Dagur - 01.05.1999, Page 1
Verð í lausasölu 200 kr.
82. og 83. árgangur -81. tölublað
Laugardagur 1. maí 1999
Konur andvígar
nekt arbúUimum
Hert eftirlit
með ráð-
hemun
Samkvæmt heimildum Dags hef-
ur löggæsla við heimili utanríkis-
og forsætisráðherra verið aukin
eftir að loftárásir NATO á
Júgóslavíu hófust fyrir nokkrum
vikum. I flestum aðildarríkjum
NATO hefur öryggisgæsla ráð-
herra verið stórhert vegna átak-
anna á Balkanskaga enda hafa
sumir þeirra fengið hótunarbréf.
Ekki hefur heyrst um neitt slíkt
hér á landi. Þess má einnig geta
að dauðasveitir Serba segjast
bera ábyrgð á morði á breskri
fréttakonu á dögunum en það
hefur ekki verið sannað.
Nágrannar utanríkisráðherra
sem Dagur ræddi við segja að
lögreglubíll sé þar reglulega í eft-
irlitsferð og fylgist með umferð-
inni við heimili ráðherrans. Lög-
reglan hefur ekki viljað staðfesta
það opinberlega enda ekki venja
að gefa slíkt upp af öryggisástæð-
um. — S.DÓR
í dag er I. maí og óskar Dagur landsmönnum til hamingju með hátíðardag verkalýðsins. Þessir menn við
Hafnarfjarðarhöfn létu ekki sitt eftir liggja þegar Ijósmyndara Dags bar að garði en vonandi njóta þeir frídagsins í
dag líkt og mikill meirihluti íslendinga. - mynd: e.ól.
Meirihlutiim telur nóg
komið af nektarbúll-
um. „Sá er eldurinu
heitastur sem á sjálf-
um brennur,“ segir
borgarstjóri.
Samkvæmt niðurstöðum nýrrar
skoðanakönnunar á vegum Dags
telur meirihluti Iandsmanna, eða
56% þeirra sem afstöðu taka, að
stjórnvöld eigi að sporna við fjölg-
un erótískra dansstaða, en 44%
að það eigi þau ekki að gera. Þjóð-
in er klofin í afstöðunni til máls-
ins á annan hátt, því karlar og
konur eru algerlega á öndverðum
meiði.
Könnunin náði til 600 manns
og var svarhlutfallið 77%. Af
heildinni voru 20,1% óákveðnir,
hlutlausir eða neituðu að svara,
44,6% fylgjandi hugmyndinni en
35,3% andvígir. Af þeim sem af-
stöðu tóku voru því 55,8% fylgj-
andi en 44,2% andvígir.
Eftirspumin er fyrir hendi
Asgeir Davíðsson, veitingamaður
á erótíska dansstaðnum Maxim’s í
Hafnarstræti, segir niðurstöðurn-
ar ekki koma á óvart. „Ég get ekki
annað séð en að það sé í góðu lagi
að það bætist fleiri svona staðir
við. Eftirspurnin er fyrir hendi,
því ég veit ekki annað en að allir
þessir staðir gangi sæmilega og
miðað við reynsluna hér er að-
sóknin ekki mikið minni hjá kon-
um en körlum.”
Asgeir segir muninn á afstöð-
unni eftir kynjum mikinn, en að
afstaða kvennanna sé vart trú-
verðug. „Ef kona fer úr fötunum
ætlar allt að ganga af göflunum
hjá kynsystrunum. Ef það kemur
skip með 1.000-2.000 ítölskum
tindátum þá er kvenfólkið ekki
beint til fyrirmyndar. Imyndaðu
þér upphrópanirnar hjá konum ef
það kæmi skip með þúsund
föngulegum dömum og karlarnir
eltust við þær um allan bæ. Ætli
það yrði ekki kallað viðbjóðslegt
athæfi,“ segir Ásgeir. - FÞG
Munurinn á
afstöðu kynjanna
til málsins er
mjög afgerandi.
