Dagur - 15.04.1999, Blaðsíða 4
4- FIMMTUDAGVR 15. APRÍL 1999
FRÉTTIR
Seyðfirðingar gegn tillögum um
snjófióðavamaraðgerðir
Nefnd sem bæjarstjórn Seyðisfjarðar skipaði til að fjalla um fyrirhug-
aðar snjóflóðavarnir á Seyðisfirði mælir gegn því að fylgt verði tillög-
um um varnaraðgerðir sem kosta um 900 milljónir króna, eins og
gert var ráð fyrir í skýrslu um umhverfismat. Tillögur nefndarinnar
gera ráð fyrir varnarmannvirkj um í Bjólfi en minni varnar- og leiðar-
görðum á láglendi en kveður á um f umræddri skýrslu. Hugmyndir
eru um að reisa smáhýsi til að hýsa íbúa skapist hættuástand, en
húsin mætti einnig nota til að þjóna ferðamönnum.
Framkvæmdir við flugstöð
Egilsstaðaflugvallar
Á næstunni heíjast
lokaframkvæmdir við
flugstöðina á Egils-
staðaflugvelli. Verkið
hefur verið boðið út,
en það er einkum
fólgið í því að full-
gera sal í syðri hluta
byggingarinnar.
Kostnaður er áætlað-
ur um 12 milljónir
króna. Pétur Heimis-
son, læknir á Egils-
stöðum, telur það
óviðunandi að eng-
inn skuli í raun bera ábyrgð á sjúkraflugi í landinu og þessi þjónusta
sé mjög léleg á Austurlandi. Samband sveitarfélaga á Austurlandi
(SSA) hefur einnig fjallað um þetta ófremdarástand sem og Félag ís-
lenskra landsbyggðarlækna og bæjarstjórn Austur-Héraðs. Það sé
lágmarkskrafa að fbúar á landsbyggðinni njóti sama öryggis og hinir
sem búið við gafl sérhæfðu sjúkrahúsanna. Það sé til Iítils að státa af
glæsilegri flugstöð ef þjónusta sem m.a. nýtir hana er í molum.
Háskólasetur á Homafirði
Bæjarráð Austur-Héraðs, Fjarðabyggðar og Hornaijarðar hafa fagnað
hugmyndum um að koma á fót háskólasetri á Hornafirði. Bæjarráð
þessara þriggja stærstu sveitarfélaga á Austurlandi héldu fund um
helgina um framhaldsmenntun í íjórðungnum. Gestur fundarins var
Páll Skúlason háskólarektor.
Á næstunni hefjast lokaframkvæmdir við flug-
stöðina á Egilsstaðaflugvelli.
Taprekstur hjá KASK
Nærri 118 milljóna króna tap varð af rekstri Kaupfélags Austur
Skaftfellinga á árinu 1998 og er enn meira en á árinu 1997. Aðal-
rekstrargreinar félagsins, verslun og landbúnaður, skiluðu mun lak-
ari árangri en búist var við. Verslun var rekin með tapi, afkoma slát-
urhúss og kjötvinnslu versnaði og eign félagsins í útgerðar- og fisk-
vinnslufyrirtækinu Borgey íþyngdi rekstrinum. Aðalfundur KASK
verður laugardaginn 24. apríl. Kaupfélagsstjóri er Pálmi Guðmunds-
son en stjórnarformaður Orn Bergsson, bóndi að Hofi í Öræfum.
Nýtt dagvistarheiimli og slökkvistöð
á Homafirði
I fjárhagsáætlun
bæjarstjórnar
Hornafjarðar er
gert ráð fyrir 427
milljóna króna
skatttekjum, sem er
5% aukning milli
ára. Rekstur mála-
flokka kostar 316
milljónir króna en
langstærsti út-
gjaldaliðurinn eru
fræðslumál að upp-
hæð 171 millj.
króna. Til fjárfest-
inga og verklegra
framkvæmda á að
verja 68 milljónum
króna og gert er ráð
fyrir að sveitarfélag-
ið taki 20 milljóna
króna langtímalán. Um síðustu áramót voru 26 börn á leikskólaaldri,
þ.e. 2-5 ára, á biðlista eftir plássi en þar af eru 7 í leikskólanum Óla
prik. Ný leikskóladeild mun rúma 36 börn miðað við 6 tíma meðal ■
dvalartíma. I íjárhagsáætlun er gert ráð fyrir 30 milljóna króna fram-
lagi til úrlausnar á dagvistarmálum barna. Við gerð fjárhagsáætlunar
var ákveðið að áfram skuli stefnt að byggingu slökkvistöðvar á Horna-
firði. Kostnaður er áætlaður 21 milljón króna. Kannað verður hvort
framkvæmdaaðili undírbúi, fjármagni og byggi sIökkHstöðina en leigi
síðan bæjarfélaginu húsið til langs tíma.
- GG
Frá Hornafirði. í fjárhagsáætlun bæjarstjórnar
Hornafjarðar er gert ráð fyrir 427 milljóna króna
skatttekjum, sem er 5%'aukning milli ára.
Frá undirritun samninganna á Blönduósi í vikunni. Fulltrúar hreppanna I Húnavatnssýslu, SÁÁ og Ingibjörg Pálma-
dóttir undirrita samninginn. - mynd: g. bender.
Samstarf í
forvömum
Heilbrigðisráðimeytið
og Forvamadeild SÁÁ
bjóða sveitarfélög-
uiiiLin upp á samvinuu
imi víðtækar for-
vamir sem beinast að
bömum og ungl-
ingum, foreldrum,
skólum, tómstunda-
starfi, heilsugæslu,
löggæslu, kirkju og
almeuningi.
