Dagur - 21.05.1999, Blaðsíða 4

Dagur - 21.05.1999, Blaðsíða 4
4 — FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 19 9 9 LANDB ÚNAÐUR Sterkar rúllu- bmdivélar John Deere framleiðir rúllu- bindivélar bæði fyrir fasta baggastærð og breytilega baggastærð. Þór hf. er með á lager rúllubindivélar fyrir fasta baggastærð og flytur hina gerðina inn eftir pönt- unum. Rúllubindivél frá John Deere fyrir fasta baggastærð. „Þessar vélar hafa vakið mikla athygli erlendis fyrir tvennt. I fyrsta lagi fyrir það hversu sterkbyggðar þær eru og í öðru lagi hversu þétta bagga þær gefa,“ segir Oddur Einarsson hjá Þór hf. „Þeir nota 17 kefli í vél- arnar á meðan aðrir nota kannski 14 kefli. Þá ná þeir að halda betri þrýstingi í bagganum. Þá er mjög auð- velt að Iosa stíflur úr vél- inni. Þetta er eina vélin þar sem hægt er að Iosa stíflu við mötun án þess að fara Rúllubindivél frá John Deere fyrir breytilega baggastærð. niður úr dráttarvélinni. Með einum takka úr traktorssæt- inu er hægt að láta bindivél- ina ryðja tuggunni út úr sér. Verktakar erlendis hafa sótt mjög í þessa vél, enda er hún mjög afkastamikil. Við byrjuðum að selja nokkrar vélar í fyrra til prufu og kynningar en núna í ár er fyrsta árið sem við förum af stað með þessar vélar af fullum krafti. Við reiknum með að þessar vél- ar verði mjög vinsælar því John Deere er ákaflega sterkur framleiðandi sem hefur Iagt mikinn metnað í að þróa þessar vélar. -OHR Deutz- Fahrmeð nýjalínu „Við erum með nýja Iínu af rúllubindivélum frá Deutz- Fahr, mjög skemmtilega og spennandi línu þar sem þeir eru að ganga skrefinu lengra en þeir hafa verið. Þær eru meira flokkaðar niður í afkastamiklar vélar og dýrari og hins vegar ódýr- ari vélar sem henta þeim sem nota vélarnar minna, tvo eða þrjá verðflokka.“ -OHR Dagbækur úr sveitinni ■: itl ÍSLENSKUR LANDBÚNAOUR H msóKiH Heimsókn I sveitiha VmmnFmuit EFSTÁBAUGI Æv STOFKANIR B ÚCREINAR B ÚtEKSTUR í t>JÓHUSTA 1 SlJÓRNIR OG STARFSM. Heimsókn í sveitiiia íBógarÖwr R'cntlur bjððci hcím Fcröujijónusta Ivcnda |Fra£5e»l ucfni Ref i *r Svvilaheitmíiknir ktrna Vistforcldntr Leit Leidbeiningar * XmMvÆ i m biðuitCTA j nr. ctadcc Dagbók Þórisstaðabænda Mánudagur, 17. maí 1999 Halló krakkar! Þá eru fyrstu skólarnir búnir aö koma í heimsókn. Þeir komu á föstudag og laugardag og svo fáum við heimsóknir nær alla daga næstu 2- 3 vikurnar. Fyrst skoðuðu krakkarnir lömbin. Þau fengu að lykta af þeim, strjúka þeim og sum fengu líka að halda á þeim. Lambakóngurinn, hann Hrói höttur, er þó orðinn dálítið þungur enda orðinn mánaðargamall. Síðan fóru krakkarnir í fjósið. Þar gilda tvær reglur. Það má ekki hlaupa og ekki hafa hátt. Úr fjósinu fóru þau svo í mjaltabásinn þar sem kýmar eru mjólkaðar og þar heilsuðu þau líka uppá yngstu kál- fana. Þar er meðal annars nautkálfurinn hennar Blíðu sem við sögðum ykkur frá síðast. Nú, úr fjósinu lá leiðin i hlöðuna og þar var nú fjör þegar allir fóru að hoppa í heyinu. Krakkarnir fóru í tvöfalda röð og allir fengu að stökk- va að minnsta kosti tvö stökk. Þegar allir voru