Dagur - 21.05.1999, Qupperneq 5
I
Tfc^nr
FÖSTUDAGVR 21. MAÍ 19 9 9 - 21
LEIKHÚS
KVIKMYNDIR
TÓNLIST
SKEMMTANIR
Vorvindar ‘ 9 9
Háskólabíó og Regnboginn
standa jyrirkvikmyndahátíð-
inni Vorvindar ‘99 sem hófst í
gærog verða þarm.a. myndir
eftir þá Ken Loach og Hol
Hartley sem eiga sérefalaust
allnokkra aðdáendurhérá
landi...
Vorvindarnir standa til 9. júní og verða alls
sex myndir sýndar á þeim tíma á 7 og 9 sýn-
ingum en þær koma allar frá Bandaríkjun-
um og Evrópu.
l.vika: 20.-26.maí
Henry klaufi
Byijað er að sýna bandarísku myndina
„Henry klaufa" í leikstjóm Hal Hartleys í
Háskólabíói. Sérvitringurinn Hartley, sem
mun vera í föngulegum hópi Islandsvina að
því er fram kemur í kynningu frá bíóunum,
hefur ekki tekið sér kvikmyndamógúlana í
HoIIywood til fyrirmyndar og þykir fara
ótroðnar slóðir í Henry klaufa líkt og öðrum
myndum sínum (m.a. Trust og Simple
Men). Myndin fjallar um öskukall, sem ef til
vill er snillingur, fyrrverandi fanga, kynóða
systur og fleira fólk.
Englar
Spænsk/bandarísku myndinni Englar
(Talk of Angels) í Regnboganum er leikstýrt
af Nick Hamm en handritið er byggt á met-
sölubók Kate O’Brian, „Mary Lavelle". írsk
ráðskona tekur að sér að annast böm
spænsks aðalsmanns um það leyti sem
spænska borgarastyijöldin er að heíjast.
Vestur
Vestur (Westem) í
leikstjóm Manuel Poiri-
er er óhefðbundin vega-
mynd ffá Frakklandi.
Hún lýsir ferðalagi
katalónska skósölu-
mannsins Paco um
Brittany héraðið og
samskiptum hans við
rússneska puttaferða-
langinn Nino. Paco og
Nino fara heldur í taug-
amar á hvor öðmm í
fyrstu en verða smám
saman sálufélagar í leit
sinni að ástinni.
Henry klaufi, mynd Hal Hartleys er um öskukarl, fyrrverandi fanga, kynóða
systur og fleira fólk
Elsti sonurinn í fjölskyldunni snýr aftur
heim, ráðskonan fellur fyrir þeim myndar-
manni og ástin blómstrar. Sonurinn er hins
vegar á öndverðum meiði við föðurinn í póli-
tíkinni og af því hlýst nokkurt drama.
2.vika: 27. maí-2.júni
Ég heiti Joe
Ken Loach (Carla’s Song, Raining Stones,
Riff Raff) leikstýrir myndinni Ég heiti Joe
sem verður sýnd í Háskólabíói á 2. viku Vor-
vinda. Joe (Peter Mullan) er alkóhólisti og
hefur verið edrú í 10 mánuði en þrátt fyrir
tilmaeli AA-samtakanna (um að forðast róm-
antík fyrsta árið eftir að meðferð er hafin) er
Joe ástfanginn af Söru (Louise Goodall). En
gamlar skuldir og vinir stofna nýjum lífsstíl
Joe í hættu.
3.vika: 3.-9. júní
Metroland
I þriðju viku Vor-
vinda verður myndin
Metroland í leikstjóm
Philip Saville frum-
sýnd í Háskólabíói.
Hún gerist snemma á 8. áratugnum og fjall-
ar um tilvistarkreppu Chris Bale eftir að
æskuvinur hans Tim kemur í heimsókn.
Rifjast þá upp fyrir Chris gömlu góðu dag-
arnir, þ.e. líf hans áður en hann varð auglýs-
ingamaður, giftist, átti barn og fluttist í út-
hverfi Lundúna. Tim þessi er enn fxjáls og
engum háður og freistar hann þess að fá
Chris til að leggja aftur á vit hins ljúfa lífs.
Myndin er byggð á skáldsögu Julian Barnes.
Eigin örlög
Eigin örlög, í leikstjórn Marshall Her-
skovitz, verður sýnd í Regnboganum. Mynd-
in gerist í Feneyjum á 16. öld og er byggð á
sannri sögu Veronicu Franco sem ákvað að
gerast heldur gleðikona yfirstéttarinnar en
að lifa í fátækt eða giftast öldruðum aðals-
manni.
Myiidlistarncinar sýna
Á réttri hillu
Tuttugasta ogfimmta vor-
sýning Myndlistaskólans
áAkureyri verðuropnuð á
laugardag. Sex nemendur
útskrifast.
Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri
mun opna tuttugustu og fimmtu
vorsýningu Myndlistaskólans á Ak-
ureyri á laugardag klukkan 14.00.
Tíu nemendur ljúka eins árs for-
námi frá listfræðsludeild og sex
þriggja ára námi í sérnámsdeild-
um, tveir úr fagurlistadeild, málun
og fjórir úr listhönnunardeild,
grafískri hönnun. Nemendur út-
skrifast úr sérnámsdeildum eftir
þriggja ára nám með því að vinna
íokaverkefni innan sérgreinarinn-
ar.
