Dagur - 15.04.1999, Síða 2
18 - FIMMTUDAGUR 1S. APRÍL 1999
t
Ðagwr
LIFIÐ I LANDINU
SMATT OG STORT
UMSJON:
SIGURDÓR
SIGURDÓRSSON
Geir H. Haarde.
Vilhjálmur
Hjálmarsson.
GULLKORN
„Menntamálaráð-
herra man allt í
einu eftir náms-
mönnum og Iána-
málum þeirra,
þótt þeir hafi að
vísu barið bumbur
allt kjörtímabilið
og krafist úrbóta.
Auðvitað hefur
þetta örlæti ráð-
herrans ekkert
með kosningar að
gera heldur bætt
hlustunarskilyrði í
ráðuneytinu."
Sverrir Hermanns-
son í grein í Mbl.
Fjármálaráðherra sár
Davíð Oddsson hefur sent Geir H. Haarde í
opinbera pólitíska umræðuþætti til þessa og er
því haldið fram hann sé að æfa og herða Geir
upp, áður en hann tekur við formennskunni í
flokknum. En Geir hefur farið halloka í þess-
um umræðuþáttum og það svo að hann sér
ástæðu til að skrifa sérstaka grein í Mbl. í gær
til að reyna að rétta sinn hlut fyrir þeim Jó-
hönnu Sigurðardóttur og Margréti Frímanns-
dóttur. Það er fullyrðing þeirra um að þessi
ríkisstjórn hafi haft 100 milljörðum kr. meira
úr að spila en sú er sat næst á undan, án þess
að rétta við hlut hinna verst settu, sem fer fyr-
ir brjóstið á fjármálaráðherranum. Það er
sjaldgæft að stjórnmálamenn hlaupi í blöð til
að rétta við það sem hallaði í sjónvarpi.
Lán í óláni
Vilhjámur Hjálmarsson, fyrrum þingmaður og
ráðherra, er einstakur sögumaður og segir
skemmtilegar sögur af sjálfum sér og öðrum.
Nokkrar þeirra eru í bókinni Herra forseti.
Eitt sinn er hann var menntamálaráðherra
hafði hann tekið föt uppúr ferðatösku og var
að fara með þau niður brattan stiga en missti
þau efst í stiganum og þau dúndruðu alla leið
niður. „Ja, það var gagn að þetta voru ekki
sparifötin," sagði Vilhjálmur við lítinn sonar-
son sinn. ,Ja, það var nú enn betra að enginn
var í þeim,“ sagði sá stutti.
í sollinuin
Stjórnmálamenn sem ræða um fólksflóttan af
landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins þver-
taka flestir fyrir það að fólk sé að leita í meira
og fjörugra mannlif í höfuðborginni en á Iitl-
um afskektum stöðum út á landi. Einu sinni
þegar ég var að vinna sem fararstjóri suður á
Spáni hér á árunum áður var meðal gesta hjá
okkur níræður maður. Hann var skráður á
ágætan gististað í rólegu hverfi sem maður
hefði haldið að hentaði vel fyrir svo gamlan
mann. En karlinn kom til mín daginn eftir
komuna og spurði hvort hann gæti ekki fengið
sig fluttan. Eg spurði á móti hvort hann væri
óánægður með hótelið og þetta rólega um-
hverfi. „Piltur minn,“ svaraði hann. „Eg vil
vera þar sem sollurinn er.“
Gagnagrunnuriim
Enn deila menn um gagnagrunninn hans Kára
Stefánssonar. Olafur hagyrðingur á Syðri
Reykjum leggur sitt til málanna:
Gegnunt lífið þykkt og þunnt
þreytir mörg ein bára.
Okkar skýrslur upp á punt
enda í tölvu Kára.
Með góðum leið-
beiningum og
góðri umgengni
þá getur fólk
haldið áfram að
njóta þessa svæð-
is í stórum stíl og
sátt og samlyndi
við náttúruna, “
segir Þorleifur.
Homstranclir
Þorleifur Eiríksson, forstöðu-
maður Náttúrustofu Vestfjarða,
segir að það séu fjölmargir sem
hafi áhuga á Hornströndum og
vilji nýta sér þetta stórskemmti-
lega svæði.
Samræma sjónarmið
„Sumir vilja byggja upp svæðið,
gera betri aðstöðu og byggja
fleiri hús. Aðrir vilja draga mjög
úr því. Það eru til drög að skipu-
lagi sem voru samin 1995 og
‘96. En það hefur í sjálfu sér
aldrei verið samþykkt,“ segir
Þorleifur og bætir við að mál-
þingið sé haldið til þess að fá
fram sem flest sjónarmið.
„Það er meiningin að skrá þetta allt niður og
gera síðan niðurstöður ráðstefnunnar opinberar.
Þær verða síðan grundvöllur fyrir frekari um-
ræðu um það hvernig á að meðhöndla 'svæðið.
Hvernig á að skipuleggja allt frá grunnþjónustu
fyrir ferðamenn, öryggismál, leiðbeiningar, regl-
ur og hvaðeina. Það eru skiptar skoðanir um
þessi mál,“ segir Þorleifur.
Auknar raunsóknir
A ráðstefnunni ræðir Þorleifur um rannsóknir á
Hornströndum. Hann segir að svæðið sé mjög
lítið rannsakað en það sé að aukast með tilkomu
Náttúrustofu Vestfjarða. „I fyrrasumar var unn-
ið að refarannsóknum og grasafræðirannsókn-
um á svæðinu. Þeim verður haldið áfram í sum-
ar auk rannsókna á smádýralífi. Það kemur fram
í erindum annarra á ráðstefnunni að rannsóknir
Homstrandir, nátt-
úra og nýting, erefni
málþings sem ísa-
Jjarðarbær stendur
fyriráísafirði um
helgina.
