Dagur - 21.05.1999, Síða 11

Dagur - 21.05.1999, Síða 11
FÖSTUDAGVR 21. MAÍ 1999 - 27 LÍFIÐ í LANDINU VEÐUR k j • Lélegir rennilásar eru eitt helsta trix fataframleið- enda til að við- halda stöðugu söluferli. Al- gengt er að traustum og nánast óslitnum fatnaði sé lagt af því að rennilás gefur sig miklu fyrr en flíkin. Þetta er örugglega með vilja gert og engin tilviljun, þvi auðvitað á endingartími renniláss að vera svipaður og þess fatnaðar sem hann til- heyrir. • Meinhyrning- ur horfir áhyggjufullur fram á sumarið þar sem leikir í efstu deild karla í knattspyrn- unni munu verða í beinni útsendingu á stöð sem næst alls ekki um allt land. Nær væri að sýna þessa íþrótt allra Iandsmanna í sjónvarpi allra landsmanna. Að auki, eins og sést hér í klaus- unni, neitar meinhyrningur eins og Bjarni Felixsson að nota hin ýmsu orðskrípi sem deildakeppnir í boltaíþróttum hafa fengið fyrir tilstilli ýmissa stórfýrirtækja. Efsta deild hefði átt að heita 1. deild eða úrvalsdeild en ekki deild með nafn fyrir- tækis á undan. I R FOLKSINS ÞúÞór bifreiðar- innar BJÖRN FINNSSON SKRIFAR Þú bílaguðinn sem ökumenn nútímas tigna með því að aka sem óðir séu um mjóslegna bifreiðastíga samfélagsins, svo sem þú gerðir við vagn hafra þinna um ómælisvíddir himinsins. Þú sem umluktir andrúmsloftið með brenni- steinsstækju eldinganna og hljóðmeng- un þrumunnar, þú sem lést hamarinn falla á allt það er þér var skapi mót. Tókst þú tillit til annarar umferðar eða mannfólksins. Nei, þér var það heilagt að hafa frelsi til að tortíma óvinum þínum, sitja í eig- in gleði yfir óförum umheimsins. Þú varðir þitt ættfólk af afli er tæki og tól fólu þér, án þerrra varðstu æði smár og bjargarlaus. Svo er líka í dag um dýrk- endur þína og afkomendur er þeysast um í járnvögnum sínum, troðast um heiminn sem væru þeir einir. Þeir æða um með hávaða og útblástursmengun, út\'arps- og hljómflutningstæki stillt svo hátt að vel heyrist í 5-600 metra fjar- lægð, blaðrandi í farsíma, leggjandi vögnum sínum sem væru þeir einir í heiminum til þess að komast sem fyrst að veisluborðum hafurkjötsins. En munur er á, þeir eru bara að berj- ast hver fyrir sig en ekki ættbálkinn all- an sem þú þó gjörðir. Þessir þínir af- komendur falla í stafi er finnast hrað- skreiðari og stærri eiturspúandi hávaða- vagnar sem mögulegt er að nota til að spilla friðsömu lífi. A gúmbelgjum goð- anna hrekja þeir saklaust mannkynið út í ragnarök er tortíma öllu sem eðliiegt getur talist í sambúð ættflokks eða kyn- flokks. Þeir munu sjálfir, svo sem goð þeirra þurfa að berjast, vita þó sem þið að þeir munu farast. Það kannski helst vegna æðisins í þessari veröld. Hver skipti kyni til þess eins að ná aft- ur morðtóli sínu? Til hvers eru afkom- endur þínir líklegir, til að heimta eyð- ingartól sín? Víst er að ökuÞORAR nú- tímans taka álíka mikið tillit til um- hverfis og atferlis þeirra sem kringum þá eru og Þú mikli þrumuguð. Hafur- vagnar nútímans eru hávaðatól og í stað hamars þfns til þrumu og eldingagerðar, hafa menn búið vagnana öllum þeim tækjum sem trufla mega umhverfið og menga. Enda öll athygli afkomendanna á tækjadraslinu. Því er