Dagur - 15.04.1999, Síða 7

Dagur - 15.04.1999, Síða 7
FIMMTUDAGUR 1 S . APRÍL 1999 - 23 t^wr LÍFIÐ í LANDINU OpelAstra þriggja dyra venst mjög vel þegar maður fer að kynnast honum í návígi. - myndir: ohr. Ótrúlega snaggaralegur með sjálfskiptmgu Mér hafði ekki fundist þriggja dyra útfærslan af Opel Astra sér- lega aðlaðandi bíll í útliti, kunni einhvern veginn ekki að meta hliðarsvipinn. En á dögunum fékk ég einn slíkan til reynsluaksturs, sjálf- skiptan bíl með 1600 rúmsentí- metra vél sem skilar 100 hestöfl- um. Það er skemmst frá því að segja að ég varð bálskotinn í þessum sportlega bíl og álitið á honum snarbreyttist. Hann kom mér skemmtilega á óvart, aksturseiginleikar bíls- ins eru sérdeilis ánægjulegir og ég er meira að segja orðinn ágætlega sáttur við hliðarsvipinn. Þriggja dyra bíllinn er satt að segja ótrúlega snaggaralegur með sjálfskiptingunni. Hún vinn- ur mjög vel með 1600 vélinni og skilar aflinu sérlega vel á þeim hraða sem gengur og gerist á íslenskum þjóðvegum. Hreyfingarnar eru sportlegar, harðar og snöggar og bíllinn bráðlipur. Hann liggur vel á vegi og ræður vel við krappar beygjur á dágóðri ferð án þess að skrika til eða dragi úr jafnvægi. Það er býsna skemmtilegt að aka þessum bíl. Vinnslan og aksturseiginleikarnir gera það að verkum að maður hefur það frekar á tilfinning- unni að maður sé að aka sportbíl en bíl sem byggður er á grunni vinsæls Ijölskyldubíls. Stýrið er hægt að hækka og lækka og eins er hægt að draga það aftur eða ýta þvf fram - ánægjuleg nýjung hjá Opel sem kynnt var í þess- ari kynslóð Opel Astra, nýjung sem aðrir bíla- framleiðendur eru að taka upp einnig. Þetta er bíll sem hentar ágætlega einstakling- um eða pörum en síður fjölskyldufólki með lítil börn, þar sem erfiðara er að ganga um aftursæt- in þegar bíllinn er þriggja dyra en fimm dyra, þrátt fyrir að hliðarhurðirnar tvær séu mun stærri en þegar hliðarhurðirnar eru Ijórar. Þessi bíll getur Iíka hentað sem aukabíll með stærri fólksbíl eða jeppa. Hins vegar er ágætt að ganga um aftursætin í þriggja dyra Astra miðað við ýmsa aðra bíla. Þetta er vissulega upplagður bíll fyrir unga pilta sem vilja traustan en sportlegan bíl á fólksbílaverði. Líknarbelgir framan við framsæti og ABS hemlar eru staðalbúnaður. Astran er einnig með Qarstýrðum samlæsingum, en beita þarf handafl- inu til að opna og loka hliðarrúðunum. Astra er búin PRS fótstigalosun sem tekur fótstigin úr sambandi lendi bíllinn í hörðum árekstri að framan. PRS fótstigalosunin er búnaður sem Opel hefur hannað og er framleiddur undir einkaleyfi fyrirtækisins. Þrjú þriggja punkta ör- yggisbelti eru í aftursæti bílsins og sömuleiðis þrír höfuðpúðar. A heildina litið er þetta ákjósanlegur valkost- ur. Verðið á reynsluakstursbílnum er 1.609 þús- und krónur. Þriggja dyra bíllinn er einnig boðinn beinskiptur á kr. 1.522 þúsund og með 1,2 lftra vél kostar hann beinskiptur 1.281 þúsund. BILAR Veðrið í dag... Norðaustan stinningskaldl eða aUhvasst, en hægari vindnr fram eftir degi suðaustan- og austanlands. Víða snjókoma eða él, en úrkomulítið suðvestantil síðdegis. Frost 0 til 5 stig. Blönduós Akureyri CCL. mT-5 sjO- -10 o- ■ 1 1, ■ .1,1 Mið Rm Fös \ U/7 Mið Fim Fös Mán Þri Egilsstaðir VV / / I \ Bolungarvík Reykjavík Kirkjubæjarklaustur CSL. JJ 15 5 10 í 0- -5 -5- o ! -io- I Mið Fim Fðs Lau Mán Þri Mið Fkn Fðs Lau Mán Þri /"/ í í í í I ^ \ í l v.../ í ; R 7 \ \ \ Stykkishólmur Stórhöfði R fít í R / *> Veðurspárit rv. ..Jí í í í í %%% 14.04.1999 Vgf VEÐURSTOFA Y ÍSLANDS Línurit: Lofthiti, spágildi fyrir mi> nætti og hádegi. Súlurit: Úrkoma, uppsöfnu> i 12 klst. Vindörvar: Vindur blæs inn a> punkti. Vindhra> i er tákna> ur me> skástrikum; heilt strik táknar 5 m/s en hálft 2.5 m/s. fi ríhyrningur táknar 25 m/s. Dæmi: » táknar nor> vestanátt, 7.5 m/s. Færð á vegum í gærkvöld var ágæt færð á öllum þjóðvegum landsins. SEXTÍU OG Sex NORÐUR

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.