búnir að sletta úr klaufunum í heyinu (meira að segja líka rútubílstjórinn) fórum við í vélageymsluna og skoðuðum vélarnar og verkstæðið. Að lokum fóru svo allir inní skóg og borðuðu nestið sitt. Þeir sem ekki komu með drykk með sér fengu mjólk eins og viö drekkum í sveitin- ni en það er mjólk sem hvorki er búið að gerilsneyða né fitusprengja í mjólkurbúi og hefur því aldrei komið í fernu. Eftir nestistímann fóru krakkarnir svo að leika sér í skóginum og þar um kring. Sum fóru að hitta dýrin aftur, klappa hestunum, reyna að ná köttunum eða kíkja á hanana. Svo voru krakkarnir mjög dugleg við að hjálpa okkur að tína rusl úr skóginum eftir veturinn, einkum brot- nar trjágreinar. Loks fóru allir aftur í rútuna og héldu heimleiðis með smá gjöf meðferðis til minningar um komuna í sveitina. Bestu kveðjur, Þórisstaðabændur Á Netinu er m.a. að finna dagbækur Búgarðsins á Þórisstöðum í Eyjafirði. ÁNetinu erm.a. að finna dagbækurBú- garðsins á Þórisstöð- um íEyjafirði. íþeim er sagt frá daglegum störfum í sveitinni, sagtfrá dýrunum á bú- inu ogþví sem um er að vera. Dagbókunum er sérstaklega beint til bama á leikskóla- og gmnnskólaaldri. Hug- myndin á bak við þetta kemurfráframsýnum bændum sem vilja koma upplýsingum á framfæri um það hvemig sveitin er í raun og vem, til mót- vægis við þá ímynd sem Ómar Ragnarsson og Ragnar Axelsson hafa mótað með svip- myndum sínum aflit- ríkum persónum. „Þessu er sérstaklega beint til ungu kynslóðarinnar og í raun og veru er þetta sett upp sem til- raunaverkefni. Við erum í sam- starfi við Upplýsingaþjónustu landbúnaðarins. Það er hluti af verkefni sem hefur staðið sam- fellt í áratug, einkum í kringum höfuðborgarsvæðið. Það eru skipulagðar heimsóknir leik- skóla- og grunnskólabarna í sveitina á vorin. Við byrjuðum í þessu þegar við bjuggum suður á Kjalarnesi á þessum tíma en við erum búin að vera búsett hér fyr- ir norðan í sjö ár og vorum með í fyrsta skipti í fyrra og vorum þá fyrsta norðlenska búið,“ segir Stefán Tryggvason bóndi á Þóris- stöðum í Eyjafirði. Hann segir þetta kannski helst tilkomið vegna áhuga hans á að þróa þetta starf áfram og þróa nýjar leiðir í að koma upplýsing- um um sveitina á framfæri. „Þá vildi ég prófa að koma með þetta á dagbókarformi inn á vefinn. Við höfum bara kynnt þetta fyrir skólunum hér á Eyjafjarðarsvæð- inu í bréfi, en auðvitað eiga allir kost á að sjá þetta á Netinu, það er öllum opið. Hugmyndafræðin á bak við þetta er annars vegar sú að geta undirbúið krakkana sem koma í heimsókn til okkar í vor og hins vegar fyrsti vísir að því að koma einhverjum gagnvirkum samskipt- um á. Þau samskipti þurfa í fram- tíðinni ekkert endilega að vera bundin við þessar heimsóknir heldur geta verið í því formi að upplýsingar beint frá bóndanum eru nýttar í skólunum til að vinna samfélagsverkefni. Yfir vetrartím- ann gæti það verið liður í þessu að bóndinn komi í skólana sjálfur á einhveiju stigi málsins, þó hitt sé auðvitað mjög mikilvægt líka að börnin komi til okkar.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.