Dagur - 15.04.1999, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 1S. APRÍL 1999 - 21
LÍFIÐ í LANDINU
Ekkert smá gaman að syngja
Það var mikiðfjör í Laugar-
dalshöllinni þegar
söngvakeppni framhaldskól-
anna stóðyfir. Keppendurfrá
26 skólum stigu þará stokk.
Sú sem sigraði í keppninni
varFlensborgarinn Guðrún
Ámý Karlsdóttir.
Söngvakeppni framhaldsskólanna var
haldin í Laugardalshöll um síðustu helgi.
Guðrún Arný Karlsdóttir, nemandi í
Flensborgarskólanum í Hafnarfirði, sigr-
aði með laginu „Eg mun ávallt elska þig.“
Lagið er eftir Celine Dion og heitir hjá
henni „To Iove you more,“ textann þýddi
hún ásamt Magnúsi Kjartanssyni og
nokkrum vinkonum sínum.
„Þarna var mikið af góðum röddum og
mér fannast það vera margir þarna sem
hefðu átt skilið að lenda í verðlaunasæti,"
segir Guðrún. Það voru 26 skólar sem
sendu keppendur í keppnina. Tvær vin-
konur Guðrúnar sungu bakraddir í Iag-
inu, þær Sigrún Birna og Sandra Lind.
Guðrún segir að undirbúningur sinn fyrir
keppnina hafi ekki verið mikill, fyrir utan
að hafa sungið lagið með Celine Dion á
plötunni. „Það voru þrjár æfingar með
hljómsveitinni svo fór maður og keypti
sér nýjan, fínan kjól og fína skó til að
syngja í. Tíminn Ieið ekkert smá hægt
þarna baksviðs. Það var þungt loft og
ir Guðrún. Söngvakeppni Framhaldsskól-
anna verður sýnd í sjónvarpinu síðasta
vetrardag og sumardaginn fyrsta. -PJESTA
„ Undirbúningurinn
var ekki mikill. Það
voru þrjár æfingar
með hljómsveitinni
svo keypti ég mér
nýjan, fínan kjól og
fína skó til að
syngja í.“
Guðrún Árný Karlsdóttir, sem sigraði í söngvakeppni framhalds-
skólanna. Hún segir að það sé meira gaman að syngja í príma-
donnusýningunni á Hótel íslandi.
maður var alveg ýkt stressaður,“ segir
Guðrún.
Guðrún hefur sungið í kór frá því að
hún var tólf ára og segist hafa rosalega
gaman af því að syngja. Hún vann
söngvakeppni félagsmiðstöðvanna fyrir
tveimur árum og er í prímadonnusýning-
unni, sem er núna á Hótel Islandi. „Við
erum níu stelpur sem tökum lög eftir
„dívur“ alheimsins. Ég syng þar tvö lög
eftir Celine Dion, „AII by my self“ og
„Tell him“, það syng ég reyndar með Soff-
íu systur
minni. Það
er ekkert
smá gaman
að syngja í
þessari sýn-
ingu og ekki
eins mikið
stress og að
syngja í
svona
keppni “ seg- Sigurvegararnir í söngvakeppni framhaldsskólanna sungu lag eftir Celine Dion.
Bræla úr bakaraofni
SVOJUA
ER LIFIÐ
Pjetup St.
Arason
skrifar
Pjetur
svarar
í símann!
Ertu með ráð,
þarftu að spyrja,
viltu gefa eða
skipta?
Pjetur svarar í
símann kl. 9—12.
Síminn er
563 1626 (beint)
eða 800 7080.
Póstfang:
Þverholt 14 Rvk.
;ða Strandgötu 31
Akureyri.
Netfang:
ritstjori@dagur.is
Lesandi skrifaði bréf og sagðist vera nýbúinn að kaupa sér íbúð
með glænýjum heimilistækjum, þar á meðal ítölskum bakara-
ofni, merktum Smeg. „Mér til mikillar furðu er ekki nokkur
leið að nota ofninn, hvorki til að grilla né nokkurs annars, því
að húsið fyllist strax af reyk og matarlykt, sérstaklega ef
blásturinn er notaður. Jafnvel þótt ofninn sé hreinsaður ítar-
lega og allt rifið innan úr honum í hvert skipti áður en hann er
notaður. I gömlu íbúðinni minni var gamall ofn sem hægt var
að grilla í án þes að óeðlilega mikil matarlykt væri í íbúðinni.
Er það eðli-
legt með nýj-
an ofn að
ekki sé hægt
að grilla í
honum? Hað
er til ráða?
Mér þætti
vænt um að
fá svör í blað-
inu.“
Hjá Ieið-
beiningaþjón-
ustu heimil-
anna fengust
þau svör að
spurning væri
hvort þarna sé á ferðinni mánudagseintak af ofninum. „Mér
finnst mjög skrítið ef ekki er haft samband við umboðið. Það
er mismunandi eftir tólum og tækjum hvort á að gera eitthvað
áður en kveikt er á þeim í fyrsta skipti. Það er spurning hvort
hún hafi lesið leiðbeiningarnar nákvæmlega. En í svona tilfell-
um á hiklaust að hafa samband við umboðið."