engin furða að slóð eyðileggingar og slysa sé eftir þá, svo var víst einnig um þig. Menn spenna megingjarðir og setja upp járnglófa, halda svo í umferðina til- búnir í hvaða bardaga sem verða vill. Af tólum þessum eru þó megingjarðir það eina vitræna við atferlið því þær halda mönnum á réttum stað. Slík og þvílík eftiröpun guðagjörða er ekki á mannanna færi og því skyldu þeir hægja á sér í tilveruhlaupinu, aga sig betur til að Iifa í samfélagi með öðrum. Að ákalla guði og apa þeim eftir ætla sér bara, innra heftir. Þór, aga þína þursa og menn þrælana alla sem eignast þií senn. Stj ómmálamaðuriim ÁSLAUG JENSDÓTTIR í REYKJAVÍK SKRIFAR í TILEFNI NÝAFSTAÐINNA KOSNINGA: Stjórnmálamaður þitt starf er ei létt, styrkur þinn felst í að meta það rétt, hvað sæmd þín og sjálfsi’irðing býður. Að minnka af störfum er mannráunin stærst, ef manndómur vex þá ber sigurinn hæst, livað sem kosningakapphlaupi líður. Strandgötu 31, 600, Akureyri Þverholti 14,105 Reykjavík Sími umsjónarmanns iesendasiðu: 460 6122 Netfang: ritstjori@dagur.is Símbréf: 460 6171/551 6270 Óskað er eftir að bréf til blaðsins séu að jafnaði hálf til ein vélrituð blaðsiða, 1000-1200 tölvuslög. Dagur áskilur sér rétt til að stytta lengri bréf. Leiðrétt vegna sýning- ar á Brúðkaupi Fígarós í umfjöllun um uppfærslu óperu- deildar Tónlistarskólans á Akur- eyri á Brúðkaupi Fígarós var rangt farið með nafn annars aðalsöng\'- arans. Sá sem söng hlutverk Fíg- arós á fyrri frumsýningunni á mið- vikudagskvöld heitir Valdimar Haukur Hilmarsson og er hann hér með beðinn afsökunar á mis- tökunum. Þá skal og áréttað að þar sem söngvarar skiptast á um að syngja stærsu hlutverkin er um tvær frumsýningar að ræða og var hin seinni í gærkvöld klukkan 20.00. - Hl Veðríð í dag... Norðan kaldi eða stiimingskaldi norðan og vestanlands, en hægari suðaustantil. Rigning eða skúrir og liiti 2-10 stig, svalast á Vestfjörðum. Blönduós Akureyri mn ..LC) mm -io : 10- -5 ! 5- /VI Á ; ■ r -0 0- -■■-»1 —■ Fim Fös Mán Þri Mið Fim Ffts V/ /V í i Þn Mið ^ í v/-; í\ / ; • Reykjavík ' l ^ í i r\ _/ íK / t ffs/'f/ Kirkjubæjarklaustur _E™ „ I .„£SL -5 0- Fim Fös Þri Mið Fim Ffts Þri Mið Stykkishólmur / i / ^ ; Stórhöfði Veðurspárit 20.05.1999 Línurit: Lofthiti, spágildi fyrir miðnætti og hádegi. Súlurit: Úrkoma, uppsöfnuð i 12 klst. Vindörvar: Vindur blæs inn að punkti. Vindhraði er táknaður með skástrikum; heilt strik táknar 5 m/s en hálft 2.5 m/s. Þríhyrningur táknar 25 m/s. k Dæmi: • táknar norðvestanátt, 7.5 m/s. Færð á vegiun Vegurinn um Lyngdalsheiði, Gjábakkavegur, er opinn og er sjö tonna öxulþungi á veginum. A Grafningsvegi eru vegaframkvæmtfir og er öxulþungi þar sjö tonn og vegur þar mjög grófur. Á Meðalfellsvegi eru einnig vegaframkvæmdir og mega vegfarendur búast við ein- hverjum töfum af þeim sölcum. Vegir á hálendi landsins eru lokaðir lyrst um sinn vegna aurbleytu. Isólfsskála- vegur milli foýsuvíkur og Grindavíkur er enn lokaður. Annars er greiðfært um helstu þjóðvegi landsins en vegna aurbleytu hefur öxulþungi verið Fækkaður og er það kynnt með merkjum við viðkomandi vegi.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.