Dagur - 01.05.1999, Side 4
4- LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1999
Slægingarþjónusta á Isafirði
Nýtt fiskvinnslufyrirtæki, Fisktak, hefur hafið starfsemi á Isafirði, en
í nýju húsnæði, þ.e. í húsnæði rækjuverksmiðjunnar Rits, sem hætt
hefur starfsemi. I húsinu verður rekin margþætt þjónusta, m.a. slæg-
ingarþjónusta. Það er Gunnar H. Guðmundsson, sem áður stjórnaði
Fiskverkun Asbergs í Hnífsdal, sem er eigandi þessa nýja fyrirtækis,
en starfsemi Asbergs hefur verið flutt suður.
Ný flugstöðvarbyggmg
Flugstöðvarbyggingin á
Isaljarðarflugvelli hefur
verið stækkuð verulega,
og var viðbótin nýlega
tekin formlega i notkun
að viðstöddum sam-
gönguráðherra, flug-
málastjóra, þingmönn-
um kjördæmisins, gest-
um og fyrirmönnum
kjördæmisins. Heildar-
kostnaður nam 82 millj-
ónum króna, sem er
töluvert umfram kostn-
ísfirðingar hafa fengiö nýja flugstöð. aðaráætlun. Hlutfall
flugfarþega er eðlilega
mjög hátt á Vestíjörð-
um, eða 11 farþegar á íbúa á ári, meðan hlutfallið er 7 við Eyjaíjörð
og á Austijörðum, en er eðlilega mun hærra í Vestmannaeyjum.
Isfang færir út kvíarnar
ísfang á Isafirði hefur keypt meirihluta í rækjuverksmiðjunni Meleyri
á Hvammstanga af Guðmundi Tr. Sigurðssyni en fyrirtækið er elsta
starfandi rækjuverksmiðja landsins. Kaupin treysta enn frekar marg-
þættan rekstur ísfangs, en það er m.a. í útfiutningi á fiski og skelfiski
auk útflutnings rækju af togurum sem eru á veiðum á Flæmingja-
grunni við Nýfundnaland.
Valdabarátta í Básafelli?
Seld hafa \'erið um 7,7%
hlutabréfa í Básafelli á Isa-
firði fyrir 58 milljónir
króna og er kaupandi Guð-
mundur Kristjánsson, út-
gerðarmaður í Rifi á Snæ-
fellsnesi, en hann gerir
m.a. út línufrystiskipið
Tjald. Talið er að þessi
kaup Guðmundar séu gerð
með tilstilli Olíufélagsins,
Ishafs og ýmissa Flateyr-
inga, en fullyrt er að Arnar
Kristinsson, framkvæmda-
stjóri Básafells, njóti ekki
lengur stuðnings stærsta
hluthafans, Olíufélagsins.
Úr Framhaldsskóla í menntaskóla
Um 150 nemendur og kennarar Framhaldsskóla Vestfjarða hafa lagt
fram undirskriftalista til skólanefndar skólans. Þar er skólanefndin
hvött til þess að breyta nafni skólans í Menntaskólinn á ísafirði eða í
Skóla Jóns Sigurðssonar, sem væri vel við hæfi, en Jón Sigurðsson
forseti var sem kunnugt er Vestfirðingur, fæddur að Hrafnseyri við
Arnarfjörð. Framhaldsskólinn hét um tíma Menntaskólinn á Isafirði
(MI) en fyrsti skólameistari hans var Jón Baldvin Hannibalsson, nú
sendiherra í Washington. A skólanefndarfundinum var samþykkt að
stofna Hollvinasamtök skólans og að stuðla ákveðið að breyttri ímynd
hans.
Gamla sjúkrahúsið á ísafirði fær
styrk
Sjúkrahúsið fékk húsfriðunarstyrk.
Gamla sjúkrahúsið á Isafirði, sem fær innan tíðar hlutverk safnahúss,
fékk nýverið tveggja milljóna króna styrk úr Húsfriðunarsjóði, en hús-
ið er nú í mikilli endurbyggingu vegna þessa nýja hlutverks, en það
var byggt 1925. Önnur hús sem fengu svo háa styrki eru m.a. Fríkirkj-
an í Reykjavík, sem er byggð 1913, Þingeyrarkirkja í Húnavatnssýslu.
sem er byggð á árunum 1864 - 1877, Breiðbólstaðarkirkja í Fljótshlíð
í Rangárþingi, sem er byggð 1912 og elsta hús Kaupfélags Þingeyinga
á Húsavík, sem var byggt var 1883.
Ttopir
Davíð Oddsson á stjórnmálafundi á Akureyri í fyrrakvöld. Fögnum nýjum hugmyndum í kvótamálum sem geta
stuðlað að sátt. - mynd: sbs
Samfylkmgm
jmfst á óánægju
Davíð gagnrýndi Sam-
fylMngima harkalega á
fimdi á Akureyri. IIún
væri ótrúverðug og til-
húiu að spreugja upp
góðau árangur í efna-
hagsmálum.
„Samfylkingin þrífst á óánægju og
öfund og fer ekki að ganga vel
nema illa gangi f landinu. Við
skulum ekki heldur kjósa þetta
fólk svo ekki fari að ganga illa hjá
okkur,“ sagði Davíð Öddsson, for-
sætisráðherra og formaður Sjálf-
stæðisflokksins, á almennum-
stjórnmálafundi á Akureyri í fyrra-
kvöld. I framsögu sinni þar skaut
hann föstum skotum að Sam-
fylkunni, einni stjórnmálaafla.
