Dagur - 26.03.1999, Qupperneq 3
FÖSTUDAGUR 26. MARS 19 9 9 - 19
LÍFIÐ í LANDINU
Hver getur betur?
Lokaþáttur
Getturbet-
urerí
kvöld. Lið
MR ogMH
eigastþar
við og Ijóst erstrax að
tvö sterk lið eigast við.
Keppendur segja fiðr-
ing vera í maganum á
sér, enDagurræddi við
þá og spyrilinn
Hver getur betur? Þjóðin öll bíð-
ur svars við spurningunni hvort
það sé lið Menntaskólans við
Hamrahlíð eða Menntaskólans í
Reykjavík, en úrslitaþátturinn í
spurningakeppni framhaldsskól-
anna er í kvöld í Sjónvarpinu.
Keppnin fer fram í Valsheimil-
inu í Reykjavík og er í beinni út-
sendingu. Tvö geysisterk lið eig-
ast við, enda hafa þau í undan-
úrslitum og allt frá byrjun
reyndar átt góða spretti. Það er
því alls ekki á vísan að róa með
úrslit og reyndar má búast við
því að MR-ingar komi í vígahug
til leiks, enda eiga þeir sexfaldan
sigur að verja.
Fidringur skerpir athyglina
„Það er kominn léttur fiðringur,
sem líka skerpir athyglina en
hún þarf að vera 100% eigi góð-
ur árangur að nást,“ sagði Arnar
Þór Stefánsson, sem er í liði
MR. Hann segir það vissulega
skapa ákveðna pressu á MR-
inga að hafa sigrað í keppninni
síðustu sex árin, en MH-ingar
koma líka til leiks með há mark-
mið til dæmis eftir kærumál í
kjölfar keppninnar á síðasta ári.
Arnar hefur, með félögunum
sínum þeim Sverri Guðmunds-
syni og Hjalta Snæ Guðmunds-
syni, æft stíft fyrir keppnina síð-
ustu daga. Þeir hafa skipt með
sér liði og hver leggur sig eftir
ákveðnum þekkingarsviðum;
Hjalti að bókmenntasögu, Sverr-
ir veraldarsögunni og Arnar að
íþróttum, fréttum, kvikmyndum
og innlendri sögu. „Eg grúska í
ýmsum bókum, til dæmis í Old-
inni okkar - en reyndar er það
nú svo að menn þurfa að vera
jafngóðir á sem flestum sviðum
þó þeir leggi sig eftir að lesa í
ákveðnum efnisflokkum," segir
hann.
Arnar kveðst vera ánægður
með framkvæmd keppninnar í
ár. Þar skipti mildu máli sá sam-
ráðshópur fulltrúa skólanna og
Ríkisútvarpsins sem stofnað var
til, meðal annars vegna kæru-
málanna á sl. ári. Þar séu til
lykta leidd öll þau ágreiningsmál
sem upp kunna að koma - og
einnig hafi nemendafélögin í
Sigurður Bogi
Sævarsson
skrifar
„Lokaþáttur keppninnar leggst vel í mig og ég er er komin með svolítinn fiðring í magann, “ segir Inga Þóra Ingvars-
dóttir. Hún er hér fyrir miðju í liði MH, til vinstri er Fjalar Hauksson og Jón Árni Helgason til hægri.
„Kominn léttur fiðringur i mig vegna keppninnar. Það skerpir athyglina sem þarfað vera alveg 100% eigi góður árang-
ur að nást, “ segir Arnar Stefánsson sem er í liði MR. Hann er fyrir miðju, Hjalti Snær Ægisson til vinstri og Sverrir Guð-
mundsson til hægri.
gegnum samráðshópinn haft
umsagnarrétt um hver yrði dóm-
ari og spyrill. „Við stefnum að
sigri í kvöld, en ég vil samt ekki
nefna spá mína um lokatölur,"
segir Arnar.