Undirritaður hefur verið samn-
ingur milli Heilbrigðisráðuneyt-
is, SÁÁ, Dalvíkurbyggðar, Ólafs-
ljarðarbæjar og Blönduóss um
samstarf að forvörnum. I sam-
starfssamningi þessara aðila um
Sveitarfélagaverkefnið á árinu
1999 er markmiðið að efla for-
varnastarf í sveitarfélögunum
með það fyrir augum að draga úr
neyslu grunnskólanema á tóbaki,
áfengi og öðrum vímuefnum.
Heilbrigðisráðuneytið og For-
varnadeild SAA bjóða sveitarfé-
lögunum upp á samvinnu um
víðtækar forvarnir sem beinast
að börnum og unglingum, for-
eldrum, skólum, tómstunda-
starfi, heilsugæslu, löggæslu,
kirkju og almenningi. Heilbrigð-
isráðuneytið leggur til íjármagn
til verkefnisins á móti sveitarfé-
lögunum, en SÁA sér um fram-
kvæmd og faglega útfærslu í
samstarfi við sveitarfélögin.
Markmiðið er að sveitarfélögin
marki sér heildstæða stefnu í for-
vörnum sem taki til margra
þátta, að þeir aðilar í sveitarfé-
lögunum sem sinna málefnum
barna og unglinga stilli saman
strengi sfna (sérsvið hvers aðila
sé skýrt og samvinnureglur ljós-
ar), að sú þekking sem SÁÁ hef-
ur fram að færa sitji eftir f sveit-
arfélögunum og nýtist þannig til
áframhaldandi þróunar þar og að
fram fari mat á árangri forvarna-
starfsins, sem síðan verður
grundvöllur endurbóta á starf-
inu.
Á þessu ári verða Heilbrigðis-
ráðuneytið og SÁA í samvinnu
við 15 sveitarfélög. Af þeim eru 9
í Austur-Húnavatnssýslu;
Blönduós, Skagaströnd, Ás-
hreppur, Torfalækjarhreppur,
Vindhælishreppur, Svínavatns-
hreppur, Engihlíðarhreppur,
Sveinsstaðahreppur og Bólstaða-
hlíðarhreppur. Hin sveitarfélögin
eru Reykjavíkurborg vegna for-
varnastarfs í Vesturbænum,
Skagafjörður, Fjarðabyggð,
Ólafsíjörður og Dalvíkurbyggð.
Með sameiginlegri undirritun
Ólafsíjarðarbæjar og Dalvíkur-
byggðar er gert ráð fyrir ákveðnu
samstarfi sveitarfélaganna á sviði
forvarnastarfs. Þetta samstarf
felur í sér meira samráð og sam-
starf um fræðslufundi og nám-
skeiðahald innan sveitarfélaga-
verkefnisins, á árinu 1999.
- GG
Hætti við að hætta
í forystu frjálslyndra
Sigfús Jónsson efsti
maður á lista frjáls-
lynda ílokksins á
Norðurlandi vestra er
fyrrverandi varaþing-
maður Sjálfstæðis-
flokkiim en segir
flokkinn hafa yfirgef-
ið sig.
Sigfús Jónsson, bóndi og fram-
kvæmdastjóri sláturbússins
Ferskar afurðir á Hvammstanga,
leiðir framboðslista Frjálslynda
flokksins á Norðurlandi vestra.
Sigfús segist hafa hugleitt að
draga framboð sitt til baka en síð-
an fallið frá því vegna mikils ut
anaðkomandi þrýstings. Sigfús
var í 3. sæti á Iista sjálfstæðis-
manna við síðustu kosningar og
því varaþingmaður flokksins á
kjörtímabilinu 1995-1999.
„Ég gekk ungur til liðs við Sjálf-
stæðisflokkinn og því búinn að
vera lengi í honum en aldrei sem
nú hefur Sjálfstæðisflokkurinn
farið frá mér, ekki ég frá honum.
Ég hef reynt að beita mér fyrir
breytingum í skattamálum sem
eru í algjörum ólestri. Stað-
greiðsla skatta er í slíkum ógöng-
um að fólk sem er á lágum Iaun-
um, sem margt býr á Norður-
landi vestra, kemur aldrei til með
að ná sér upp úr „drullunni" með-
an þessi skattastefna ræður. Það
er líka alveg yfirgengilega vitlaust
að greidd skulu sömu fasteigna-
gjöld fyrir sams konar fasteign á
landsbyggðinni og á höfuðborgar-
svæðinu, þótt söluverð höfuð-
borgarfasteignarinnar sé helm-
ingi hærra, eða jafnvel meira.
Ríkjandi sjávarútvegsstefna hefur
einnig komið í veg fyrir að sjávar-
fang berist á land og þar með er
allt Ijárstreymi farið. Það verður
ekkert íjárstreymi hér í þessum
litlu plássum úti á landi nema
gegnum fiskinn. Það er alveg
morgunljóst. Sjálfstæðisflokkur-
inn ber ekki einn ábyrgð á því, því
þetta hefur verið stefnan síðan
1984 og síðan þá hafa allir flokk
ar verið í ríkisstjórn nema
Kvennalistinn. Stjórnmálamenn
hafa hvorki afl né kjark til að
breyta þessu og koma þessu í
skynsamlegan farveg," segir Sig-
fús Jónsson. - GG