Dagur - 21.05.1999, Blaðsíða 2

Dagur - 21.05.1999, Blaðsíða 2
18-FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 1999 Ttoptr LÍFIÐ í LANDINU L ■ ÞAfl ER KOMIN HELGI Hvað ætlar þú að gera? „/afmæli í Árbót," segir Guðmundur Bjarnason. Afmæli í Aðaldal „Það gæti farið svo að ég fari norður í land um helgina," segir Guðmundur Bjarnason, framkvæmastjóri Ibúðalánasjóðs. „Eg er boð- inn í afmæli til mágs míns Hákonar Gunnars- sonar og hans konu Snæfríðar Njálsdóttur í Arbót í Aðaldal, en þau halda uppá samtals 100 ára afmæli sitt. Þetta er svona inni í myndinni - og einnig ef veður verður gott hér sunnanlands að fara eitthvað í gönguferðir, Iæt mér detta í hug að ganga um Leggjar- brjót, sem er leiðin úr Þingvallasveit og niður í Botnsdal í Hvalfirði. Þriðji möguleikinn er sá að ég verði að vinna um helgina. I nýju og umfangsmiklu starfi hjá stórri stofnun þarf að setja sig inn í margt.“ „Fótboltinn á fullu, “ segir Atli Eðvaldsson. Fátt nema fótbolti „Núna kemst fátt annað að hjá mér en fót- bolti,“ segir Atli Eðvaldsson, þjálfari KR, sem sigraði sem kunnugt er ÍA í 1. leik íslands- mótsins sl. þriðjudag. „Við verðum með æf- ingar á föstudag, laugardag og sunnudag og þurfum að Ieggja okkur alla fram. Það er hug- ur í mönnum eftir að hafa unnið fyrsta leik mótsins, sem strax gaf okkur þrjú stig. En Ieikurinn á móti Leiftri á mánudaginn verður líka erfiður, sjálfsagt einn sá erfiðasti í sumar. Svona verður nú helgin hjá mér, fótbolti í fyrsta, öðru og þriðja sæti og síðan reyni ég Iíka að vera eitthvað með krökkunum. Með þessum hætti sé ég að næstu fjórir mánuðir verði hjá mér“ Hreinn Loftsson lög- maður ætlar að slappa af um helgina. Stúdentsveisla og ökuferð „Á laugardaginn ætla ég að mæta í útskriftar- veislu hjá frænda mínum sem er að verða stúdent. Síðan er ég að hugsa um, eftir því sem færi er á, að aka út úr bænum á sunnu- daginn og ferðast eitthvað um Suðurlandið með fjölskyldunni," segir Hreinn Loftsson lögmaður. Hreinn hefur komið inn f stjórnarmyndun- arviðræðurnar íyrir hönd Sjálfstæðisflokksins og segist alltaf vera til taks ef þörf er á. Hann reiknar þó með því að vinna lögmannanna verði langt komin í dag og því gefist tóm til að slappa af um helgina. Fyrst fór fólk að veita Hauki Ingibergssyni eftirtekt þegar hann var gítarleikari í hljómsveit Steina spil á Selfossi fyrir rúmum tuttugu árum. Þá var hann, einsog sjá má, með heldur ríflegri hárvöxt en í dag og ekki fjölgaði hárunum þegar hann fór að Samvinnuskólanum á Bifröst, sem hann stýrði um langt skeið. í dag er Haukur orðinn helsti mógúllinn i ríkiskerfinu og hárin orðin enn færri, sem auðvitað er 2000 vandi í eðli sínu. LÍF OG LIST Ævlsaga langömmu minnar „Auðvitað þarf ég þessa dag- ana að ein- beita mér að skólabókum og þá nefni ég sérstaklega Híbýli vindanna eftir Böðvar Guðmundsson, en hún er valbók í íslensku á 3. ári,“ segir Steinunn Vala Sig- fúsdóttir, sem nýlega var kjörin Inspector Scholae við Mennta- skólann á Akureyri. „Af því sem ég vel mér sjálf til lestrar er ævisaga langömmu minnar hér við hendina, Minningar Huldu Á. Stefánsdóttur, frá Möðruvöllum í Hörgárdal en hún stýrði Iengi Húsmæðraskólanum á Blönduósi. Mér finnst gaman að lesa þá bók, þó ekki sé nema til þess að kynnast betur ættboga mínum og uppruna. Þá er ég einnig að lesa Sv'artar fjaðrir, ljóðabók Davíðs Stefánssonar, sem mér finnst æðisleg." Árstíðir Vivaldi „1 annríki prófdaganna gef ég mér ekki tækifæri til þess að hlusta á aðra tónlist en eitt- hvað rólegt og Ijúft fyrir svefninn. Þar má helst nefna Enyu, þá þýsku ágætu söngkonu. Einnig er ég larin að leggja mig eftir sígildri tónlist og nú er ég með við höndina geisladisk með Árstíðunum fjórum eftir Vivaldi. Einnig hlusta ég gjarnan á diskólög fyrri ára, þannig að þú heyrir að tónlistarsmekkur minn er býsna fjölbreyttur.