi Sigur-
hjartarson
Lýsing: Kjartan Þórisson
Leikendur: Ingrid Jónsdóttir, Gunnar
Helgason, Linda Asgeirsdóttir Gunnar
Hansson og Friðrik Friðriksson.
Síðastliðið fimmtudagskvöld var gestum
Iðnó boðið að ganga um borð í geim-
skutluna Hrafninn ásamt Kaftein Klöru
(Ingrid Jónsdóttir) og áhöfn hennar.
Verkefni geimferðarinnar (aðgerð Hnet-
an) er að finna nýja reikistjörnu, hæfa til
mannlegrar búsetu. Við erum stödd á ár-
inu 2099, þegar ísland hefur náð forystu
í geimferðakapphlaupi heimsins þökk sé
auðnum sem IS99 (orkugjafanum sem
fannst í iðrum Vatnajökuls) færði þjóð-
inni. Leikritið, eða skemmtunin, í Iðnó er
ekki til í handriti - heldur er það byggt á
spuna leikaranna.
Gunnar var stjaman
Leiksýningin er klofin í tvennt með hléi.
Fyrir hlé koma leikarar ýmsum skilaboð-
um áleiðis til áhorfenda og kynna þar
með sögurammann en bjóða f leiðinni
upp á skemmtiatriði með spuna meðan
flogið er út í geiminn. I hléi fengu áhorf-
endur miða þar sem þeir máttu skrifa til-
lögu að þema/söguþræði leikritsins eftir
hlé á meðan þeir supu á speislegum
frumsýningarkokteilnum. Eftir hlé var
dregið úr tillögunum og máttu leikarar
gjöra svo vel að spinna út frá þeirri hug-
mynd sem dregin var úr pottinum.
Leikararnir höfðu nokkuð fastan
söguramma að styðjast við en þurftu að
spinna til að fylla út í rammann. Spuni
gerir aðrar kröfur til leikara en hefðbund-
inn leikur með tilbúnum texta. Þegar
spinna þarf af munni fram eins og í
Hnetunni reynir meira á hugkvæmni,
þekkingu, málfar, næmi fyrir áhorfendum
og hæfileika til gamanleiks. Segjast verð-
ur að Gunnar Helgason var stjarna sýn-
ingarinnar, hann átti skemmtilegustu
setningarnar, var hnyttinn þrátt fyrir
knappan umhugsunarfrest og naut þess
einnig að vera í skemmtilegu hlutverki
því sem vélmenni áhafnarinnar skar hann
sig sjálfkrafa úr hópnum, sem annars var
af holdi og blóði. Ingrid Jónsdóttir átti
sérstaklega skemmtileg svipbrigði og
Friðrik Friðriksson skynjaði ágætlega
húmor áhorfenda. Minna fór fyrir Lindu
Asgeirsdóttur og Gunnari Hanssyni en
hópurinn vann þó vel saman, hélt nokk-
uð þétt utan um spunann og hikuðu þau
Iítið (reyndar vöktu hikin oft heljarinnar
hlátur og voru því greinilega ekki illa séð
af áhorfendum).
Dallas + Star Trek
Hugmyndin að spunanum er skemmtileg.
Stórkarlaleg framtiðarsýnin um ísland
sem væntanlegt efnahagsveldi heimsins
er nógu absúrd og Iokkandi til að skapa
sirkuslega fíflalátastemmningu sem þarf
til að spunaskemmtun sem þessi gangi
upp og njóti sín. Öll umgjörðin gerði sitt
til að auka á þessa stemmningu, bæði
snjöll leikmyndin og tónlistin sem minnti
ýmist á stefin úr Star Trek eða Dallas.
Það er skemmst frá því að segja að
áhorfendaskarinn á frumsýningu var afar
tilkippilegur og tók virkan þátt í spunan-
um, með uppástungum og undirtektum.
