Dagur - 15.04.1999, Blaðsíða 5
-»S*<>!ÍSfT'
FRÉTTIR
?eei il'ú4’K .ft ttu'o'K i'ý’iwiú'Irt - t
FIMMTVDAGUR 1S. APRÍL 1999 - S
Milljónákostnaðiir í
súginn hjá Kísiliðju?
Rekstur Kísiliðjunnar er á núiii sem stendur.
Iðnaðarráöherra seg-
ist hafa haft efasemd-
ir um nýja vinnsluað-
ferð Kísiliðjunnar
vegna miMls kostnað-
ar.
Ólíklegt er að óbreyttu að ný
vinnsluaðferð við kísilgúrnám úr
Mývatni, svokallaður undan-
skurður, muni verða að veru-
leika. Verulegum fjármunum og
vinnu hefur verið varið í þróun
búnaðarins, en í ársskýrslu Kísil-
iðjunnar segir: „Við ítarlega
skoðun á nýrri aðferð við að
vinna kísilgúr úr Mývatni hefur
komið í ljós að nokkur óvissa er
um hvort hún muni standa und-
ir þeim væntingum sem til henn-
ar eru gerðar. I fyrsta lagi er óvíst
hvort dæling verði möguleg í stíf-
um vindi. I öðru Iagi er óvíst
hvort fyrirtækið standi undir
þeim miklu fjárfestingum sem
væru samfara nýju tækninni.
Síðast en ekki síst er óljóst hvort
nýja aðferðin sé umhverfisvænni
en gamla dælingaraðferðin."
Gamla leiðin áfrain
Framkvæmdastjóri Kísiliðjunnar,
Gunnar Örn Gunnarsson, segir
að af þessum sökum verði nú í
enn auknum mæli lögð áhersla á
skoðun gömlu vinnslutækninnar.
Sú vinna tengist mjög gerð um-
hverfismats sem verkfræðistofan
Flönnun vinnur nú að. „Við höf-
um skoðað hvaða umhverfis-
þættir hafa í raun slegið gömlu
vinnsluaðferðina út af laginu.
Þar var talað um setflutninga og
annað, en í raun og veru fékk
hvorki Kísiliðjan né aðrir tæki-
færi til að mótmæla þessu þegar
skýrslur komu út árið 1993. Við
leggjum ekki árar í bát. Eftir því
sem ég kanna betur þær forsend-
ur sem liggja að baki því að
menn viija loka þessu fyrirtæki,
finnst mér þeim fara mjög fækk-
andi með hverju árinu," segir
Gunnar Örn.
Stækkun vinnslusvæðis á
dagskrá
Með undanskurði var áætlað að
taka miðlagið úr vatnsbotni Mý-
vatns en láta bæði yfirborð og
grunnlag óhreyft. Lítur Finnur
Ingólfsson iðnaðarráðherra
þannig á að nýja niðurstaðan
hafi stytt líftíma verksmiðjunnar
verulega? „Nei. Eg tel að við eig-
um að kanna tii hlítar þessa und-
anskurðarleið en ég hef verið
vantrúaður á að hún gæti heppn-
ast vegna mikils kostnaðar. I
öðru lagi tel ég að við eigum að
leita leiða til að stækka vinnslu-
svæðið í Ytri-Flóa i sátt við Nátt-
úruvernd ríkisins. I þriðja lagi tel
ég rétt að kanna hvort ekki sé
hægt að koma upp annarri at-
vinnustarfsemi í tengslum við
Kísiliðjuna."
Kisilduftið skoðað
Með þessu á ráðherra við hug-
myndir um kísilduftvinnslu en
framundan eru \iðræður milli
stjórnarformanns Kísiliðju og
ráðuneytisstjóra við erlent fyrir-
tæki sem hefur sjmt kísildufti í
Mývatnssveit áhuga. Ráðherra
segir þó að þessi vinna sé aðeins
á frumstigi en hvort tveggja geti
komið til: Að halda tvíhliða starf-
semi áfram eða þá aðeins
vinnslu kísildufts ef ekki náist
sátt um annað.