Æfingar hafa forgang
„Við ætlum að gera okkar besta,
meira ætla ég ekki að segja um
þann árangur sem við ætlum
okkur í keppninni," segir Inga
Þóra Ingvarsdóttir, sem hefur
verið aðalsprautan í liði MH í
keppninni. Aðrir í liðinu eru þeir
Fjalar Hauksson og Jón Árni
Helgason og í þessari viku hafa
þau lagt mikið að sér við æfingar
fyrir keppnina. Hafa til dæmis
sáralítið mætt í skólann í þessari
viku og látið æfingar fyrir
„Margir virðast líka vera búnir að velja sér lið til að halda með, enda verður
þá miklu meira spennandi að fylgjast með keppninni, “ segir Logi Bergmann
Eiðsson, sem er spyrill og stjórnandi keppninnar.
keppnina hafa allan forgang.
Hafa þrautreyndir menn hlýttt
þeim yfir og þjálfað keppendur
svo sem þeir verði sem best bún-
ir í slaginn í kvöld. „Lokaþáttur
keppninnar leggst vel í mig og
ég er er komin með svolítinn
fiðring í magann," segir Inga
Þóra, sem er nú að taka þátt í
keppninni fjórða árið í röð.
„Nei, við höfum ekkert farið
út í að reikna út hver eru til
dæmis áhugasvið Illuga Jökuls-
sonar sem bæði semur spurn-
ingarnar og dæmir. Það væri í
öllu falli mjög hæpið að einbeita
sér þannig að ákveðnum svið-
um, því Illugi er íjölfróður mað-
ur og kemur víða við í spurning-
um. Og einmitt á því að afla sér
sem víðastar þekkingar á sem
flestum s\iðum er nú einmitt
það sem þátttaka í svona keppni
byggist á,“ segir Inga Þóra Ingv-
arsdóttir.
Vel iiiniar spurningar Qluga
„Mér kemur ekki á óvart að MR
og MH keppi til úrslita. MR
hefur staðið sig vel í gegnum
alla keppnina og er þar skemmst
að minnast sigurs þeirra á liði
F.Su. MH eiga líka fullt erindi i
úrslit enda þó sigurinn á liði MS
hefði verið naumur," segir Logi
Bergmann Eiðsson, spyrill og
stjórnandi keppninnar. Hann
segist vissulega vera búinn að
gera sér hugmyndir um hvort
liðið sigri í kvöld, en var ófáan-
legur til þess að segja hug sinn í
þeim efnum. „Eg tel að styrkur
félagslífs skólanna og árangur sá
sem lið þeirra hafa náð í keppn-
inni fari að talsverðu Ieyti sam-
an. Sé félagslífið öflugt veitir
það keppnisliðunum styrk, sem
hefur ekki svo lítið að segja."
„Eg verð var við mikinn og vax-
andi áhuga á keppninni. Ótrúleg-
asta fólk talar um keppnina.
Margir virðast líka vera búnir að
velja sér lið til að halda með,
enda verður þá miklu meira
spennandi að fylgjast með. Er
fólk jafnvel að velja sér lið burt-
séð frá því að hafa nokkur tengsl
við viðkomandi skóla,“ segir Logi.
Hann lofar sérstaklega spuming-
amar sem Illugi Jökulsson semur
og segir þær vel unnar og fela í
sér létta gamansemi. „Mér er til
dæmis eftirminnileg strumpa-
spurningin um daginn. Hún var
snúin og fýrst hugsuðu menn í
allt aðra átt, en í lokaspurning-
unni sáu menn svo fléttuna og
MR-ingar gátu sér rétt til um
hvað þetta væri,“ segir Logi.
Tvö þúsund manns
Sjónvarpshluti keppninnar hefur
að undanförnu farið fram í Út-
varpshúsinu við Efstaleiti og
hafa að jafnaði um þúsund
manns verið viðstaddir upptöku
hvers þáttar. Keppnin í kvöld fer
fram í Valsheimilinu að Hlíðar-
enda. „Það verða sjálfsagt ekki
færri en tvö þúsund manns í
salnum og stemmningin verður
efalaust stórkostleg. Eg hlakka
til að verða þarna,“ segir Logi
Bergmann Eiðsson.