“ Algjör draumur „I sjónvarpi horfi ég ekki á ann- að en Vini á Stöð 2, sem mér þykja hreinasta snilld. Um dag- inn fór ég í bíó og sá þá ítölsku myndina Lífið er yndislegt, sem margir hafa lát- ið vel af og ég er sjálf komin í þann hóp. Þessi mynd var algjör draumur. Annars finnst mér alltaf jafn gaman að sjá það sem jafnaldrar manns eru að gera og sérstaklega nefni ég þar myndbandið sem strákarnir í hljómsveitinni 200 þúsund naglbítum gerðu - en almennt talað finnst mér hið besta mál hve vel þeir komast frá v'iðfangsefnum sínum.“ -SBS. ■ fra degi Orð eru líka gerðir. Ludwig Wíttgenstein Þettagerðist21.maí • 1908 var fyrsta hryllingsmyndin sýnd í kvikmyndahúsi (Doktor Jekyll og herra Hyde). • 1924 myrtu tveir háskólanemar í Chicago 14 ára dreng „að gamni sínu“. • 1925 var bjórsala leyfð í Kanada. • 1927 Iauk Charles Lindbergh flugferð sinni yfir Atlantshafið, en áður hafði enginn Hogið þessa leið einn síns Iiðs. • 1983 var Ásmunarsafn við Sigtún í Reykjavík opnað formlega. • 1991 sagði Mengistu Haile Mariam, forseti Eþíópíu, af sér og flúði í útlegð. • 1991 var Rajiv Gandhi, fyrrv'erandi for- sætisráðherra Indlands, myrtur í sprengjuárás. Þau fæddust 21. maú • 1688 fæddist enska skáldið Alexander Pope. TIL DAGS • 1775 fæddist Lucien Bonaparte, bróðir Napóleons Frakklandskeisara. • 1817 fæddist þýski heimspekingurinn Rudolf Hermann Lotze. • 1844 fæddist franski málarinn Henri Rousseau. • 1855 fæddist beigíska skáldið Émile Verhaeren. • 1904 fæddist bandaríski djasspíanóleik- arinn og lagahöfundurinn Fats Waller. • 1921 fæddist rússneski kjarneðlisfræð- ingurinn og mannréttindafrömuðurinn Andrei Dimitrijevitsj Sakharov. Vísa dagsins Aðalsteinn Sigurðsson lét okkur þessa vísu í té í tilefni af nýafstöðnum kosning- um: Vígreifir boða þeir framtíð fína með farsæld og batnandi kjönim. Þeir lofu því upp í ermina st'na með ánægjubros á vörum. Afmælisbam dagsins Hallmar Sigurðsson, Ieikari, fædd- ist á Húsavík þann 21. maí árið 1952 og ólst þar upp. Faðir hans er Sigurður Hallmarsson Ieikari þannig hefur hann fengið leikhús- bakteríuna í bernsku. Hallmar út- skrifaðist frá Menntaskóla Akureyr- ar 1972 en eftir stúndentspróf fór hann til Svíþjóðar og var þar í nokk- ur ár við nám í leikhúsfræðum. Hallmar hefur unnið ýmsa vinnu um dagana, verið trillukarl, unnið sem barnakennari og starfað sem leikari og leikhússtjóri. Hallmar er mikill hestamaður. „Ó nei, góði“ Það var fjölmenni á barnum og allt á fullu þegar sjálfur andskotinn kemur inn um dyrnar eins og skrattinn úr sauðar- leggnum. Þegar fólk áttar sig á því hver er þarna á ferðinni verður uppi fótur og fit og allir flýta sér út. Nema einn gamaÍl maður, sem situr hinn rólegasti við bar- inn og sýpur á bjórnum sínum. Kölski gengur til mannsins og spyr hvort hann sé ekki hræddur við sig. „O nei, góði,“ segir hann og hnussar. „Ég er nú búinn að vera kvæntur henni ömmu þinni í 29 ár, og hvers vegna í andskotanum ætti ég þá að vera hræddur við þig?“ Veffang dagsins Það getur verið erfitt að heita Stephen King ef maður er ekki sá eini frægi Stephen Ixing. Nokkrir alnafnar hroll- vekjuhöfundarins hafa safnað saman hryllingssögum af sjálfum sér, tengdar nafninu, og komið þeim á Netið. Slóðin er: vvwvv. isisw3.com/sking/

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.