Námaleyfi Kísiliðjunnar í Ytri
Flóa Mývatns rennur út árið
2010. Hins vegar er hráefni á
þrotum innan 3-5 ára og því
rennur sandurinn hratt í
tímaglasinu. Gunnar Örn segist
verða mjög óhress ef skipta á út
kísilgúrvinnslunni fyrir kísilduft-
ið, en samhliða rekstur væri
æskilegur. „Eg tel að það yrði
mikið slys ef fyrirtækinu verður
Iokað á þeim forsendum að það
hafi óæskileg áhrif á lífríki Mý-
vatns,“ segir Gunnar Örn.
Ánúlli
Aðalfundur var haldinn í Kísiliðj-
unni sl. þriðjudag. Þar kom fram
að 25.734 tonn voru framleidd
af fullunnum kísilgúr í fyrra sem
er um 1.748 tonnum minni
framleiðsla en 1997 eða sem
nemur 6,4%. Utflutningur á ár-
inu nam 25.719 tonnum, sem er
minna en síðustu þrjú ár og er
1.075 tonnum minni sala en
1997 eða 4,1%. Innanlandssala
var 36 tonn sem er 5 tonnum
meira en 1997 en 5 tonnum
minna en meðaltal síðustu 10
ára. Birgðir voru miklar allt árið
eða að meðaltali 3.220 tonn,
sem er um 43% meira en 1997.
Hreinn hagnaður eftir skatta
nam 156 þúsundum króna.
Hreinn hagnaður ársins 1997
var 26,1 milljón króna eða 5,4%
af tekjum þess árs. Akveðið var
að greiða engan arð að þessu
sinni.
- BÞ
SÁÁ hefur verið dæmt til að greiða
fyrrum starfsmanni bætur.
SÁÁ borgi
bætur
SÁA hefur í héraðsdómi verið
dæmt til að greiða Þorkeli Ragn-
arssyni, fyrrum meðferðarfull-
trúa hjá samtökunum, 600 þús-
und króna skaðabætur vegna
uppsagnar sem úrskurðuð var
ólögmæt. Framkvæmdastjóri
SAA sagði honum upp vegna
persónulegra samskipta við
konu sem framkvæmdastjórinn
taldi að væri enn í meðferð, en
dómarinn taldi að svo væri ekki.
Þorkell krafðist 3,5 milljóna
króna skaðabóta auk 300 þús-
und króna miskabóta. Hann var
meðferðarfulltrúi frá vori 1995
og var ráðinn ótímabundið þar
til honum var sagt upp með
bréfi í febrúar 1998. Theodór S.
Halldórsson framkvæmdastjóri
SAA vísaði þar til siðareglna og
bar á Þorkel að hafa átt í per-
sónulegum samskiptum við
konu sem væri í meðferð, en
bann væri Iagt við slfku. Þorkell
bar hins vegar að þau hefðu ver-
ið góðir vinir, að meðferð henn-
ar hefði verið lokið tveimur
árum áður en þau kynntust, að
hann hefði ekki verið áminntur
samkvæmt lögum og ekki fengið
að njóta andmælaréttar.
Uppsögnin taldist ólögmæt
þar sem Þorkell var ekki áminnt-
ur og fékk ekki að tjá sig um
ástæður uppsagnarinnar. — FÞG
MiMI ábyrgð að
aðhafast ekkert
Halldór Ásgrímsson
utanríMsráðherra
svarar gagnrýni
tveggja presta á loft-
árásimar á Halkan
skaga og segir þá
verða að benda á
lausnir á þjáningum
fólks í Kosóvó um leið
og þeir gagnrýna.
Prestarnir séra Geir Waage og
Torfi Stefán Hjaltalín skrifuðu í
gær greinar í Mbl. og Dag, þar
sem Geir gagnrýnir harðlega ís-
lensk stjórnvöld og NATO fyrir
loftárásirnar á Balkanskaga en
séra Torfi gagnrýnir kirkjuna fyr-
ir aðgerðarleysi og að mótmæla
ekki loftárásunum.
Séra Geir Waage segir meðal
annars: „Eg skora á alla Islend-
inga að knýja leiðtoga vora til að
Ieggjast á forystu NATO og
stöðva ósiðlegan og ólögmætan
hernað vesturveldanna á
Balkanskaga áður en þetta einka-
framtak hins nýja eðlisbreytta
hernaðarbandalags kveikir nýjan
heimsófrið í álfunni."