Spuninn krefst þess að áhorfendur taki
þátt, fylgist vel með framvindu og það
mátti gjörla finna hvað andrúmsloftið var
miklu spenntara en á hefðbundinni sýn-
ingu. Því var steramningin mun meiri fyr-
ir hlé þegar áhorfendur tóku virkari þátt í
því sem var að gerast. Það var greinilega
gagnvirknin milli sviðs og sals sem höfð-
aði til áhorfenda því atriðið sem uppskar
mestan fögnuð var þegar einn áhorfand-
inn var fenginn upp á svið til að stjórna
einu skemmtiatriðinu. Stemmningin datt
hins vegar aðeins niður eftir hlé þegar
heilsteypt spunaleikrit fór fram enda má
kannski segja að spuninn sé eins og
brandarinn, hann hættir að vera fyndinn
þegar hann er teygður á Ianginn. Kannski
spuninn njóti sín betur í stuttum afmörk-
uðum atriðum?
Því verður ekki svarað hér. En Hnetan
í Iðnó er hæfilega sposk sápa, frábær
skemmtun og klassafíflalæti...
Betra er að vera fíerfættur
en á vondnm skóm
SVOJUA
ER LIFIÐ
Pjetur St.
flrason
skrifar
®
Pjetur
svarar
í símann!
Ertu með ráð,
þarftu að spyrja,
viltu gefa eða
skipta?
Pjetur svarar í
símann kl. 9—12.
Síminn er
563 1626 (beint)
eða 800 7080.
Póstfang:
Þverholt 14 Rvk.
;ða Strandgötu 31
Akureyri.
Netfang:
ritstjori@dagur.is
Stoðtækjaframleiðandinn Össur gekkst fyrir svokölluðum fóta-
degi um síðustu helgi. I fréttatilkynningu frá fyrirtækninu segir
að aðeins lítill hluti af fótameinum séu meðfædd. Þau komi oft
í kjölfar lélegrar umhirðu og af vondum
skóm. Hjá þeim þjóðum sem ekki
ganga í skóm séu fótamein mun óal-
gengari. Af þessu má draga þá ályktun
að betra sé að vera berfættur en í
vondum skóm.
Meðalmanneskja gengur tæpa fjóra
hringi umhverfis jörðina á ævi sinni
þannig gefur það auga leið að hún þarf
góða skó. Oft eru það konur sem hugsa
meira um útlitið heldur en líðanina, en
karlmenn eru engu síður hégómagjarnir
þegar kemur að þvi að velja fótabúnað.
Yfirleitt er betra að kaupa skó síðla dags
vegna þess að fæturnir bólgna eftir því
sem að líður á daginn. Hjördís minnir á
að þegar fólk kaupir sér skó eigi það að
máta báða skóna því yfirleitt sé annar fót-
urinn stærri en hinn.
Hjördís Magnúsdóttir íþróttafræðingur
og hreyfiþjálfi vinnur hjá fyrirtækinu, hún
segir að fæturnir séu undirstaða líkamans
þannig skipti umhirða um þá miklu máli. „Van-
líðan annarstaðar í líkamanum getur tengst fót-
unum, því skiptir miklu máli hvernig fólk velur
sér skó,“ segir Hjördís.
Það er eðlilegt að fætur fólks séu mislangir.
Oft munar nokkrum millimetrum, en stundum fer
að muna meiru. Það er fjöldi fólks sem hefur þurft
að leita sér aðstoðar vegna þessa. Hjördfs segir að
þegar munurinn sé farinn að nálgast sentimetra
eða meira fari það að skipta máli. Þá hafi það áhrif
á bakið og mjaðmirnar.
Hjá Össurri er fólki boðið uppá göngugrein-
ingu, þá kemur í ljós hvort einhver rangbeiting
sé á fótunum, sumir hafa ilsig, flatfót, holfót en
einkenni slíks eru þreytuverkir í hnjám, leggj-
um, hæl eða iljum. Ráðið við því er oft innlegg
í skóna. Hjördís segir að þau lagi innleggið al-
gjörlega eftir fótum fótum fólks, því að fótalag
hvers og eins sé svo einstaklingsbundið. Þegar þarf að grípa til
kostnaðarsamra ráðstafanna hleypur Tryggingastofnun stund-
um undir bagga með fólki og greiðir hluta af kostnaðinum.
■ HVAfl ER Á SEYDI?