SPJALL
ströndum, sem eru þar fyrir norðan.“
hafi verið alltof litlar og í raun
ófært að rannsaka svæðið ekki
meira en raunin er.“
Þorleifur segir að náttúra allra
staða sé í raun sérstök en Horn-
strandir séu sérstakur tangi út í
Norður-íshafið og það móti nátt-
úrufarið. Þarna séu frábær fugla-
björg. „Þetta er mjög margbreyti-
legt, þarna eru víkur og dalir. Það
er mjög ólíkt svæðið frá því yst á
annesjum og inn til dalana. Það
er bæði gróður og dýralíf af því að
það miðast við hvaðan það er.
Það er dálítið ólíkt, bæði fuglalíf-
ið og gróðurfarið f Jökulfjörðum
og á hinum eiginlegu Horn-
Ferðamennska skaðar ekki svæðið
Þorleifur segir að umgangur um svæðið hafi lag-
ast, en ferðamennskan sé ekki endilega slæm,
það þurfi að tryggja það að ferðamenn skilji ekki
eftir sig eða skemmi náttúruna á nokkurn hátt.
Svona ferðamennska er oft kölluð græn ferða-
mennska.
„Ferðir eru takmarkaðar á varptíma fuglanna
og þær þarf að tilkynna Náttúruvernd ríkisins.
Ferðahópar sem ganga vel um þurfa ekki að
skaða svæðið á nokkurn hátt. Tilgangur þessarar
ráðstefnu er að svo verði áfram að það verði
ekki skaði að. Með góðum leiðbeiningum og
góðri umgengni þá getur fólk haldið áfram að
njóta þessa svæðis í stórum stíl og sátt og sarh-
lyndi við náttúruna,“ segir Þorleifur. -I’JESTA
FRA DEGI TIL DAGS
Fólk Iýgur aldrei jafti mikið og að lok-
inni veiðiferð, meðan á stríði stendur
og fyrir kosninga r. - Otto von Bismarck
Þetta gerðist 15. apríl
• 1803 var Reykjavík gerð að sérstöku
lögsagnarumdæmi.
• 1912 sökk farþegaskipið Titanic eftir
að hafa rekist á ísjaka.
• 1986 gerðu Bandaríkin loftárás á Líbíu
í hefndarskyni fyrir sprengjuárás í
diskóteki í Vestur-Berlín tíu dögum
áður.
• 1997 létust a.m.k. 343 pílagrímar þeg-
ar eldur kom upp í tjaldborg %að borg-
ina Mekka í Sádi-Arabíu.
• 1998 lést Pol Pot fjöldamorðingi og
leiðtogi Rauðu kmeranna í Kambódíu.
Þau fæddust 15. apríl
• 1810 fæddist Brynjólfur Pétursson
fjölnismaður.
• 1832 fæddist þýski teiknarinn og gam-
anskáldið Wilhelm Bush
• 1843 fæddist bandaríski rithöfundur-
inn Henryjames.
• 1867 fæddist Bjarni Sæmundsson fiski-
fræðingur.
• 1898 fæddist bandaríska blússöngkon-
an Bessie Smith.
• 1912 fæddist Kim II Sung, sem var
allsherjar drottnari Norður-Kóreu frá
1948 til dauðadags árið 1994.
• 1924 fæddist breski fiðluleikarinn og
hljómsveitarstjórinn NeviIIe Marriner.
• 1959 fæddist breska Ieikkonan Emma
Thompson.
Vísa dagsins
I tilefni af áköfum tilraunum fjölda fólks
til að geta barn sem fæðast myndi um
næstu áramót þá orti B.B. þessa vísu:
Við stnokka höfum notað alla þessa öld,
einnig gaf oss pillan dásamlega vörn.
Nú verðttr að nota kvöldið allt í kvöld
efkoma eiga undir aldamótabörn.
Afmælisbam dagsins
Vigdís Finnbogadóttir fæddist í
Reykjavík 15. apríl 1930. Hún nam
frönsku og franskar bókmenntir við
háskólann í Grenoble og Sorbonne í
París, með leikbókmenntir sem sér-
svið. Hún nam Ieiklistarsögu við
Kaupmannahafnarháskóla. Auk þess
tók hún BA-próf í ensku við Háskóla
Islands og Iauk þaðan prófi í upp-
eldis- og kennslufræði árið 1968.
Vigdís var kjörin forseti íslenska lýð-
veldisins áriðl980 og gegndi því
embætti til ársins 1996. Hún er
mikill áhugamaður um ræktun lands
og lýðs.
Frekja!
Mamma hans Palla litla, sem er bara fimm
ára, þurfti að bregða sér skyndilega á fæð-
ingardeildina vegna þess að litli bróðir
vildi fá að komast út úr prísundinni - og
það strax. Enginn tími var til að útvega
barnapössun fyrir Palla, hvað þá meira,
svo hann var bara drifinn með. Þegar nýi
bróðirinn var kominn út fyrir tók fæðing-
arlæknirinn hann upp á fótunum og gaf
honum klapp á bossann.
„Það var lagið!“ sagði þá Palli stóri bróð-
ir einbeittur á svip, „og svo annan á kjaft-
inn! Hvað var þessi frekja hvort sem er að
troða sér þarna inn!“
Veffang dagsins
Nemendur í hagnýtri fjölmiðlafræði við
Háskóla íslands eru með forvitnilega
heiinasíðu á www.ath.is
íÞ.kAi ,
WM\
fjji&lT.
Oflfífi