Meðal karla voru
19,4% óákveðnir,
hlutlausir eða
neituðu að svara,
en af þeim sem
tóku afstöðu
voru 38,3% fylgj-
andi hugmynd-
inni um að
spoma við fjölg-
un erótísku dans-
staðanna, en
61,7% voru and-
vígir. Meðal kvenna voru 20,9%
óákveðnar, hlutlausar eða neituðu
að svara, en af þeim sem tóku af-
stöðu voru 73,1% fylgjandi hug-
myndinni en 26,9% andvígar.
LítUlækkandi fyrir konur
Reykjavíkurborg fyrirhugar við-
ræður við dómsmálaráðuneytið
um nauðsyn þess að lagastoð
verði sett undir rekstur erótískra
dansstaða. Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borg-
arstjóri segir í
samtali við Dag
um niðurstöður
könnunarinnar
að hún hefði
haldið að and-
staðan yrði meiri
en þarna kemur
fram, miðað við
þau viðbrögð sem
mæta henni í
þessu máli.
„Munurinn er
þó afgerandi. Og
það kemur mér
ekki á óvart
hversu mikill munur mælist á af-
stöðu kynjanna. Sá er eldurinn
heitastur sem á sjálfum brennur.
Eg held að konum finnist þessir
staðir vera lítillækkandi fyrir kon-
ur og lítill menningarauki. Mér
virðist að karlar hafi ekki eins af-
gerandi afstöðu til málsins og
konur. Þessi munur endurspeglar
að þetta mál brennur á kynjunum
með mismunandi hætti,“ segir
Ingibjörg Sólrún.
Konum finnst nóg komið af „nekt-
arbúllum", en karlar telja óþarft að
stjórnvöld sporni við fjölgun þeirra.
Forvitnileg viðtöl og fleira gott efni
er að finna í helgarblaði Dags.
Guðmimdur
vill í Evópu-
sambandið
„Því miður er það svo að sumir
forystumenn verkalýðshreyfing-
arinnar virðast vera uppteknari
af því að tryggja eigin stöðu en
að sinna hagsmunum félags-
manna sinna," segir Guðmundur
Gunnarsson, formaður Rafiðn-
aðarsambandsins, í opinskáu
helgarviðtali um verkalýðsbarátt-
una og stjórnmálin á þessum há-
tíðisdegi verkafólks.
Guðmundur lýsir þeim ein-
dregna vilja sínum að Islending-
ar gangi í Evrópusambandið og
telur að „það væri til mikilla
hagsbóta og þá sérstaklega fyrir
íslenska launamenn því þar er
ákvarðað um réttindi þeirra og
fyrirtæki og stjórnvöld eru skikk-
uð til að haga sér innan ákveð-
inna marka - og það er svo sann-
arlega þörf á því hér á Islandi."
Þá eru Islendingaþættir sérstak-
lega helgaðir 1. maí að þessu
Pjetur
Sigurðsson
knatt-
spyrnudóm-
ari er fyrsti
Islendingur-
inn sem tek-
ur þátt í úr-
slitakeppni
HM í fótbolta. Hann er nýkom-
inn úr öngþveitinu og agaleysinu
í Nígeríu og lýsir reynslu sinni í
viðtali við helgarblað Dags.
Tugir manna stunda sadó-
masókisma hér á landi. Dagur
ræðir við einn fjölskylduföður
sem varpar ljósi á þessa starf-
semi.
Og svo er það auðvitað allt hitt
efnið í helgarblaðinu - sönn
dómsmál, bókahillan, flugur,
bíórýni, poppsíðan, krossgátan
og margt margt fleira.
Góða helgi!
Sjáumst í Kosninga-
miðstöðvunum
Akureyri: Skipagötu 18.
Húsavík: Snælandi.
Dalvík: Hafnarbraut 7.
Breytum rétt! samfyikinging-lgg