HJÓNANÁMSKEIÐ
í kvöld klukkan 20.30 hefst fjórða hjónanámskeiðið á vegum Ak-
ureyrarkirkju í safnaðarheimili kirkjunnar. Leiðbeinendur verða
þau sr. Jónína Elísabet Þorsteinsdóttir, fræðslufulltrúi þjóðkirkj-
unnar í Hólastifiti, og sr. Svavar A. Jónsson prestur í Akureyrar-
kirkju. Námskeiðið stendur í um tvo tíma og er skráning í Akur-
eyrarkirkju í síma 462 7700.
Grikklandsvinir hittast
I kvöld kl. 20.30 verður Grikklandsvina-
félagið Hellas með fund á Kornhlöðu-
loftinu við Bankastræti. Þar mun Sigurð-
ur A. Magnússopn rithöfundur minnast
á frelsisbaráttu Grikkja á síðustu öld,
Alda Arnardóttir leikari les Ijóð og Jó-
hanna Þráinsdóttir þýðandi flytur erindi
um háðfuglinn Lúkíanos.
Sigurlaugur gestur Ritlistarhóps
Ritlistarhópur Kópavogs hittist í Gerðar-
safni síðdegis í dag. Sigurlaugur Elíasson
rithöfundur les úr verkum sínum. Dag-
slcráin stendur frá kl. 17.00 til 18.00 og
er aðgangur ókeypis og öllum heimill.
SAM-krull unglinga og unglingamenning
I kvöld kl. 20 ræðir Einar Gylfi Jónsson
sálfræðingur um unglingamenningu og
ýmis einkenni hennar í Hagaskóla.
Félag eldri borgara Ásgarði, Glæsibæ
Brids í dag ld. 13. Bingó í kvöld kl.
19.45. Allir velkomnir. Námstefnan
Heilsa og hamingja á efri árum laugar-
daginn 27. mars kl. 13.30. Fjallað verður
um tannlækningar aldraðra. Allir vel-
komnir.
Frá Félagi kennara á eftirlaunum
Sönghópur (Kór) í dag, fimtudaginn 25.
mars, kl. 16. 00 í Kennarahúsinu við
Laufásveg.
Einmánaðarfagnaður í Gjábakka
í dag kl. 14.00 verður Einmánaðarfagn-
aðuir í Gjábakka. Margt fræðandi og
skemmtilegt er á dagskrá. Kór Hjalla-
skóla, undir stjórn Guðrúnar Magnús-
dóttur syngur. Sungið og dansað milli kl.
16.00 til 17.00. Allir eru velkomnir.
Atvinna og fjölskyldulíf
I dag klukkan 13-17 gangast Jafnréttis-
ráð og Karlanefnd fyrir málþingi á Grand
hótel í Reykjavík undir yfirskriftinni At-
vinna og fjölskyldulíf - Vinir eða fjand-
menn?
Á málþinginu munu innlendir sérfræð-
ingar fjalla um ýmsa þætti varðandi sam-
spil atvinnu- og fjölskyldulífs. Eftir er-
indi Ivans Thaulow frá Socialforsknings-
institutet í Kaupmannahöfn verða pall-
borðsumræður. Aðgangur er ókeypis og
öllum heimill.
Að lesa í skóginn og tálga í tré
Helgina 26.-28. mars verður haldið nám-
skeið í húsnæði Landgræðslusjóðs, Suð-
urhlíð 38 í Reykjavík, undir heitinu „Að
lesa í skóginn og tálga í tré“. Námskeiðið
hefst kl. 16.00 á föstudag og því lýkur kl.
16.00 á sunnudag. Þátttakendafjöldi er
takmarkaður. Skráning og upplýsingar
fást hjá endurmenntunarstjóra Garð-
yrkjuskóla ríkisins.
Opið hús fyrir aldraða
I dag klukkan 15-17 verður opið hús fyr-
ir aldraða í Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju. Ræðumaður verður Kristín
Steinsdóttir rithöfundur, sem er annar
höfundur leikritsins sem nú er sýnt hjá
LA. Flautusveit úr Tónlistarskóla Akur-
eyrar leikur. Aúk þess verður almennur
söngur og helgistund. Þessar stundir
hafa verið mjög fjölsóttar. Verið velkom-
in.