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráö-
herra.
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra var inntur álits á þess-
ari hörðu áskorun og þeirri for-
dæmingu á loftárásunum á
Balkanskaga, sem kemur fram í
greinum prestanna tveggja.
Að aðhafast ekki er ábyrgð
„Það að taka ekki afstöðu er af-
staða út af fyrir sig. Menn verða
að gera sér grein fyrir því að það
að aðhafast í þessu máli felur í
sér ábyrgð. Þeir sem skrifa með
þessum hætti verða líka að gera
sér grein fyrir því að það að að-
hafast ekki neitt er jafnframt
mikil ábyrgð. Ef Evrópa vill Iáta
Milosevic komast upp með það
að fara með hernað gegn sinni
eigin þjóð, þá er það mikil
ábyrgð. Það sem þarna liggur til
grundvallar eru mannúðarsjón-
armið og mannréttindasjónar-
mið gagnvart því fólki sem verð-
ur fyrir árásinni. Það liggur alveg
ljóst fyrir að Milosevic hefur ver-
ið að skipuleggja þennan hernað
gegn fólkinu mánuðum saman.
Ef ætti að gagnrýna NATO fyrir
eitthvað þá væri það að hafa sýnt
þessum einræðisherra allt of
mikla þolinmæði og langlundar-
geð,“ segir Halldór.
Hann bendir á að búið hafi
verið að reyna samningaleiðina
mánuðum saman. Það hafi svo
komið í ljós að ekki hafi verið
hægt að eiga við þetta ástand
nema með því að grípa til að-
gerða.
„Þeir sem gagnrýna nú loft-
árásirnar verði að benda á með
hvað hætti þeir vilja standa við
bakið á fólki í Kosovo, sem
Milosovdc og hans menn myrða,
misþyrma og nauðga með hræði-
Iegum hætti,“ segir Halldór Ás-
grímsson. — S.DÓR
Steingrímnr sterkari SamíylMngu
Sjálfstæðisflokkur og Framsóknar-
flokkur njóta svipaðs fylgis á Norður-
landi eystra fýrir næstu alþingiskosn-
ingar ef marka má nýja skoðanakönn-
un Gallup sem birt var í Ríkisútvarp-
inu í gær. Framsóknarflokkurinn fær
32% en Sjálfstæðisflokkurinn 29,9%.
Hins vegar nýtur VG-framboð Stein-
gríms J. Sigfússonar mikils fylgis.
Steingrímur fær 18,6% eða meira en
Samfylkingin sem fær 18,2%. Frjáls-
lyndir fá 1,3%.
Könnunin var gerð 9.-13. apríl og
myndi niðurstaðan þýða að sjálfstæð-
ismenn fengju aðeins einn kjör-
dæmakjörinn mann. Valgerður Sverr-
isdóttir, Framsóknarflokki, yrði 1.
þingmaður, Halldór Blöndal (D) 2.,
Steingrímur J. Sigfússon (VG) 3.,
Svanfríður Jónasdóttir (S) 4. og Daníel Árnason (B) 5. Mjög lítið
vantar þó upp á að sjálfstæðismenn stælu 5. manni framsóknar og
Tómas Ingi Olrich tryggði sér setu áfram á þingi.
Athygli velur að ríflega 46% þeirra sem kusu Alþýðubandalagið síð-
ast segja kjósa VG núna en aðeins 32% Samfykinguna. Um 60%
stuðningur er við ríkisstjórnina. 10-15% Samfýlkingarsinna eru þar á
meðal og fjórðungur stuðningsmanna VG. - BÞ
Steingrímur J. Sigfússon má vel
við una samkvæmt könnun
Gallup á Norðurlandi eystra.
Svavar ekki skipaðnr í skyndi
Utanríkisráðuneytið sendi irá sér fréttatilkynningu í gær vegna frétt-
ar DV um skipan Svavars Gestssonar sem aðalræðismanns Islands í
Winnipeg. Þar segir m.a. að fullt samráð hafi verið haft \ið stjórnvöld
í Kanada um skipanina og Svavar hafi ekki verið skipaður í skyndi
eins og sagt var í fréttinni. Mikil ánægja er sögð ríkja með skipun sér-
staks sendierindreka í Kanada.