Sagði hana vera ótrúverðuga á
ýmsa lund. A hinn bóginn lofaði
hann góðan árangur ríkisstjórnar-
innar undir fory'stu Sjálfstæðis-
flokksins.
Fögniun sáttahugmyndum
„Okkur hefur miðaða áleiðis, en
hvort eigum við í kosningunum nú
að velja út frá fagurgala og meitl-
uðum setningum eða því sem við
þekkjum og höfum sjálf reynt,“
sagði Davíð í framsöguræðu sinni.
Hann gerði þar málefni öryrkja og
aldraðra í því samhengi að sér-
stöku umtalsefni og benti á að
kjör þeirra hefðu batnað um nær-
fellt fjórðung á síðustu árum. Það
væri mun betri árangur en þeir
flokkar sem standa að Samfylking-
unni hefðu náð þegar þeir voru við
völd. Þó sagði Davíð að fjarri væri
í sfnum huga að fólk í þessum
þjóðfélagshópum lifði við neinar
vellystingar.
Davíð sagði að hverri nýrrí hug-
mynd sem fram kæmi í kvótamál-
um myndi Sjálfstæðisflokkurinn
taka fagnandi gæti hún stuðlað að
því að meiri sátt næðist um núver-
andi stjórnkérfi fiskveiða, sem
hann annars lofaði fyrir ábata-
semi. Hugmyndir Samfylkingar í
kvótamálum sagði hann vera
óskýrar. Talað væri um að koma á
fót nýju fiskveiðistjórnarkerfi með
byggðatengingu árið 2002 án þess
að skýrt væri hvað byggi að baki
þessum hugmyndum.
Össitr er inni í kliikkiumi
„Eg vil að börnin okkar Iærí sem
mest, en ég vil ekki að þau læri og
reyni hvernig verðbólgan var og
er,“ sagði Davíð og Iagði áherslu á
að ríkjandi stöðugleiki og hagvöxt-
ur í efnahagslífi þjóðarinnar héld-
ist. Undanfarin fjögur ár hefði til
dæmis verið 4,5% hagvöxtur hér á
Iandi sem væri helmingi meira en
í ríkjum ESB. „Þetta ætlar Sam-
fylkingin hinsvegar að sprengja
allt upp og er tilbúin með tíma-
sprengjuna, búið er að fóðra hvell-
hettuna og inni í klukkunni er
Össur Skarphéðinsson." — SBS
Kjósendiun á Vest-
fjÖrðuin snarfækkar
Á sama tíina og fólki
fjölgar á kjörskrá nm
5% á landinu öllu
fækkar því um 10% í
Vestíjarðakjördæmi.
Kjósendur á öllu landinu í alþing-
iskosningunum 8. maí eru
201.525 og hefur þeim fjölgað um
9.552 si'ðan 1995 eða 5%. Þetta er
í fyrsta sinn sem kjósendur á Is-
Iandi eru yfir tvö hundruð þúsund.
A sama tíma hefur kjósendum á
Vestfjörðum fækkað um hvorki
meira né minna en 635 manns eða
10%. A kjörskrá í Vestfjarðakjör-
dæmi eru 5.699 manns þannig að
hér er ekki um neitt smáræði að
tala. Þessi staðreynd hlýtur að gera
frambjóðendum nokkuð erfitt fyr-
ir, því ekki vita menn hvaða flokka
hinir brottfluttu kusu síðast og því
mikið breytt pólitískt landslag sem
frambjóðendur eru að vinna í. En
kjósendum fækkar umtalsvert víð-
ar á landinu.
5.000
4.000
3.000
2.000
1.000
Vesturíjaröa- Noröurlands- Austfjaröa-
kjördœmi kjördæmi kjördæmi
vestra
Liðlega 200 þúsund íslendingar
eiga rétt á að kjósa í þingkosning-
unum um næstu helgi.
MIMI fjölgun í Reykjanesi
Næst mest fækkunin hefur orðið í
Norðurlandskjördæmi vestra eða
um 351 sem er 4,9%. I Austljarða-
kjördæmi er líka umtalsverð fækk-
un á kjörskrá eða 382 sem er 4,2%.
I Vesturlandskjördæmi fækkar um
0,7% og í Suðurlandskjördæmi um
0,2%, og í Norðurlandskjördæmi
eysta fækkar á kjörskrá um 0,2%.
Greinilegt er að þessi straumur
utan af Iandi hefur að stærstum
hluta stöðvast í Reykjaneskjör-
dæmi, því þar hefur fjölgað á kjör-
skrá um 6.142 eða 12,6%. í
Reykjavík hefur fjölgað á kjörskrá
um 4.833 sem er 6,2%.
Nýir kjósendur, þeir sem orðið
hafa 18 ára á kjörtímabilinu, eru
17.668 og kjósendur sem búsettir
eru erlendis eru 7.984.
Fjölmeiiiiur hópur eldri
borgara
Af 201.525 manns á kjöskrá eru
29.745 á aldrínum 18 til 24ra ára,
21.028 á aldrinum 25 til 29 ára,
21.335 á aldrinum 35 til 39 ára,
38.960 á aldrinum 40 til 49 ára,
26.797 á aldrinum 50 til 59 ára og
41.599 manns eru 60 ára og eldri.
Á þessu sést að hópur eldri borg-
ara er stór og því skiljanlegt að
stjórnmálaflokkarnir keppast nú
um að lofa þeim bættum kjörum
en þeir, ásamt öryrkjum hafa
kvartað mjög yfir kjörum sínum
undanfarið. — s.nÓR