Eirvík ehf. er umboðsaðili Smeg bökunarofna þar fengust
þau svör að þar á bæ könnuðst menn ekki við að svona gerðist
með nýja ofna. „Matarlykt á ekki að koma úr ofninum nema
hann sé bara drulluskítugur, ef það er einhver gömul drulla
inní ofninum, þá gæti þetta gerst, ef meðferðin á ofninum hafí
verið slæm áður en viðkomandi aðili kaupir íbúðina. Þessir
ofnar eru allir með sjálfhreinsiplötum, bæði í botninum og
hliðum þannig að svona á ekki að gerast. Okkur finnst mjög
leiðinlegt að heyra svona lagað um okkar tæki.“ Viðkomandi
starfsmaður sagðist benda viðkomandi aðila á að hafa samband
hið fyrsta og þá yrði viðgerðarmaður sendur um hæl.
Hjá Neytendasamtökunum fengust þær upplýsingar að það
ætti að vera ársábyrgð á nýjum tækjum og ef að ofninn er gall-
aður þá sé málið að hafa samband við seljanda tæksins og fá
það bætt. „Hún á rétt að vita hvað er að gerast. Það verður að
kanna hvort eitthvað er að tækinu. Ef ofninn er gallaður þá ber
seljandinn ábyrgðina.11
HVAÐ ER Á SEYOI?
200.000 NAGLBÍTAR
Hljómsveitin 200.000 naglbítar ætlar að halda tón-
leika í heimabyggð í kvöld. Tónleikarnir verða í gryij-
unni í VMA og hefjast klukkan 20.00. Aðgangseyrir er
500 krónur fyrir hvern þann gest sem getur sýnt fram
á að hann sé í skóla en 800 krónur fyrir aðra. Aldurs-
takmark er ekkert. A tónleikunum kemur einnig fram
hljómsveitin Kennarabandið. Hljómsveitin hefur ekk-
ert spilað norðan heiða síðan á útgáfutónleikunum en
mun ætla að bjóða upp á einhvetja blöndu af „gömlu
lummunum" af Neondýradisknum og nýjum lögum
sem verða á væntanlegum diski sveitarinnar.
HOFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Paul Simon á Hótel Borg
I kvöld verða haldnir tónleikar á Hótel
Borg, þar sem leikin verður tónlist eftir
bandaríska tónlistarmanninn Paul
Simon. Einkum verður lögð áhersla á lög
sem hann gerði þekkt í félagi við Art
Garfunkel á sjöunda áratugnum. Tón-
leikarnir eru hugarfóstur Stefáns Hilm-
arssonar og Eyjólfs Kristjánssonar. Um
árabil hefur vakað fyrir þeim að setja
upp tónleika sem þessa, með fullri
hljómsveit, og er nú loks komið að því.
Þeir Stefán og Eyjólfur eru kjölfestan í
13 manna hljómsveit, sem annars er
skipuð þeim Ástvaldi Traustasyni píanó-
leikara, Friðriki Sturlusyni bassaleikara,
Jóhanni Hjörleifssyni trommuleikara,
Guðmundi Péturssyni gítarleikara, Birgi
Nielsen slagverksleikara, Snorra Sigurð-
arsyni trompetleikara og saxófónleikur-
unura Jóel Pálssyni og Sigurði Flosasyni.
Um bakraddasöng sjá þau Guðrún
Gunnarsdóttir, Berglind Björk Jónasdótt-
ir og Pétur Orn Guðmundsson. Húsið
verður opnað klukkan 19.30, en þá hefst
miðasala. Miðaverð er 1,200 krónur.
Tónleikarnir hefjast svo klukkan 21.00.
Helgi og hljóðfæraleikararnir
Islandsvinirnir Helgi og hljóðfæraleikar-
arnir ætla að sýna vinskap sinn við land
og þjóð næstu daga. Þessi einlæga vin-
átta kristallast í pílagrímsferð til höfuð-
borgarinnar með viðkomu í Kántribæ á
heimleiðinni. Fyrsti áningarstaður er
Bíóbarinn í Reykjavík í kvöld klukkan
23.00 þar sem flutt verða nokkur sjald-
gæf dægurlög af nýútkomnum diski
hljómsveitarinnar. Dagskráin verður svo
endurflutt á sama stað klukkan 21.00 á
föstudagskvöld. Á laugardag flytur sveit-
in Skagstrendingum erindi sitt klukkan
23.00.
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Islands
í Háskólabíói í kvöld ld. 20.00. Hljóm-
sveitarstjóri er Petri Sakari og einleikar
Judith Ingólfsson-Ketilsdóttir. Einsöngv-
ari er Signý Sæmundsdóttir. Á efnisskrá
eru verk eftir: Shostakovitsj, Prokofiev
og Atla Heimi Sveinsson.
LANDIÐ
Skákfélag Akureyrar
Á fimmtudaginn 15. apríl verður haldið
10 mínútna mót. Sunnudaginn 18. apríl
kl. 14.00 verður haldið 15 mínútna mót.
KK í Vík í Mýrdal
Tónlistarmaðurinn KK (Kristján Krist-
jánsson) verður á tónleikaferðalagi um
landið á næstunni undir heitinu Vorboð-
inn Ijúfi. Haldnir verða samtals 42 tón-
leikar á 44 dögum. KK mun þræða
landsbyggðina og spila á stöðum sem
ekki eru í alfaraleið. Fyrstu tónleikarnir
verða í kvöld á Hótel Höfðabrekku á Vík
í Mýrdal og hefjast þeir ld. 21.00. Við
munum svo fylgjast náið með ferðum KK
hér í þættinum „Hvað er á seyði?“.