Nemendurnir sex sem nú út-
skrifast eru Anna Sigríður Hróð-
marsdóttir og Ragnhildur Magnús-
dóttir úr fagurlistadeild, málun, og
Bjarki Lúðvíksson, Guðrún Elfa
Skírnisdóttir, Ingi Þór Tryggvason
og Sölvi Hrafn Ingimundarson úr
listhönnunardeild, grafískri hönn-
un.
Dagur ræddi stuttlega við Önnu
Sigríði og Ragnhildi.
Anna Sigríður er leirkerasmiður og
segir að sig hafi alltaf langað til að
bæta myndlistarnáminu við. „Ég
ætlaði alltaf að fara í myndlistar-
skóla en dreif mig ekki fyrr en
núna. Þegar ég kom í skólann var
ég ekki ákveðin hvort ég færi í
málun eða grafíska hönnun en
bara á fyrstu tveimur vikunum féll
ég fyrir máluninni. Mér fannst
hún bara svo stórkostleg,” segir
Anna Sigríður og viðurkennir að
hún hafi hreinlega fundið sína
hillu í lífinu. Hún vonast til að
geta stundað leirkerasmíðina og
málunina samhliða og jafnvel
blandað þeim saman.
„Mér finnst þetta rosalega
spennandi og langar til að halda
þessu áfram,“ segir Ragnhildur
sem einnig útskrifast úr fagurlista-
deild með málun sem sérsvið.
„Maður verður bara að laga sig að
aðstæðum og ég sé ekki fram á að
fara að lifa af þessu strax. Ég á líka
eftir að læra svo mikið ennþá."
Allir eru velkomnir á sýninguna
til að kynna sér starfsemi skólans
og njóta þess að skoða úrval þeirra
verka sem nemendur hafa unnið í
vetur. Sýningin verður opin klukk-
an 14-18 á laugardag, sunnudag
og mánudag.
- Hl
Nemendurnir sex sem útskrifast frá Myndlistaskólanum á Akureyri á laugar-
dag. Aftari röð, f.v.iAnna Sigríður Hróðmarsdóttir, Ragnhildur Magnúsdóttir
og Guðrún Elfa Skírnisdóttir. Fremri röð, f.v.: ingi Þór Tryggvason, Bjarki
Lúðvíksson og Sölvi Hrafn Ingimundarson. mynd: brink
■UM HELGINA
Vorboðinn hrjúfi
um helgina
Það er
farið
að síga
á
seinni
hluta
tón-
leikaferðar KK, vorboðans
hijúfa, um landið. I kvöld
spilar hann ásamt KK-band-
inu á Krúsinni á Isafirði en
annað kvöld verður KK og
bandið komið til Flateyrar,
þar sem spilað verður á Vagn-
inum frá kl. 23 til 3 eftir mið-
nætti. A sunnudaginn
skemmtir KK svo Bolvíking-
um í Víkurbæ kl. 16 en held-
ur því næst til Suðureyrar þar
sem hann spilar í Félags-
heimili Súgfirðinga ld. 21.
Síðasta Púshkrn-
sýningin 1MÍR
MIR hefur undanfarnar vikur
sýnt rússneskar kvikmyndir
sem byggðar eru á verkum
skáldsins Alexanders Púshk-
ins en sú síðasta verður sýnd
í bíósal MÍR að Vatnsstíg 10
á mánudaginn, þ.e. annan í
hvítasunnu, kl. 15. Þá verður
sýnd kvikmyndin ,/Evintýrið
um Saltan keisara“ frá 7. ára-
tugnum. Leikstjóri er Alex-
ander Ptúshko en með aðal-
hlutverk fara Vladimir
Andrejev, Oleg Vidov, Larissa
Golubkina og Oksana Rja-
binkina. Ævintýrið segir frá
Saltan
keisara,
syni hans
Gvídon
fursta og
hinni
Tsarinu.
Enginn
texti verður á myndinni en
efnisútdrætti verður dreift til
bíógesta. Aðgangur er ókeypis
og eru böm sérstaklega vel-
komin.
ennþa...
Allra síðasta sýning verður á
Avaxtakörfunni í Óperunni á
morgun kl. 14 en þetta gríðar-
lega vinsæla íslenska barna-
leikrit verður ekki tekið aftur
upp í haust...
Það er síðasta sýningar-
helgi á þremur sýningum á
Kjarvalsstöðum um helgina,
Kjarvalssýningunni Af trön-
um meistarans, ljósmynda-
sýningu Spessa af íslenskum
bensínstöðvum og alþjóðleg:: i
hönnunarsýningunni á hönn
un Jaspers Morrison, Marc
Newson og Michael
Young...
Yfirlitssýningin á verkum
Magnúsar A. Arnasonar í
Gerðarsafni í Kópavogi stend-
ur enn en hann mun hafa
verið fyrstur Islendinga til að
nema myndlist í Bandaríkjun-
um (árið 1918). A sýningunni
eru m.a. táknsæjar smámynd-
ir úr gifsi, höggmyndir úr mó-
bergi og portrett af skáldum.
S________________________/